Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 31

Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 31 ✝ Ari GuðmundurGuðmundsson fæddist í Holti á Ásum, Austur-Húna- vatnssýslu, hinn 23. mars 1923. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Sólvangi sunnudaginn 2. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jakob- ína Vermundsdóttir (f. 1891, d. 1983) og Guðmundur Guðmundsson (f. 1888, d. 1977). Ari kvæntist árið 1957 Guð- Tryggvadóttir. Barnabörn Ara eru átta talsins og barnabarna- börnin fimm. Ari ólst upp í Holti, á bökkum Laxár á Ásum. Hann fór í Menntaskólann á Akureyri en stundaði síðan verslunarstörf á Blönduósi og vann við húsamálun víða í Húnaþingi. Haustið 1947 hóf Ari störf við Kaupfélag A- Húnvetninga á Blönduósi, þar sem hann vann til 1980, lengst af sem aðalbókari og skrifstofu- stjóri. Auk þess var hann um- boðsmaður Samvinnutrygginga í héraðinu og sá um bíósýningar á Blönduósi um áratugaskeið. Árið 1980 fluttu þau Ari og Guðmunda til Hafnarfjarðar. Vann Ari þá um skeið hjá flugfélaginu Iscargo en hóf síðan störf hjá Skattstofu Reykjavíkur þar sem hann vann til starfsloka árið 1993. Ari verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 13. mundu Guðmunds- dóttur frá Eiríks- stöðum í Svartárdal (f. 1937). Foreldrar hennar voru Guð- mundur Sigfússon og Guðmunda Jóns- dóttir. Ari og Guð- munda eignuðust tvö börn, Óskar Eyvind (f. 1957), maki Mar- grét Rósa Gríms- dóttir, og Ásu Lovísu (f. 1959), maki Ólafur Arn- alds. Fyrir átti Ari soninn Guðmund (f. 1946) með Sigríði Valdemarsdóttur (f. 1925, d. 1963), maki hans er Inga Birna Ég hitti Ara tengdapabba fyrst á Blönduósi þegar ég fór sem ungling- ur með kærastanum að heimsækja foreldra hans. Mér var tekið opnum örmum af þeim hjónum, Ara og Lillu, og stjönuðu þau við okkur í hvívetna. Ari vann alltaf mikið, var aðalbók- ari Kaupfélagsins, umboðsmaður tryggingafélags og sá um bíóið á Blönduósi. Hann átti oft flotta bíla og hugsaði mjög vel um þá, sem og aðra hluti. Mér er svo minnisstætt þegar ég kom fyrst inn í bílskúrinn hans Ara. Þar var hægt að ganga um á sokkaleistunum án þess að óhreink- ast og öll verkfæri voru snyrtilega hengd upp í stærðarröð og í beinni línu. Sömu sögu er að segja um skáp- ana þar, hver brúsi á sínum stað og hvergi klístur eða kám. Þetta lýsti svo vel hans innri manni, snyrtimennsku og reglusemi. Allir hlutir alltaf á sín- um rétta stað. Rithönd Ara var gull- falleg og skrautritaði hann skjöl á sín- um yngri árum. Þegar við Óskar skriðum út úr skóla og fórum að vinna fyrir okkur sá Ari alltaf um allt bókhald fyrir okkur sem honum þótti sjálfsagt að gera endurgjaldslaust. Það var gott að fá tengdaforeldrana í bæinn, þegar þau fluttu í Hafnar- fjörðinn 1980. Ari var mikill matmað- ur og þótti gott að borða góðan mat. Það var ósjaldan sem okkur var boðið í grillaðan kjúkling eða læri sem tengdamamma er snillingur í að mat- reiða. Við njótum þess enn þó að hans sé saknað við borðið. Ari var góður afi. Hann var bestur í að spila við okkur systurnar og kenndi okkur öllum að tefla. Oft leyfði hann okkur að vinna og hjálpaði okk- ur þegar við vorum að spila við ömmu. Afi var mikill nammigrís og átti alltaf suðusúkkulaði og kandís sem hann gaf okkur. Það var gott að eiga hann fyrir afa og við söknum hans allar. Margrét Rósa Grímsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Hugrún Óskarsdóttir, Brimrún Óskarsdóttir. Látinn er tengdafaðir minn, Ari G. Guðmundsson. Með honum er fallinn frá mikill