Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðlaug Torfa-dóttir líffræð- ingur fæddist í Keflavík 11. ágúst 1946. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 4. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar Guð- laugar voru Torfi Guðbrandsson, f. 17. september 1905, d. 9. nóvember 1985 og Elín Sigurjóns- dóttir, f. 25. júlí 1905, d. 26. apríl 1987. Systir Guðlaugar er Kristín Sigríður, f. 22. mars 1944, búsett í Banda- ríkjunum, gift Henry L. Gilson Sr. Börn þeirra, einnig búsett í Bandaríkjunum, eru Elín Dawna Thomas og Henry L. Gilson Jr. Börn Elínar, sem er ekkja, eru Greg, Nathaniel og Sebastian og börn Henry Jr. og konu hans Christine Marie eru Kyle, Sydney og Jared. margar viðurkenningar fyrir námsárangur. Guðlaug starfaði sem kennari við Æfinga- og til- raunaskóla Kennaraskóla Íslands (síðar Kennaraháskóla Íslands) árin 1966-’67 og 1969-’74. Á ár- unum 1978-’80 starfaði hún svo við Rannsóknastofu Háskóla Ís- lands við líffræðirannsóknir og kennslu. Síðan lá leið hennar að St. Jósefsspítala, Landakoti, þar sem hún gegndi stöðu deildar- stjóra í heilbrigðisþjónustu við rannsóknir og stjórnun sérhæfðr- ar rannsóknardeildar, m.a. geilsa- virkra og ógeilsavirkra ónæmis- mælinga, meinefnafræði hormóna og vaxtarþátta o.fl. árin 1980- 1996. Guðlaug gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum á sinni náms- og starfsævi. Hin seinni ár starfaði Guðlaug hjá Landspítala – háskólasjúkra- húsi sem líffræðingur í fóstur- skimun við erfða- og sameinda- læknisfræðideild til ágúst 2006, en þá greindist hún með illskeytt krabbamein. Útför Guðlaugar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Að loknu lands- prófi frá Gagnfræða- skóla Keflavíkur fluttist Guðlaug til Reykjavíkur og hóf nám við Kennara- skóla Íslands og lauk þaðan kennaraprófi 1966. Árið 1968 lauk hún svo stúdents- prófi frá mennta- deild Kennaraskóla Íslands með viðbót- arstúdentsprófi í stærðfræði, efna- fræði og eðlisfræði. Að því loknu hóf hún nám í Bet- hany College í Bandaríkjunum og lauk þaðan BA-prófi 1969 í upp- eldis-, sálar- og kennslufræði ásamt heimspeki. Eftir það lá leiðin í Háskóla Íslands og þaðan útskrifaðist hún með BS-próf í líf- fræði frá verkfræði- og raunvís- indadeild 1977. Guðlaug varð lög- giltur náttúrufræðingur í heil- brigðisþjónustu árið 1991. Í gegnum árin hlaut Guðlaug Kveðja frá vinkonum í líffræði við HÍ Við kynntumst Guðlaugu haustið 1974 þegar við hófum nám í líffræði við Háskóla Íslands. Við vorum flest- ar nýstúdentar en Guðlaug var eldri og með annan bakgrunn. Hún var útskrifaður kennari og hafði lagt stund á nám í sálfræði í Bandaríkj- unum. Við vorum flestar frekar óþroskaðar og hending réð því hvaða nám varð ofan á þetta haustið, en Guðlaug hafði aftur á móti stefnt lengi að þessu námi. Hún varð fljótt kjölfestan í hópnum; róleg, yfirveg- uð og frábær námsmaður. Hún kunni að leita að heimildum, krufði hlutina til mergjar og var sú sem leitað var til ef eitthvað var óljóst í kennslustundum. Á þessum árum áttu háskólastúd- entar ekki tölvur og fyrirlestrar voru ekki aðgengilegir á Netinu. Stúdentar þurftu því að mæta í tíma, fylgjast vel með og taka niður glós- ur. Guðlaug