Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 35
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl.
9-16.30. Jóga kl. 9 og kl. 19. Boccia
kl. 10. Útskurðarnámskeið kl. 13.
Myndlistarnámskeið kl. 13. Vídeó-
stund kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla,
böðun, jóga-leikfimi, myndlist, al-
menn handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður/
kaffi. Bókbandsnámskeið byrjar í
dag kl. 13. Allir velkomnir. Upplýs-
ingar í síma 535-2760
Ferðaklúbbur eldri borgara | Haust-
litaferð 21. september, Þingvöllur-
Lundarreykjadalur-Húsafellsskógur-
Hraunfossar-Hvítársíða. Kvöldverð-
ur, dans og skemmtiatriði. Allir eldri
borgarar velkomnir. Uppl. og skrán-
ing í s. 892-3011.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Bingó í Félagsheimilinu Gjábakka,
fimmtudaginn 13. september kl.
13.45. Kortaverð 100 kr. Vinnings-
upphæðir fara eftir fjölda þátttak-
enda.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skvettuball verður haldið laugardag-
inn 15. september kl. 20 -23, í Fé-
lagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára
13. Þorvaldur Halldórsson leikur og
syngur fyrir dansi. Miðaverð 500 kr.
Mætum öll „með sól í sinni og söng í
hjarta“.
Félag eldri borgara í Kópavogi,
ferðanefnd | Farið verður í Þverár-
rétt í Borgarfirði mánudag 17. sept-
ember. Brottför frá Gjábakka kl. 8
og Gullsmára kl. 8.15. Deildartungu-
hver skoðaður. Réttur dagsins „kjöt
og kjötsúpa“ á Mótel Venus. Skrán-
ing og ítarlegri upplýsingar í félags-
miðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Opið hús verður laugar-
daginn 15. september kl. 14 þar sem
félagsstarfið í vetur verður kynnt.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi
kl. 9.05 og kl. 9.55. Rammavefnaður
kl. 9.15. Málm- og silfursmíði kl.
9.30. Róleg leikfimi kl. 13. Bókband
kl. 13. Bingó kl. 13.45. Myndlistar-
hópur kl.16.30. Jóga á dýnum kl. 17.
Stólajóga kl. 17.50.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9
handavinna. Kl. 10 ganga. Kl. 11.40
hádegisverður. Kl. 13 handavinna og
brids. Kl. 18.15 jóga.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Vatnsleikfimi í Mýri kl. 12.40, karla-
leikfimi í Ásgarði kl. 13 og Boccia kl.
14. Handavinnuhorn í Garðabergi kl.
13, opið til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund, umsj. Ragnhildur Ás-
geirsdóttir djákni. Kl. 12.30 myndlist,
leiðsögn veitir Nanna S. Baldurs-
dóttir og perlusaumur. Á morgun kl.
10 er ,,prjónakaffi“ ( ath. nýjung)
umsjón Ágústa Hjálmtýsdóttir allir
velkomnir. Uppl. á staðnum og í s.
575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handa-
vinna. Kl. 10-11 boccia. Kl. 11-12 leik-
fimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl.
14-16.30 félagsvist. Kl. 15-15.30 kaffi.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð
kl. 9. Leikfimi kl. 11.20. Opið hús,
kynning á Kanadaferð kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá
Þorbjörgu kl. 9-16. Boccia kl. 10-11.
Félagsvist kl. 13.30, góð verðlaun,
kaffi og nýbakað í hléi. Böðun fyrir
hádegi. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir.
Skráningu lýkur í vikunni. Ekki missa
af haustfjörinu í Hæðargarði. Komdu
með hugmyndir og við aðstoðum þig
við að koma þeim í framkvæmd. Hér
gildir framtak fólksins og vilji. S.
568-3132, asdis.skuladottir@reykja-
vik.is
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia
karla kl. 10.30. Handverks- og bóka-
stofa kl. 13. Boccia kvenna kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Bingó kl. 15.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur
Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 11. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 | Leir kl. 9-12, opin
handavinnustofa kl. 9-16, opin
smíðastofa kl. 9-16.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Skák í kvöld í Há-
túni 12. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9-10 boccia. Kl.
