Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 21
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 21
Ástæða er til þess að hlakka til ár-
legra aðventutónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands og knatt-
spyrnudeildar Þórs sem fram fer í
íþróttahöllinni á Akureyri í byrjun
desember. Það hefur nefnilega verið
samið við stórsöngvarann Garðar
Thor Cortes um að syngja með
hljómsveitinni að þessu sinni.
Haukur Jóhannsson gekk óvenju
spenntur um gólf íþróttahallarinnar
á Akureyri þegar líða tók að tón-
leikum Kristjáns bróður hans á
sunnudaginn. Ástæðan var þó ekki
sú að hann óttaðist um frammistöðu
bróðurins held beið hann niðurstöðu
úrslitaleiks Íslandsmóts 3. flokks í
knattspyrnu.
Sonur Hauks, Haukur Heiðar, og fé-
lagar hans í KA öttu kappi við Fjölni
á Blönduósvelli. Þegar styttist í að
Kristján færi á svið í Höllinni fékk
Haukur þær fréttir að KA hefði unn-
ið á Blönduósi og orðið Íslands-
meistari – og brosti breitt. Gat þá al-
farið einbeitt sér að því að njóta
tónleikanna…
Frammistaða meistaraflokka Þórs
og KA á knattspyrnuvellinum hefur
valdið stuðningsmönnum þeirra von-
brigðum í sumar, en yngri flokkarnir
hafa staðið sig vel. Nýjasta dæmið
er Íslandsmeistaratitill KA í 3. flokki
en KA-menn lögðu Þórsara í
skemmtilegum undanúrslitum, þar
sem þeir höfðu betur í bráðabana í
vítaspyrnukeppni! Þór varð Íslands-
meistari í 3. flokki í fyrra og gaman
er að segja frá því að næsta þriðju-
dag, 18. september, verður úrslita-
leikur í Visa-bikarkeppni KSÍ í 2.
flokki á Akureyrarvelli, en þar mæt-
ast einmitt Akureyrarliðin tvö. Von-
andi fjölmenn bæjarbúar á leikinn.
Forsetahjónin, Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorritt Moussaieff,
voru meðal áheyrenda á tónleikum
Kristjáns Jóhannssonar og félaga
hans um síðustu helgi, sem haldnir
voru til heiðurs móður Kristjáns,
Fanneyju Oddgeirsdóttur, í tilefni
90 ára afmælis hennar. Athygli vakti
að í lok tónleikanna spratt Dorritt
upp af stól sínum og henti einni rós
til Kristjáns á sviðinu. Hún hefur
lengi haft dálæti á söng tenórsins.
Mór er akureyrsk hljómsveit sem
nýlega gaf út geisladisk með íslensk-
um þjóðlögum. Þórhildur Örvars-
dóttir syngur en aðrir í sveitinni eru
Kristján Edelstein, Stefán Daði Ing-
ólfsson og Halldór Gunnlaugur
Hauksson. Mór lék á AIM Festival á
Akureyri fyrr á árinu og lofaði góðu,
og diskurinn svíkur sannarlega ekki.
Tónlistin er afskaplega falleg.
Svo gæti farið að reist yrði kaffihús í
Lystigarðinum – fyrir andvirði frí-
merkjasafns. Lystigarðurinn á Ak-
ureyri fékk fyrir nokkrum árum af-
hent að gjöf frímerkjasafn sem Axel
Schiöth hafði ánafnað garðinum árið
1953 til minningar um móður sína,
Önnu Chatrine Schiöth, sem stofn-
aði Lystigarðsfélagið árið 1910.
Axel ætlaðist til að safnið yrði selt
í kringum aldamótin síðustu og að
andvirði þeirra yrði notað í þágu
Lystigarðsins á 100 ára afmæli hans
árið 2010.
Forstöðumaður umhverfismála og
forstöðumaður Lystigarðsins ósk-
uðu á fundi Framkvæmdaráðs Ak-
ureyrarbæjar eftir heimild ráðsins
til að láta meta frímerkjasafnið og
hugsanlega selja í framhaldinu og að
það fjármagn verði notað til bygg-
ingar kaffihúss í garðinum eins og
deiliskipulag hans gerir ráð fyrir.
AKUREYRI
Eftir Skapta Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Til hamingju Dorritt Moussaieff, heilsar upp á
Fanneyju Oddgeirsdóttur, móður Kristjáns Jó-
hannssonar, eftir tónleikana á Akureyri.
