Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 29

Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 29 ✝ Sigurður HelgiTryggvasson var fæddur þann 29. september 1937 í Vallarnesi, Vest- mannaeyjum. Hann lést 4. september s.l. á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Foreldrar hans voru Tryggvi Gunnarsson vél- stjóri f. 29. 4. 1916, d. 22. 3. 2001, f. í Miðey, Vest- mannaeyjum og Ólafía Sigurð- ardóttir húsmóðir f. 15. 8. 1916, d. 7. 12. 2003, f. í Hlíðarhúsi, Vestmannaeyjum. Bróðir, Gunn- ar Marel Tryggvason f. 27. 11.1945, kvæntur Huldu Sigurð- ardóttur. Sigurður kvæntist 6. 1. 1960 Ágústu Erlu Andrésdóttur frá Ásvallagötu í Reykjavík f. 27. 6. 1939. Hún er dóttir Andrésar Ingimundarsonar og Ingunnar Pálínu Benjamínsdóttur f. 4. 4. 1918. ari f. 16. 10. 1966, gift Kára Hrafni Hrafnkelssyni, fram- kvæmdastjóra f. 6. 1. 1971. Börn hennar frá fyrra hjónabandi eru: a) Ágúst Sævar Einarsson f. 1. 6. 1984 b) Sigþór Einarsson f. 26. 7. 1990 c) Brynjar Einarsson f. 22. 8. 1994 d) Aníta Einarsdóttir f. 22. 8. 1994. Barn Kára frá fyrra hjónabandi: Gabríel f. 22. 7. 1996. 5) Sigurður, járnsmiður f. 28. 8. 1975, kvæntur Hildi Guð- mundsdóttur, dagmóður f. 25. 12. 1973, barn þeirra: Sindri Már f. 22. 6. 2001. Sigurður ólst upp í Vestmanna- eyjum. Að grunnskólanámi loknu lagði hann stund á vélstjórnar- nám og starfaði sem vélstjóri á bátum frá Vestmannaeyjum, seinast á Danska-Pétri VE þar sem hann var yfirvélstjóri. 1987 fluttust Sigurður og Ágústa Erla til Reykjavíkur. Sigurður starfaði hjá Skrúðgörðum Reykjavíkur frá árinu 1992 allt þar til hann greindist með krabbamein árið 2004. Sigurður var mjög hand- laginn maður og byggði sér sum- arhús á fallegum stað í Gríms- nesi, sem átti hug þeirra hjóna allan. Undi hann sér þar vel við smíðar og garðvinnu. Sigurður Helgi verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 13. sept. og hefst athöfnin kl. 15. Börn Sigurðar og Ágústu Erlu eru: 1) Tryggvi, vél- stjóri f. 21. 1. 1957, sambýliskona Erla Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri f. 1.9. 1960. Börn hans frá fyrri hjónabönd- um eru: a) Sigurður Árni f. 30. 1. 1984, unnusta hans er Sveinsína Ósk Emils- dóttir b) Kristín Erla f. 8. 5. 1992. 2) Ágúst Ingi, stýrimaður f. 13. 11. 1959, kvænt- ur Evu Leplat, framhaldsskóla- kennara f. 16. 7. 1957, synir þeirra eru: a) Axel f. 15. 4. 1986 b) Jóhann f. 1. 11.1987 c) Leó f. 19. 2. 1992. 3) Andrés Þorsteinn, yfir-haf- sögumaður f. 7. 12. 1962, kvænt- ur Ásu Svanhvíti, hárgreiðslu- meistara f. 15. 9. 1966, synir þeirra a) Egill f. 16. 3. 1986, unn- usta hans er Auður Tinna Hlyns- dóttir b) Hlynur f. 16. 9. 1993. 4) Ólafía Ósk, grunnskólakenn- Elsku pabbi minn, nú ertu farinn frá okkur og um leið skjóta hinar ýmsu minningar upp kollinum í huga mér. Þegar ég var lítil stelpa á Vest- mannabrautinni og þú komst heim á hverjum morgni með heit vínar- brauð úr bakaríinu. Þegar þú rak- aðir þig þá varðst þú að „raka“ mig líka og láta Old Spice-rakspírann á mig eins og þig. Ferðirnar okkar í kirkjugarðinn að leiði langömmu og langafa, ófáar ferðirnar sem þú og Ágúst Sævar fóruð á Gullmolanum að kaupa „creeps“ í sjoppunni, þið Sigþór saman fyrir framan sjónvarp- ið, þegar þú sást Anítu og Brynjar í fyrsta skipti og hversu mikið þér brá að sjá þau svona agnarlítil á vöku- deildinni. Strax frá þeirri stundu átti Aníta alltaf sérstakan stað í hjarta þínu og gat alltaf brætt afa gamla. Nú í