9.15-14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-
15.30 handavinna. Kl. 10-12 spænska
– byrjendur. Kl. 11.45-12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13-14 leikfimi. Kl. 14.30-
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, bókband kl. 9, handavinnu-
stofa kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur
opnar kl. 9, boccia kl. 10, upplestur
kl. 12.30, mósaikgerð kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13. Allir velkomnir.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund
og samvera, kl. 13.15 leikfimi, kl.
14.30 bingó/félagsvist (bingó annan
hvern fimmtudag og félagsvist
hinn).
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja. | Starf með 6-9 ára
börnum (STN) kl. 15-16. Starf með
10-12 ára börnum (TTT) kl. 16-17.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10-12. Æskulýðsstarf Meme fyrir
8. bekk kl. 19.30-21.30. www.digra-
neskirkja.is
Dómkirkjan | Opið hús kl. 14-16 í
safnaðarheimilinu, heitt á könnunni,
létt spjall og góður félagsskapur. All-
ir velkomnir.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl.
18.15, Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng. Góð stund í lok dagsins.
Hallgrímskirkja | Fyrsta kyrrðar-
stund haustsins í dag, fimmtudag, kl.
12. Tónlist, íhugun, bænir. Léttur
málsverður í safnaðarsal eftir stund-
ina.
Háteigskirkja | Kl. 20 alla fimmtu-
daga. Ljúfur kyrrðarsöngur, lesið úr
ritningunni, bænir, altarisganga,
fyrirbæn með handayfirlagningu og
smurningu. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðar-
stund í hádegi. Kl. 12.30, er léttur
málsverður í boði í safnaðarheimil-
inu. Kl. 14 samvera eldri borgara.
Gunnar Gunnarsson rifjar upp eftir-
lætis lög og sálma og leiðir fjölda-
söng. Umsjón hefur þjónustuhópur,
kirkjuvörður og sóknarprestur.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10.
Kaffi og spjall. Foreldramorgnar
verða í vetur í nýja safnaðarheimil-
inu. Umsjón Elínborg Lárusdóttir.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrð-
ar- og fyrirbænastund í kvöld í
Vídalínskirkju kl. 21 í umsjá presta,
djákna og sóknarbarna. Gott er að
ljúka deginum í kyrrð kirkjunnar með
bæn og þökk. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna kirkj-
unnar. Boðið upp á kaffi í lok stund-
arinnar.
Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld
aldraðra og öryrkja fimmtudags-
kvöldið 13. september kl. 20. Umsjón
hafa félagar úr Lionsklúbbi Njarðvík-
ur og starfsfólk kirkjunnar. Fyrsta
skiptið á þessu hausti.
90ára afmæli. Í dag,fimmtudaginn 13. sept-
ember, er níræður Jón Þór-
arinsson tónskáld. Af því til-
efni mun hann taka á móti
gestum í Sunnusal Hótel Sögu
í dag á milli kl. 17 og 19.
70ára afmæli. HilmarDaníelsson, fram-
kvæmdastjóri á Dalvík, verð-
ur sjötugur hinn 16. septem-
ber. Af því tilefni efnir hann til
veislu í Víkurröst á Dalvík
laugardagskvöldið 15. septem-
ber. Veislan hefst kl. 19.30 og
vonast Hilmar til að sjá sem
flesta.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 13. september, 256. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Rannsóknasetur um smáríkivið Háskóla Íslands efnir tilráðstefnu á morgun, föstu-daginn 14. september undir
yfirskriftinni Uppspretta auðæfa í smá-
ríkjum.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræ-
ðiprófessor er einn af skipuleggjendum
ráðstefnunnar, sem er styrkt af Lands-
bankanum: „Lengi vel var talið að
smæð ríkja takmarkaði efnahagslega
getu þeirra, en ef að er gáð er það alls
ekki raunin nú til dags, og búa smá ríki
yfir ýmsum kostum sem styrkja stöðu
þeirra í alþjóðahagkerfinu, „ segir
Baldur. „Á ráðstefnunni ætlum við að
skoða hvað veldur að smáum ríkjum
Vestur-Evrópu gengur mun betur efna-
hagslega en þeim stærri.“
Dagskrá ráðstefnunnar er skipt í
nokkra áhersluþætti: „Sjónum verður
sérstaklega beint að írska undrinu, en
Írland rétt eins og Ísland hefur á
skömmum tíma breyst úr fátæku kot-
ríki í auðugt borgríki,“ segir Baldur, en
meðal fyrirlesara um írska undrið er
Alan Dukes, fyrrum fjármálaráðherra
Írlands.
