Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 17
MENNING
HUGIN Þór Arason skortir ekki
hugmyndirnar á sýningu sinni í
Safni við Laugaveg, áhorfandinn fær
á tilfinninguna að listamaðurinn hafi
þjáðst af valkvíða og á endanum
ákveðið að gera bara allt sem honum
datt í hug. Ekki svo slæm stefna og
niðurstaðan fjölbreytt. Hér koma
saman þættir sem eru í takt við
strauma samtímans, bolir og buxur
birta persónulegan hversdagsleika
með vísun í fjöldamenningu og
-framleiðslu, gallabuxur lagðar yfir
handrið eru lýsandi dæmi um nálgun
listamannsins við Safn, hann hagar
sér eins og hann sé í skemmtiheim-
sókn og leitast við að afhelga verk
sín sem mest. Innsetning hans á
efstu hæð minnir á uppbrot mál-
verksins í litríkar, skúlptúrlegar ein-
ingar sem við höfum séð töluvert af á
undanförnum árum. Fagurfræðin er
heimatilbúin eins og sjá má í leirker-
unum uppi á bitum í loftinu. Teikn-
ingar Hugins af formum sem hugs-
anlega minna á kynfæri ná ekki að
skapa sjálfstæða heild og skortir
nokkuð á að vera áhugaverðar sem
teikningar, hvað varðar línu og lit.
Hliðið kemur hins vegar á óvart og
skapar stemningu sem er skemmti-
lega á skjön við rýmið sjálft, gefur
kannski til kynna einhverja stemn-
ingu listarinnar sem listamaðurinn
hefur upplifað í salarkynnum Safns
og hugsanlega inn á kynslóðabil í
listinni? Inngripið sem heild ein-
kennist af kímni og yfir sýningu
Hugins er andblær samtíma sem
leggur áherslu á frelsi, að listin eigi
að vera skemmtileg, tjáningin óheft,
miðlar skarist og óhikað er vitnað til
stíltegunda fortíðar án tillits til inni-
halds. Allt þetta kemst vel til skila,
helsta hættan er sú að áhorfandinn
skynji sköpunargleði listamannsins
en tengist henni þó ekki að ráði.
Lista-
maður í
heim-
sókn
MYNDLIST
Safn við Laugaveg
Til 7. október. Safnið er opið mið. til sun.
kl. 14-18. Aðgangur ókeypis.
Huginn Þór Arason
Ragna Sigurðardóttir
Í NÝLISTASAFNINU stendur yf-
ir málverkasýningin „Nói át“ sem
er hljóm-þýðing á „No way out“.
Listamennirnir sem sýna eru 8
talsins og heita Davíð Örn Hall-
dórsson, Guðmundur Thoroddsen,
Ragnar Jónasson, Karri Kuoppala,
Timo Vaittinen, Muriel Lasser,
John Avelluto og Benjamin Merris.
Þau koma frá Íslandi, Sviss, Finn-
landi og Bandaríkjunum. Falla
verkin ágætlega undir svokallaðar
„Comic abstractions“ (skop-
abstraktsjónir) sem sýningarstjór-
inn Roxana Marcoci gerði á úttekt
í MoMA á síðasta ári, en sú úttekt
var ekki endilega fastbundin við
óhlutbundna list heldur líka hálf-
fígúrasjónir og skartaði þar með
listamönnum á borð við Takashi
Murakami og Michel Majerus.
Punktur Marcocis var sá að popp-
kúltúrinn hafi hingað til eingöngu
verið rannsakaður með fígúratífri
list og í abstraktlistinni væri nýr
vinkill á málefnið.
Samtímalistamenn sem hafa til-
vísanir í einhver frumatriði, eins og
abstrakt eða hálf-fígúrasjónir,
dýrslegar hvatir eða frumstæðar
ímyndir, virðast hallast æ meira til
skopmyndagerðar og þótt ég hafi
sjálfur hlýjar kenndir til teikni-
myndakúltúrs þá hef ég margt út á
hann að setja í listrænu samhengi
enda er það eitt að rannsaka mál-
efni og annað að velta sér upp úr
þeim. Liggur þá fyrir að spyrja
hvort að popp geti verið rannsókn
á poppi þar sem inntakið er hvort
sem er samdauna sjálfu málefninu,
hvort sem það er abstrakt eða fí-
gúratíft.