seinni tíma eru það ýmsar minningar úr bústaðnum eins og t.d. þegar þú og mamma, við systkinin og makar okkar fórum í vinnuferðina til að smíða sólpallinn, hvað þú grín- aðist með Rassopulos-skóna mína, hversu ákveðinn þú varst að komast í útskriftina mína og hvað þú varst hrærður og glaður þegar útskriftar- veislan breyttist óvænt í brúðkaupið okkar Kára. Þú varst nú ekki mikið fyrir að tjá þig um þínar tilfinningar en þú lést mig alveg vita hvað þú varst ánægður með að hann Kári kæmi inn í líf mitt. Hvað ég er glöð að við ákváðum að gifta okkur á þessum tímapunkti, þú varst bara svo hress og fínn akkúrat þessa helgi. Þegar ég hugsa til baka var eins og þú værir að bíða eftir þessari helgi því strax helgina eftir varstu kominn inn á spítala og fórst síðan beint þaðan inn á líknardeildina, þar sem kallið kom. Enn fleiri minningar leita upp í hugann en of langt mál er að setja þær allar hér á blað, þær verða bara hjá mér. En mikið verður samt skrítið að heyra ekki: „Er það heimasætan?“ þegar ég kem á Kleppsveginn. Nú er komið að því, pabbi minn, að ég heimsæki þig í garðinn og byggi upp minningar hjá mínum börnum eins og þú gerðir hjá mér. Ég reyni núna að sannfæra sjálfa mig um að það hafi verið fyrir bestu að þú fengir hvíldina löngu því innst inni veit ég það og ég veit líka að nú ert þú kominn á betri stað þar sem þú ert laus við kvalirnar, ert í faðmi horfinna ástvina og getur farið í sólina og á ströndina eins og þig dreymdi um að ná að gera áður en kvaddir þennan heim. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (Valdimar Briem.) Elsku pabbi, ég kveð þig nú í hinsta sinn en minning þín lifir í huga mér og hjarta og ég veit að við eigum eftir að hittast síðar. Þín einkadóttir Lóa Ósk. Jæja pabbi minn, þá er komið að kveðjustund hjá okkur. Baráttu þinni við illvígan sjúkdóm er lokið. Á þessum tímamótum kemur ým- islegt upp í hugann. Það er ekki hægt að segja að við höfum verið mestu mátar á uppvaxtarárum mín- um og deildum við oft, eiginlega mjög oft. Enda var ég kannski svolít- ið óþekkur peyi og þú svolítið óþol- inmóður. Sem betur fer náðum við sáttum og urðum góðir vinir þegar árin liðu. Fyrsta heimili ykkar mömmu var á Eystri-Oddsstöðum og mínar fyrstu minningar eru þaðan. Þá rerir þú á Erlingi gamla með pabba þín- um. Fyrsta húsið sem þið keyptuð var Litla-Grund við Vesturveg 24. Á þeim tíma var Ingi bróðir fæddur og þar bættist við Addi Steini. Árið 1966 flutum við á Vestmannabraut 72 og þar bættist Lóa systir við. Það var mikið um að vera í hverfinu á þessum tíma, enda barnmargar fjölskyldur við götuna. Þegar ég lít til baka hafð- ir þú svolítið sérstakan húmor sem ekki allir skildu. En ég fattaði þig strax og hafði mikið gaman af. Á ég í minningum mínum alveg helling sem ég ætla að eiga fyrir mig. Samt verð ég að minnast á eina mest notuðu setningu þína við mig og Inga bróður þegar við vorum að slást. Þú skiptir þér ekki af slagsmálum okkar bræðra heldur sagðir „hvíliði mig“, ef það virkaði ekki kom með hvassri áherslu „út á blett“. Þegar ég var smápeyi fékk ég oft að sitja á BSA-mótorhjólinu þínu og hafði það svo mikil áhrif á mig að enn þann dag í dag er ég með mótor- hjóladellu á háu stigi. Þegar þú fórst til Reykjavíkur með Herðubreið að kaupa fyrsta bílinn þinn fékk ég að fara með. Mér fannst Moskvitchinn flottur bíll. Hann var svo flottur að afturhurðirnar opnuðust öfugt við aðra bíla. þá var ég rétt 5 ára gamall. Í gosinu