Möguleikum smáríkja sem fjármála-
miðstöðvar verða einnig gerð sérstök
skil: „Ísland, Írland og Liechtenstein
hafa gripið til sérstakra aðgerða til að
skapa hagstæð skilyrði fyrir sköpun
auðs, og skoðum við m.a. kosti smæðar-
innar í því sambandi,“ segir Baldur.
„Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Pro-
mens, mun einnig gera þessu efni skil
með því að segja frá reynslu íslensks út-
rásarfyrirtækis í þessu viðskiptaum-
hverfi.“
Einnig verður fjallað um uppsprettu
auðæfa í nýjum og ört vaxandi atvinnu-
greinum hér á landi: „Fulltrúar nýrra
útflutningsgreina, þ.e. menningar, hug-
búnaðar og hönnunar, munu gera grein
fyrir hvernig fyrirtæki í þessum grein-
um hafa náð fótfestu sem þátttakendur
í íslensku útrásinni. Þeir fjalla um
hvernig fyrirtækin hafa nýtt sér kosti
smæðarinnar hér á landi til sköpunar,“
segir Baldur að lokum.
Ráðstefna morgundagsins er haldin í
Hátíðarsal Háskóla Íslands, frá kl. 9 til
17. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, flytur opnunarerindi ráð-
stefnunnar. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill. Nánar um dagskrá á
www.hi.is/page/ams_dagskra.
Viðskipti | Ráðstefna um uppsprettu auðæfa í smáríkjum í Háskóla Íslands
Velgengni smáríkja skoðuð
Baldur Þórhalls-
son fæddist á Sel-
fossi 1968. Hann
lauk BA-prófi í
stjórnmálafræði
frá HÍ 1991, meist-
araprófi frá Há-
skólanum í Essex í
Englandi 1994 og
doktorsprófi frá
sama skóla 1999. Baldur er prófessor í
stjórnmálafræði og formaður stjórnar
Alþjóðamálastofnunar og Rannsókn-
arseturs um smáríki við Háskóla Ís-
lands. Baldur er giftur Felix Bergs-
syni leikara og eiga þeir tvö börn.
Tónlist
Laugarborg í Eyjafirði | Kl. 20.30
flytur Pétur Ben. lög af geisladiski
sínum ásamt nokkrum tökulögum
og úr bíómyndunum Börnum og
Foreldrum.
Paddy’s | Hljómsveitirnar sem
koma fram eru með þeim áhuga-
verðustu á Íslandi í dag; ?Æla,
Bacon, Cliff Clavin, DarkNote, Dr.
Spock, Hellvar, Hoffman, I Adapt,
Jan Mayen, Karman Line, Klaus,
Lada Sport, Lokbrá, Reykjavík!,
Rohndda & The Runestones,
Tommygun og Vicky Pollard.
www.myspace.com/rockville-
keflavík.
19 landa í sex heimsálfum með
það að markmiði að festa á filmu
fólkið sem oft og tíðum leggur líf
sitt í hættu við að vernda um-
hverfi og dýralíf. Hefst kl. 20.
Miðaverð er kr. 500.
Fyrirlestrar og fundir
Hótel Loftleiðir | Paving for eFut-
ure: Ráðstefna á vegum Skýrslu-
tæknifélags Íslands og ETeb. Nýt-
ing upplýsingatækni í viðskiptum
og opinberri stjórnsýslu fer hratt
vaxandi. Á ráðstefnunni munu inn-
lendir og erlendir fulltrúar frá fyr-
irtækjum, stjórnsýslu og sam-
tökum fjalla um stöðuna og
tækifæri sem bjóðast.
af einhverju tilefni í leit að sameig-
inlegri upplifun.
