Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 12

Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í ÁGÚST veiddu íslenzk skip rúm- lega 30.000 tonn af norsk-íslenzkri síld, þar af voru rúmlega 27.000 tonn veidd á íslenzku hafsvæði og tæplega 3.000 tonn á alþjóðlegu hafsvæði. Alls hafa verið veidd rúmlega 115.000 tonn af norsk- íslenzkri síld það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra var heildar- aflinn orðinn um 91.000 tonn. Fjórðungi meira en í fyrra Það hefur því verið veitt rétt rúmlega 26% meira af norsk-ís- lenzkri síld í ár en á sama tíma í fyrra. Af síldarafla ársins hafa rétt tæplega 104.000 tonn verið veidd á íslenzku hafsvæði eða rúmlega 90% aflans. Aldrei hefur jafnmikið verið veitt af norsk-íslenzku síld- inni innan lögsögu og nú frá því á „ævintýraárunum“, sem liðu undir lok seinnihluta sjöunda áratugar- ins. Á síðustu tveimur árum veidd- ust ríflega 40.000 tonn af norsk- íslenzku síldinni innan lögsögu hvort ár. Kvóti á norsk-íslenzku síldinni er tvenns konar. Annars vegar er kvóti, sem taka má að heita alls staðar utan lögsögu Noregs. Þar er heildarafli 148.600 tonn. Hins vegar er kvóti innan lögsögu Nor- egs. Þar er leyfilegur heildarafli 34.560 tonn. Engar veiðar hafa verið tilkynntar til Fiskistofu úr þeim kvóta. Gert er ráð fyrir því að frystiskipin haldi fljótlega til veiða innan lögsögu Noregs en á haustin er síldin mjög feit og því verðmæt til frystingar á markaði í austanverðri Evrópu. Í vikunni var landað 200 tonnum af síld úr fær- eyska skipinu Finni fríða, en skip- ið var dregið til hafnar á Fá- skrúðsfirði eftir að það hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna. Var það annað færeyskt skip sem dró það. Síldin, sem var stór og leit vel út, fór til vinnslu, stærsta síldin í frost og annað var saltað. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hefur alls 85.500 tonnum af norsk-ís- lenzku síldinni verið landað til bræðslu hér á landi, þar af um 3.000 tonnum af erlendum skipum. Um 34.000 tonn hafa farið til manneldisvinnslu. Mestu hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, 30.000 tonnum. Næst kemur Hrað- frystistöð Þórshafnar með 18.600 tonn. Ríflega 10.000 tonnum hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni á Seyðisfirði og nær sama magni hjá Eskju á Eskifirði. 8.900 tonnum hefur verið landað hjá Vinnslu- stöðinni í Vestmannaeyjum og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur tekið á móti ríflega 5.000 tonnum. Kvótinn aldrei meiri Enginn afli hefur enn verið til- kynntur til Fiskistofu úr íslenzku sumargotssíldinni, en þar er nú leyfilegur heildarafli ríflega 150.000 tonn og hefur aldrei verið meiri. Makrílaflinn í nýliðnum mánuði var 14.228 tonn, kolmunnaaflinn var 4.997 tonn og úthafskarfaafl- inn var 30 tonn og var þessi afli nær allur veiddur á íslensku haf- svæði. Næstum öll síldin nú veidd innan íslenzku lögsögunnar Morgunblaðið/Albert Kemp Veiðar Síldin fryst á Fáskrúðsfirði. Veiðar úr norsk-íslenzka stofninum eru nú mun meiri en á sama tíma í fyrra. Í HNOTSKURN » Rétt rúmlega 26% meiraaf norsk-íslenzkri síld hef- ur verið veitt í ár en á sama tíma í fyrra. »Aldrei hefur jafnmikiðverið veitt af norsk- íslenzku síldinni innan lög- sögu og nú frá því á „æv- intýraárunum“, sem liðu undir lok seinnihluta sjöunda ára- tugarins. »Mestu hefur verið landaðhjá Síldarvinnslunni í Nes- kaupstað, 30.000 tonnum. Næst kemur Hraðfrystistöð Þórshafnar með 18.600 tonn. ÚR VERINU FJÖGUR bifreiðaverkstæði munu fá starfsemi sína gæðavottaða frá Bílgreinasambandinu í dag. Verk- stæðin eru: Bílson og Kistufell í Reykjavík og Bílvogur og Bifreiða- verkstæði Friðriks Ólafssonar í Kópavogi. Þau eru fyrstu verk- stæðin á Íslandi til að uppfylla gæðastaðal Bílgreinasambandsins (BGS-staðalinn) um vandaða starf- semi og góða þjónustu. Markmiðið með gæðavottun Bílgreinasam- bandsins (BGS-vottun) er að auka gæðin í starfsemi og þjónustu verkstæðanna til hagsbóta fyrir verkstæðin sjálf og viðskiptavini þeirra. Samvinna BGS og BSI Gæðavottun Bílgreinasambands- ins er unnin í samstarfi þess og BSI á Íslandi (British Standards Institution). BSI er löggildur vott- unaraðili sem sérhæfir sig í að gæðavotta fyrirtæki og halda uppi gæðaeftirliti í kjölfarið. Bílgreina- sambandið og BSI á Íslandi bjuggu til gæðastaðal sem er kenndur við Bílgreinasambandið og er kallaður BGS-staðallinn. Þegar verkstæði hafa uppfyllt hann fá þau staðfestingu á að þau séu BGS-vottuð þjónusta. Því til sönnunar