Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 42
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is LJÓSMYNDASAMKEPPNI mbl.is og Hans Petersen var haldin í sjötta sinn nú í sumar, en keppnin miðar að því að velja bestu sum- armyndina. Aldrei hafa fleiri myndir verið sendar í keppnina, en alls bárust 8627 myndir frá 1534 ljósmyndurum í keppnina. Í gær var svo tilkynnt hvaða mynd- ir röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Fyrsta sætið hlaut Tinna Stef- ánsdóttir fyrir myndina „Pott- urinn heillar,“ önnur verðlaun hlaut Þórir N. Kjartansson fyrir „Komið með kvöldmatinn“ og í þriðja sætinu hafnaði Ester Gísla- dóttir með myndina „Legið í leti.“ Þess má til gamans geta að þetta er í annað skipti sem Ester hafnar í þriðja sæti í keppninni. Verðlaunin voru ekki af lakara taginu; í fyrstu verðlaun var Ko- dak EasyShare Z712 IS-myndavél, fyrir annað sætið fékkst Kodak EasyShare V610 og Samsung Digimax i6 PMP fyrir þriðja sæt- ið. Upp úr þurru Sigurvegarinn Tinna segist alls ekki hafa átt von á því að vinna. „Ég var eiginlega búin að gleyma þessu. Ég vissi reyndar að ég hafði fengið mynd vikunnar, en ég bjóst ekki við þessu,“ segir hún. Sigurmyndin er tekin í heita pottinum í garðinum við heimili Tinnu í Kópavoginum. „Þetta er hún Þórdís Jóhannesdóttir dóttir mín að leika sér, eins og þau systkinin gera oft í pottinum,“ segir Tinna og bætir við að dótt- ir sín sé á tíunda aldursári. Myndin er ekki uppstillt heldur tekin upp úr þurru, enda segist Tinna alltaf vera með myndavél- ina á sér. Hún tekur mikið af myndum og notar til þess Canon EOS 30. Í dómnefnd sátu þeir Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hans Petersen hf., Jón Agnar Ólason á markaðsdeild Árvakurs hf., Ingvar Hjálmarsson, net- stjóri mbl.is, og Árni Matthías- son, verkstjóri mbl.is. Næstum níu þúsund myndir Úrslit kynnt í Ljósmyndasam- keppni mbl.is og Hans Petersen 2. sæti Komið með kvöldmatinn eftir Þóri N. Kjartansson. Morgunblaðið/Kristinn Gleði Jón Agnar Ólason á mark- aðsdeild Árvakurs hf., Þórir N. Kjartansson, Tinna Stefánsdóttir, Ester Gísladóttir og Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hans Petersen, við verðlaunaaf- hendinguna í gær. 3. sæti Legið í leti eftir Ester Gísladóttur. 42 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Kauptu bíómiðann á netinu - Veðramót kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára Knocked Up kl. 5 - 8 - 10:40 B.i. 14 ára Knocked Up kl. 5 - 8 - 10:40 LÚXUS Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 - 6 The Bourne Ultimatum kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára Rush Hour 3 kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára The Simpsons m/ensku tali kl. 4 - 6 The Simpsons m/ísl. tali kl. 4 - 6 Knocked Up kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Disturbia Síðustu sýn. kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára Brettin Upp m/ísl. tali kl. 5:45 – Sími 564 0000 –Sími 462 3500 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir * Gildir á allar sýningar í Regn- boganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 Evening kl. 5:30 - 8 Brettin Upp m/ísl. tali kl. 6 The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10 Dramatísk ástarsaga í anda Notebook frá höfundi The Hours með úrvali stórleikara Hennar mesta leyndarmál var hennar mesta náðargáfa. Ef þér þykja mörgæsir krúttlegar og sætar... þá þekkir þú ekki Cody! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! CHRIS TUCKER JACKIE CHAN MATT DAMON ER JASON BOURNE eeeee - LIB, TOPP5.IS eeeee - SV, MBL MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE Sýnd með íslensku og ensku tali eeee - A.M.G., SÉÐ OG HEYRT eeee - H.J., MBL eeee - Ó.H.T., RÁS 2 54.000 G ESTIR Sicko ísl. texti kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára Shortbus ísl. texti kl. 10:30 B.i. 18 ára íslenskur te xti íslenskur te xti VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA SÝNDAR ÁFRAM Í NOKKRA DAGA Í REGNBOGANUM SICKO DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS ALLAR UPPLÝSINGAR Á GRAENALJOSID.IS SHORTBUS BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI? eeee JIS, FILM.IS Sagan sem mátti ekki segja. eeee “SVONA MYND HEFUR EKKI VERIÐ GERÐ ÁÐUR. HÚN ER ALVÖRU, EINLÆG VEL TÍMASETT, FRÁBÆR. NAUÐSYN.” - E.E., DV eeee „VEÐRAMÓT RAÐAR SÉR UMSVIFALAUST Í ÞRÖNGAN HÓP BESTU MYNDA OKKAR STUTTU KVIKMYNDASÖGU.“ - S.V., MBL eeee „ÞETTA ER MYND SEM AL- LIR VERÐA AÐ SJÁ! BESTA ÍSLENSKA MYNDIN SÍÐAN MEÐ ALLT Á HREINU“ - S.G., RÁS 2 eeee “VEÐRAMÓT ER HUGRÖKK ÁDEILA SÖGÐ MEÐ HLÝJU OG HÚMOR SEM HREYFIR VIÐ ÁHOF- ENDUM FRÁ FYRSTU STUNDU.” - R.H., FBL “ÖLLUM ÍSLENDINGUM ER HOLLT AÐ SJÁ ÞESSA MYND, EKKI SÍST FYRIR BOÐSKAPINN SEM HÚN HEFUR FRAM AÐ FÆRA.“ - T.S.K., BLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.