Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 36
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
122 eru látnir bíða
Einstaklingum sem hafa lokið með-
ferð á Landspítala en fá ekki inni á
öðrum heilbrigðisstofnunum hefur
fjölgað í september og í ágúst biðu
122 eftir langtímavistun. Þessir ein-
staklingar bíða yfirleitt á bráðadeild-
um þar sem ónæði er mikið. Þeir búa
við stöðugt áreiti. » Forsíða
Ávísun á brottflutning
Formaður Verkalýðsfélagsins á
Húsavík segir að hugmyndin um að
styrkja fólk til að flytja frá svæðum
þar sem atvinna er lítil sé ávísun á
brottflutning frá landsbyggðinni.
Bæjarstjórinn á Ísafirði segir að
þetta yrði í raun mótvægisaðgerð
gegn mótvægisaðgerðum ríkisstjórn-
arinnar. » 2
Ómetanlegt starf
Sjálfboðastarf í Konukoti er ómet-
anleg reynsla fyrir nemanda í fé-
lagsráðgjöf við Háskóla Íslands og
einingarnar sem með því fást eru
bara aukabónus. Frá því Konukot hóf
starfsemi hafa 80 konur leitað þang-
að. Í fyrra leituðu 17 konur þangað í
fyrsta skipti. » 4
Miklar tilfinningar
Willum Þór Þórsson þjálfari Ís-
landsmeistaraliðs Vals er ekki í vafa
um að samheldnin í leikmannahóp
liðsins hafi lagt grunninn að fyrsta
meistaratitli félagsins frá árinu 1987.
» íþróttir
SKOÐANIR»
Staksteinar: Í samkvæmisleik
Forystugreinar: Umbætur í
fangelsismálum | Að horfast í augu
við okkur sjálf
Ljósvaki: Hlusta börn á útvarp?
UMRÆÐAN»
Breyting í sjávarútvegi löngu
tímabær
Jákvæðir straumar frá Hela Norden
skal leve, Norðurlöndin lifi
Telitað vatn úr kalda krananum
Byggt og breytt
Þetta helst …
Íslensku byggingalistaverðlaunin
FASTEIGNIR »
Heitast 14°C | Kaldast 8°C
S og SA 13-20 m/s,
hvassast við ströndina
vestast og austast.
Rigning víðast hvar.
Hlýjast f. norðan » 10
Fjórar misgóðar
myndir sem sýndar
eru á RIFF kvik-
myndahátíðinni eru
dæmdar í blaðinu
í dag. » 29 og 31
GAGNRÝNI»
Góðar og
slæmar
FÓLK»
Litla flugan flögraði um
allan bæ. » 28
Sæbjörn Valdimars-
son telur að kvik-
myndir muni brátt
koma út á DVD um
leið og þær koma í
kvikmyndahús. » 30
KVIKMYNDIR»
Breytingar
í vændum?
VERÐLAUN»
Ólafur Ragnar heiðraði
Kaurismäki. » 32
KVIKMYNDIR»
Börn var valin best
í Kaupmannahöfn. » 32
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Lögreglan birti mynd af stúlku …
2. „Moneypenny“ látin
3. 16 ára réðst á lögreglu
4. Soffíu bjargað
FERNULOK, aðvörunarbolli og
þrýstiloftsskór voru meðal þeirra
hagnýtu uppfinninga sem gat að
líta á verðlaunahátíð nýsköpunar-
keppni grunnskóla sem haldin var í
Grafarvogskirkju í gær.
Meðal þeirra sem unnu til verð-
launa var Óli Sigurður Jóhannes-
son en hann fann upp keflakassa
fyrir flutningabíl. Uppfinningin
virkar þannig að í botninum á
flutningskassanum eru kefli sem
snúast. „Þannig að maður þarf ekki
að nota tjakka eða lyftara heldur
getur bara ýtt hlutunum út,“ sagði
Óli Sigurður. Engin hætta er held-
ur á að hlutirnir kastist til og frá
meðan á flutningunum stendur því
að sjálfsögðu er gert ráð fyrir læs-
ingum. Líklega á það sinn þátt í að
beina athygli Óla Sigurðar í þessa
átt að pabbi hans er flutningabíl-
stjóri.
42 uppfinningamenn
Alls bárust um 3.000 hugmyndir
til keppninnar. Valið var úr þeim
og komust 50 keppendur með 42
uppfinningar í vinnusmiðju keppn-
innar.