var vandvirk og vel und- irbúin og náði að skrá niður nánast hvert einasta orð sem féll af vörum fyrirlesaranna. Hún hafði einstak- lega fallega rithönd og voru glósurn- ar hennar eftirsóttar af samnemend- um hennar. Hún lánaði þær gjarnan og voru þær mikið notaðar. Það gekk svo langt að kennarar kröfðust þess að nemendur tilgreindu glósur hennar sem heimildir, því nákvæmt og vandað vinnubragð hennar var auðþekkt. Guðlaug var ekki aðeins stoð okk- ar og stytta í náminu heldur leituð- um við gjarnan til hennar með einka- mál okkar. Hún var góður hlustandi og varð trúnaðarvinur okkar og sálu- sorgari, enda lífsreynd og mjög næm á mannlegt eðli og tilfinningar. Eftir útskrift fórum við hver í sína áttina. Við héldum þó alltaf sam- bandi, þótt stopult væri á köflum. Fyrir nær áratug tókum við upp þráðinn á ný og fórum að hittast mánaðarlega á kaffihúsum borgar- innar. Guðlaug mætti oftast, jafnvel síðasta árið þegar hún var orðin veik. Það vantaði mikið í hópinn ef Guðlaug komst ekki. Hún var hlý og kát og alltaf í góðu skapi. Hún sá gjarnan spaugilegar hliðar á málum og hafði léttan og dillandi hlátur. Guðlaug var frekar dul á sín einka- mál, en vinnan var hennar líf og yndi og þreyttist hún seint á að greina frá því sem var efst á baugi þar hverju sinni. Hún var sérlega frjó og vand- virk bæði í námi og starfi og ósér- hlífin og mikils metin á sínum vinnu- stað. Þegar hún greindi okkur frá al- varlegum veikindum sínum fyrir um ári kom það okkur ekki á óvart, því hún hafði ekki gengið heil til skógar í talsverðan tíma. Hún tók veikindum sínum með æðruleysi og barðist hetjulegri baráttu allt til enda. Hún vildi horfa fram á veginn og í sumar keypti hún sér nýja íbúð og stefndi að því að bjóða okkur þangað í kaffi. Í dag kveðjum við vinkonu sem við höfum átt samleið með í rúm 30 ár. Þótt hún sé nú horfin á braut mun hún eiga sér stað í hjarta okkar um ókomna tíð og þökkum við henni fyr- ir allt. Áætlanir hennar um kaffiboð og að eldast með okkur munu ekki ganga upp, en þegar lífið er orðið óbærilegt verður dauðinn líkn. Við vottum systur hennar og öðr- um aðstandendum samúð okkar. Blessuð sé minning vinkonu okkar, Guðlaugar Torfadóttur. Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Inga Skaftadóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Margrét Geirsdóttir, Sigríður Elefsen, Vala Friðriksdóttir og Þuríður Þorbjarnardóttir. Enn er höggvið skarð í hópinn góða sem starfaði á rannsóknastof- unni á Landakotsspítala á áttunda áratugnum. Guðlaug Torfadóttir líf- fræðingur, sem lést á krabbameins- deild Landspítalans nú í byrjun september, var í þessum hópi. Guð- laug var ættuð úr Keflavík, dóttir öðlingshjónanna Torfa Guðbrands- sonar og Elínar Sigurjónsdóttur, sem sendu hana út í lífið með það dýrmæta veganesti sem umhyggja og ást getur best gefið. Guðlaug var aldrei í vafa um hver hún væri, hvað hún vildi eða hvað hún gæti. Guðlaug fylgdi ekki meginstraum- um, hún tók sjálfstæðar ákvarðanir og lét ekki á sig fá þótt öðrum þætti hún dálítið sérstök. Enginn notaði orðið skrítin um Guðlaugu, aðeins sérstök. Og vissulega var hún sér- stök. Hún hleypti heimdraganum ung, aðeins 16 ára. Fór til Reykja- víkur og