Skemmtanir
Bláskógabyggð | Laugardaginn
15. sept. halda Tungnamenn upp á
að aftur er réttað fé í Tungna-
réttum, í fyrsta sinn í tvö ár, eftir
riðuniðurskurð. Réttirnar hefjast
kl. níu að morgni. Réttarball í Ara-
tungu um kvöldið. Hljómsveitin
Leynibandið, með félögum úr
Skálholtskórnum o.fl.
Kvikmyndir
Norræna húsið | Ástralski land-
vörðurinn Sean Willmore seldi bíl-
inn, veðsetti húsið og ferðaðist til
Myndlist
Hafnarborg | BIÐ Viðfangsefni
sýningarinnar er fólk á biðstofu.
Aðalheiður leikur sér með afgangs-
efni og fundna hluti og endurgerir
úr þeim eftirminnileg augnablik úr
eigin lífi, fólk á förnum vegi. Vinir
eða hlutirnir sjálfir verða kveikjan
að skúlptúrum og lágmyndum. 13.
sep. til 7. okt. Opið kl. 11-17.
Hafnarborg | Portrett í mannhaf-
inu/ Portraits in the Crowd. Sýning
á ljósmyndum bandaríska lista-
mannsins Denis Masi. Í ljós-
myndaröðum sínum er Denis Masi
að rannsaka uppákomur og við-
burði þar sem fólk hópast saman
Prinsessur
MEÐ frétt um stelpur sem verða að
prinsessum og stjörnum í Morgun-
blaðinu í gær birtist röng mynd.
Myndin er af Freyju vinkonu
afmælisbarnsins, en hér fyrir ofan
er rétt mynd af afmælisbarninu,
Katharínu Ósk, sem átti sex ára af-
mæli í fyrradag. Velvirðingar er
beðist á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið/Golli
Sóleyjarrimi 3
3ja-4ra herb. útsýnisíbúð í nýlegu lyftuhúsi
Opið hús í dag frá kl. 17.30-19.00
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Afar góð og vel innréttuð 105 fm 3ja - 4ra herb. út-
sýnisíbúð á 4. hæð þ.m.t. geymsla, í nýlegu lyftu-
húsi í Grafarvogi fyrir 50 ára og eldri. Íbúðin skipt-
ist í forstofu, 2 rúmgóð herbergi, opið eldhús,
rúmgóða stofu og flísalagt baðherbergi. Gólfhiti í
baðherbergi. Rúmgóðar suðursvalir út af stofu.
Sérbílastæði fylgir í opinni bílageymslu. Laus við
kaupsamning. Verð 28,5 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, fimmtudag, frá kl. 17.30-19.00
ÍBÚÐ MERKT 0402
Sölumaður verður á staðnum. Verið velkomin.
FRÉTTIR
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ og
Umhverfisstofnun boða til málstofu
föstudaginn 14. september í tilefni
af 20 ára afmæli Montrealbókunar-
innar. Málþingið fer fram á Hótel
Loftleiðum og stendur frá kl. 9 til
12. Allir eru velkomnir og aðgang-
ur er ókeypis.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Fyrir 20 árum síðan samþykkti al-
þjóðasamfélagið að vernda óson-
lagið með því að minnka fram-
leiðslu á ósoneyðandi efnum en með
þynningu ósonlagsins eykst magn
hættulegrar geislunar í sólarljós-
inu.
Á þeim 20 árum sem liðin eru frá
undirrituninni hefur notkun óson-
eyðandi efna minnkað um 95% og
rannsóknir vísindamanna sýna að
ósonlagið er að jafna sig.
Montrealbókunin um verndun
ósonlagsins var undirrituð 16. sept-
ember 1987 í Montreal í Kanada og
hefur þessi dagur verið valinn Dag-
ur ósonlagsins.
Umhverfisráðuneytið og Um-
hverfisstofnun efna til málþingsins
til þess að fagna 20 ára afmæli bók-
unarinnar og til að meta árangur
sem af henni hefur hlotist og fram-
tíðarhorfur hér á landi og í heim-
inum öllum.“
Málstofa í tilefni
af 20 ára afmæli
Montrealbókunar