Morgunblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 16
hestamennska
16 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta er nú allt svo-lítið viðkvæmt,“segir Bjarni Þor-kelsson, ræktandi
og einn eigenda Þórodds frá
Þóroddsstöðum, spurður um
hvað það kosti undir hestinn
en Þóroddur er eitt af stóru
nöfnunum í íslenska stóð-
hestaheiminum og nefnist
hlutafélagið um hann Þór-
oddsfélagið ehf. „Það eru
hlutafélög um þónokkuð
marga hesta sem ganga út á
það að menn kaupa sér hlut
í hesti og þeir álíta að þar
með geti þeir haldið undir
hann, að það sé innifalið í
kaupverðinu. En skattstjóri
hefur annan skilning á
þessu, hann telur að menn
eigi hlutabréf og þeir geti
ekki nýtt sér það ókeypis,
ekki fremur en að eigandi
að hlutabréfi í Flugleiðum
geti flogið frítt til útlanda.
Við getum sagt að það sé
ekki til neitt ákveðið verð á
folatolli í þessum hesti,
heldur getur hver hluthafi
selt sinn toll á því verði sem
honum þóknast. Ég á marga
hluti í honum og er kannski
eini hluthafinn sem selur
toll undir hann. Hinir eig-
endurnir eiga flestir einn
hlut og nýta sér hann bara
sjálfir, þeir eru ekki á
markaði. Mér er frekar illa
við að segja frá á hvað ég
sel mína hluti því það er
ekki í samræmi við það sem
við höfum talað um í hluta-
félaginu að það sé ekki til
neitt ákveðið verð heldur sé
það ákvörðun hvers og
eins.“
Talið berst að misháum
folatollum eftir landshlutum
og segist Bjarni hafa heyrt
að verðið fyrir norðan sé
heldur lægra. „Ég trúi því
þó ekki að hestar héðan að
sunnan fari með miklum af-
slætti bara við það að vera
leigðir norður, ef þeir eru
eftirsóttir hérna. Þetta get-
ur hins vegar gilt um
heimahestana þar.“
Eftirsjá í grasrótarstarfi
hrossaræktardeildanna
Spurður út í breytt hlut-
verk hrossaræktarsambanda
segir Bjarni sambandið fyr-
ir sunnan ekki líta svo á að
þörf sé fyrir að það bjóði
upp á stóðhesta. „Hins veg-
ar hafa samböndin á Vest-
urlandi og í Skagafirði – og
jú ég held öll önnur sam-
bönd – eitthvert stóðhesta-
hald.“ Á hinn bóginn sé það
álitamál hvort missir sé að
starfinu fyrir sunnan. „Það
er hestakerruöld og ekkert
mál að fara á milli sveita og
landshluta, þannig að þörfin
er ekki nærri eins mikil og
var. Þetta er á margan hátt
eðlilegt. Það er hins vegar
eftirsjá í grasrótarstarfinu
sem þreifst í gegnum deild-
irnar og líka má segja að
deildirnar voru sumar, og
eru sumar enn, með góðar
stóðhestagirðingar sem væri
mikil eftirsjá að, því þær
eru ekki gripnar upp úr göt-
unni. Segja mætti að það
væri gaman að halda í eitt-
hvað af þessum gömlu hefð-
um og menningu sem var í
kringum þetta.“ Vissulega
segir hann fækkun „sam-
bandshesta“ geta haft áhrif,
margir bændur sem eigi
eina, tvær hryssur færu
ekkert með þær ef það væri
ekki félag og hólf í sveitinni.
En skyldi Þóroddur vera
„dýrasti“ hestur landsins?
„Ja, mér finnst ástæða til að
ætla það. En ég er ekki svo
viss um það því það er ekki
til nein opinber verðskrá,“
segir stórræktandinn Bjarni
á Þóroddsstöðum að lokum.