Þetta var svona sá umræðu-
grundvöllur sem mér fannst liggja
fyrir þegar ég skoðaði sýninguna í
Nýlistasafninu þar sem verkin hall-
ast í átt til neyslusamfélags og
poppkúltúrs, skemmti- og skyndi-
bitamenningar. Slíkt er auðvitað
tímanna tákn, hvort sem mönnum
líkar það betur eða verr, og er for-
vitnilegt að sjá hvernig þessi teg-
und málverks hefur þróast frá tíð
súrrealismans og abstrakt express-
jónismans, þegar myndefnið snerist
um innri veruleika, yfir í samtím-
ann, þar sem gert er út á ytri veru-
leika, eins og nú má sjá á litríkum
leikvelli Nýlistasafnsins.
Litríkur leikvöllur
Morgunblaðið/G.Rúnar
Skyndibitamálverk Verkin hallast í átt til neyslusamfélags og poppkúlt-
úrs, skemmti- og skyndibitamenningar.
Myndlist
Nýlistasafnið
Opið miðvikudag til sunnudags frá 12-
17, fimmtudag til 21. Sýningu lýkur 16.
september. Aðgangur ókeypis.
Nói át – Samsýning 8 listamanna
Jón B. K. Ransu
SVARTHVÍT ljósmynd af skútu í
sjávarháska mætir áhorfandanum
þegar inn kemur, minnir á myndir
sem sjá má á veggjum kaffihússins
við höfnina. Sjávarháski hefur aðra
merkingu í þessum bæ en hjá okkur
sem uppalin erum í Reykjavík en á
sýningu Unnars hefur skútan líka
aðra merkingu en hina bláköldu og
bókstaflegu. Er þetta þjóðarskútan
sem ferst eftir skipbrot frjálshyggj-
unnar? Því á öðrum vegg má lesa
andlátstilkynningar um Milton
Friedman úr bandarískum dag-
blöðum. Hvernig skiljum við þá litla
trjágrein og bláskel, spegil, byssu-
skot og steinvölu undir glerkassa á
gólfi, kirfilega merkt með merki-
miðum, fengin að láni hjá Byggða-
safni Reykjanesbæjar? Eða hillurnar
troðnar af skjölum, dagblöðum, Vik-
unni frá 1906 og Fréttablaðinu síðan í
gær, ársriti Skógræktarfélagsins,
fullar hillur sem þekja heilan vegg? Á
ljósaborði sem er skúlptúr má lesa
setninguna „Laissez-faire“, orðtak úr
frjálshyggju sem merkir stefnu lítilla
ríkisafskipta, en í daglegu tali að láta
reka á reiðanum – og þá erum við
komin í hring, aftur að skútunni sem
rekur stjórnlaust í öldurótinu.
Sýningarskráin býður upp á texta,
hér brot úr tilraunaskáldsögu Julio
Cortazar, Rayuela, sem á ensku kall-
ast Hopscotch sem aftur merkir parís
– barnaleikurinn að hoppa parís. Bók-
ina má lesa á margvíslegan máta og
hún hefur margfaldan endi. Í texta-
brotinu er lögð áhersla á að frelsa
hugann undan oki tvíhyggjunnar sem
er okkur svo töm, á að finna „já-ið án
nei-sins.“ Textann þýddi Hermann
Stefánsson en hann auðgar sýn-
inguna á ljóðrænan hátt auk þess að
vera eins konar leiðarvísir að lestri
áhorfandans á henni.
Á sýningunni er að finna ljóðræna
dirfsku og óvænt sjónarhorn, lestur
áhorfandans verður ósjálfrátt í takt
við hugsun listamannsins, íhugull,
sögulegur, samfélagslegur, listsögu-
legur. Öll þessi lög er að finna á ynd-
islega áreynslulausan og ekki síst fal-
legan máta á sýningu Unnars, án efa
ein af betri sýningum ársins.
Öldurót
samtímans
MYNDLIST
Suðsuðvestur, Reykjanesbæ
Til 7. október. Opið lau. og sun. kl. 13-
17.30. Aðgangur ókeypis.
Coup d’Etat, Unnar Örn J. Auðarson
Ragna Sigurðardóttir
afsláttur
www.th.is
Létt morgunhreyfing
með Rakel úr
söngdúettnum Hara
Bingó
Skoðunarferðir
Danskennsla
Leiksýning
Félagsvist
Sparidagar fyrir eldri borgara
dagana 7. – 12. október.
Dagskrárstjóri er hinn rómaði
Gunnar Þorláksson.
Verð fyrir tímabilið er aðeins
29.800 kr. á mann.
Innifalið:
Gisting í tveggja manna herbergi,
morgunverður af hlaðborði,
þriggja rétta kvöldverður alla
daga og fjölbreytt dagskrá.
Upplýsingar og bókanir
í síma 483 4700 á Hótel Örk.
Prjónafatnaður í úrvali
Nýtt kortatímabil
Opið virka daga 10.30-18.00, laugardaga 11-16
Diza nýr stíll
Diza Laugavegi 44Sími 561 4000www.diza.is