Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
ÁHUGI á breytingum þeim sem
hann boðaði reyndist takmarkaður en
hneykslismál og vanhæfir ráðherrar
urðu Shinzo Abe, forsætisráðherra
Japans, að falli. Tilkynning hans í gær
þess efnis að hann hefði ákveðið að
segja af sér kom fáum á óvart; kjós-
endur höfðu þegar lýst yfir því að
hugmyndafræðilegar áherslur þessa
„andlits hins nýja Japans“ skiptu þá
litlu og eftir afgerandi ósigur í þing-
kosningum í júlímánuði mátti ljóst
vera hvert stefndi.
Er Abe greindi frá ákvörðun sinni í
gær vísaði hann sérstaklega til þess
að stjórnarandstaðan hafnaði öllu
samstarfi á meðan hann væri for-
sætisráðherra. Hefði hann því ákveð-
ið að láta af embætti í þeirri von að á
þann veg reyndist unnt að koma á
nauðsynlegum umbótum í Japan.
Abe, sem er rétt tæplega 53 ára
gamall og yngsti leiðtogi Japana á síð-
ari tímum, hófst til valda í september í
fyrra er hann var kjörinn leiðtogi
Frjálslynda lýðræðisflokksins og þar
með eftirmaður Junichiro Koizumi,
sem notið hafði mikilla vinsælda í
embætti forsætisráðherra. Miklar
vonir voru bundnar við Abe og vin-
sældir hans reyndust umtalsverðar í
fyrstu. Hann lagði einkum áherslu á
að tímabært væri að auka skriðþunga
Japana á alþjóðavettvangi. Mesta at-
hygli vakti það stefnumál hans að
breyta bæri stjórnarskránni, sem
Bandaríkjamenn þröngvuðu upp á
Japana árið 1947. Í henni er skýrlega
kveðið á um að herinn þjóni þeim til-
gangi einum að verja Japan og bann,
sem raunar hefur gefið eftir á síðustu
árum, lagt við því að liðsaflanum sé
beitt utan heimalandsins. Abe boðaði
að smíða bæri nýja stjórnarskrá, sem
hæfði „Japan á 21. öldinni“. Margir
töldu hann af þessum sökum fylla
flokk svonefndra „hauka“ enda hafði
hann fyrst vakið athygli fyrir herskáa
stefnu gagnvart kommúnistastjórn-
inni í Norður-Kóreu, sem hann taldi
ógna stöðugleika í Asíu með kjarn-
orkuvígvæðingu. Jafnframt gerðist
hann ötull talsmaður þess að þjóðar-
stolt yrði skipulega upphafið í Japan.
Abe náði aldrei sömu tökum á
flokki sínum og Koizumi og snemma
kom í ljós að honum væri búið að
standa í skugga þessa vinsæla og
ákveðna forvera síns. Koizumi beitti
sér fyrir réttnefndum „hreinsunum“
innan stjórnarflokksins til að upp-
ræta þar andstöðu við frekari mark-
aðsvæðingu í Japan. Abe valdi þá leið
að leita sátta innan flokksins og þurfti
af þeim sökum að fá réttnefndum
flokkshestum mikilvæg embætti á
vettvangi ríkisstjórnarinnar. Þetta
reyndust afdrifarík mistök; í stað þess
að horfa til verðleika var spilltum og
vanhæfum fulltrúum valdakerfisins,
sem Koizumi hafði skorað á hólm,
hleypt að kjötkötlunum á ný. Koizumi
hafði jafnan kostað kapps um að
kanna ítarlega bakgrunn þeirra ráð-
herra sem skipaðir voru og þannig
tekist að afstýra vandræðum. Abe
kaus að hundsa þessa nálgun forvera
síns og öðlaðist því aldrei óttablendna
virðingu undirsáta sinna. Vanhugsað-
ar yfirlýsingar og spillingarmál kost-
uðu fjóra ráðherra í stjórn hans emb-
ættin, sá fimmti framdi sjálfsmorð.