fá þau sérstakt viður- kenningarskjal og merki sem sýnir að starfsemin hefur fengið vottun. Í framhaldinu hjálpar BSI á Ís- landi fyrirtækjunum að halda uppi gæðastöðlunum. BSI á Íslandi annast einnig námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja sem sækj- ast eftir vottuninni. Ýmsir kostir fylgja vottun BGS-vottun þykir hafa marga kosti, jafnt fyrir fyrirtækin sem hana fá og viðskiptavini þeirra, samkvæmt upplýsingum frá að- standendum vottunarinnar. Kostir hennar fyrir verkstæði og vinnu- staðina þykja m.a. vera að ábyrgð og kröfur gagnvart viðskiptavin- unum verða þekktar og skýrar. Vinnuferlin verða markvissari og það eykur framleiðni og minnkar kostnað. Reglubundið og upp- byggjandi eftirlit með starfseminni hjálpar til við reksturinn. Þá verð- ur verkstæðið sýnilegra og meira áberandi en áður og virðing fyrir því eykst út á við. Þá er talið að vottunin auki starfsánægju og sjálfsvirðingu starfsmanna. BGS-vottun þykir koma við- skiptavinum til góða með því að hjálpa þeim að meta hvaða verk- stæði er best að velja. Þá sýnir BGS-vottun vilja verkstæðisins til að tryggja góða þjónustu. Kvört- unum viðskiptavina er vel tekið og brugðist við þeim hjá vottuðum verkstæðum. Þá á áætlaður tími viðgerða að standast að því gefnu að nýjar bilanir eða atriði komi ekki upp. Þjónustan hjá vottuðum verkstæðum á að vera vel skil- greind. Viðskiptavinir eiga að geta fengið föst tilboð í viðgerðir. Eins eiga þeir að fá betri og jafnari þjónustu og viðgerðin er undir gæðaeftirliti vottunarinnar. Vottun Bílgreinasambandsins stendur til boða bifreiðaverkstæð- um, vélaverkstæðum, málningar- og réttingarverkstæðum og smur- stöðvum. Nánari upplýsingar um BGS- vottunina og þær kröfur sem þarf að uppfylla fást hjá Bílgreinasam- bandinu. Bílaverkstæði fá gæðavott- un Bílgreinasambandsins Morgunblaðið/Golli Gæðavottun F.v.: Jón Baldvin Jónsson, verkstæðisformaður á bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar, Özur Lár- usson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, Guðmundur Ingi Skúlason, framkvæmdastjóri Kistufells, Árni H. Kristinsson, framkvæmdastjóri BSI á Íslandi, Einar Baldvinsson, fjármálastjóri BSI á Íslandi, og Ingólfur Að- alsteinsson, framkvæmdastjóri á bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar. Í HNOTSKURN »BGS-vottun stendur bif-reiðaverkstæðum, véla- verkstæðum, málningar- og réttindaverkstæðum og smur- stöðvum til boða. »BGS-vottuð verkstæðiþurfa að uppfylla ákveðinn gæðastaðal og sæta gæðaeft- irliti í kjölfar vottunarinnar. »Vottuð verkstæði munu fáauðkenni og viðurkenn- ingarskjöl sem sýna við- skiptavinum að um vottaða starfsemi sé að ræða. BROT ökumanna voru mynduð á Digranesvegi á þriðjudag með öku- tækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópa- vogi, en þar er 30 km hámarks- hraði. Á tveimur klukkustundum, síð- degis, fóru 288 ökutæki þessa akst- ursleið og því ók meirihluti öku- manna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst. en sá sem hraðast ók var mældur á 60. Eftirlit lögreglu kom í kjölfar ábendinga frá íbúum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað. Meirihlutinn keyrði of hratt BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefur samþykkt götunöfn í Vatnsenda- hlíð. Þar munu götur heita Leiðar- þing, Kópaþing, Kollaþing og Iðu- þing svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa yfirtökugjöld og gatnagerðargjöld verið samþykkt fyrir svæðið og eru dýrustu lóðirnar á rúmlega 20 milljónir. Þingum fjölgar STOFNFUNDUR Samtaka áhuga- fólks um starf í anda Reggio Emilia verður haldinn í gamla leikfimi- salnum í Miðbæjarskólanum kl. 17.10 fimmtudaginn 13. september. Í fréttatilkynningu segir að Kristín Dýrfjörð, lektor við Háskól- ann á Akureyri, muni setja fundinn og fjalla örstutt um aðdraganda hans og framtíðarsýn. Guðrún Alda Harðardóttir, leik- skólaráðgjafi í Reykjavík, segir í máli og myndum frá Remida-degi í borginni Reggio Emila á Ítalíu. Re- mida er sérstakt verkefni um end- urvinnslu sem byggist á samstarfi leikskóla, borgaryfirvalda og fyr- irtækja. Sigríður Síta Pétursdóttir, sér- fræðingur við Háskólann á Ak- ureyri, segir frá undirbúningi fyrir REMIDA-smiðju á vinabæj- arráðstefnu á Akureyri í ágúst sem leið og fjallar um þá hugmynda- fræði sem hún byggist á. Eru allir sem áhuga hafa á skap- andi, gagnrýnu og ögrandi starfi með börnum og trú á getu barna velkomnir. Starf í anda Reggio Emilia

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.