Ekkert verð til á hestakerruöld
Morgunblaðið/Eyþór
Hlutafélag Alhliðagæðingurinn Þóroddur frá Þóroddsstöðum, setinn af Daníel Jónssyni. „Við
getum sagt að það sé ekki til neitt ákveðið verð á folatolli í þessum hesti, heldur getur hver
hluthafi selt sinn toll á því verði sem honum þóknast,“ segir ræktandinn Bjarni Þorkelsson.
Fjöldi af vel ættuðum stóð-hestum … Þannig hófstein auglýsingin í vor semhryssueigendur gátu les-
ið stafanna á milli, eigandi bæði
kvölina og völina. Framboðið af
stóðhestum er gríðarlegt og að
sama skapi afskaplega fjölbreytt
úrval í boði. Spurningin um kostn-
að liggur hins vegar alltaf í loftinu.
Hvað kostar að halda úti stóðhesta-
girðingu, hvað er folatollurinn hár?
Og látum við stundum hafa okkur
að fíflum?
Þegar rætt er um peninga í
hestamennsku dettur oftar en ekki
allt í dúnalogn. Afleiðingin verður
sú að tröllasögur verða til, t.a.m.
fara sögur af því að dropinn úr
stóðhestum ku kosta allt að 600
þúsund krónur! „Dýr myndi Hafliði
allur ef svo skyldi hver limur,“ seg-
ir í Þorgils sögu og Hafliða um há-
ar bætur fyrir fingurmissi Hafliða
Mássonar árið 1121 en reiknað hef-
ur verið út að bæturnar fyrir fing-
urna þrjá væru um 140 milljónir í
dag … Hvað kostar eitt stykki Vil-
mundur, Þóroddur, Hróð-
ur … Orri? Víst er að „næstbestu“
hestarnir eru seldir á annan tug
milljóna og nokkur fjöldi stóðhesta
fer á nokkrar milljónir til útlanda.
Þeir dýrustu langvinsælastir
Stóðhestalandslagið hefur breyst
gríðarlega á fáum árum og kannski
hefur tilkoma gullkálfsins Orra frá
Þúfu að mörgu leyti stuðlað að
þessari byltingu. Áður fyrr réðu
lögum og lofum hestar hrossarækt-
arsambandanna (sambandshest-
arnir) en í dag halda einkaaðilar
utan um „tilhleypingarnar“. Fola-
tollurinn hefur hækkað gríðarlega,
jafnt og þétt, en verðbilið eykst að
sama skapi mjög mikið. Undir al-
vinsælustu hestana sem eru rétt
um tíu talsins kostar vel á annað
hundrað þúsund og enn meira und-
ir þá allra „bestu“ en dropinn hjá
minni spámönnum er metinn á tugi
þúsunda, hjá sumum minna ef ætt-
ir eða annað hefur ekki náð að
„sanna sig“. Vel að merkja: Lang-
mesta aðsóknin er í þá dýrustu!
Lykilatriðið í þessu öllu er að stóð-
hestarnir nái að hrífa fjöldann –
vera með „X-þáttinn“, sem hefur
reynst mörgum hrossaræktand-
anum harður húsbóndi; hvernig
ræktar maður sjarma? „Það er
einn og einn sem fer í gegn og
minn gerði það,“ lýsti einn viðmæl-
andi Morgunblaðsins, stóðhestseig-
andi sem nýlega hafði selt hestinn
á „þó nokkuð margar milljónir“. Sá
hinn sami sagði stóðhestapólitíkina
viðkvæma: „Maður reynir að sigla
friðarveginn.“
Eitt reikningsdæmi sýnir
kannski undarlegt háttalag mark-
aðarins í hnotskurn: Undir vel ætt-
aðan og efnilegan 2 vetra fola kost-
aði fyrir tíu árum 2.500 kr.,
sennilega bara til málamynda.
