Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Glæsilegur 48 síðna blaðauki um heimili og hönnun fylgir Morgunblaðinu á morgun. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÞRÍR yfirmenn lögreglunnar í Talla- hassee í Flórída eru nú í tíu daga heimsókn hjá Lögreglu höfuðborg- arsvæðisins. Tilgangur heimsókn- arinnar er að skiptast á upplýsingum og veita ráðgjöf um ýmis atriði lög- gæslumála. Á mánudag og þriðjudag í næstu viku verður m.a. haldin æfing í mannfjöldastjórnun á Keflavík- urflugvelli. Þátttakendur í æfingunni verða lögreglumenn víða að af land- inu og úr mörgum deildum lögregl- unnar. Greg Frost hafði orð fyrir sendi- nefndinni og sagði yfirmenn Lög- reglu höfuðborgarsvæðisins hafa lýst áhuga sínum á að kynnast betur tveimur áætlunum sem lögreglan í Tallahasse vinnur nú eftir. Annars vegar er um að ræða áætlun um sam- félagslegar lausnir varðandi lög- gæslu og lausn aðsteðjandi vanda- mála. Greg Frost sagði að þá væri lögð áhersla á að eiga samstarf við borgarana og viðskiptalífið og að nýta samfélagslegar bjargir til að bæta öryggi almennings. Mark Wheeler er í hópi gestanna en hann er yfirmaður sérstakrar deildar lög- reglunnar í Tallahasse sem fæst við samfélagslegar lausnir. Lögregla höfuðborgarsvæðisins óskaði einnig eftir því að fá í heim- sókn háttsetta lögreglukonu sem gæti miðlað stallsystrum sínum hér á landi af reynslu sinni sem lög- reglukona í Bandaríkjunum. Því er Taltha White, sérfræðingur lögregl- unnar í Tallahasse í mannfjölda- stjórnun, með í för. Alþjóðlegt vottunarkerfi lögreglu Greg Frost kvaðst einnig vera kominn til að kynna lögreglunni al- þjóðlegt vottunarkerfi, CALEA, fyr- ir lögregluembætti. Lögreglan í Tallahasse fékk vottun CALEA 1986 og var meðal fyrstu lögregluemb- ætta í Bandaríkjunum til að fá slíka vottun. Greg Frost sagði að vott- unarferlið væri mjög viðamikið og víðtækt. Vottuð lögregluembætti verða að fylgja stöðlum og uppfylla skilyrði CALEA. Staðlarnir ná yfir flest svið lögreglunnar, allt frá hlut- verki lögreglustjórans til þess hvern- ig valdi lögreglunnar er beitt og skýrslur fylltar út svo dæmi séu tek- in. Vottunin tekur hins vegar ekki til stefnumótunar lögregluembætta. Frost kvaðst hafa komið fyrst til Reykjavíkur árið 2000 og kynnst þá lögreglunni í Reykjavík. Hann kvaðst telja embættið mjög vel rekið og því vel stjórnað. Það væri gott veganesti vildi embættið sækjast eft- ir vottun en mönnum þyrfti að vera ljóst að vottunarferlið krefðist mik- illar vinnu. Samstarf lögreglu og borgaranna Mark Wheeler, sem m.a. er yf- irmaður öryggis- og greining- ardeildar lögreglunnar í Tallahasse, sagði að í samfélagslöggæslu fælust nokkur lykilatriði. Aðalatriðið væri að reka skynsamlega löggæslu. Í því felst m.a. að laga vinnu lögreglunnar að raunverulegri þörf á hverjum tíma og stað. Einnig að lögreglan bregðist einungis við þeim beiðnum eða út- köllum, sem hún getur ein sinnt, en beini öðrum útköllum eða beiðnum um aðstoð til viðeigandi embætta eða stofnana. Mark Wheeler sagði að í heimalandi hans hringdi fólk í lög- regluna vegna ýmissa vandamála sem ekki væri í verkahring hennar að leysa. Mark Wheeler sagði borgarana yf- irleitt vilja veita tilteknum málum forgang. Því þyrfti að hafa þá með í ráðum varðandi löggæslu. Sumir gætu t.d. sætt sig við veggjakrot en ekki við hraðakstur eða hávaða. Þá þyrfti að taka á því. Einnig þyrfti samvinnu lögreglu og t.d. eigenda veitingahúsa og annarra fyrirtækja til að taka á vandamálum áþekkum þeim sem komið hafa upp í miðborg Reykjavíkur. Lögreglukonur beita samskiptatækni Taltha White sagði að sér heyrðist að reynsla íslenskra og bandarískra lögreglukvenna væri svipuð. Hún hefði fengið athugasemdir og orðið vör við neikvæða framkomu, einkum frá eldri karlkyns lögreglumönnum, þegar hún kom til starfa fyrir 20 ár- um. Þeir töldu sig vera að grínast en henni þótti þessi framkoma erfið. Henni finnst ástandið lítið hafa breyst í áranna rás. Taltha mun funda sérstaklega með íslenskum lögreglukonum meðan á dvöl hennar stendur. Taltha White sagði konur þurfa að beita samskiptatækni í stað líkams- burða í samskiptum við ætlaða brota- menn. Oftast gæfist það vel, því karl- arnir vildu yfirleitt ekki slást við konu. Konur víluðu síður fyrir sér en karlar að slá til lögreglukvenna. Taltha sagði það gefast vel að tala brotamenn til og fá þá til að lúta valdi