„Þjóðhyggjunni“ hafnað
Kjósendur reyndust lítinn áhuga
hafa á „þjóðhyggjunni“ sem Abe boð-
aði en áhyggjur þeirra af afkomu
sinni og vaxandi ójöfnuði í samfélag-
inu eru djúpstæðar. Furðuleg mistök
innan eftirlaunakerfisins reyndust
Abe dýrkeypt.
Í kosningum í júlímánuði missti
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn meiri-
hluta sinn í efri deild Japansþings.
Kjósendur, einkum á landsbyggðinni,
höfðu þá glatað öllu trausti í garð
stjórnarinnar og forsætisráðherrans.
Málflutningur stjórnarandstöðunnar,
sem skynjaði hver þau mál voru sem
raunverulega brunnu á þjóðinni,
reyndist fallinn til að grafa ört undan
Abe og afhjúpa lítinn áhuga á þeim
hugmyndafræðilegu breytingum sem
hann kvað svo nauðsynlegar. Kröfur
um afsögn hans komu þegar fram eft-
ir ósigurinn í kosningunum en for-
sætisráðherrann kvaðst þess fullviss
að almenningur styddi stefnu hans.
Hneykslismál hefðu að sönnu reynst
stjórninni erfið en úr því yrði bætt.
Hinn 27. fyrra mánaðar gerði hann
breytingar á ríkisstjórn sinni, sem í
fyrstu virtust mælast vel fyrir. Viku
síðar neyddist landbúnaðarráðherr-
ann til að segja af sér sökum fjármála-
misferlis. Á sama tíma herti stjórn-
arandstaðan baráttuna og neitaði
m.a. að fallast á að umdeild aðstoð,
sem japönsk flotadeild á Indlandshafi
veitir erlenda herliðinu í Afganistan,
yrði framlengd. Abe hafði lagt þunga
áherslu á mál þetta enda í samræmi
við þær breytingar sem hann boðaði á
stöðu Japana á alþjóðavettvangi. Þá
varð ljóst að Abe myndi engum samn-
ingum ná við stjórnarandstöðuna og
að borin von væri að helstu stefnumál
hans myndu fá brautargengi.
Taro Aso, 65 ára gamall formaður
Frjálslynda lýðræðisflokksins, þykir
líklegur eftirmaður Shinzo Abe. Aso
telst til íhaldsmanna og hefur líkt og
Abe boðað ákveðnari stefnu í utan-
ríkis- og öryggismálum og þá einkum
gagnvart Norður-Kóreu.
Stjörnuhrap í landi rísandi sólar
Shinzo Abe, sem í gær sagði af sér embætti forsætisráðherra Japans, stóð í skugga hins vinsæla for-
vera síns og boðaði hugmyndafræðilegar breytingar sem alþýða manna reyndist hafa lítinn áhuga á
Í HNOTSKURN
»Shinzo Abe fæddist 21.september 1954. Hann
lagði stund á stjórnmálafræði
við Seikei-háskólann og lauk
þaðan prófi 1977. Hann
stundaði framhaldsnám í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
»Abe tók sæti föður síns,Shintaro Abe, á þingi
1993. Afi hans í móðurætt,
Nobusuke Kishi, var forsætis-
ráðherra 1957-1958 og
gegndi ráðherraembættum á
stríðsárunum. Hann var
handtekinn og sakaður um
stríðsglæpi en ekki var réttað
í máli hans. Frændi Abe, Ei-
saku Sato, var um skeið for-
sætisráðherra.
Reuters
Uppgjöf Shinzo Abe gerir fréttamönnum grein fyrir þeirri ákvörðun sinni
að láta af embætti forsætisráðherra. Eftirmaðurinn tekur við erfiðu búi.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
VAXANDI líkur eru nú taldar á því
að Frakkar muni á ný hefja þátttöku
í hernaðarsamstarfi Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, en þeir drógu
sig út úr því árið 1966. Var ástæðan
ekki síst að þáverandi forseti, Char-
les de Gaulle, taldi Bandaríkjamenn
ráða of miklu í bandalaginu og vildi
hann tryggja Frökkum meira sjálf-
stæði í alþjóðamálum.