innritaðist þar í Kennara- skólann, þegar aðrir skólafélagar fóru í heimavistina á Laugavatni. Upp frá því var hún ávallt sjálfrar sín herra. Að loknu kennaranámi hélt hún til Bandaríkjanna þar sem hún lagði stund á uppeldissálarfræði og lauk BA-prófi. Hún hafði brenn- andi áhuga á öllu því sem tengdist atferli og hugsun mannsins. Hjá henni kynntist ég fyrst bókum eftir menn eins og Desmond Morris, Er- ich Fromm og Freud, en slíkar bæk- ur fylltu lengdarmetra í hillum henn- ar. Síðar tóku annars slags fræðibækur við en viðfangsefnið „maður“ fylgdi henni alla ævi. Guðlaugu kynntist ég sumarið 1973 eða ’74, þegar hún sótti um sumarvinnu á skrifstofu rannsókna- stofunnar. Þá hafði hún þegar tekið ákvörðun um að snúa aftur til náms og nú í líffræði í Háskóla Íslands. Að námi loknu vann hún við kennslu í nokkur ár á líffræðistofnun háskól- ans við Grensásveg. Hún naut þess að kenna og líkt og með önnur störf sem hún tók að sér síðar á ævinni lagði hún allt sitt í verkefnið. Í raun tókst hún á við allt lífið sem verkefni. Líka dauðann þegar hann barði dyra. Líffræði var hennar fag. Allt sem lifði, allt sköpunarverkið, vakti áhuga hennar. Hún var mikill nátt- úruunnandi og naut þess að skoða og snerta það sem hún sá. Oft þegar ég horfði á hana handleika blóm, stein- völu eða bara marfló með löngu hvítu fingrunum sínum, fannst mér hún einhvern veginn utan tímans. Helst fannst mér hún eiga heima í riddarasögum að hnýta einhverri hetjunni sveig. Þó var hún öll þessa heims. Ég get ekki látið vera að minnast ferða okkar í Þórsmörk, Heiðmörk og um fjörurnar í ná- grenni Reykjavíkur með þakklæti. Það voru góðar stundir. Guðlaug giftist aldrei. Hún eign- aðist engin börn. Missirinn er þeirra. En hún átti marga vini og hún átti góða að. Foreldrum sínum sýndi hún sömu alúð í ellinni og hún sjálf hafði notið í uppvexti. Oft talaði hún um „mömmu“ sína í Mávahlíðinni, en þar bjó móðursystir hennar, hjá hverri hún átti alltaf athvarf. Fólkið þar var hennar önnur fjölskylda og afar kært. Kristínu systur hennar, fjölskyld- unni og öllum vinum og vandamönn- um sendi ég samúðarkveðjur. Þótt það atvikist svo að ég geti ekki verið viðstödd útför Guðlaugar mun hugur minn fylgja henni síðasta spölinn. Ragnhildur Kolka. Ég kynntist Guðlaugu fyrst sem læknanemi fyrir þrjátíu árum. Hún var þá leiðbeinandi í verklegri lífeðl- isfræði. Guðlaug kom mér fyrir sjón- ir sem hlýr en skýr kennari og þol- inmóð við stúdenta. Löngu síðar, fyrir um 7 árum, lágu leiðir okkar aftur saman þegar Guðlaug var að vinna að vísindaverkefni. Um það leyti var að hefjast undirbúningar rannsóknarstofu sem sjá átti um blóðrannsóknir og líkindamat vegna fósturskimunar í samvinnu við fóst- urgreiningardeild Landspítala og kvennadeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri. Verkefnið var vandasamt og krafðist fjölbreyttrar þekkingar og reynslu. Guðlaug tók það að sér og reyndist einstaklega vel fallin til þess. Hún var líffræðingur með mikla reynslu í sérhæfðum blóð- rannsóknum. Auk þess var hún menntaður kennari og með háskóla- nám í sálfræði. Sú menntun kom sér vel við að vega og meta siðfræðilegar hliðar fósturskimunar og hvernig best væri staðið að upplýsingagjöf