Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
IÐNAÐARMENN eru að leggja síð-
ustu hönd á nýbyggingu Grand hót-
els Reykjavíkur við Sigtún. Her-
bergin í háhýsunum tveimur hafa
smám saman verið tekin í notkun í
sumar. Húsið fær góða reynslu af ís-
lenskri haustlægð þessa dagana og
voru iðnaðarmenn í rigningunni í gær
að fara yfir glerþök og ganga frá
ýmsum málum. Hótelið verður síðan
opnað formlega eftir þessa miklu
framkvæmd í næsta mánuði.
Kaupgarður, fyrirtæki Ólafs
Torfasonar hótelstjóra, keypti Grand
hótel við Sigtún á árinu 1995 og fékk
til liðs við sig Guðmund Jónasson
ferðaskrifstofu við kaupin. „Það lá þá
þegar fyrir að það þyrfti að fjölga
herbergjum. Ráðstefnuaðstaðan var
ágæt og við raunar gengum í það að
stækka hana,“ segir Ólafur þegar
hann er spurður um aðdraganda ný-
byggingarinnar. Í upphafi var ætl-
unin að stækka um 100 herbergi með
byggingu lágreistra húsa um alla lóð.
Fékkst samþykki skipulagsyfirvalda
fyrir því. „Við sáum þó að þetta var of
dýrt og að við þyrftum fleiri herbergi
til að reksturinn yrði fýsilegur og því
lögðum við þessi áform á hilluna.“
Síðar komu upp hugmyndir um að
reisa háhýsi á lóðinni. Fyrst voru
lagðar fram teikningar af 24 hæða
byggingu en áformin þróuðust síðan
út í tvo samtengda hótelturna, 13 til
14 hæða, sem tengdir yrðu eldri
byggingu hótelsins með glerbygg-
ingu. Segir Ólafur að þau 208 her-
bergi sem bætast við séu litlu dýrari
en þau 100 herbergi sem fengist
hefðu með lágreistum byggingum um
alla lóðina. Þá fáist að öllu leyti betri
aðstaða fyrir gestina, bílastæði og
þjónusturými.
Erfið sambúð
Skipulagsferlið tók sinn tíma sem
og fjármögnunin og hófust fram-
kvæmdir ekki fyrr en síðla árs 2005.
Ólafur staðfestir að þegar hann var
að undirbúa þessa framkvæmd hafi
hótel ekki verið í sérstöku uppáhaldi
hjá bönkunum enda hafi þeir tapað
peningunum á slíkum verkefnum.
Hann tekur þó fram að á þessu hafi
orðið breyting á síðustu árum og fjár-
mögnunin hafi komist í höfn með að-
stoð viðskiptabanka fyrirtækisins,
Glitnis, auk þess sem eigendur hafi
aukið hlutafé sitt og ÍAV hf., sem tók
að sér framkvæmdina, hafi gerst
hluthafi tímabundið. Ætlunin var að
framkvæmdum lyki 15. mars 2007,
vel fyrir upphaf aðalferðamanna-
tímabilsins en það tókst ekki. Húsin
hafa smám saman verið tekin í notk-
un í sumar og nú er unnið að lokafrá-
gangi.
„Við ætluðum okkur að komast hjá
því að vera að vinna að bygging-
arframkvæmdum ofan í gestunum.
Það er ein sú versta sambúð sem
hugsast getur í svona rekstri. Við
drógum úr sölustarfseminni þegar
við sáum í hvað stefndi og þetta
blessaðist allt,“ segir Ólafur.
Nýbyggingin er um 10 þúsund fer-
metrar að stærð, jafn stór og bygg-
ingarnar sem fyrir voru, og kostar
liðlega tvo og hálfan milljarð kr. Ólaf-
ur hefur áður byggt upp verslunar-
miðstöðvar og hótel en þetta er mesta
framkvæmdin sem hann hefur ráðist
í. Segir hann að það hafi vissulega
verið erfitt að halda kostnaðar-
áætlun, ekki þurfi mikið út af að
bregða við slíka stórframkvæmd.
„Ég hef staðið yfir þessu sjálfur allan
tímann. Keypti mér tvenn pör af
gallabuxum til að hafa til skiptanna
þegar þetta byrjaði og er ekki enn
búinn að skipta yfir í betri buxurnar,“
segir Ólafur.
Látlaus uppbygging
Ólafur byrjaði í hótelrekstri eftir
að hann eignaðist hús í byggingu við
Rauðarárstíg. Til stóð að innrétta það
sem skrifstofur og leigja út en þegar
leigjandinn brást ákvað Ólafur að
koma þar upp hóteli sem varð Hótel
Reykjavík. Það hefur hann rekið frá
1992. Hann notaði síðan tímann sem
fór í tafirnar eftir því að fram-
kvæmdir gætu hafist við nýbyggingu
Grand hótels til þess að taka á leigu
hótelbyggingu í miðbænum og opnaði
þar Hótel Reykjavík Centrum við
Aðalstræti á árinu 2005.
Hann rekur nú þessi þrjú hótel og
er auk þess hluthafi í Fosshótelum.
