Morgunblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ENN voru mótmæli í Búrma í gær
en svo virðist þó sem herforingjun-
um hafi í bili tekist að kveða að
mestu niður andófið. Fjöldi her-
manna hélt uppi gæslu á götum
Rangoon í gær og vitað er að mörg
hundruð manna hafa verið handtek-
in. „Svo virðist sem árásirnar [sem
herinn gerði] hafi hrætt fólk svo mik-
ið að það heldur sig fjarri götunum,“
sagði aðalfulltrúi Bandaríkjanna í
Búrma, Shari Villarosa.
Sendimaður Sameinuðu þjóðanna,
Nígeríumaðurinn Ibrahim Gambari,
hitti um helgina að máli fulltrúa rík-
isstjórnarinnar í nýrri höfuðborg
sem verið er að reisa, Naypyidaw.
Hann hafði þó í gær ekki enn rætt
við valdamesta mann landsins, Than
Shwe hershöfðingja. Gambari, sem
vill reyna að miðla málum í deilum
stjórnar og stjórnarandstöðu, átti í
gær fund með helsta leiðtoga stjórn-
arandstæðinga, Aung San Suu Kyi,
sem er haldið í stofufangelsi í Rango-
on. Mun þetta vera í fyrsta sinn í 10
mánuði sem útlendingur hefur hitt
Suu Kyi.
Aftenposten í Noregi hefur eftir
þýsk-norskum blaðamanni, Hans-
Joachim Schilde, að ofursti í her
Búrma, Hla Win, vilji sækja um hæli
í Noregi. Haft er eftir manninum, að
þúsundir manna hafi verið myrtar í
landinu að undanförnu að undirlagi
stjórnvalda til að bæla niður andófið.
Schilde hefur eftir Win að hann hafi
fengið nóg þegar honum var skipað
að ráðast inn í tvö búddaklaustur,
taka nokkur hundruð munka til
fanga, skjóta þá og koma líkum
þeirra fyrir í frumskóginum.
AP
Gegn ofbeldi Fólk með gular rósir
á fundi í Brussel í gær þar sem lýst
var stuðningi við andófið í Búrma.
Sendimað-
ur SÞ hitti
Suu Kyi
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÚTGÖNGUSPÁR sem birtust eftir
að kjörstöðum var lokað í þingkosn-
ingunum í Úkraínu gær bentu til
þess að flokkar Júlíu Tímósénkó og
Víktors Jústsénkós forseta myndu
ná samanlagt mestum fjölda þing-
manna á nýju þingi landsins. Tímó-
sénkó, sem er nú aðalleiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Úkraínu, sagði í
gærkvöld að hún myndi biðja forset-
ann um að hefja myndun nýrrar rík-
isstjórnar í dag, mánudag. Ný stjórn
gæti litið dagsins ljós eftir fáeina
daga.
Gert er ráð fyrir, gangi spárnar
eftir, að Tímósjenkó verði sjálf út-
nefnd forsætisráðherra í stað Víkt-
ors Janúkovítsj, en deilur forsætis-
ráðherrans og forsetans hafa lamað
stjórnmálastarf í landinu á undan-
förnum mánuðum. Boðað var til
kosninga áður en kjörtímabilinu
lauk til að freista þess að höggva á
þann hnút.
Kastaðist í kekki eftir sigurinn
í „appelsínugulu byltingunni“
Jústsénkó og Tímósénkó unnu vel
saman þegar liðsmenn „appelsínu-
gulu byltingarinnar“ fengu því fram-
gengt að forsetakjörið 2004, þar sem
Janúkóvítsj sigraði, að því er talið
var með svindli, var lýst ógilt. Þegar
aftur var kosið vann Jústsénkó og
gerði hann Tímósénkó þá að for-
sætisráðherra. Samstarf þeirra
gekk hins vegar illa og rofnaði með
látum. Ósamlyndi forystumanna
byltingarinnar og viðvarandi efna-
hagserfiðleikar hafa valdið því að
margir Úkraínumenn hafa misst alla
trú á stjórnmálamönnum og einkum
hefur dregið mjög úr stuðningi við
Jústsénkó.
