Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er víst liðin tíð að það nægi að kalla til meindýraeyðinn.
Reglugerðafargan og samræming-arárátta hafa reynst andstæð-
ingum Evrópusambandsins drjúg
uppspretta aðfinnsluefna. Stundum
er þó hægt að snúa fleyinu við áður
en það rekst á ísjakann, sem sann-
aðist í vikunni þegar ákveðið var að
þótt styðjast ætti við metrakerfið í
ríkjum Evrópusambandsins mættu
Bretar og Írar áfram nota mæliein-
ingarnar mílur, únsur og hálfpott
eða „pint“.
Fyrirhugaðhafði verið
að Bretar og Ír-
ar losuðu sig við
mælikerfið sitt í
lok næsta árs
og skiptu yfir í
metrakerfið.
Þessi fyrirætlan
varð vatn á myllu andstæðinga Evr-
ópusambandsins á Bretlandi, sem
hafa þrotlaust pundað á ESB til að
stöðva hana.
Háværust hefur gagnrýnin verið íbreskum dagblöðum á borð við
The Sun, sem fagnaði í gær þessum
lyktum ágreiningsins eftir áratuga
reiptog milli London og Brussel.
Meira að segja hefur komið tildómsmáls vegna ágreiningsins
um mælikerfin. Breskur grænmet-
issali, Steve Thoburn, fékk við-
urnefnið „píslarvottur metrakerf-
isins“ þegar hann var kærður og
dæmdur fyrir að nota pund og únsur
í stað kílóa þegar hann vigtaði græn-
metið fyrir viðskiptavini sína. Thob-
urn lést nokkrum dögum eftir að
hann frétti að áfrýjun málsins til Evr-
ópudómstólsins hefði verið hafnað.
Günter Verheugen, sem fer meðviðskiptamál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, sagði að
ákvörðunin sýndi að ESB „bæri virð-
ingu fyrir menningu og hefðum
Stóra-Bretlands og Írlands“.
Rétt eins og ákvörðunin hefði verið
tekin án nokkurs aðdraganda.
STAKSTEINAR
Steve Thoburn var
kallaður „píslarvott-
ur metrakerfisins“.
Pundað á ESB
VEÐUR
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"
:
*$;<
!
!"#
$$ "%&
' ()"
*!
$$; *!
#
$ %!
$!
&
'!
"
('
=2
=! =2
=! =2
#
&!% )
*+,' -
>$ -
*
*
!
+
,
-
. "
# ("
/
- !-
. */ "0-
)(+*/ ,"
1 "
=7
*!
2
*/ )
"3*/
$$ "
4+ (5-
."12 5
"
./ '00
'!"1 '
,"')
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2 2
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jakob Smári | 11. september
Ofmetnasti tónlista-
maðurinn
Sumir eru vanmetnir
en aðrir vissulega of-
metnir. Ég ætla að
hleypa af stokkunum
smá skoðanakönnun
hér á síðunni undir yf-
irskriftinni: „Ofmetn-
asti tónlistarmaður sögunnar“. Ég
hef ákveðnar hugmyndir um kandí-
data en óska eftir hugmyndum.
Nefnið nú endilega það fólk eða
hljómsveitir sem þið teljið vera of-
metin.
Meira: jakobsmagg.blog.is
Pálmi Gunnarsson | 11. september
Nú fer ég að safna liði
Getur verið að þræls-
lundin sé svo gróin inní
genin okkar, að við
beygjum okkur ómeð-
vitað í hnjánum og
bjóðum botninn ef
valta á yfir okkur?
Hvar er allt góðærið, sem verið er að
auglýsa svo grimmt? Skyldi ham-
ingjusamasta þjóð í heimi vera svona
hamingjusöm vegna þess að megnið
af öllu því sem hún telur sig eiga er í
eigu fjármálastofnana í fjandans
nafni?
Meira: palmig.blog.is
Rúnar Már Bragason | 12. september
… plötur og bækur á
netinu
Í dag er ekki sama til-
finning að koma inn í
plötubúð. Ég verð allt-
af jafn villtur þegar ég
stíg inn í Skífuna og
finn ekki neitt. Hrein-
lega veit ekki að hverju
ég er að leita. Hef reyndar ekki
komið inn í 12 tóna en kannski þeir
gætu rifjað upp þessa gömlu tilfinn-
ingu.
Svipaða sögu er að segja um bóka-
búðir …
Meira: hughrif.blog.is
Ragnar Freyr Ingvarsson | 11. sept.
Hreindýrabollur með
spínatkartöflumús
og villisósu
Aftur á faraldsfæti.
Núna liggur leiðin til
Lissabon í Portúgal
þar sem ég og kollegi
minn erum á leið á
námskeið í lyflækn-
ingum. Þetta er vik-
unámskeið þar sem fjallað verður
um heilmargt sem snýr að lyflækn-
ingum.
Þetta er í tíunda sinn sem þessi
námstefna er haldin og mun hún
vera afar góð. …
Fékk foreldra mína, bróður minn
og tengdaforeldra í mat í gær-
kvöldi. Bróðir minn hafði óskað eft-
ir því að eitthvað sérstaklega gott
yrði á borðum.
Þetta er ný uppskrift að bollum.
Ég hef áður sett hreindýrabollu-
uppskrift á netið sem var líka afar
ljúffeng. Alveg þess virði að gera
aftur en mig langaði til að reyna
eitthvað nýtt – þannig að þessar
bollur voru afraksturinn. Það er lít-
ið mál að nota annað kjöt en ég
nota – hreindýrakjöt er kannski
ekki eitthvað sem allir eru með í
frystinum.
Ég hugsa að það væri vandræða-
laust að nota gott nautahakk í stað-
inn, efast um að nokkur myndi
steyta hnefa vegna þess.
1,5 kg af hreindýrahakki er lagt í
skál. Út í það er hrært 1 smátt
skornum rauðlauk, 1 smátt skorn-
um skarlottulauk, 5 krömdum hvít-
lauksrifjum, ½ búnti af smátt skor-
inni salvíu, steinselju og
garðablóðbergi. Tveimur eggjum
var bætt saman við, 6 mjólk-
urbleyttum brauðsneiðum, 5 msk.
af muldum valhnetum og ríkulega
af salti og pipar. Þetta var svo
hnoðað vel saman og látið standa í 2
klst. Kjötið var svo klipið niður í
golfboltastórar bollur sem steiktar
eru á pönnu í skamma stund, þá er
þeim raðað í eldfast mót og settar
inn í 180° heitan ofn í 20 mínútur.
Kartöflumúsin var einföld: 1,5 kg
af kartöflum flysjaðar og soðnar
eins og vant er. Þegar þær eru til-
búnar er vatninu hellt frá og þær
stappaðar niður. Bætti við salti,
pipar, 2 msk. sykri, nokkrum sneið-
um af gullosti, u.þ.b. 100 ml af
mjólk/matreiðslurjóma.
Meira: ragnarfreyr.blog.is
BLOG.IS