Vikublaðið - 24.02.1997, Síða 8

Vikublaðið - 24.02.1997, Síða 8
[BilíMMQ 24. febrúar 1997 ég til dæmis upplifað fleiri veðra- brigði en á mörgum mánuðum heima í New York. Þegar ég kom í haust upplifði ég mikið af dökkgrænum og dökkbláum litum í náttúrunni en þessi bleika birta í morgun var hreint ótrú- leg”. Ætlar Barbara að halda áfram að mála íslenskt landslag? „Já, alveg örugglega þvf ég á nóg eftir. Mig langar að koma aftur og þá helst að sumri til. Vestmannaeyjar heilla mig mjög, ég hef aðeins séð myndir af þeim, en vegna þess að ég heiti nánast sama nafni og eyjamar þá bara verð ég að heimsækja þær”, seg- ir Barbara og brosir. „Ég kann vel við mig héma. Islendingar koma mér skemmtilega á óvart, mig grunaði ekki þeir væm svo hreinir og beinir í samskiptum sínum við fólk. I mínum huga er ísland töfrastaður og ég vona bara að myndimar mínar séu landi og þjóð samboðnar”, sagði Barbara að lokum. aþ LISTINN Um þessar mundir stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýn- ing bandarísku myndlistarkonunnar Barböru Westman. Hún hefur fyrir löngu skapað sér sérstöðu í bandarískri samtíma- list með persónlegum stíl og myndefni sem oftar en ekki hefur fjallað um lífið og til- veruna í New York og Boston. Þá hefur Bar- bara málað yfir 20 forsíður fyrir hið virta tímarit The New Yorker. Blaðamaður Vikublaðsins hitti listamanninn á Kjarvalsstöðum þegar verið var að leggja síðustu hönd á uppsetningu sýningarinnar. Það vekur athygli að allar myndir Barböm em af íslensku landslagi. Af hverju valdi Barbara ísland sem myndefni? ÁBENDING Spænskir madrigalar Annað kvöld heldur sænskur tónlistarhópur, Ensemble Vill- ancio, tónleika í Norræna hús- inu. Ensemble Villancico er skipað ungu tónlistarfólki frá Svíþjóð og á efnisskránni em spænskir madrigalar (villanci- os) frá 16. öld. Madrigalamir era sjaldan fluttir utan spænskutalandi málsvæða en það var tónlistarmaðurinn Peter Pontvik sem ákvað fyrir nokkrum ámm að endurvekja þennan menningarfjársjóð. f kjölfarið stofnaði hann Ensem- ble Villancico en hópurinn hef- ur hlotið góðar móttökur meðal gagnrýnenda og einkum verið hrósað fyrir einlægan, tónhrein- an og léttan flutning. Tónleikamir verða endurteknir í Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 26. febrúar kl. 20.30. Mikið um að vera í Hafnarborg Hátt í fjömtíu listamenn sýna nú verk sín í Hafnarborg og átti sýningunni að vera lokið en vegna mikillar aðsóknar hefur hún verið framlengd til 9. mars. Það sem sameinar listamenn- ina, sem em flestir landskunnir, er að þeir em hafnfirskir eða hafa leitað eftir innblæstri til Hafnarfjarðar. Einnig stendur yfir sýning á nýjum verkum eftir Kjartan Olason í Sverrissal Hafnarborg- ar. Myndir Kjartans em unnar með blandaðri tækni og við- fangsefni listamannsins em sjónræn minni sem íslendingar þekkja vel, bæði úr samtíð og fortíð. Sýning Kjartans stendur til 10. mars. Það var mikil rígning og hvassviðrí og það sá vart út um uggana fyrir vatnsgangi en bílstjórinn, sem var um áttrætt lét sér hvergi bregða og ók rólegur áleiðis. Mér fannst þetta eins og að vera um borð í skipi”. „Það var í raun tilviljun. Ég hef ferðast mikið um ævina og Island var alltaf inní myndinni en það hafði þó aldrei orðið úr að ég kæmi hingað til lands. Svo var það síðastliðið haust að eiginmanni mínum [Arthur Danto