Flokkinn uppfinningar vann
Reynir Eyjólfsson sem fann upp
fernulok, Óli Sigurður Jóhannsson
var í 2. sæti og Elínborg Þóra
Bjarnadóttir hreppti 3. sæti fyrir
dvd-hulsturopnara.
Flokkinn útlits- og formhönnun
vann Jóhanna Höeg Sigurðardóttir
með fiðurfestinum, Þórhanna Inga
Ómarsdóttir og Hulda Lilja Hann-
esdóttir, með teygjubursta, voru í
2. sæti og Margrét Hrund Arnars-
dóttir hreppti 3. sæti, hún fann upp
loftræstingu fyrir barnavagn sem
er knúin sólarrafhlöðu.
Sveinn Heiðar Kristjánsson vann
flokkinn hugbúnaður og tölvuleikir
fyrir ddr1 millistykki fyrir ddr2,
Stefanía Hanna Pálsdóttir og Ás-
gerður Dúa Jóhannesdóttir urðu í
2. sæti fyrir stofuminni fyrir Ipod
og í 3. sæti var Hlynur Þór Helga-
son með sprunguskanna.
Flokkinn slysavarnir vann
Harpa Guðrún Hreinsdóttir, með
aðvörunarbollann, Elvar B.
Bjarkason, var í 2. sæti með þrýsti-
loftsskó og Þórhildur Þórarinsdótt-
ir í 3. sæti með köfunarleiðslu fyrir
kút.
Mikil hugmyndaauðgi
12 fengu verðlaun á verðlaunahátíð Nýsköpunarkeppni grunnskóla Miklu
fleiri frumlegar uppfinningar voru sýndar Um 3.000 hugmyndir bárust
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Uppfinning Óli Sigurður Jóhannsson sýnir frænda sínum Viktori Daða Úlfarssyni hvernig keflakassinn virkar.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
BANDARÍSKI fræðimaðurinn Frank Vocci seg-
ist afar spenntur fyrir rannsóknum á fíkn hér á
landi í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu og
SÁÁ, enda margt hægt að læra af erfðafræði-
legri einsleitni Íslendinga. Vocci er hér á landi
ásamt Jag Khalsa og Mark L. Willenbring í
tengslum við 30 ára afmælisráðstefnu SÁÁ sem
hefst í dag.
Á ráðstefnunni verður farið yfir fíkn í víðu
samhengi, í dag verður einblínt á áfengisfíkn, á
morgun verður fjallað um fíkn í örvandi vímu-
efni og á miðvikudag kannabisfíkn. Ásamt
bandarísku fræðimönnunum munu sérfræðingar
og hagsmunaaðilar halda erindi. Meðal erinda í
dag er fyrirlestur Kára Stefánssonar, forstjóra
Íslenskrar erfðagreiningar, um íslenska erfða-
rannsókn á fíknisjúkdómum. | 4
Íslenskar rann-
sóknir á fíkn
HESTAMENNSKA fer ekki varhluta af þensl-
unni í íslensku samfélagi. Síðasta áratug eða svo
hafa folatollar hækkað gríðarlega og kostar það
nú hundruð þúsunda að leiða undir vinsælustu
hestana en áður hefði þótt fáheyrt að upphæðin
nálgaðist 100 þúsund. Raunar var algengt verð
20–40 þúsund. Fáir hestar virðast þó um hituna
því þeir dýrustu eru langvinsælastir.
Svonefnt girðingargjald sýnir hækkunina í
hnotskurn. Áður var það örfá þúsund en er nú víða
15–18 þúsund og allt upp í 25 þúsund. Skýringuna
á því segja sumir vera hækkandi jarðaverð, sér-
staklega á Suðurlandi, en flestir líta svo á að dag-
legt eftirlit með skepnunum sé innifalið í greiðsl-
unni. Öll er þessi umræða þó viðkvæm og segist
stóðhestahaldari í samtali við Morgunblaðið
reyna að „sigla friðarveginn“ en á meðan spyrja
hestamenn sig hvert sé „eðlilegt verð“. | 16
Háir folatollar
Margir hrossaræktendur
greiða ár hvert hundruð þús-
unda fyrir að leiða hryssur
sínar undir stóðhesta
Morgunblaðið/Frikki
Með fyli? Ómskoðun er stundum innifalin í fola-
tolli. Helgi Sigurðsson skoðar Dögg frá Þúfu.