Vikublaðið - 24.02.1997, Síða 1

Vikublaðið - 24.02.1997, Síða 1
4- Sfii bls. 6 Draumspakur Hafnfirðingur bls. 10 I Málar íslenskt landslag _ Barbara Westman ™ bls. 8 Island hf. - ráðstefna um einka- vœðingu bls. 3 Sjálfurfór ég að gráta 1» bls.S f mhmÁ Starfshópur um stuðning við leikskólabörn „Ríkið hefur skorið niður í stuðn- ingi við leikskólaböm á undanföm- um ámm. Það hefur komið niður á starfseminni í öllum sveitarfélögum, en flest og erfiðustu tilfellin era að finna í Reykjavík. Á síðasta ári áttu sér stað viðræður milli Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og ríkisins um hvemig ætti að taka á þessum málum og meðal annars rætt um tekjutil- færslu, en það er enn óljóst með nið- urstöðuna,” segir Ámi Þór Sigurðs- son, borgarfulltrúi og formaður stjómar Dagvistar bama. { sfðasta blaði kom fram að 200 leikskólaböm í Reykjavík, sem eiga við félagsleg og tilfinningaleg vandamál að stríða, hafa verið svipt sérstökum stuðningi með einhliða niðurskurði stjómvalda. f viðræðum sveitarfélaga og ríkisins hefur verið rætt um að ríkið taki við verkefnum gegn því að sveitarfélögin fjármagni umræddan stuðning við leikskóla- böm, en ekkert hefur verið ákveðið. „Á meðan era þessi mál í uppnámi og mér er kunnugt um miklar áhyggjur vegna þessa. Það er fullur vilji fyrir því hjá Reykjavíkurborg að þeir fjármunir sem fara í leikskólana nýtist sem best. Ég get upplýst að það verður settur á laggimar starfs- hópur á vegum Dagvistar bama og er ætlunin að hann geri fljótlega tillög- ur um stefnumótun í málinu. Þessir fyrirætlun kemur fram í tillögu sem ég mun leggja fyrir á næsta fundi stjómar Dagvistar bama,” segir Ámi Þór. Fráleit vinnubrögð Páls Póstur og sími hf.: Ráðgjafi Davíðs í toppstöðu án auglýsingar -segir Margrét Frímannsdóttir. Félagsmálaráðherra afgreiðir skýrslubeiðni um áhrif langs vinnutíma á fjölskyldulíf, kjör og slysatíðni með því að segja að málið sé afstætt og að upplýsingar vanti. Páll segir að ef Alþingi vilji betri svör þá þurfi það að borga! „Hvort ástæða þess að ekki fór fram almenni- leg úttekt er sú, að það hefði orðið vopn í bar- áttu verkalýðshreyfing- arinnar veit ég ekki. En sú niðurstaða skýrsl- unnar, að ef Alþingi vill fá alvöru úttekt á áhrif- um langs vinnutíma verði það að leggja fram fé til þess, er frá- leit. Ég mun mótmæla þessum hneykslanlegu vinnubrögðum þar sem framkvæmdavaldið fer ekki að samþykktum Alþingis í þessu til- viki,” segir Margrét Frí- mannsdottir, formaður Alþýðubandalagsins. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur lagt fram skýrslu að beiðni þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra þar sem til stóð að útlista áhrif langs vinnutíma á kjör launafólks, framleiðni fyrirtækja og afkomu þeirra, slysa- og veikindatíðni og fjöl- skyldulíf. í skýrslunni era hins vegar lítið um nýjar upplýsingar, en þess meir af ýmiss konar fylgiskjölum sem legið hafa fyrir. í raun er það megin niður- staða skýrsluhöfunda að útilokað sé að gefa fullnægjandi skýrslu um áhrif langs vinnutíma: „... verður að vekja athygli á því að upplýsingum um raunverulegan vinnutíma hér á landi er að ýmsu leyti áfátt,” segir í skýrsl- unni. Þama er einnig gerð tilraun til að hunsa beiðni þingflokksins með því að vísa í eldri skýrslur, sem þó gefa afar takmarkaðar upplýsingar og miðast einkum við áhrif vinnutímatil- skipunar ESB á afkomu fyrirtækja. I skýrslunni kemur þó fram að langur vinnutími leiði oft til þreytu hjá starfsmönnum, en því bætt við að „þreytan getur verið mismikil”! Einnig kemur fram að hættan á vinnu- slysum eykst eftir því sem vinnutím- inn