Í Höllinni Garðar Thor
Cortes syngur á Akur-
eyri í byrjun desember.
versnandi, subbuskap-
urinn hefur a.m.k. aldr-
ei verið jafn mikill og í
sumar.
Víkverji er á því að
ekki sé hægt að kenna
reykingabanni eða
löngum opnunartíma
um þessi ósköp heldur
sé það uppeldið.
Sú kynslóð sem er nú
mest út á lífinu var ekki
alin upp, þetta eru börn
efnishyggjuforeldr-
anna sem aldrei eru
heima. Þeim var ekki
kennt að bera virðingu
fyrir einu né neinu og
síst eigum annarra og
hvað þá sjálfum sér.
Þeim finnst bara fyndið að vera
útúrdrukkin og sjálfum sér til
skammar, er alveg sama þó þau
brjóti rúðu hjá ókunnugu fólki,
kjálkabrjóti aðra eða eyðileggi bíla í
íbúðarhverfum, þetta kemur þeim
hreinlega ekki við. Þau eru alin upp
við það að peningar lagi allt sem
miður fer, þegar þau voru krakkar
var bara keypt nýtt dót þegar hitt
eyðilagðist, þau voru aldrei skömm-
uð fyrir neitt og fengu alltaf sínu
fram.
Núna eru þau orðin stór og farin
að skemmta sér. Þegar þau fara í
bæinn og brjóta rúðu hugsa þau sem
svo að tryggingarnar borgi það,
þeim er alveg sama, þau henda rusli
hiklaust á götuna því þau vita að það
mun einhver tína það upp eftir þau
eins og aðrir hafa hreinsað upp skít-
inn eftir þau frá barnæsku.
Virðingin fyrir eigum annarra og
umhverfinu er engin og það er
vandamálið.
Víkverji segir bara: Guð hjálpi
okkur!
Víkverji býr ekki áfjölmennu heimili
og verslar því yfirleitt
ekki mikið magn í einu
í matinn en þegar það
gerist fer hann í Krón-
una á Höfða sem hon-
um þykir fín búð, einn
stór galli er þó á henni
að mati Víkverja. Búið
er að fjarlægja allar
litlu handkörfurnar og
aðeins hægt að fá risa-
stórar körfur á hjólum
undir innkaupin. Það
finnst Víkverja óþægi-
legt því stóru körf-
urnar eru klunnalegar
og stífla alla gangvegi í
búðinni sem gerir það
að verkum að ekki er hægt að gera
snögg innkaup.
Litlu handkörfurnar eru þægileg-
ar að stærð fyrir það magn sem Vík-
verji verslar og ferðin um verslunina
verður miklu liprari fyrir vikið.
Ekki veit Víkverji hvaða stefna
það er að bjóða ekki upp á hand-
körfur, líklega eiga þeir sem koma af
fámennum heimilum ekki að versla í
lágvöruverslunum eða þá að versl-
unareigendur sjá að með risastórum
körfum versli fólk meira en það þarf.
Víkverji heimtar handkörfurnar
aftur því honum finnst hálf hallæris-
legt að aka um búðina þvers og
kruss með eina papriku, pylsupakka
og mjólkurlítra í risastórri hjóla-
kerru.
x x x
Skemmtanalíf Íslendinga hefurverið nokkuð í umræðunni að
undanförnu.
Víkverji fer mikið út á lífið og hef-
ur gert í gegnum árin og er sammála
því að ástandið í miðbænum fari
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
BMW 3 línan
www.bmw.is
Sheer
Driving Pleasure
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is - www.bmw.is
Með bílinn handa þér
BMW 3 línan.
Bifreið sem er eins einstök að
allri gerð og þú.
Áttu auðvelt með að taka ákvarðanir? Kostirnir í stöðunni eru jafn margir og þeir eru áhugaverðir. Fimm mismunandi gerðir, ólíkar
vélarstærðir og margs konar búnaður allt eftir því hvað hentar þér. Þá eru að sjálfsögðu ótaldir þeir fjölmörgu aukahlutir sem standa til
boða ásamt ótal litum og ólíku efnisvali. Með þessu móti getur þú mótað þína eigin bifreið, sem er jafn einstök að allri gerð og þú.
BMW 318 Advantage kr. 3.810.000
BMW 320 Exclusive kr. 4.290.000
BMW 325xi xDrive Prestige Edition kr. 5.900.000
Advantage, Exclusive og Prestige edition eru aukahlutapakkar sem gerir glæsilega
BMW 3 línu enn glæsilegri. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 575 1210.