Þetta hefur því verið látlaus upp-
bygging í fimmtán ár, fyrst bygging
Hótel Reykjavíkur, þá kaup á Grand
hótel og framkvæmdir þar, uppbygg-
ingin í miðbænum og nú viðbyggingin
við Sigtún. Þótt yfir 200 herbergi
bætist við Grand hótel þarf ekki að
bæta miklu við veitingasali og ráð-
stefnuaðstöðu. Þó hefur Ólafur hug á
því að stækka aðalráðstefnusalinn,
þannig að hann taki 700 manns en
tekur fram að engar ákvarðanir hafi
verið teknar um það.
Ný verkefni erlendis
Rekstur hótelanna hefur gengið
vel, að hans sögn. „Mér hefur gengið
vel. Þetta eru að vísu ekki sömu töl-
urnar og maður heyrir af í útrás-
arverkefnum en ég reyni að huga vel
að mínu og er sáttur við minn hlut.“
Hann segist hafa trú á framtíð ferða-
þjónustunnar enda sé hann frekar
bjartsýnn maður að eðlisfari. Ferða-
mönnum hefur fjölgað og hann hefur
trú á áframhaldandi hægri en
öruggri fjölgun.
Grand hótel Reykjavík er nú orðið
stærsta hótel landsins, með 314 her-
bergi, og í þessum þremur hótelum
eru 482 herbergi samtals.
Önnur hótel hafa risið og stækkað
og sér Ólafur ekki fyrir sér að það rísi
stór hótel í bænum á næstu árum,
fyrir utan hótelið við Reykjavíkur-
höfn. „Mér finnst þetta orðið ágætt
fyrir mig og ekki sniðugt að bæta
miklu við. Það er auðvitað litið á mál-
in ef upp koma spennandi tækifæri
en ég horfi meira til útlanda eftir nýj-
um verkefnum. Við höfum athugað
nokkur dæmi en ekki náð samningum
enn sem komið er,“ segir Ólafur og
segist ekki síst horfa til gömlu höf-
uðborgar Íslands, Kaupmannahafn-
ar, í því efni.
Framkvæmdum að ljúka við byggingu tveggja 65 metra hárra turna við Grand hótel Reykjavík
Látlaus upp-
bygging hótel-
reksturs í 15 ár
Vetrargarður Gestir geta látið fara vel um sig í glerbyggingunni sem teng-
ir nýbygginguna við eldra húsnæði Grand hótel Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Frikki
Hótelstjórinn Hótelturnarnir við Sigtún eru mesta framkvæmdin sem
Ólafur Torfason hefur ráðist í. Hótelkeðja hans er með 492 herbergi.
NÝBYGGING Grand hótels Reykja-
víkur við Sigtún setur mikinn svip
á umhverfið. Turnarnir eru um 65
metrar á hæð og með hæstu húsum
landsins.
Í turnunum sem Guðjón Magn-
ússon hjá teiknistofunni Arkform
hannaði eru liðlega 200 herbergi
og er fallegt útsýni úr herbergj-
unum á efri hæðunum þar sem
byggingin gnæfir yfir umhverfi
sitt. Herbergin eru vel búin enda er
Grand hótel Reykjavík fjögurra
stjörnu hótel. Nýbyggingin er
tengd eldri hótelbyggingunni með
gleryfirbyggingu. Þar er móttaka
og anddyri ásamt vetrargarði und-
ir glerinu. Mikið glerlistaverk Leifs
Breiðfjörð setur svip á anddyrið.
Í nýbyggingunni bætast einnig
við ráðstefnu- og fundarsalir.
Heilsulind með líkamsrækt og
snyrtistofu verður tilbúin í kjall-
aranum á næstu vikum ásamt fleiri
þjónustuþáttum fyrir hótelgesti.
Ný aðkoma að hótelinu verður
frá Kringlumýrarbraut en núver-
andi inngangur verður fyrir ráð-
stefnugesti.
Hótelið er laust við rafmengun
og þar er náttúruleg loftræsting.
Bæði atriðin eru nýjung við bygg-
ingu hótela.
Loftræsting er tölvustýrð með
aðstoð veðurstöðvar sem er ofan á
turnunum. Þetta kallar Ólafur nátt-
úrulega loftræstingu því hitastig
og opnun glugga er að mestu sjálf-
virk.
Mikið var lagt upp úr jarðteng-
ingum í húsinu. Allt er tengt í 80
metra djúpa borholu undir húsinu.
Í byggingunum á því ekki að hlað-
ast upp óæskileg rafmengun og það
dregur úr viðhaldsþörf, að sögn
Ólafs, og stuðlar að betri líðan
gestanna.
Vetrargarður
undir gleri í
tengibyggingu
Stofnfjáreigendafundur hjá Byr-sparisjóði verður haldinn
miðvikudaginn 3. október næstkomandi á Hótel Nordica,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14.00.
Á fundinum verður lögð fram tillaga um sameiningu Byrs-
sparisjóðs og Sparisjóðs Kópavogs
Fundarboð og dagskrá verða send stofnfjáreigendum í
samræmi við samþykktir sparisjóðsins.
Sparisjóðsstjórn.
Stofnfjáreigendafundur
hjá BYR-sparisjóði
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag sérlega skemmtilega og mikið endunýjaða
4ra herbergja 117 fm íbúð á 2. hæð.
Endurnýjað eldhús, baðherb. sameign o.fl. Suðvestursvalir.
Gott skipulag. Verð: 23.800.000
Jóhann frá Fasteign.is, s: 8 600 399, verður á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG KL: 17.30–18.00
HRAUNBÆR 48
Þórunn á bjöllu