og ákvörðunum á því sviði. Guðlaug setti sig vel inn í allar hliðar málsins og stóð bjargföst á því að þungaðar konur ættu að eiga upplýst val um fósturskimun. Ef þær óskuðu fóst- urskimunar ætti hún að vera gerð eins vel og hægt væri. Hún kynnti sér alþjóðlega vinnu í fósturskimun og setti sig í samband við Kevin Spencer, forystumann á því sviði. Guðlaug heimsótti rannsóknarstofu Kevins og setti sig þar inn í alla hluti stóra og smáa. Rannsóknarstofa Guðlaugar fékk í framhaldi alþjóð- lega gæðavottun í fósturskimun og var ein af fyrstu rannsóknarstofum í heiminum að fá slíka viðurkenningu. Í kjölfar umræðu í þjóðfélaginu um fósturskimun óskaði heilbrigðis- ráðuneytið eftir að Landlæknisemb- ættið aflaði gagna um það hvernig staðið væri að fósturskimun í Evr- ópu. Guðlaug kom að verkinu og haldinn var skilafundur á skrifstofu Landlæknis. Hann er reyndur vís- indamaður og embættismaður sem eflaust hefur margan stóran skjala- bunkann séð. Guðlaug rétti honum þykka skýrsluna sem hún hafði lagt allan metnað sinn í. Af svip Land- læknis réð ég að ekki skiluðu allir svona ítarlegum skýrslum. Guðlaug var eftirminnileg í sjón og nærveru. Bros í munnvikum og sjálfstraust í hreyfingum. Litlu hringlaga gleraugun framarlega á nefinu. Útlit og yfirbragð lærðrar kennslukonu. Vökul augun horfðu yfir gleraugun á viðmælanda. Orðin hnitmiðuð, úthugsuð og framsetning rökvís. Það sem hún ræddi hafði hún kynnt sér í þaula, hugsað um ítar- lega og komist að niðurstöðu. Hún fylgdi skoðunum sínum eftir með þunga og festu. Engar lausnir nema þær bestu væru nógu góðar. Guðlaug var baráttukona. Henni var ljóst að hverju stefndi síðustu mánuðina í erfiðum veikindum. En hver dagur var dýrmætur og upp- gjöf ekki á dagskrá. Trú sjálfri sér setti hún sig vel inn í kosti og galla mismunandi meðferða og mótaði sér skýra skoðun á hvað hentaði henni best hverju sinni. Okkur sem þekkt- um Guðlaugu kom þetta ekki á óvart. Ég þakka Guðlaugu ágæt störf fyrir erfða- og sameindalæknis- fræðideild Landspítalans. Missir okkar og söknuður er mikill. Jón Jóhannes Jónsson. Guðlaugu kynntist ég fyrst fyrir um það bil 6 árum, þegar ég kom í heimsókn á Landspítalann í þeim til- gangi að skoða möguleika á nýju starfi og hvaða viðbótarmenntunar það krefðist. Ég var kynnt fyrir henni með þessum orðum: „Það er hér kona sem þú þarft að kynnast. Hún er óhemju fróð og getur hjálpað þér á ýmsa vegu. Maður kemur aldr- ei að tómum kofunum hjá henni.“ Það var alveg rétt. Það skipti ekki máli hvert umræðuefnið var, alltaf vissi Guðlaug talsvert um það og stundum næstum allt. Hún var fús til að deila fróðleik sínum með öðrum og alltaf tilbúin til að nota tíma í að safna gögnum um tiltekin mál. Ég kynntist Guðlaugu betur eftir því sem við unnum meira saman. Við spjölluðum um ýmislegt en oftar en ekki var það vinnan sem var um- ræðuefnið. Enda átti vinnan hug hennar allan og flest sem hún gerði tengdist á einn eða annan hátt því að bæta starfsemina. Glettnin var þó aldrei langt undan og þá var stutt í bros og jafnvel skellihlátur þegar til- efni var til. Svo kom höggið stóra, staðfestingin á því að slæmskan sem lengi hafði háð Guðlaugu væri af völdum illkynja