Morgunblaðið - 13.09.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 27
NÚ ER liðið rúmt ár frá því helstu
talsmenn Varmársamtakanna hófu
linnulausa gagnrýni á vinnubrögð
meirihluta bæjarstjórnar Mosfells-
bæjar vegna fyrirhugaðs Helgafells-
vegar – og enn eru þeir að. Þrátt fyr-
ir niðurstöður frá Umhverfisstofnun
og færustu sérfræðingum um að
þessi leið sé sú besta fyrir umhverfið
og flesta íbúa Mosfellsbæjar.
Á sínum tíma vakti það athygli
mína hvað forystufólki í Samfylking-
unni, ekki einungis í Mosfellsbæ
heldur um land allt, var mikið í mun
að tengjast Varmársamtökunum á
einn eða annan hátt. Vafalaust hefur
þessi mikli áhugi flokksins að hluta
til stafað af öllum stórstjörnunum
sem léðu baráttunni lið, ýmist með
því að hoppa fyrir skurðgröfur,
gráta í sjónvarpi og útvarpi eða hóta
því að flytja úr bæjarfélaginu – en
annað kom einnig á daginn.
Pólitísk samtök
Þegar á leið og baráttan var að
fara út fyrir öll velsæmismörk í
skrifum og málflutningi helstu tals-
manna Varmársamtakanna og Sam-
fylkingarinnar tóku að renna á mig
tvær grímur. Þá fyrst tjáði ég mig
opinberlega um samtökin og vinnu-
brögð þeirra. Ég ritaði grein sem
birtist fyrir tæpu ári í Morg-
unblaðinu þar sem ég benti stjórn
Varmársamtakanna og helstu tals-
mönnum þeirra góðfúslega á að með
þessu áframhaldi myndu samtökin
aldrei halda trúverðugleika sínum
sem ópólitísk umhverfissamtök og
utan við alla flokkadrætti eins og
þeim hefur verið mikið í mun að láta
í veðri vaka.
Ekki var hlustað á þessi varnaðar-
orð mín og Varmársamtökin hertu
róðurinn, mærðu Samfylkinguna út í
eitt sem aldrei fyrr á meðan þau
héldu úti linnulausum árásum á bæj-
arstjórnarmeirihlutann og þá sér-
staklega Vinstri græn. Öllum er
kunnugt um þá herferð. Forystufólk
Samfylkingarinnar, bæði í Mos-
fellsbæ og úti um land allt, tók þátt í
darraðardansinum og gerir enn að
hluta. Áberandi var áhugi samfylk-
ingarfólks fyrir síðustu alþing-
iskosningar á að tjá sig um þennan
vegarspotta í Mosfellsbæ.
Rétt er að geta þess að hluti for-
ystufólks Varmársamtakanna og
það fólk sem hefur verið hvað mest
áberandi í allri umræðunni er flokks-
bundið samfylkingarfólk. Það er
leiðinlegt að hafa orðið þess áskynja
að samtök, sem voru stofnuð sem
ópólitísk umhverfissamtök, breytt-
ust á ótrúlega skömmum tíma í að
verða hápólitísk og ganga svo langt
að tala máli eins stjórnmálaflokks.
Dæmi eru um að fólk hafi sagt sig
úr Varmársamtökunum og einnig úr
nefnd á vegum þeirra. Vinnubrögð
og aðferðarfræði helstu talsmanna
samtakanna er að stærstum hluta
ástæðan fyrir úrsögnum þessa fólks
en á nákvæmlega þetta reyndi ég að
benda samtökunum í mínum fyrstu
skrifum um þau.
Neikvæði og sleggjudómar
Samfylkingin og Varmársamtökin
hafa opinberlega gert athugasemdir
við afskipti mín af hinum harkalegu
umræðum um tengibrautina og sagt
það fyrir neðan virðingu embættis
míns að taka þátt þeim. Í mínum
huga er það ljóst að það væri emb-
ætti mínu miklu frekar til vansa að
láta slíka orrahríð í fjölmiðlum svo
mánuðum skiptir ganga yfir Mos-
fellsbæ og þegja þunnu hljóði yfir
slíkum skrifum.
Það er ekki líðandi að fámennur
hópur fólks haldi bæjarfélaginu okk-
ar í herkví neikvæðra frétta og leið-
indaumræðu um margra mánaða
skeið og hafi jafnmikil og neikvæð
áhrif á allan bæjarbrag og raun ber
vitni. Ímynd bæjarins út á við hefur
beðið hnekki af þessari umfjöllun á
fleiri sviðum en augljós eru í fyrstu
og hefur umræðan smitað út frá sé á
ýmsa vegu. Alvarlegast er þó að
Samfylkingin hefur tekið virkan þátt
í þeim dansi, væntanlega í góðri trú
um auknar vinsældir. Það er aldrei
vænlegt til árangurs í pólitík að
flökta eins og strá í vindi, bara eftir
því hvernig vindar blása.
Áfram er haldið
Sigrún Pálsdóttir, stjórnarkona í
Varmársamtökunum, ritaði grein í
Morgunblaðið 3. september sl. Þar
fullyrðir hún m.a. að deiliskipulagið
um tengibrautina muni kollvarpa
bæjarmyndinni og ræna Mosfellsbæ
sínum dýrmætustu sérkennum.
Hvernig getur Sigrún fullyrt hver
séu dýrmætustu sérkenni Mosfells-
bæjar? Ekki vantar stóru orðin frek-
ar en fyrri daginn. Þetta hlýtur að
vera huglægt mat hjá henni.
Í greininni segir Sigrún einnig að
Varmársamtökin séu einu umhverf-
issamtök Mosfellsbæjar. Rétt er að
benda henni á að í Mosfellsbæ eru
önnur umhverfissamtök, Umhverfis-
og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar.
Formaður þeirra samtaka er Guðjón
Jensson, einn ötulasti umhverfis- og
náttúruverndarsinni Mosfellsbæjar
og þótt víðar væri leitað.
Ég vil að lokum varpa fram eft-
irfarandi spurningu til fulltrúa Sam-
fylkingarinnar í bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar: hvar hefði átt að leggja
tengibrautina annars staðar en
framhjá Álafosskvosinni? Um það
þegir flokkurinn þunnu hljóði, ég tel
tímabært að Mosfellingar fái svar
við þeirri spurningu.
Samfylkingin dansar með
Varmársamtökunum
Hvar hefði átt að leggja hina
umdeildu tengibraut annars
staðar en framhjá Álafosskvos-
inni? spyr Karl Tómasson
» Það er ekki líðandiað fámennur hópur
fólks haldi bæjarfélag-
inu okkar í herkví nei-
kvæðra frétta og leið-
indaumræðu um
margra mánaða skeið.
Karl Tómasson
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar.
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Þegar stórt er spurt er mikilvægt að fundurinn
um málið skili árangri. Þá getur verið gott að
nýta sér afbragðsgóða möguleika til fundahalda
sem bjóðast í nágrenni við áætlunarstaði
Flugfélags Íslands, hringinn í kringum landið.
Þú færð fyrsta flokks fundaraðstöðu og
fundarmenn njóta þess að vera í nýju umhverfi,
fjarri asa hversdagsins. Og þið getið verið
komin heim seinni partinn sama dag.
Hringdu í 570 3075 eða sendu tölvupóst
á hopadeild@flugfelag.is og fáðu nánari
upplýsingar um kostina við Fundarfrið
Flugfélags Íslands.
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
90
45
0
9/
07
Fundarfriður
Tryggðu að fundurinn sé markviss og árangursríkur