Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 22
neytendur 22 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 13. sept. til 16. sept. verð nú verð áður mælie. verð KS ferskt lambalæri ............................. 975 1.298 978 kr. kg KS ferskur lambahryggur ...................... 1.189 1.398 1.189 kr. kg KS ferskt lambafillet m/fitu................... 2.398 2.998 2.398 kr. kg Holta fersk kjúklingalæri, úrbeinuð ........ 599 899 599 kr. kg Holta ferskir kjúklingaleggir ................... 363 484 363 kr. kg Myllu heimilisbrauð 770 g .................... 95 159 123 kr. kg Fersk ísl. ungnautabuff, 4x120 g ........... 598 1.245 kr. kg Ferskt ungnautahakk, innflutt................ 879 1.168 879 kr. kg KF folaldakubbasteik, frosin .................. 398 498 398 kr. kg Bónus lýsi, 500 ml............................... 298 398 596 kr. ltr Fjarðarkaup Gildir 13. sept. til 15. sept. verð nú verð áður mælie. verð Ali helgarskinka, soðin ......................... 1.438 1.598 1.598 kr. kg Nauta gúllas, stroganoff, kjötborð.......... 1.398 1.595 1.398 kr. kg Svínabógsneiðar.................................. 498 658 498 kr. kg FK bayonneskinka................................ 1.149 1.498 1.149 kr. kg FK reykt folaldakjöt m/beini.................. 498 734 498 kr. kg Matfugl kjúklingalæri............................ 398 569 398 kr. kg Matfugl kjúklingavængir ....................... 168 281 168 kr. kg Hagkaup Gildir 13. sept. til 16. sept. verð nú verð áður mælie. verð Nauta T-bone steik úr kjötborði ............. 2.498 3.050 2.498 kr. kg Nauta entrecote úr kjötborði ................. 2.698 3.143 2.698 kr. kg Nauta porterhouse steik úr kjötborði...... 2.598 2.598 2.598 kr. kg Nauta ribeye úr kjötborði ...................... 2.798 3.143 2.798 kr. kg Boston skinka (bayonneskinka)............. 898 1.498 898 kr. kg Kjúklingalundir í western kryddlegi......... 1.400 2.154 1.400 kr. kg Chicago t. örbylgjupitsa, pepperoni, ...... 349 498 349 kr. pk. Myllu brownie kaka .............................. 339 540 339 kr. stk. Myllu rúsínu- og valhnetubrauð ............. 199 346 199 kr. stk. Samsölu beyglur .................................. 129 234 129 kr. stk. Krónan Gildir 13. sept. til 16. sept. verð nú verð áður mælie. verð Lambalæri af nýslátruðu ....................... 975 1.500 975 kr. kg Lambahryggur af nýslátruðu.................. 1.198 1.594 1.198 kr. kg Lamba súpukjöt af nýslátruðu ............... 545 779 545 kr. kg Ýsuflök með roði .................................. 899 1.031 899 kr. kg Móa kjúklingur, ferskur, 1/1.................. 349 699 349 kr. kg Krónubrauð, stórt og gróft, 770 g .......... 99 129 129 kr. kg Krónu kökur, súkkulaði/gulrótar ............ 299 299 kr. stk. Happy Day 100% safar, 3 teg., 2 ltr....... 229 269 115 kr. ltr Super þvottaefni color, 750 g................ 99 139 132 kr. kg GM Cocoa Puffs, tvöfaldur, 1.300 g....... 599 680 461 kr. kg Nóatún Gildir 13. sept. til 16. sept. verð nú verð áður mælie. verð Móa kjúklingabringur............................ 1.498 2.515 1.498 kr. kg Lambalifur .......................................... 198 298 198 kr. kg Lambanýru .......................................... 98 189 98 kr. kg Lambahjörtu........................................ 198 469 198 kr. kg Lambalæri kryddað .............................. 