fluttum við upp á land eins og aðrir en snerum aftur til Eyja 1975. Þá bættist Siggi bróðir í hópinn. Við fluttum aftur í sama hús- ið en það stóð af sér gosið. Árið 1987 fluttuð þið mamma með Sigga bróður upp á land og bjugguð ykkur heimili í Árbænum. En við eldri systkinin vorum þá búin að stofna okkar eigin fjölskyldur og urðum eftir í Eyjum. Á seinni árum náðum við pabbi góðu sambandi þar sem áhugamál okkar lágu saman. Sérstaklega átti það við um gamla vélbáta í Vest- mannaeyjum. Þú vissir nánast allt um bátaflotann hér í eyjum fyrir mína tíð og varst duglegur að miðla þeim upplýsingum til mín. Þú hlakkaðir mikið til að komast á eftirlaun en þú hefðir orðið sjötugur seinna í þessum mánuði. Það var margt sem þið mamma ætluðuð að gera en þar átti sumarbústaðurinn hug ykkar allan. Að lokum vil ég þakka þér, pabbi minn, fyrir allt. Mér þótti vænt um þig og veit að við skildum sáttir. Þinn sonur, Tryggvi. Nú er afi farinn frá okkur og ég hugsa oft um hann og verð þá dapur, en ég veit að núna er hann kominn á góðan stað. Ég veit að hann er núna að passa að ekkert komi fyrir okkur, en ég mun alltaf sakna hans og ég veit að hann saknar þess að vera ekki hjá okkur líka. Þinn afastrákur Brynjar. Sigurður Helgi Tryggvason ✝ Ástkær móðursystir okkar, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Dvergasteini, síðast til heimilis að dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést föstudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 14. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Hannesdóttir, Helgi Hannesson, Guðmundur Þór Hannesson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGÞRÚÐUR PÁLSDÓTTIR ljósmóðir, frá Eyjum í Kaldrananeshreppi, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. september. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 14. september kl. 13.00. Halldór Hjálmarsson, Steinunn Halldórsdóttir, Einar Steingrímsson, Hjálmar Halldórsson, Rún Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Stella Óladóttir, Örn Halldórsson, Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra KRISTÍN EGGERTSDÓTTIR, Hjarðarhaga 56, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. september kl. 15.00. Guðmundur Eggertsson, Jóna Eggertsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Ragnheiður Jóhannsdóttir, Aðalheiður L Guðmundsdóttir, Einar Garibaldi Eiríksson, Guðrún Ara Arason, Heiður Hörn Hjartardóttir, Þorsteinn Arilíusson, Anna Margrét Þorsteinsdóttir, Inga Lilja Þorsteinsdóttir, Jón Ingi Þorsteinsson, Eggert Sólberg Jónsson, Magnús Elvar Jónsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, SIGFÚS JÓNSSON, Víðilundi 20, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Seli að morgni sunnudagsins 9. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elsa Grímsdóttir, Arnar Sigfússon, Helga Sigfúsdóttir, Árni Pétur Arnarsson. ✝ Elskuleg systir okkar, Ida Dibble, fædd Behrens, andaðist á sjúkrahúsi í Cleveland Ohio mánudaginn 27. ágúst. Útförin hefur farið fram. Stefán Stefánsson, Þóra Stefánsdóttir, Magnús Stefánsson, Ragnheiður Stefánsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEFANÍA MAGNÚSDÓTTIR frá Breiðdalsvík, Langholtsvegi 124, Reykjavík, er látin. Útförin auglýst síðar. Jóhanna Birgisdóttir, Leif Meyer, Aðalheiður Birgisdóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Ágúst Guðjónsson Karl Th. Birgisson, Katrín Ösp Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.