Höfuðvígi Janúkóvítsj eru einkum
í austurhéruðum landsins, þar sem
þorri fólks er rússneskumælandi.
Ráðherrann nýtur einnig mikils
fylgis meðal valdamanna í stórfyrir-
tækjum. Janúkóvítsj hefur lengi ver-
ið talinn hallari undir ráðamenn í
Moskvu en keppinautar hans en
hann hefur að undanförnu lagt sig
fram um að mæla með auknu sam-
starfi við Vesturveldin.
Einnig hefur hann fengið banda-
ríska sérfræðinga til að aðstoða sig
við að breyta ímyndinni meðal al-
mennings og lært af þeim sjónvarps-
framkomu og fleira þarflegt fyrir
stjórnmálamenn í lýðræðisríkjum.
Er haft á orði að maðurinn sé nær
óþekkjanlegur, svo vel hafi tekist að
mýkja ímyndina. Janúkóvítsj er 57
ára gamall, fyrrverandi starfsmaður
í málmiðnaði og sat um hríð í fang-
elsi. Umræddir sérfræðingar hafa
m.a. starfað fyrir Bob Dole, Bill
Clinton og John McCain.
Bandalagi Jústsénkós og
Tímósénko spáð sigri
Í HNOTSKURN
»Um 47 milljónir mannabúa í Úkraínu, þar af er
minnst fimmtungur rúss-
neskumælandi.
»Úkraína var lengst af hlutiRússlands en öðlaðist loks
varanlegt sjálfstæði eftir hrun
Sovétríkjanna 1991.Víktor Jústsénko Júlía Tímósénkó
SVO virðist sem stjórnvöld í Moskvu
og liðsmaður þeirra í Tétsníu, Ramz-
an A. Kadýrov, forseti héraðsins,
hafi náð nær fullum tökum á svæð-
inu, að því er segir í grein í banda-
ríska blaðinu The New York Times.
Fréttamaður blaðsins segir að lífið í
höfuðstað Tétsníu, Grosní, sé farið
að minna á það sem fólk þekki í öðr-
um borgum en stórir hlutar hennar
voru lagðir í rúst þegar mest gekk á í
bardögum rússneska hersins við að-
skilnaðarsinna.
Táningar safnast saman undir ný-
reistum götuljósum og þvaðra í far-
síma. Um alla borgina sjást embætt-
ismenn sem áður voru hermenn í
uppreisninni gegn Kremlarvaldinu
hanga á kaffihúsum, rifflana hafa
þeir lagt frá sér á gólfið. Fyrir þrem
árum olli ný alda hryðjuverkaárása
og bardaga við skæruliða því að sér-
fræðingar um málefni Tétsníu full-
yrtu að Rússar gætu ekki unnið
stríðið. Framferði Kadýrovs þegar
kemur að mannréttindum er sagt
vera skelfilegt gegnum tíðina og
sögusagnir um grimmd stjórnar
hans og spillingu eru útbreiddar.
Enn berast fréttir af mannránum,
pyntingum og morðum af hálfu liðs-
manna forsetans og grafreitir eru
fullir af líkum sem ekki hafa verið
borin kennsl á. En jafnvel hörðustu
gagnrýnendur Kadýrovs, sem eitt
sinn barðist gegn Rússum, segja að
hann hafi áunnið sér verulegan
stuðning meðal almennings, að
nokkru leyti vegna þess árangurs
sem hrottalegar aðferðir hans hafa
borið.
Stjórn hans hefur fengið nægilegt
fé til að endurreisa Grosní. Íbúarnir
hafa gas og rafmagn nær allan sólar-
hringinn. Einnig er víða nægilegt
drykkjarvatn að hafa úr leiðslum.
Nóg framboð er af hvers kyns nauð-
synjum á mörkuðunum, einnig tölv-
um og bílum.
Kadýrov hefur afsannað hrakspár
með því að beita annarsvegar taum-
lausri grimmd og hunsa allt tal um
mannúð gagnvart andstæðingunum
en einnig með því að verja nægilegu
fé í að bæta kjör fólksins og gera það
hratt. Tíminn mun leiða í ljós hvort
árangurinn er til frambúðar.