1.098 1.498 1.098 kr. kg Ungnautahamborgari, 90 g................... 79 139 79 kr. stk. EO lífræn sojamjólk, 4 teg., 946 ml ....... 299 329 316 kr. ltr EO lífrænar baunir, 8 teg., 425g............ 179 224 421 kr. kg Svansö 100% marmelaði, 4 teg. ........... 299 349 299 kr. stk. Yippy vítamínbættur krakkadrykkur ........ 30 45 30 kr. stk. Samkaup/Úrval Gildir 13. sept. til 16. sept. verð nú verð áður mælie. verð Kjötborð lamba fille m/fitu ................... 2.659 3.549 2.659 kr. kg Borgarnes lambalæri, hvítlauksmarín..... 1.369 1.825 1.369 kr. kg Borgarnes bjúgu .................................. 379 548 379 kr. kg Goði kjötbúðingur ................................ 475 679 475 kr. kg Ísfugl kjúklingalæri með legg................. 425 609 425 kr. kg Ota Havrefras 375 g............................. 289 324 770 kr. kg Ota Guldkorn 500 g ............................. 259 335 518 kr. kg Ömmu spelt flatkökur........................... 99 135 99 kr. stk. Agúrkur, íslenskar ................................ 89 108 89 kr. stk. Appelsínur .......................................... 109 169 109 kr. kg Þín Verslun Gildir 13. sept. til 19. sept. verð nú verð áður mælie. verð Borganes beikon, magnpakkning .......... 1.108 1.385 1.108 kr. kg Borganes víkinga-lambalæri ................. 1.598 1.998 1.598 kr. kg Frón súkkulaði, póló, 250 g .................. 129 139 516 kr. kg Hunt’s spaghettísósa, 737 g................. 139 198 189 kr. kg Cheerios, 518 g................................... 279 309 539 kr. kg Jacobs tekex, 200 g ............................. 59 75 295 kr. kg Axa Musli súkkulaði, 375 g................... 229 325 611 kr. kg Borganes ostapylsur ............................ 850 1.063 850 kr. kg Eðal laxasalat, 200 g ........................... 198 247 990 kr. kg helgartilboðin Kjúklingur, innmatur og brauðmeti Morgunblaðið/Golli S kýrar merkingar matvæla eru nauðsynlegar neyt- endum til þess að val þeirra á matvörum geti byggst á þekkingu á inni- haldinu. Matvælaframleiðendur og veitingastaðir eru nú teknir við því hlutverki að framleiða matinn ofan í okkur frá grunni, en neytendur eiga vissulega rétt á að vita hver inni- haldsefni matvæla eru. Í sumum til- fellum getur það verið öryggisatriði að fá réttar og nákvæmar upplýs- ingar um innihaldið, að sögn Jónínu Þ. Stefánsdóttur, matvælafræðings hjá Umhverfisstofnun. Í norrænni símakönnun, sem gerð var í fyrrahaust, voru eitt þúsund Ís- lendingar spurðir: „Hvaða upplýs- ingar finnst þér að verði að vera á umbúðum matvæla til þess að þú getir tekið upplýsta ákvörðun þegar þú kaupir matvæli?“ Upplýsingar um innihald matvælanna lentu í efsta sæti hjá aðspurðum. Reglur um innihaldslýsingar, sem framleiðendum og dreifingaraðilum er skylt að fara eftir, er að finna í reglugerð um merkingu matvæla. Þar kemur fram að innihaldslýsing á að veita greinargóðar upplýsingar um samsetningu vörunnar. Grund- vallaratriði er að merkingar séu vel læsilegar og á skiljanlegu tungu- máli, en merkingar á matvælum hér- lendis verða að vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku. Öll innihaldsefni skal tilgreina eft- ir minnkandi magni þannig að fyrst er talið upp það hráefni, sem mest er af og síðast það sem minnst er af. Nokkrar undantekningar eru þó til. Stundum er t.d. heimilt að nota flokksheiti í stað tegundaheitis. Sem dæmi um þetta má merkja „krydd“ eða „kryddblanda“ ef kryddin eru innan við 2% af þyngd matvælanna. Nokkrar undantekningar eru frá skyldunni um innihaldslýsingu og á það svo sem við um ferska ávexti og grænmeti, þar með talið kartöflur, gerjaða mjólk, brennd og óbrennd vín. Tegundaheiti kartaflna á þó að koma fram á umbúðum. Ofnæmis- og óþolsvaldar Í reglum um merkingar er listi yf- ir algengustu ofnæmis- og óþols- valda, sem alltaf þarf að merkja á skýran hátt. „Þetta eru egg, fiskur, ýmsar hnetur og jarðhnetur, korn sem inniheldur glúten, krabbadýr, mjólk, sell- erí, sesamfræ, sinnep, sojabaunir og afurðir þessara hráefna. Einn- ig er á þessum lista aukefnið súlphúr díoxíð og súlfíð (SO2) sem hef- ur e-númerið 220 og er meðal annars að finna í vínum og þurrkuðum ávöxtum. Lindýr og lúpína og afurðir þeirra bætast svo fljótlega á listann. Afurðir þess- ara ofnæmis- og óþols- valda, til dæmis auk- efni, sem unnin eru úr þeim, þarf alltaf að merkja með tilvísun í ofnæmisvald- inn. Þannig þarf að koma fram í merkingu hvort aukefnið lesitín er unnið úr eggjum eða soja eða koma skýrt fram á annan hátt að sá ofnæmisvaldur sé í matvörunni,“ segir Jónína. Aukefni skal merkja Í innihaldslýsingu þarf að merkja aukefni með sínu heiti eða e- númeri. „Þannig er ýmist hægt að merkja lesitín eða e-322. Auk þess þarf að merkja flokksheiti aukefna, sem lýsir hlutverki þess í vörunni. Lesitín er oft notað sem ýruefni, það er til þess að vatn og olía blandist saman. En lesitín getur einnig verið þráa- varnarefni því það hindrar þránun fitu. Lesitín, eins og fleiri aukefni, er því ekki alltaf merkt með sama flokksheiti. Þau aukefni, sem hafa e-númer, hafa verið metin vísindalega. Sum þeirra má nota í allar matvörur, sem nota má aukefni í, til dæmis matar- sóda (e-500), en notkun annarra er háð ákveðnu hámarksgildi og ein- göngu leyft í fáar matvörur,“ segir Jónína. Magn mikilvægra efna Í mörgum tilfellum á að koma fram á matvörum magn mikilvægra innihaldsefna. „Þetta á við þegar vöruheitið er venjulega tengt ákveðnu innihaldsefni, til dæmis í tilfelli kjötbolla eða plokkfisks, eða merkingar leggja áherslu á magn eða mikilvægi innihaldsefnis. Það á með öðrum orðum að tilgreina hve mikið er af rækjum í rækjusalati. Í niðurstöðum eftirlitsverkefnis Umhverfisstofnunar og Heilbrigð- iseftirlits sveitarfélaga um merking- ar tilbúinna matvæla, sem unnið var í árslok 2006, kom fram að af 67 vörum, sem skoðaðar voru, var skylt að magnmerkja 49 þeirra, en af þeim voru aðeins 27 vörur með magn- merkingu rétt fram setta, sem þýðir að matvælamerkingum hérlendis er enn ábótavant,“ segir Jónína að lok- um. Neytendur eiga rétt á réttum innihaldsmerkingum Morgunblaðið/Ásdís Innihaldslýsingin Víða er pottur brotinn í merkingum tilbúinna matvæla þrátt fyrir að mjög mikilvægt sé að neyt- endur fái réttar upplýsingar um þær vörur, sem þeir hyggjast kaupa. Innihaldsmerkingar mat- væla eiga að veita grein- argóðar upplýsingar um samsetningu vörunnar. Jónína Þ. Stefánsdóttir sagði Jóhönnu Ingv- arsdóttur að matvæla- merkingum væri ábóta- vant hér á landi. Matvælafræðingurinn Jónína Þ. Stefánsdóttir. Það á með öðrum orðum að til- greina hve mikið er af rækjum í rækjusalati. Þetta er áttunda greinin af nokkr- um í greinaflokki, sem er sam- starfsverkefni matvælasviðs Um- hverfisstofnunar og Morgunblaðsins. www.ust.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.