Hægt hefur gengið að móta sam-
eiginlega varnarstefnu í Evrópusam-
bandinu en slík stefnumótun hefur
verið mikið áhugamál franskra leið-
toga gegnum tíðina. Hafa efasemda-
menn bent á að hætta væri á tví-
verknaði og tortryggni ef ESB
reyndi að halda uppi sjálfstæðri
stefnu samtímis því sem flest aðild-
arríkin væru einnig í NATO.
Varnarmálaráðherra Frakklands,
Hervé Morin, sagðist í ræðu á
þriðjudag vera sannfærður um að
ekki myndi takast að þróa sjálfstæða
varnarstefnu Evrópu nema pólitísk
hegðun Frakka í NATO breyttist.
„Við gerum of mikið af því að þrefa
og hika eins og við viljum gefa í skyn
að við séum andvíg því að NATO
breytist,“ sagði Morin. Bandalagið
hefði reynst vel í hálfa öld og erfitt
myndi reynast að fá ESB-ríki til að
kasta því fyrir róða þegar aðrar
lausnir væru ekki í augsýn.
Þrátt fyrir sérstöðuna hafa
Frakkar tekið þátt í mikilvægum að-
gerðum NATO, þ.á m. í Bosníu og
Kosovo, einnig í Afganistan. Þeir
tóku skref í átt til aukins hernaðar-
samstarfs árið 1996 er forseti her-
ráðs Frakklands hóf að sitja sameig-
inlega fundi með starfsbræðrum
sínum í hinum aðildarríkjunum. For-
seti Frakklands, Nicolas Sarkozy,
hefur lagt mikla áherslu á að bæta
samskiptin við Bandaríkin og ljóst er
að margir myndu túlka umskiptin
sem lið í þeirri viðleitni.
Hefja Frakkar þátttöku
í hernaðarsamstarfinu?
YFIR tvær milljónir Íraka hafa yfirgefið heimili sín vegna átakanna og
hafast nú við annars staðar í landinu, hér er verið að baða lítið og ósátt
barn úr röðum flóttafólks í borginni Najaf í sunnanverðu landinu. Álíka
margir Írakar eru búnir að flýja land og hafa margir þeirra fundið hæli í
Jórdaníu og Sýrlandi. Sýrlendingar hafa nú algerlega lokað fyrir flótta-
mannastrauminn yfir landamærin. Írakar fylgjast vel með umræðum í
Bandaríkjunum um hugsanlegan brottflutning erlenda herliðsins. Tals-
maður hóps hins róttæka sjítaklerks Moqtada al-Sadrs sagði þau vilja að
herliðið yrði strax kallað á brott. Þjóðaröryggisráðgjafi Íraks, Muwaffaq
al-Rubaie, sagði í gær að stjórnvöld í Bagdad byggjust við að fjöldi banda-
rískra hermanna í Írak yrði kominn niður í 100.000 í árslok 2008.
AP
Bað þrátt fyrir mótmæli
Úljanovsk. AFP. | Sergei Morozov,
héraðsstjóri Úljanovsk í Rússlandi,
hefur hvatt íbúana til að gera skyldu
sína við ættjörðina og elskast til að
stöðva fólksfækkun sem er vaxandi
vandamál í landinu. „Alið ættjarðar-
vin á þjóðhátíðardaginn,“ er slagorð
héraðsyfirvalda. Morozov segir að
pör sem eignist barn eftir rétta níu
mánuði, á þjóðhátíðardegi Rúss-
lands 12. júní, fái verðlaun: jeppa,
sjónvörp eða aðrar lúxusvörur.
Héraðsstjórinn lýsti gærdaginn
sérstakan fjölskyldutengsladag og
sagðist vona að pör tækju sér frí og
færu heim til að búa til börn.
Þetta er þriðja árið í röð sem veitt
eru sérstök verðlaun í Úljanovsk fyr-
ir að eignast börn á þjóðhátíðardag-
inn.
Skreppið
heim og
elskist
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Ný þvottavél
frá Siemens,
sem lætur
blettina hverfa.
Þetta er vélin
handa þér!