Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 38

Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 38
 Ný þjónusta fyrir úrstlitaglaða einstaklinga leit dagsins ljós í gær en á vefsíðunni www.urslit.is gefst neytendum kostur á að fá SMS-tilkynningar um úrslit og stöðu í hinum ýmsu boltaleikjum, innlendum sem er- lendum, sér að kostnaðarlausu. Í tilkynningu frá aðstandendum kemur fram að þetta muni vera í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíka þjónustu notendum að kostnaðarlausu. Kostnaðurinn ku vera allur í höndum auglýsenda sem fá auglýsingu sína í hluta til- kynningarinnar gegn framlagi sínu. Úrslitin í boltanum frítt í símann þinn Einn flokk, eina hugsjón, eina lífssýn … 38 » reykjavíkreykjavík Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞAÐ gleður eflaust marga tjúttarana að heyra að nýr skemmtistaður verður opnaður kl. 19 í kvöld í Reykjavíkurborg. Staðurinn ber nafnið 7-9-13 en þær tölur eru taldar sérstaklega magnaðar í þjóð- trúnni og eru oft þuldar upp þegar bankað er í við ef eitthvað ógætilegt er sagt. „Þetta er alveg frábært nafn og á vel við, þetta er staður þar sem fólk finnur heppnina og heppni getur þýtt svo margt,“ segir Hafsteinn Þór Guð- jónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, en hann er skemmtanastjóri staðarins. Eigendur hans eru Ingunn Mýrdal, Ásta B. Vilhjálms og Maggý Mýrdal og hönnuðu þær einnig útlit hans. 7-9-13 er á Klapparstíg þar sem áður voru til húsa fatabúðirnar Spútnik og Elvis. Flottur bóhemstaður er það fyrsta sem Haffa dettur í hug þegar hann er spurður hvernig skemmtistaður þetta sé. „Ég vil að þetta verði Stúdíó 54 á Íslandi án eit- urlyfjanna. Þetta er mjög flottur staður og ég get ekki líkt honum við neinn annan starfandi skemmtistað hér á landi. Þetta verður staður fyrir alla sem vilja skemmta sér, það verður samt ekki of fínt þarna inni, fólk á að geta hreyft sig,“ segir Haffi og tekur fram að dansgólf 7-9-13 sé ein- staklega stórt og rúmgott. Ekki fyrir snobbað fólk Spurður hvort honum finnist vanta fleiri skemmtistaði í miðborgina finnst Haffa kannski vera nóg af þeim en það vanti tilfinninguna. „Mér finnst vanta meiri tilfinningu í skemmt- analífið, ég verð fyrir vonbrigðum í hvert sinn sem ég fer út því það er alltaf það sama, það vantar eitthvað sérstakt og það hefur lengi verið draum- ur minn að láta það gerast.“ Haffi segir 7-9-13 ekki vera fyrir neinn sér- stakan þjóðfélagshóp. „Aldur og útlit gestanna skiptir ekki máli, fólk má bara ekki koma þarna inn og vera snobbað. Þetta er fyrir skemmtilega fólkið sem er ekki hrætt við að vera það sjálft.“ Í byrjun verður staðurinn opinn fimmtudaga til sunnudaga og stundum á virkum kvöldum ef eitt- hvað sérstakt á sér stað. Að sögn Haffa verður ekki ein sérstök tónlist- arstefna á staðnum heldur mun fjölbreytnin ráða ríkjum. „Ég verð með marga plötusnúða á mínum snærum og það fer bara eftir kvöldum hvernig tónlist verður leikin. Við stefnum einnig að því að vera stundum með sérstök þemakvöld, til dæmis verður allt í rauðu eftir nokkrar vikur , svo verða sérstök hipphopp-kvöld og kvöld fyrir samkyn- hneigða, en þetta verður samt ekki sérstakur skemmtistaður fyrir samkynhneigða.“ Haffi tekur fram að hönnun staðarins sé mjög flott og m.a. sé hægt að reykja á barnum þótt fólk standi úti við þá iðju. „Fólk verður að koma og sjá, en það má ekki koma með vandræði með sér, það á ekki að vera neitt vesen á þessum stað. Fólk á bara að koma og skemmta sér,“ segir Haffi og bætir við að það sé engin tilviljun að staðurinn er opnaður í dag enda dagsetningin 7-9-13 öfug. 7-9-13 opnaður í kvöld Morgunblaðið/Árni Sæberg 7-9-13 Ingunn Mýrdal, Ásta B. Vilhjálms, Haffi Haff og Maggý Mýrdal á hinum nýja skemmtistað á Klapparstígnum sem er fyrir skemmtilega fólkið. EFTIRLIFANDI meðlimir hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Led Zeppelin staðfestu í gær að sveitin myndi koma fram á tónleikum í O2-tónleikahöllinni í Lundúnum 26. nóvember næstkomandi. Þeir Robert Plant söngvari, Jimmy Page gítarleikari og John Paul Jones bassaleikari munu koma fram á þessum einu tónleikum til minningar um Ahmet Erteg- un, stofnanda Atlantic-plötuútgáfunnar, en Ertegun, sem lést í fyrra, kom Zeppelin á kortið árið 1968. Þeir Plant, Page og Jones hafa ekki komið saman fram á tón- leikum í 19 ár, eða frá árinu 1988. Eins og margir eflaust vita lést John Bonham, trommuleikari sveitarinnar, árið 1980 og strax í kjölfar- ið hætti sveitin störfum enda erfitt að fylla skarð Bon- hams, sem án alls vafa er einn besti trommuleikari rokk- sögunnar. Sonur Bonhams, Jason, mun leysa föður sinn af hólmi á tónleikunum í Lundúnum. Orðrómur um endurkomu Zeppelin hefur verið há- vær undanfarnar vikur og í gær boðuðu meðlimir sveit- arinnar til blaðamannafundar þar sem þeir staðfestu þann orðróm. Miðar á tónleikana eru mjög takmarkaðir. Led Zeppelin snýr aftur Reuters Félagar Robert Plant og Jimmy Page á nýlegri mynd. Bestir? Led Zeppelin á tónleikum þegar sveitin var upp á sitt allra besta.  Og enn af farsímum og símaaug- lýsingunni margumræddu með Jesú og Júdasi, en svo virðist sem Síminn hafi ekki einungis auglýst sitt fyrirtæki heldur einnig sam- keppnisaðilann í leiðinni. Það hefur nefnilega komið í ljós að í auglýsingunni sést glitta í vöru- merki Vodafone á síma Júdasar auk þess sem þar sést glitta í ártalið 2007. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins að framleiðandi auglýsingarinnar, Saga Film, hafi innkallað auglýs- inguna og að Síminn muni ekki birta þessa löngu útgáfu auglýsing- arinnar á meðan Saga Film lagfær- ir hana heldur aðeins styttri út- gáfur. Síminn auglýsir Vodafone óvart

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.