Hann varð síðar landsmótssig-
urvegari en nær einhvern veginn
aldrei alveg í gegn, enda kostar vel
undir hundrað þúsund undir klár-
inn í dag og tiltölulega fáar merar
fara undir annars góðan hest. 2.500
kr. þykir auðvitað ekki upp í nös á
ketti í dag, sérstaklega á Suður-
landi þar sem t.d. girðingargjaldið
hefur hækkað í takt við verð á
hektara og er nú hjá mörgum á
bilinu 15-18 þúsund, allt upp í 25
þús. kr. með einni ómskoðun. Hins
vegar eru líka dæmi um 5 þúsund
kr. girðingargjald – væntanlega hjá
þeim sem finnst það óþarfi að upp-
reikna verðið á eign sinni til
margra ára – en víða gera nú
ákveðnir aðilar út stóðhestagirð-
ingar og leigja oft til þess stykki.
Margir leggja þann skilning í þetta
hækkandi girðingargjald að þeir
séu að borga fyrir aukið eftirlit
með hrossunum og geti þar með
farið fram á daglegt eftirlit með
hópnum, s.s. að folöldin séu talin á
hverjum degi og ástand skepnanna
sé skoðað. Á dögunum kom einmitt
upp mál Blæs frá Torfunesi sem
vakið hefur spurningar um hvernig
stóðhestahaldi sé og skuli háttað.
Eðlilegt verð?
Skyldi þessi þensla í hesta-
mennsku, sem stóðhestalimbóið
endurspeglar, vera sunnlensk? Til
marks um það tala menn um að
nokkurs konar þak sé á folatollum
fyrir norðan, hestar þar séu á 50-70
þúsund að jafnaði. Hrossaræktar-
sambönd þar, t.d. Hrossaræktar-
samband Skagfirðinga, eru vissu-
lega enn nokkuð virk í að bjóða
félagsmönnum sínum stóðhesta til
afnota á „eðlilegu verði“, eins og
einn viðmælandi blaðsins kallar
það. Eða er þenslan sunnlensk að
uppruna sem breiðist svo út um
land, rétt eins og jarðarkaupin
sanna? Varla fellur verðið undir
sunnlenskan stóðhest bara við það
að hann fái far yfir Holtavörðu-
heiði …?
Allt tal um peninga í hesta-
mennsku er afstætt en þegar öllu
er á botninn hvolft hlýtur sanngirni
og velferð skepnanna að vera
markmiðið í þessu öllu saman.
Dómar og einkunnir eru afstæðar
og ættu líka að vera í sífelldri end-
urskoðun. Framganga stóðhesta er
í höndum ræktenda sem hafa valið
og þeir hljóta að spyrja sig hvað
þeir vilji fá fram í tilvonandi af-
kvæmi. Viljum við setja undir frá-
bæran hest sem er hálfófrjór? Vilj-
um við framrækta það? Hestakona
ein í samtali við blaðamann vill
meina að ófrjósemi geti orðið meira
vandamál en nokkurn tímann
spattið. Veljum við hest sem er
ungur og efnilegur, ódýran „titt“
eða rándýran, eða þann sem hefur
„gefið gott“? Þú, hestamaður góð-
ur, mátt svo sjálfur svara því hvað
gott er – og eðlilegt. Sá á kannski
ekki endilega kvölina sem á völina.
thuridur@mbl.is
Dýr er
dropinn
Ár hvert taka hestamenn þátt í viðkvæmu
stóðhestalimbói í ætt við fingurmissi 12. aldar
mannsins Hafliða Mássonar – og Þuríður
Magnúsína Björnsdóttir tekur þátt í því.
Morgunblaðið/Frikki
Í ómskoðun Dögg frá Þúfu reyndist fyllaus í „mæðraskoðun“ fyrir skömmu en hún fór undir Sæ frá Bakkakoti.
Eigandinn Ásgeir Rafn Reynisson ásamt dýralækninum Helga Sigurðssyni í Dýraspítalanum í Víðidal.
Afleiðingin verður sú að
tröllasögur verða til, t.a.m.
fara sögur af því að dropinn
úr stóðhestum ku kosta
allt að 600 þúsund krónur!
„Dýr myndi Hafliði allur ef
svo skyldi hver limur.“