heimspekingi] var boðið að halda íyr- irlestur í Háskóla Islands og ég ákvað að slást í förina. íslandsferðin varð mér mikil ógnvekjandi reynsla. Ég hef aðeins séð lítinn hluta af landinu, svæðin í kringum Keflavík og Reykjavrk. Ég hafði á tilfinningunni þegar við keyrðum frá Keflavík að ég væri lent á tunglinu, svo framandi var landslagið. Þegar Barbara kom til íslands síð- astliðið haust segir hún á móti þeim hafi tekið frábær leigubflstjóri sem hafi meira að segja verið bflstjóri Kjarvals á sínum tíma. „Bflferðin frá Keflavík til Reykja- víkur var engu lík. Ég hélt ég hefði séð margt á ferðalögum mínum í gegnum tíðina en þetta var einstök upplifun. Það var mikil rigning og hvassviðri og það sá vart út um bfl- gluggana fyrir vatnsgangi en bflstjór- inn, sem var um áttrætt lét sér hvergi bregða og ók rólegur áleiðis. Mér fannst þetta eins og að vera um borð í skipi”. Fann nýjan kraft Myndimar sem Barbara hefur með- ferðis em íslenskar landslagsstemmn- ingar málaðar í anda þeirra hughrifa sem hún varð fyrir hér á landi. Á þeim má sjá íslenskt hraun, goshveri og einnig málar hún lítil sjávarpláss og bóndabæi, en Barbara segir að auk magnaðrar litadýrðar íslenskrar nátt- úm séu litir íslenskra húsa engu öðm lfldr. Var öðmvísi að mála þessar mynd- ir en aðrar sem hún hefur gert? „Þegar ég dvaldi hér í haust þá var dagskráin svo þétt að ég tók ekld einu sinni upp blýant. En þegar ég kom heim til New York þá fann ég innra með mér nýjan kraft sem ég hafði ekki fundið áður. Mér fannst eins og ég hefði fundið eitthvað sem ég hafði alla tíð verið að leita að. Áður þurfti ég að hafa mikið fyrir því að túlka raunvemlega upplifun mína, til dæm- is þegar ég málaði borgarmyndir í Boston og New York. En þegar ég kom hingað þá var þetta eins og sprenging, það myndaðist strax innra samband með mér og ljósinu og nátt- úmnni hér á landi. Það var eins og ég fyndi þann kjama sem ég hafði svo lengi reynt að ná tangarhaldi á heima í New York. Það rann á mig æði og málaði af miklum móð, myndimar komu sjálf- krafa og ég held ég hafi lokið við ein- ar sextán myndir á þremur dögum.” Barbara lýsir með tilþrifum hvemig hún sá sjóndeildarhringinn almenni- lega í fyrsta sinn og hvemig víðáttu- mikið landslagið hafði djúpstæð áhrif á hana. Aldrei fyrr séð bleika birtu Á ámm áður þurfti Barbara að stunda aðra vinnu með listinni til þess að lifa. Það var ekki fyrr en hún fór að teikna forsíður fyrir The New Yorker sem hún gat farið að lifa af listinni. „Ég hef gert margt yfir ævina, en ég hef alltaf gætt þess að hafa tíma fyrir myndlistina. Aldrei minna en þrjá daga á viku. Ég var vissulega heppin að fá að starfa fyrir The New Yorker á sínum tíma. Það em í raun forréttindi að sjá verk sín fjölfölduð í hundmð- um þúsunda eintaka. Með tímanum þreyttist ég á hinum þrönga ramma forsíðuteikningarinnar og smám sam- an fann ég að ég vildi meira fijálsræði við myndsköpun mína. í gegnum tíðina hef ég farið í gegn- um í gegnum nokkur skeið myndlega og kannski hafa hlutimir ekki alltaf gengið eins hratt og ég hélt í fyrstu að þeir myndu gera. Móðir mín, sem var píanóleikari, brýndi þó alltaf fyrir mér að góðir hlutir gerast hægt og maður verður að láta hjartað ráða ferðinni. Þessa speki hef ég tamið mér og hún hefur fært mig á þann stað sem ég er á í dag. Yfir því er bæði stolt og afar