Grosní farin að líkjast
venjulegri borg
Harðstjórn og peningar í Tétsníu hafa fært með sér frið
ÞINGKOSNINGAR voru í Ekvador í gær og samtímis
var kosið um stjórnarskrárbreytingar. Hér sést biðröð
á kjörstað. Rafael Correa forseti vill að þingið verði
leyst upp og völd flokka verði minnkuð.
Anstæðingar forsetans saka hann um að vilja breyta
landinu í sósíalískt ríki. Meðal frambjóðenda til þings
eru fegurðardrottningar, síðhærður munkur sem
gengur um götur og hvetur fólk til að taka peningana
frá þeim ríku og grímuklædd ofurhetja sem hylur and-
lit sitt, að eigin sögn vegna ofnæmis fyrir spillingu.
AP
Ofnæmi fyrir spillingu í Ekvador
NORSKAR konur hafa almennt ver-
ið taldar hrifnari af vinstri- en
hægristefnu og um 1970 studdu 85%
þeirra vinstri- eða miðjuflokka í
kosningum, að sögn vefsíðu Aften-
posten. En nú virðist breyting hafa
orðið á. Kannanir sýndu að í þing-
kosningunum 2005 var hlutfallið
komið niður í um 70% og réttur
helmingur kvenkyns kjósenda kaus
þá vinstriflokkana þrjá.
Rannsóknaniðurstöður tveggja
fræðimanna, Bernt Aardal og Hanne
Marthe Narud, gefa til kynna að
jafnt hjá konum og körlum hafi póli-
tískar grundvallarskoðanir meiri
þýðingu þegar kosið er en félagsleg
staða og tekjur. Á þetta við um fólk í
öllum flokkum. Málaflokkarnir sem
mestu skipta norska kjósendur núna
eru innflytjendamál, umhverfis-
vernd og trú.
Konur á leið
til hægri
INDVERJINN Vishwanathan An-
and varð á laugardag nýr heims-
meistari í skák, hann vann þá
keppni átta öflugustu skákmanna
heims er fram fór í Mexíkó. Anand,
sem er 37 ára, hlaut átta vinninga
en annar varð fráfarandi heims-
meistari, Vladímír Kramnik.
Anand sigraði
AP
Lokasprettur Anand (t.v.) teflir við
Peter Leko í lokaskákinni í Mexíkó.
TALÍBANAR hafa hafnað boði Ha-
mid Karzai, forseta Afganistan, um
friðarviðræður. Segja þeir að ekki
verði rætt við afgönsk stjórnvöld
meðan erlent herlið sé í landinu.
Þrjátíu manns, aðallega her-
menn, féllu á laugardag í sjálfs-
morðsárás í Kabúl.
Hafna friði
FORSETI Georgíu, Mikhaíl Saakas-
hvili, vísar á bug ásökunum um
spillingu og morðsamsæri. Irakli
Okruashvili, fyrrverandi varnar-
málaráðherra, vændi forsetann um
áðurnefnd brot og var hann hand-
tekinn. Tugþúsundir manna mót-
mæltu í gær handtökunni.
Gegn handtöku
MANNFALL í liði Bandaríkja-
manna í Írak var 70 manns í sept-
ember eða minna en verið hefur í
nokkrum mánuði síðan í júlí í fyrra.
Manntjónið hefur farið stöðugt
minnkandi síðustu mánuði. Alls hef-
ur 3.801 Bandaríkjamaður fallið í
Írak frá innrásinni 2003.
Færri falla
BRESKIR íhalds-
menn hófu
flokksþing sitt í
Blackpool gær á
því að hvetja
Gordon Brown
forsætisráðherra
til að boða til
kosninga sem
fyrst. Kannanir
um helgina
benda þó til þess að Verkamanna-
flokkurinn hafi allt að 11% forskot
á Íhaldsflokkinn og er Brown sagð-
ur vera að íhuga alvarlega að boða
til kosninga. Mun fleiri vilja hann
sem leiðtoga landsins en David
Cameron, leiðtoga íhaldsmanna.
Vilja kjósa
David Cameron