heiðursmaður. Ari var Austur-Húnvetningur að ætt og uppruna. Hann bjó á Blöndu- ósi fyrri hluta ævinnar og starfaði lengstum sem bókari og skrifstofu- stjóri við Kaupfélag Austur-Hún- vetninga, sem var stórveldi í landbún- aðarsamfélagi þess tíma. Hann var einnig umboðsmaður Samvinnu- trygginga á Blönduósi, sá um bíósýn- ingar og hafði almennt mikið umleik- is. Þau hjónin byggðu glæsilegt hús við aðalgötu bæjarins, þar sem oft var gestkvæmt og fjölbreytt mannlíf. Um miðjan aldur fluttu þau hjón búferl- um til Hafnarfjarðar og hann hóf fljótlega störf á Skattstofu Reykja- víkur. Ari hafði þó alla tíð sterkar taugar til Austur-Húnavatnssýslu, það voru rætur sem aldrei trosnuðu, fyrir norðan átti hann fjölmarga vini og félaga sem hann fylgdist vel með alla tíð. Dýpsta rót upprunans stóð þó ávallt í bökkum Laxár á Ásum þar sem hann ólst upp í foreldrahúsum. Ari Guðmundsson átti afar farsæla starfsævi. Hann var nákvæmur í öll- um þeim störfum sem hann tók sér fyrir hendur og hreinskiptinn. Ná- kvæmni Ara og sanngirni voru eig- inleikar sem komu sér einkar vel við störf hans á Skattstofunni. Ari Guð- mundsson var aðlaðandi maður, sjarmör á sinni tíð, meðalmaður á hæð, þrekinn, svipfríður og ávallt mikið snyrtimenni. Honum var margt til lista lagt, hann málaði og ritaði skrautskrift, lék á harmonikku fyrir dansi á yngri árum, og hvers kyns handverk lék í höndum hans. Ari hafði ótrúlegt minni sem og reikni- gáfu – hæfileikar sem nýttust honum vel um ævina í leik og starfi. Hann var snjall skákmaður og afar minn- ugur á örnefni. Ari ferðaðist víða, inn- an lands sem utan, átti ávallt góð öku- tæki og jafnvel hjólhýsi á borð við þau sem nú ryðja sér til rúms. Þau hjónin, Ari og Guðmunda, tóku börnin í ferð- ir með Gullfossi til fjarlægra landa og sóttu sólarstrendur í árdaga þeirrar menningar. Þær voru líka margar ferðirnar innanlands þar sem lands- lagið fékk kjölfestu í örnefnum og sögu landsins – og kímnin aldrei langt undan. Ari var af þeirri kynslóð Íslendinga sem hlustuðu alltaf á fréttirnar, lífið var í föstum skorðum, hann var ávallt stundvís en þoldi illa óstundvísi ann- arra. Frágangur átti að vera kirfileg- ur, hálfkák fannst ekki í æði Ara. Hann sinnti smíðum og viðhaldi hvers konar af natni, sem hvarvetna sér nú stað á heimili hans sem og barnanna. Göslaragangi tengdasonarins var þó tekið með þolinmæði. Á sinn kyrrláta hátt fylgdist hann vel með hag fjöl- skyldunnar, fjárhag og aðbúnaði barna og barnabarna, ávallt tilbúinn að bjóða stuðning þegar harðnaði á dalnum hjá námsfólkinu í fjölskyld- unni. Hann studdi við fyrirætlanir af- komendanna og leitaðist við styðja þá við að stýra þeim heilum í höfn. Fjöl- skyldan sat ávallt í fyrirrúmi og heimilið í Hafnafirðinum var mið- punktur í lífi stórfjölskyldunnar. Á undaförnum árum hrakaði heilsu Ara og undanfarin ár var hann oft rúmfastur. Tengdamóðir mín, Guð- munda, sinnti umönnun hans af ein- stöku æðruleysi og ljúfsinni. Betri umönnun er ekki hægt að hugsa sér við ævilokin. Með Ara Guðmundssyni er genginn góður vinur og sómamað- ur sem ég kveð með söknuði, en minning hans lifir. Ólafur Arnalds. Hann Ari afi minn er látinn. Ég dvaldi langdvölum á heimili afa og ömmu Lillu í Hafnarfirði, ekki síst þegar ég var lítil. Ég er þakklát fyrir þann tíma og lít til baka með söknuði. Hann afi var góðhjartaður maður sem gaf sér alltaf tíma til þess að hlusta og hafði sérstakt lag á að vera til staðar þegar ungt barnabarn vant- aði hrós eða stuðning. Hann afi kenndi mér að meta fiski- bollur