hamingjusöm.” Barbara spyr blaðamann hvort hann hafi tekið eftir bleikri birtunni fyrr um morguninn. Blaðamaður hristir haus- inn. „Mig hefði aldrei órað fyrir jafn mörgum blæbrigðum í birtu á einum stað á jafn skömmum tíma. í dag hef Híbýli vindanna kvikmynduð tfíl>ýJí víndanna V::i Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson kom út árið 1995 og hlaut fádæma undirtektir hér á landi. Framhald þeirrar bókar, Lífsins tré, kom út um síðustu jól. Bækurnar eru af mörgum taldar með því allra besta sem skrifað hefur verið hér á landi á mörg herrans ár, en í þeim er rakin örlagasaga Ólafs fí- ólíns, sem var með þeim fyrstu sem fóru vestur um haf, og afkomenda hans. Því er jafnvel haldið fram að í kjölfar bókanna hafi orðið nokkurs konar „vestur-íslensk vakning”. Undanfarið hafa heyrst fregnir af ásókn kvikmyndagerð- armanna eftir kvikmyndarétti á bókum Böðvars Guðmunds- sonar, Híbýlum vindanna og Lífsins tré. Kunnugir telja að fimm til sex aðilar hafi leitað hófanna hjá höfundi og for- leggjara. Kvikmyndarétturinn er hins vegar kominn í hendur Kvik- myndafélagsins Umba, sem hefur meðal annars gert kvik- myndimar Kristnihald undir Jökli, Stellu í orlofi og Karla- kórinn Heklu. Vikublaðið hafði á dögunum samband við Halldór Þor- geirsson hjá Umba sem sagði samning við Böðvar Guð- mundsson á lokastigi og að þegar væri byrjað að kynna verkefnið í Kanada og fyrstu viðbrögð lofuðu góðu. Halldór sagði ennfremur að þegar væri ákveðið að gera 150 mínútna sjónvarpsmynd og ekki væri loku fyrir það skotið að mögu- leiki á styttri útgáfu fyrir kvikmyndahús yrði tekinn til skoð- unar. Halldór sagði gerð kvikmyndahandrits verða í hönd- um þeirra Guðnýjar Halldórsdóttur og Sveinbjöms I. Bald- virissonar, og að eins hefði Jóna Finnsdóttir, sem framleiddi Tár úr steini, verið kölluð til starfa. Ekki fékkst uppgefinn framleiðslukostnaður en ætla má að hann verði í hægri kant- inum. Halldór sagði mikla vinnu framundan því félagið hyggst samhliða undirbúningi á Híbýlum vindanna taka upp kvik- myndina Ungfrúin góða og húsið, sem byggð er á sam- nefndri sögu Halldórs Laxness. Tökur þeirrar kvikmyndar eru fyrirhugaðar í haust en meðframleiðendur eru ENÁfilm í Köln og Nordisk Film, sem er eitt stærsta kvikmyndafyrir- tæki á Norðurlöndum og hefur m.a. framleitt Gestaboð Ba- bettu, Hamsun og hina góðkunnu þætti Matador. aþ Hér á eftir er listi yfir nokkrar frægar persónur mannkynssögunnar og hvað þær óttuðust mest á lífsleiðinni. 1. Ágústus keisari þjáðist af myrk- fælni. 2. Howard Hughes (einn nkasti maður sögunnar) þjáðist af ótta við opinbera staði. 3. Elísabet I varð ofsahrædd í hvert sinn sem hún sá eða fann ilminn af rósum. 4. Sigmund Freud var yfir sig hræddur við jámbrautalestir. 5. Richie Valens var flughræddur. Hann dó í flugslysi. 6. Marilyn Monroe var líkt og landi hennar Hughes ofsahrædd við opinbera staði. 7. Ilinrik IH Frakkakonungur ótt- aðist ketti meira en allt annað. 8. Graham Greene óttaðist tvennt meira en annað; blóð og fugla. 9. Arnold Shönberg tónskáld ótt- aðist töluna þrettán. Fyrir kald- hæðni örlaganna lét Shönberg lífið föstudaginn 13. aðeins 13 mínútum fyrir miðnætti. 10. Nataiie Wood var alla tíð afar vatnshrædd. Hún drukknaði er hún var á siglingu ásamt fjölskyldu sinni. Island töfrastaður

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.