Vikublaðið - 24.02.1997, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 24.02.1997, Blaðsíða 5
24. febrúar 1997 [DHjMJÍJíD Sjöunda árið í röð hlaut Röskva - samtök fé- lagshyggjufólks við Há- skóla Islands hreinan meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs. Röskva vann sinn stærsta sigur til þessa og hlaut 54,8% á meðan Vaka, félag lýð- ræðissinna, galt afhroð með einungis 31,8% sem er það minnsta sem hreyf- ingin hefur hlotið í kosn- ingum frá stofnun hennar árið 1935. Andrúmsloftið á kosningavöku Röskvu var spennuþrungið þegar úr- slit kosninganna voru tilkynnt. Þegar í ljós kom að um metsigur var að ræða brutust út gríðarleg fagnaðarlæti sem stóðu fram undir morgun. Vikublaðið hafði tal af Vilhjálmi H. Vilhjálms- syni formanni Stúdentaráðs og spurði hann um helstu ástæður sigursins og viðbrögð Röskvumanna við honum. „Stemmningin eftir að úrslitin voru kunn var frábær. Sjálfur fór ég að gráta og þurfti huggunar við. Ég trúði þessu varla. Það var lítil kjörsókn í hjúkrunarfræði- og heimspekideild sem eru okkar helstu vígi. Því voru menn ekki ýkja bjartsýnir. Það er ein- faldlega ljóst að Röskva er komin með mjög almennt og gott fylgi í öll- um deiidum. Sem dæmi má nefna að í lagadeild sem Vökumenn hafa hingað til talið sitt vígi þá var Röskva með flest atkvæðin, Haki með næstflest og lestina ráku þeir sjálfir. Þetta eru ótvíræð skilaboð um að það starf sem unnið hefur verið hafi skilað árangri. Ekki hvað síst í þeirri baráttu sem staðið hefur yfir um breytingamar á lánasjóðnum. Raunar er það greinilegt að stúdentar styðja einarða stefnu Röskvu í því máli það er um samtímagreiðslur og lækkaða endurgreiðslubyrði. Hinsvegar vorum við með afskaplega sterkan lista og það verður aldrei ofmetið hvað það skiptir miklu máli.” Hverju veldur hin dræma kjör- sókn? „Það er erfitt að segja. Sjálfsagt margir samverkandi þættir en Röskva býr við það vandamál að fólk er farið að segja það skiptir ekki máli hvort við kjósum eða ekki þið vinnið samt. Það er orðið erfitt að drífa fólk á kjör- stað vegna þessa.” Draugagangur í Vökuheimilinu Vaka setti enn og aftur á oddinn frjálsa aðild að Stúdentaráði. Voru námsmenn að hafna því máli í eitt skipti fyrir öll? „Ég trúi ekki öðru en að það mál sé steindautt eftir þessi úr- slit en hefði þó mátt vera dautt löngu fyrr. Það að málið hafi verið tekið upp núna má líkja við að verið sé að gera því skóna að það sé draugagangur í V ökuheimilinu.” Er þessi frábæri árangur vinstri- manna í Háskólanum ávísun á gott gengi vinstrihreyfmgarinnar á lands- vísu þegar það fólk sem stýrt hefur Röskvu undanfarin ár kemur að full- um krafti inn í stjómmálin? „Ef að staðan verður áfram eins og hún er núna þ.e. að vinstrimenn séu sundrað- ir í marga smáflokka held ég að þetta fólk skili sér ekkert inn í stjómmálin. Það lætur ekki bjóða sér þá háðung að vinstrimenn séu sundraðir í barátt- unni. En ef við emm að horfa fram á það að hér sé að rísa upp stór jafnað- armannaflokkur er ég viss um að þetta fólk skilar sér. Með þeim bar- áttuaðferðum og þeim málefnaflutn- ingi sem við höfum verið að present- era hér í Háskólanum og þann góða árangur sem það hefur borið, þá held ég að það breytist ekki þegar komið verður út fyrir háskólasamfélagið. Ég sé ekki að þegar vinir mínir í Vöku verða komnir í sinn ágæta flokk, Sjálfstæðisflokkinn, að við fömm að taka upp á því að lúffa fyrir þeim þar frekar en í Háskólanum. Að lokum vil ég þakka Háskólanemum fyrir þenn- an glæsilega stuðning,” sagði Vil- hjálmur. bgs HEIMSHORN Tékknesk og pólsk „einkavæðing” Václav Klaus, forsætisráðherra Tékklands, er einhver ötullasti tals- maður einkavæðingar (markaðs- væðingar) sem fyrirfinnst í veröld- inni og svo sem aufúsugestur fleiri á íslandi en Davíðs Oddssonar og Hreins Loftssonar. Af öllum ríkjum Austur-Evrópu hafa breytingamar frá falli Múrsins gengið best upp í Tékklandi. Hinu má ekki gleyma að allar breytingamar hafa gerst með samkomulagi við verkalýðsfélögin. Það em þau sem hafa gert stjóm- völdum í Tékklandi kleift að ná nokkmm árangri, með því að verkafólk hefur fært fómir. Ólíkt og í Tékklandi hafa þjóðfé- lagsbreytingar í Póllandi valdið vonbrigðum. f báðum ríkjum hefur mikil áhersla verið lögð á markaðs- væðingu. í Tékklandi hefur margt áunnist, en í Póllandi hefur flest gengið á afturfótunum. Hver er munurinn? í Tékklandi náðu stjómvöld og verkalýðshreyftng saman um „þjóðarsátt”. Saman horfðu þessir