lögreglunnar. Þeir játuðu frekar af- brot ef ekki þyrfti að beita þá líkams- afli. Áður var sjálfkrafa kallað eftir kvenlögreglu til að sinna kvenkyns- fórnarlömbum nauðgana. Taltha White sagði það ekki lengur gert. Sá sem er fljótastur á staðinn fer, en ef fórnarlambið biður um aðstoð kven- lögreglu þá er orðið við því. Hún sagði sérhæfða ráðgjafa fórnarlamba starfa hjá lögreglunni í Tallahassee og skrifstofu saksóknara. Þeir væru lærðir félagsráðgjafar og veittu fórn- arlömbum afbrota margs konar að- stoð og hagnýta ráðgjöf. Einnig veittu ráðgjafarnir upplýsingar um rannsókn mála og önnuðust sam- skipti við lögregluna. Æfa mannfjöldastjórnun Morgunblaðið/Júlíus Lögreglusamvinna F.v.: Taltha White, Mark Wheeler og Greg Frost frá lögreglunni í Tallahasse í Flórída og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins, taka þátt í samvinnu embættanna. Yfirmenn lögregl- unnar í Tallahasse heimsækja lög- regluna hér Í HNOTSKURN »Lögreglan í Reykjavík ogLögreglan í Tallahassee, höfuðborg Flórída, hafa átt samstarf frá árinu 1993. »Upphaf samstarfsins márekja til fundar Haralds Johannessen, þáverandi fang- elsismálastjóra, og Hilmars S. Skagfield aðalræðismanns með Melvin L. Tucker, þáver- andi lögreglustjóra í Tallahas- see. »Samstarfið felst m.a. íkynnisferðum lögreglu- manna og miðlun upplýsinga. »Lögregla höfuðborg-arsvæðisins hefur til að mynda tekið upp hálfsmán- aðarlega stöðufundi, líkt og gert er í Tallahassee, þar sem farið er yfir stöðu ýmissa Í TILEFNI alþjóðadags grasrót- arhreyfinga gegn stóriðju heim- sóttu tveir fulltrúar hreyfingar- innar Saving Iceland Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráð- herra í gær og afhentu henni áskor- un um að gera grein fyrir afstöðu sinni til stóriðju og einkum til virkj- ana í neðri hluta Þjórsár. Í áskor- uninni er m.a. lýst vonbrigðum með „hve lítið hefur heyrst frá þér um stóriðju á Íslandi eftir að þú tókst við embætti og óskum eftir því að þú gerir þjóðinni grein fyrir af- stöðu þinni í þeim efnum.“ Þeir sem stóðu að þessum al- þjóðlega mótmæladegi eru m.a. Saving Iceland, Rise Against í Trinidad, Earthlife Africa í S- Afríku, Alcan’t í Indlandi, Move- ment of Dam Affected People í Brasilíu og Community Alliance for Positive Solutions í Ástralíu. Vilja svör ráðherra LANDSSÖFNUN Kiwanis-hreyf- ingarinnar til stuðnings geð- sjúkum og að- standendum þeirra fer fram dagana 4.-7. október nk. Kjörorð söfnunarinnar er Lykill að lífi og er hún haldin í tengslum við alþjóðlega geðheil- brigðisdaginn 10. október. Ágóði landssöfnunarinnar að þessu sinni rennur til Geðhjálpar, BUGL og Forma. Kiwanis-hreyf- ingin leitar sem fyrr til fjölda fyrir- tækja og einstaklinga í von um að þau leggi söfnuninni lið. Lykill að lífi – landssöfnun HÁTÍÐARSAMKOMA verður í dag, fimmtudaginn 13. sept., kl. 14 í há- tíðarsal Háskóla Íslands vegna 10 ára afmælis Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala. Þar munu þrír ný- útskrifaðir doktorar flytja fyrir- lestra auk eins hjúkrunarfræðings, sem er langt kominn í doktorsnámi. Herdís Sveinsdóttir, prófessor og stjórnarformaður Rannsóknastofn- unar í hjúkrunarfræði, flytur ávarp í upphafi samkomunnar. Þóra Jenný Gunnarsdóttir fjallar um rannsóknir á óhefðbundnum með- ferðum – tilfellarannsóknir. Árún K. Sigurðardóttir fjallar um sjálfs- umönnun fólks með sykursýki. Helga Sif Friðjónsdóttir fjallar um ofneyslu áfengis meðal unglinga og forvarnir. Elísabet Hjörleifsdóttir greinir frá rannsóknum á krabba- meinssjúklingum í lyfja- og geisla- meðferð, tvær rannsóknaraðferðir. Fyrirlestrar í hjúkrunarfræðum HRAÐSKÁK- MÓT Íslands, Stórmót Kaup- þings og Spari- sjóðs Bolungar- víkur, hefst í Íþróttamiðstöð- inni Árbæ í Bol- ungarvík kl. 13 á laugardag. Búist er við ýmsum af bestu skákmeisturum landsins. Fjölbreytt verðlaun eru í boði. Mót- ið er öllum opið og tefldar verða 5 mínútna skákir, 20 umferðir alls. Forseti Skáksambandsins og skákmeistarar heimsækja grunn- skólann í þessu tilefni. Grímur Atla- son bæjarstjóri ætlar að troða upp ásamt félögum í fagnaði í Kjallar- anum að mótinu loknu. Réttir verða sama dag og skákmótið. Á sunnudag kl. 10-15 fer fram op- ið golfmót í Bolungarvík. Allir sem eru með á skákmótinu fá frítt inn á golfmótið. Skráning í tölvupósti eða í síma 568 9141. Skák, réttir og golf í Bolungarvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.