úr dós með miklu af smjöri, nýju rúgbrauði, og bæði hákarl og hvalkjöt. Hann afi í Hafnó var nákvæmur og skipulegur. Hann lagaði oststykkið hjá okkur þegar hann kom í heim- sókn, svo það væri snyrtilegt og brauðið lystugt. Það var einhvern veginn allt hornrétt á skrifstofunni hans afa, skipulagt og vel merkt. Hann afi hlustaði alltaf á fréttirnar. Líka þegar var leiðinlegt veður úti og lítil dama í heimsókn. Hún hlustaði líka eins og afi, alltaf á heila tímanum. Kvöldfréttirnar urðu eins konar veisla, með fullt af fréttum og frétta- auka í desert. Hvað maður varð vel upplýst 10 ára barn. Hann afi var í hvítri skyrtu með rautt bindi. Og mundi allt. Gjörsam- lega ósigrandi í trivial-leikjum. En hann afi var fyrst og fremst af- skaplega góðhjartaður maður. Ég sakna hans. Guð styðji hana ömmu mína og varðveiti afa. Arndís Ósk Ólafsdóttir, Namibíu. Ari Guðmundur Guðmundsson ✝ Ástkær móðir okkar, amma, langamma og langa- langamma, GUÐBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR frá Firði í Múlasveit, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 8. september. Útförin fer fram frá Langholtskirkju í dag, fimmtudaginn 13. september, kl. 13.00. Börnin. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SKÚLI GUÐNASON, Grænumörk 2, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 15. september kl. 14.00. Valgerður Guðnadóttir og fjölskylda. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ERNA HALLDÓRSDÓTTIR KOLBEINS kennari, síðast til heimilis að Skjóli, sem lést að morgni miðvikudagsins 5. september, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 14. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á FAAS, Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga. Halldór Torfason, Védís Stefánsdóttir, Ragnheiður Torfadóttir, Gunnar Ingi Hjartarson, Lára Torfadóttir, Hafsteinn Pálsson, Ásthildur Gyða Torfadóttir, Kristberg Tómasson, Erna Torfadóttir, Geir Sæmundsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær dóttir okkar, móðir og systir, HELGA KAROLÍNA JÓNSDÓTTIR frá Kópaskeri, sem lést að heimili sínu fimmtudaginn 6. septem- ber, verður jarðsungin frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 15. september og hefst athöfnin kl. 14.00. Guðný Margrét Guðnadóttir, Jón Grímsson, Sandra Huld Helgudóttir, Hafsteinn Viktor H. Artúrsson, Jón Alexander H. Artúrson, Guðni Björn Jónsson, Anna María Guðmundsdóttir, Grímur Örn Jónsson, Brynja Guðmundsdóttir, Stefán Jónsson, Bára Björk Björnsdóttir, Arnþrúður Erla Jónsdóttir, Finn Back Nielsen. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, GRÉTA JÓNSDÓTTIR húsfreyja, Efri-Grímslæk, Ölfusi, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn laugardaginn 15. september kl. 14.00. Jarðsett verður í Hjallakirkjugarði. Gunnar Konráðsson og aðstandendur ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona, amma og langamma, ANNA MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR, Brautarholti, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss föstudaginn 31. ágúst. Jarðsungið verður frá Blönduóskirkju laugardaginn 15. sepetember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þóra, Kolbrún, Árni og Ragnar. ✝ Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, HELGA DAGBJARTSDÓTTIR, Syðstu- Mörk, Rangárþingi Eystra, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi mánudaginn 10. september. Jarðaförin verður auglýst síðar. Guðjón Ólafsson Pétur Guðjónsson Björgvin Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.