er lengri. Undarlegasta og fráleitasta framlag félagsmálaráðherra felst þó í lokaorð- um skýrslunnar þar sem segir: „Itar- legri og umfangsmeiri úttekt krefst umtalsverðra fjármuna og mannafla. Ef Alþingi telur brýnt að ráðast í slíka úttekt er ekki óeðlilegt að hún verði framkvæmd á grandvelli sérstakrar þingsályktunar.” „Þessi skýrsla er dæmi um fráleit vinnubrögð,” segir Margrét Frí- mannsdóttir. „Alþýðubandalagið lagði fram beiðnina á fyrstu dögum þingsins og við eram að fá svarið fyrst núna. Það era fjórar síður sem era raunveralega skýrslan og niðurstaða nefndarinnar er sú að engar raunvera- legar rannsóknir séu til. Engin vinna hefur í raun verið lögð í að safna þeim saman. Þetta er því alröng niðurstaða. Til dæmis hafa ríkisspítalamir látið taka slíkar upplýsingar saman um áhrif langs vinnutíma á starfsfólk spít- alanna. Þar kom mjög greinilega fram að bæði er aukin hætta á slysum og eins hafa veikindi og veikindaforföll aukist, það má rekja það beint til auk- ins vinnuálags. í skýrslunni er engin tilraun gerð til að safna þeim upplýs- ingum saman sem til era heldur af- greiðir nefndin málið með þessum skammarlega hætti. Eðlilegast hefði verið að félagsmálaráðherra hefði óskað eftir lengri tíma til að vinna þetta, en að setja skýrsluna inn með þessum hætti er óskiljanlegt,” segir Margrét. Hluti skýrslunnar fjallar um áhrif langs vinnutíma vegna tilskipunar Evrópusambandsins. Margrét: „Flest- ar þjóðir sem við eram að bera okkur saman við hafa framkvæmt þessar rannsóknir. Allar þær þjóðir sem vinnutímatilskipun ESB nær til era annað hvort með styttri vinnutíma en tilskipunin segir til um eða svipaðan. Því hafði hún hvergi áhrif nema hjá okkur. Rannsóknir þessara þjóða hafa leitt í ljós að langur vinnutími veldur slysahættu, hefur mjög afgerandi áhrif á fjölskyldulíf og framleiðni fyr- irtækja er minni fyrir vikið. Aðrar þjóðir en fslendingar hafa gert sér grein fyrir þessu og haga sér í sam- ræmi við það,” segir Margrét. Friðrik Friðriksson, fyrram framkvæmdastjóri Almenna bóka- félagsins og Pressunnar, hefur ver- ið ráðinn forstöðumaður Breið- bandsþjónustu Pósts og síma hf. Friðrik var ráðinn í stöðuna án þess að hún væri auglýst, eins og þó er reglan í fyrirtækinu. Friðrik var mikið í fréttum und- anfarin misseri vegna gjaldþrots Almenna bókafélagsins og útgáfu- félags vikublaðsins Pressunnar, auk þess sem hann var um tíma í persónulegum gjaldþrotaskiptum. Friðrik er auk þess kunnur sem einn af helstu hugmyndafræðingum ný- frjálshyggjunnar á íslandi og var um skeið helsti ráðgjafi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og kosningastjóri hans í formanns- slagnum innan Sjálfstæðisflokks- ins. „Meginreglan er að auglýsa öll störf, hitt er undantekning”, segir Jón Þóroddur Jónsson yfirmaður Þjónustusviðs fjarskipta en undir hann heyrir Breiðbandsþjónustan sem Friðrik Friðriksson hefur verið ráðinn forstöðumaður yfir. Jón Þór- oddur segir flesta yfirmenn deilda sem heyra undir hann hafa verið ráðna vegna þess að þeir vora í þessum störfum áður. En ekki þó Friðrik? „Nei, nei Friðrik er pikk- aður út, ókei, ég man nú ekki í fljótu bragði hvort þetta var svipað héma í öðram deildum en Friðrik var bara pikkaður út eftir samvinnu við ráðningarstofur.” Aðspurður hvort ráðning Frið- riks hafi verið skipuð að ofan sagði Jón Þóroddur: „Nei, af hveiju held- urðu það? Okkur vantaði svona mann inn sem gæti kennt okkur verkfræðingunum svolítið um biss- ness og markaðshugsunarháttinn og annað í þeim dúr.” Pólitík simp- ansa bls.9

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.