Vikublaðið - 24.02.1997, Page 11

Vikublaðið - 24.02.1997, Page 11
24. febrúar 1997 [DQMÐQíD EFTIRSPRETTIR Röskva sigrar í sjöunda sinn Röskva samtök félagshyggju- fólks við HÍ vann sigur í kosning- um til Stúdentaráðs og Háskólaráðs sem fóru fram í síðustu viku. Kosið var um níu sæti til Stúd- entaráðs og hlaut Röskva 1449 at- kvæði eða 54.8% og fimm fulltrúa, Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta hlaut 815 atkvæði eða 30.8% og 3 fulltrúa. Haki, félag öfgasinn- aðra stúdenta hlaut 286 atkvæði eða 10.8% og einn fulltrúa. Staðan í Stúdentaráði er því sú að Röskva hefur tólf fulltrúa, Vaka átta og Haki einn. Röskva og Vaka fengu hvor um sig einn mann kjörinn í Háskólaráð. Dagskrá um flóttafólk í kvöld efnir íslandsdeild Am- nesty Intemational til dagskrár um flóttafólk í samvinnu við Lista- klúbb Leikhúskjallarans. Um þessar mundir er að koma út bók á vegum Amnesty Intemation- al sem fjallar um flóttafólk. Lesið verður úr bókinni og sýndar verða litskyggnur. Jóhanna K. Eyjólfs- dóttir, framkvæmdastjóri íslands- deildarinnar mun flytja tölu um stöðu flóttamanna í dag. Þá verða lesin ljóð frá öllum tímaskeiðum sem tengjast flóttamönnum á einn eða annan hátt eða em ort af skáld- um á flótta. Sigurður A. Magnússon rithöf- undur les frásögn sína af flótta- mannabúðum í Grikklandi og Sif Ragnhildardóttir syngur lög eftir Theodorakis. Meðal annarra lista- manna sem koma fram em leikar- amir Amar Jónsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og píanóleikarinn Þóra Fnða Sæmundsdóttir. Allur ágóði dagskrárinnar rennur til Amnesty Intemational. SÓL í Hvalfirði álykta SÓL (Samtökin óspillt land í Hvalfírði) leggjast eindregið gegn því að álver verði byggt á Grundar- tanga. I ályktun samtakanna segir að gróðurhúsalofttegundir muni auk- ast um 14%, sem er langt umfram þann mengunarkvóta sem íslend- ingar hafa skuldbundið sig til að fylgja til ársins 2000. Þá segja SÓLarmenn að fullyrðingar iðnað- arráðherra séu alrangar um að fyrir- huguð álverksmiðja muni nota bestu fáanlegu tækni við hreinsun á útblæstri. Samtökin minna á að vot- hreinsun sé víða viðhöfð { ná- grannalöndum okkar án skaða fyrir líffíki hafsins og víða sé frárennslið hreinsað áður en það rennur í sjó- inn. Að lokum varpa samtökin fram þeirri spurningu hvort ekki sé kom- inn tími til að íslendingar nýti sjálfir eigin orkulindir til mat- vælaframleiðslu og smáiðnaðar, sem muni færa okkur margfalt fleiri störf en stóriðja geti nokkum tíma gert. Námskeið um hjóna- bandið og sambúðina Frá því í október á liðnu hausti hafa verið haldin námskeið um hjónabandið og sambúðina í Hafn- arfjarðarkirkju. Nú eru aðeins tvö námskeið eftir, það fyrra verður haldið 25. febrúar og hið síðara 1 mars nk. Hvert námskeið stendur eitt kvöld og fá aðeins tólf pör að- gang í hvert skipti. Á námskeiðunum er leitast við að skoða stöðu sambúðarinnar og benda á leiðir fram á við til úrbóta þar sem slíkt þarf og til að gera gott betra hjá þeim sem stendur þannig á fyrir. Leiðbeinendur em sr. Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnar- fjarðarkirkju og Halla Jónsdóttir. fræðslufulltrúi á Biskupsstofu. Námskeiðin eru ókeypis. Eg vil gerast áskrifandi að Vikublaðinu! Frá 10. febrúar til 10. mars stendur öllum þeim, sem gerast áskrifendur á tímabilinu, til boða áskriftartilboð: Frí áskrift í febrúar og áskrift á hálfvirði næstu tvo mánuði (mars og apríl) eða 500 krónur fyrir hvorn mánuð, en full áskrift eftir það (1.000 kr. almennt, 900 krónur ef greitt er með korti, en 800 krónur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega). Fyllið út eftirfarandi og sendið til Vikublaðsins, Laugavegi 3,101 Reykjavík eða faxið í númerið 551-7599. Nafn:_____________________________________________________ Kennitala:___________________________________ Heimilisfang: Póstnúmer og staður: Sími:_____________ Ég óska eftir áskrift að Vikublaðinu og vil greiða með: Korti VISA/EURO____________________________________ ____Beingreiðsla í banka #_ ____A-gíró ____Fá rukkara heim til mín Dagsetning:______________ reikn. # Staðfesti undirritaður VINNINGASKRA I JÓLAHAPPDRÆTTI 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: vinningur: 10. vinningur: 11. vinningur: 12. vinningur: 13. vinningur: 14. vinningur: 15. vinningur: 16. vinningur. 17. vinningur: 18. vinningur: 19. vinningur: 20. vinningur: 21. vinningur: 22. vinningur: 23. vinningur 24. vinningur: 25. vinningur: 26. vinningur: 13249 15851 2924 5161 11831 4617 16217 6950 19912 18898 25486 14489 1279 2461 17334 16698 5743 26853 4456 28298 20028 26850 12761 7528 295 10415 Vinningar aðeins gildir á miða sem greiddir voru fyrir 22. febrúar 1997 og verða ekki afhentir eftir 22. febrúar 1998. Framkvæmdastj óri H3— M enníngarhcmdbók Vikublaðsins! Næstkomandi mánudag fyigir Vikubladinu ser- stök menningarhandbók, þar sem fjaliað verður um viðburði á sviði menningar og lista I mars- mánuði. » ✓ '' hBi ''i ■ í menningarhandbókinni verður að finna greinar og viðtöl, en einnig staðgóðár upplýsingar um hvaða menningarviðburðir séu helstir á dagskrá í mánuð- inum. Vikublaðið beinir því til forráðamanna á sviði menn- ingar og lista að koma upplýsingum til blaðsins sem allra fyrst í síma 552-8655 (Arndís eða Helena) eða í bréfsíma (fax) 551-7599. Mjög æskilegt er að all- ar upplýsingar sem áhugi er að komið sé á framfæri berist Vikublaðinu eigi síðar en á miðvikudag næstkomandi. Vikublaðið L AND SPITALINN þágu mannúðarog vfsinda... Geðdeild Landspítalans Félagsráðgjafi óskast á endurhæfingarskor í 80% starf. Áskilin er menntun félagsráð- gjafa og reynsla er æskileg. í starfinu felst almenn félagsráðgjöf í skorinni og vinna á dagdeild. Upplýsingar veitir Margrét Jónsdóttir, félagsráðgjafi í síma 560 2600. Umsóknir berist til Sigurrósar Sigurðardóttur yfirfélags- ráðgjafa fyrir 15. mars nk. Meðferðarstjóri óskast á áfengis- og vímuefnaskor, deild 16, að Teigi. Teigur er göngu- dagdeild fyrir alkólhólista og vímuefnaneytendur og fíkla með geðtruflanir. Meðferðin fylgir þeirri stefnu að vímuefnaneysla sé fjölskyldusjúkdómur og áhersla lögð á fjölskylduna sem heild. Starfið felur í sér umsjón með meðferðinni og stjórnun. Æski legt er að umsækjandi hafi háskólamenntun í sálarfræði, fé lagsfræði eða sambærilegum greinum og stjórnunarreynslu. Meðferðarfulltrúi óskast einnig að Teigi. Starfið felur í sér einstaklingsvinnu með fíklum og aðstandendum þeirra, hópstjórn, fjölskylduviðtöl og fyrir lestra. Einhver reynsla af 12 spora meðferðarkerfi æskileg. Skriflegar umsóknir um bæði störfin að Teigi berist til Óttars Guðmundssonar læknis, geðdeild Lanspítalans, sem veitir nán- ari upplýsingar í síma 560 2890. Umsóknarfrestur ertii 10. mars nk. Laun skv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjáramálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðn- ingu hefur verið tekin. Lúrirðu á fréttl Vikublaðið sími 552 8655

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.