Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 20
Morgunblaðið/Kristinn
Alla daga Hlynur Steinsson hjólar á hverjum degi í skólann.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þ
au láta vatnselginn ekki stoppa sig krakkarnir í Fossvogsskóla sem ýmist
ganga eða hjóla í skólann, alla daga í öllum veðrum. Og þannig var það líka í
gær með mörg þeirra þó svo að rigningin væri slík að eftir að hafa gengið eða
hjólað örfáa metra „þá var eins og maður væri að koma úr baði,“ svo vitnað sé
í hressa stelpu á leið heim úr skólanum, þar sem hún gekk í úrhellinu með
bros á vör. Rigning getur nefnilega líka verið skemmtileg. Hver sá sem kominn er af
barnsaldri man eflaust vel eftir aðdráttarafli fossandi lækja í grenjandi rigningu svo ekki
sé talað um stóra drullupolla. Krakkarnir í Fossvogsskóla voru í gær sérstaklega hvött til
að koma gangandi eða hjólandi í skólann, því þá var umhverfisdagur í öllum grunnskólum
Reykjavíkur, en markmiðið með þessum degi var að efla umhverfisvitund nemenda og
hvetja þá til að huga betur að umhverfi sínu og bættri umgengni almennt. Það er svo sem
ekkert nýtt fyrir krökkunum í Fossvogsskóla, því hann er grænn skóli sem hefur í þrígang
fengið Grænfánann, en það er viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverf-
isvernd- og umhverfis- og náttúrufræðslu. Í Fossvogsskóla eru til dæmis sérstakir um-
hverfissöngvar og þar hreinsa nemendur skólalóðina vikulega. Allt lífrænt úr mötuneyti
nemenda er flokkað sem og allar handþurrkur og bylgjupappi. Þar fer fram flokkun á líf-
rænum úrgangi úr skólastofum, kennslueldhúsi og kaffistofu kennara. Þar eru ekki seldir
fernudrykkir og ef nemendur koma með drykk í skólann að heiman eru þeir beðnir að
hafa hann í umhverfisvænum margnota umbúðum. Skólinn veitir líka vikulega verðlaun
fyrir góða umgengni í skólastofum. Nemendur græna skólans þurftu því ekki að láta segja
sér tvisvar að labba eða hjóla í skólann.
Þau hvetja foreldrana til að flokka rusl
Hlynur Steinsson ellefu ára lætur ekkert koma í veg fyrir að hann komi hjólandi í skól-
ann, enda er hann á góðu hjóli. „Ég hef hjólað í skólann alveg frá því ég byrjaði í skól-
anum, enda fylgir engin mengun því að hjóla. Við höfum lært heilmikið um umhverfismál í
skólanum og mér finnst krakkarnir hérna hugsa frekar mikið um þessi mál. Ég reyni að
vera líka umhverfisvænn heima hjá mér en ekki bara í skólanum. Við flokkum líka ruslið
heima. Mér fannst mjög fróðlegt þegar Veraldarvinir komu að heimsækja skólann okkar
en það var fólk frá Frakklandi, Ungverjalandi og fleiri löndum sem kenndi okkur ýmislegt
um umhverfismál.“
Guðrún Ólafsdóttir í tíu ára bekk kemur langoftast hjólandi í skólann í hvaða veðri sem
er. „Ég klæði mig bara eftir veðri, fer í regnbuxur ef það er rigning og er með húfu og
vettlinga ef það er kalt. Ég er líka miklu fljótari á hjóli heldur en þegar ég labba. Lang-
flestir í mínum bekk komu hjólandi í skólann í dag enda vorum við hvött til þess. Ég hugsa
kannski ekki um umhverfismál alla dag, en ég geri það stundum og ég reyni að kenna
mömmu og pabba. Við söfnum til dæmis alltaf saman öllum dagblöðum og förum með þau
í sérstaka gáma.“
Katrín Káradóttir í fimmta bekk kemur að öllu jöfnu hjólandi í skólann en sleppti því
þennan daginn þar sem hún var með hálsbólgu og foreldrarnir vildu forða henni frá vos-
búð í vætunni. „Ég þurfti meira að segja að vera inni í frímínútum. Ég bý á Sogaveginum
og ef ég dríf mig þá er ég ekki nema fimm mínútur að hjóla í skólann. En ef það er snjór þá
labba ég í skólann af því að þá getur hjólið runnið til í snjónum.“ Katrín segist vera dugleg
við að fræða foreldra sína um nauðsyn þess að hugsa um umhverfi sitt
„Við fengum til dæmis poka til að taka með okkur heim í fyrra, einn grænan og annan
gulan til að flokka fernur og pappír og það er mjög gaman.“
Vel út búin Guðrún Ólafsdóttir var í regnbuxum sem hæfðu veðri dagsins.
Vænir krakkar í grænum skóla
Hálsbólga hamlaði Katrín Káradóttir gat hvorki gengið né hjólað í skólann vegna hálsbólgu.
|fimmtudagur|13. 9. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Innihaldsmerkingar matvæla
eiga að veita greinargóðar upp-
lýsingar um samsetningu vör-
unnar. »22
neytendur
Innmatur og kjöt af nýslátruðu
eru áberandi á helgartilboðum
matvöruverslana að þessu
sinni. »22
helgartilboðin
Anda hinnar sígildu myndar
Casablanca er viðhaldið á veit-
ingastaðnum Rick’s Café í
Casablanca. »23
ferðalög
Að nemendur læri um gildi
þess að ganga vel um náttúr-
una.
Að nemendur þekki viður-
kenndar merkingar fyrir um-
hverfisvænar vörur.
Að nemendur geti greint já-
kvæðan áróður frá neikvæðum
í auglýsingum.
Að nemendur nýti upplýsinga-
tækni til þess að auka þekkingu
á umhverfi sínu og daglegu lífi.
Að nemendur geri sér grein
fyrir gildi umhverfisverndar.
Að nemendur læri að meta út-
gjöld og rekstur heimilisins.
Að nemendur séu meðvitaðir
um gildi þess að flokka rusl.
Að nemendur geri sér grein
fyrir að með flokkun er hægt
að endurvinna og endurnýta
ýmislegt sem annars færi í
ruslið.
Að nemendur verði meðvitaðir
um hversu mikið af rusli fellur
til daglega.
Að skólinn í samvinnu við heim-
ilin vinni að því að efla ábyrga
hegðun og umgengni við nán-
asta umhverfi sitt og náttúru
landsins.
Umhverf-
ismarkmið
Fossvogs-
skóla
ÞAÐ er óneitanlega nokkuð sér-
stætt þetta höfuðfat sem sást á
tískusýningu í Tókýó í Japan á
dögunum.
Það er þó ekki hægt að segja
annað en það sé frekar vetrarlegt
ásýndar og ekki laust við að
rúnnuð lögunin ásamt ljósum litn-
um minni á snæviþaktar brekkur.
Það myndi því örugglega henta
vel á kolla hátískulegra snæ-
drottninga. Reuters
Að bera
höfuðið hátt
Hver sá sem kominn er af
barnsaldri man eflaust vel
eftir aðdráttarafli foss-
andi lækja í grenjandi rign-
ingu svo ekki sé talað um
stóra drullupolla.