aðilar upp á ófarir kollegana í Pól- landi. Stjómvöld óttuðust óðaverð- bólgu og verkafólk óttaðist stórfellt atvinnuleysi - menn mættust því á miðri leið. Gengið var fellt, verka- fólk féllst á lág raunlaun og gjald- þrotalög vom gerð sveigjanleg. Þetta þýddi að margir héldu vinnu sinni og útflutningsfyrirtæki fengu tækifæri. Og nýfijálshyggjumenn- imir í ríkisstjóm Tékklands vom svo „frjálslyndir” að halda uppi öfl- ugu styrkjakerfi í þágu iðnfyrir- tækja, einkum í stáliðnaðinum. Þá má nefna að almennir borgarar í Tékklandi fengu hlutabréfaseðla út- hlutaða og um leið var tryggt að starfsmenn fengju íhlutunarrétt inn- an fyrirtækja. f Póllandi hefur þróunin orðið allt önnur - sem er undarlegt í sjálfu sér miðað við þá stöðu sem verkalýðs- hreyfingin kom sér í með Sam- stöðu. Samstaða vann góðan kosn- ingasigur 1989 og Lech Walesa var kjörinn forseti árið eftir. Samstaða varð síðan samábyrg í róttækum markaðsvæðingaraðgerðum, sem ólíkt því sem gerðist í Tékklandi, leiddu af sér mikla erfiðleika fyrir hinn almenna borgara; óðaverð- bólgu, hran kaupmáttar, gjaldþrota- hrinu og fjöldaatvinnuleysi. Sam- staða er ekki lengur verkalýðsfélag og er í tilvistarkreppu. Félags- mönnum hefur fækkað úr 9,5 millj- ónum árið 1981 í 1,3 milljónir og félagið hefur klofnað. „Hægri” armur Samstöðu, undir forystu Zygmunt Wrzodak, er nánast fas- ískur í áróðri. „Vinstri” armur Sam- stöðu, undir forystu Marian Krzaklewsky, leiðir hægrisinnað kosningabandalag, þar sem áhersl- an er lögð á kristna trú, þjóðemis- stefnu, anti-kommúnisma og hörku gegn lögbijótum. Úti fyrir ríkir um leið 15% atvinnuleysi og „einka- væðingirí’ felst einkum í einka- vinavæðingu - þar sem ekki síst blómstra menntamennimir sem á sínum tíma skákuðu í skjóli Sam- stöðu. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvœmdastjóri Islands- deiídar Amnesty International Hvaða bækur og rithöfundar hafa haft mest áhrif á pólitískar skoðan- ir þínar? Það er erfitt að segja hvaða höfundar hafa haft mest áhrif á mig en þó hafa verk franska mannfræðingsins Michael Leiris, skáldkonunnar Sim- one de Beauvoir og guðfræðingsins Martins Buber að einhverju leyti mót- að afstöðu mína til samferðafólks og þess samfélags sem við búum í. Nefndu eina kvikmynd, bók, leik- rit, ljóð, lag eða tónverk sem þú vilt að allir lesi, sjái, heyri. Kvikmyndina Smoke ætti enginn að láta fara framhjá sér. „Ich und Du” (Ég og þú) eftir Martin Buber er holl lesning fyrir alla. Besta leikverkið á íslensku sviði er að mínu mati Stór og smár eftir þýska leikskáldið Bodo Strauss. Eitt fallegasta smálag sem ég þekki er tileinkað dóttur minni og heitir Cansona eftir Áskel Másson. Mér er ómögulegt að velja eitt tón- verk öðm fremur því slíkt val er alltaf háð stund og stað. Hver hafði mest áhrif á þig í æsku? Ég var mikill bókaormur £ æsku og þær vom margar skáldsagnapersón- umar sem höfðu áhrif á mig. Fyrir utan foreldra mína vil ég nefna einn kennara minn, Pálma Pétursson, sem kenndi mér í Æfingadeildinni. Hann var einn mesti mannvinur sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og hafði mikil og góð áhrif á alla þá sem nutu leiðsagn- ar hans. Hvaða atburður í lífstíð þinni hefur haft mest áhrif á skoðanir þínar? Tvö morð framin af ógnarstjómum gerðu það að verkum að ég hafna al- farið valdbeitingu. Annars vegar er það morðið á Alliende í Chile og hins vegar morðið á Steve Biko í Suður- Afríku. Þessir tveir atburðir hafa mót- að skoðanir mínar og afstöðu til valds. Hvaða stjórnmálamanni lífs eða liðnum hefur þú mest álit á? f kringum árið 1570 tókst tveimur merkilegum mönnum Dekanawida og Hiawtha að sameina fimm ætt- bálka í bandalag Iroquiese. Bandalag- ið byggði á gagnkvæmri hjálp, full- trúalýðræði og jafnrétti. Þessir menn eru í mínum huga merkilegir stjóm- málamenn. Af núlifandi stjómmála- mönnurn hef ég miklar mætur á Gro Harlem Brundtland. Ef þú gætir farið á hvaða tíma sög- unnar sem er og dvalið þar í 24 tíma. Hvert færirðu og hvers vegna? Það em margir staðir og atburðir sem hefði verið gaman að vera fluga á vegg og fylgjast með, en ég held að hefði viljað vera á stofnfundi Am- nesty Intemational í Lundúnum árið 1961. Ef þú mættir setja ein lög, hver yrðu þau? Þessari spurningu er auðsvarað, ég myndi lögfesta alla mannréttindasátt- mála Sameinuðu þjóðanna og setja lög í framhaldi af því sem tryggðu að þeim yrði framfylgt.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.