sjúkdóms. Baráttan við sjúkdóminn var ströng og Guðlaug, trú sjálfri sér, kynnti sér allt sem hún fann um sjúkdóminn, hugsanlega meðferð, mataræði og allt annað sem að gagni gæti komið. Hún barðist eins og ljón og í fyrstu virtist sem hún hefði bet- ur. Fyrsta meðferðin heppnaðist vel og Guðlaug leit vel út þegar hún kom í heimsókn á vinnustað. Allir glödd- ust með henni og vonuðu hið besta en svo komu fregnir af því að meinið hefði tekið sig upp aftur. Vinir og samstarfsmenn fylgdust grannt með og flesta daga kom einhver til að spyrja frétta af Guðlaugu eða flytja fréttir eftir að hafa hitt hana á förn- um vegi eða á sjúkrahúsinu. Þegar hún svo þurfti að dvelja á sjúkrahús- inu kom samstarfsfólkið til að hitta hana, oft margir í einu. Guðlaug gladdist yfir heimsóknum og hvatti fólk til að koma þó hún þreyttist fljótt. Sporin hennar Guðlaugar sjást víða, bæði í starfi og persónulega. Á lítilli deild þar sem hver manneskja skiptir máli er missirinn enn stærri en ella. Ekki síst þegar manneskjan hefur lagt jafnmikið af mörkum og Guðlaug gerði varðandi skipulag og gæðamál í sínu starfi. Ég votta aðstandendum og vinum Guðlaugar mína dýpstu samúð og bið þeim Guðs blessunar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Vigdís Stefánsdóttir. Mig langar að minnast samstarfs- konu minnar og vinkonu, Guðlaugar Torfadóttur, með nokkrum orðum. Ég hóf störf sem aðstoðarmaður Guðlaugar sumarið 2004. Ég tók strax eftir því að þarna var mjög sér- stök manneskja á ferðinni. Guðlaug bar mikla ástríðu fyrir starfi sínu og sinnti því af einstakri vandvirkni og eljusemi. Hún var einnig nær botn- laus af fróðleik, um allt sem varðaði starfið og annað sem var á baugi í þjóðfélaginu. Í þau skipti sem hún taldi sig þurfa að vita betur tók hún sig til og mætti gjarnan næsta dag með ótæmandi upplýsingar um efn- ið. Ég mun einnig ætíð minnast mik- ils dálætis hennar á náttúrunni, pí- anótónlist og litlum börnum. Þó svo að hún hafi aldrei eignast börn sjálf taldi hún sig eiga stóran hlut í býsna mörgum þar sem hún hafði sinnt kennslu í fjölda ára. Margir myndu lýsa Guðlaugu sem einfara en hún var um leið einstak- lega hjartahlý kona, með góðan húmor, og hún var traustur og góður vinur vina sinna. Hún var stolt kona sem gafst aldrei upp þótt á móti blési og lýsir það henni hvað best hvernig hún barðist af hugrekki við illræmd- an sjúkdóm síðasta árið. Hún átti af- mæli skömmu áður en hún lést og þegar ég leit inn til hennar með blóm varð hún ákaflega þakklát og til- kynnti mér jafnframt að mér væri boðið í afmæli til hennar á næsta ári í nýju íbúðinni hennar á Hofakri. Því miður varð henni Guðlaugu ekki að ósk sinni og við hin þurfum að upplifa haustið án hennar. Það er mikill söknuður sem fylgir því að þurfa að kveðja Guðlaugu, allt of snemma, en um leið þakklæti fyrir þær stundir sem við áttum saman. Hún var einn besti kennari og einnig ein besta vinkona sem ég hef átt. Ég votta syrgjendum samúð mína. Helga Hauksdóttir. Guðlaug Torfadóttir ✝ Lífsförunautur minn, AUÐUNN JÓNSSON, Seilugranda 8, Reykjavík, andaðist aðfaranótt sunnudagsins 9. september. Fyrir hönd aðstandenda. Guðrún Friðriksdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.