Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Blaðsíða 1
Laugardagur 23. 2. 2008
81. árg.
VERNDUN OG UPPBYGGING
HUGARFAR GRÆÐGI GETUR ALDREI SKAPAÐ FALLEGA BORG,
SEGIR PÉTUR H. ÁRMANNSSON, HELDUR ÖRLÆTI OG VIRÐING » 8
Hvaða máli skiptir að jafna hlut kynjanna í stjórnum fyrirtækja á Íslandi? » 2
lesbók
Árvakur/Golli
Náttúrutalent „...sóló- dæmið blundar í mér, það er nokkuð víst ..." segir Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari og tónskáld í Lesbókarviðtali í dag.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Eyþór Gunnarsson fer mik-inn í Lesbók í dag í feikna-skemmtilegu spjalli viðArnar Eggert Thorodd-
sen. Blygðunarlaust spyr sá síð-
arnefndi: „Hver ertu, Eyþór?“ eins
og þessi þjóð viti það nú ekki, Eyþór
var farinn að koma fram rétt upp úr
fermingu – en Eyþór svarar hispurs-
laust, fer vítt og breitt um sviðið, tal-
ar um áhrifavald-
ana,
fyrirmyndirnar,
tónlistina, púsl og
samspil á níunda
áratugnum,
Mezzoforte Kalla
Sighvats, en í
kvöld vermir Ey-
þór hljómborðs-
stól Kalla á tón-
leikum
Þursaflokksins í
Laugardalshöll.
Eyþór leiðréttir þann misskilning
sem hann segir marga haldna, að
hann sé hámenntaður í tónlist. Játn-
ing hans um að hann hafi ekkert fyrir
þessu er því stórskemmtileg. Þetta
kallar maður sennilega hæfileika frá
náttúrunnar hendi. Ég hef lengi spáð
í hvernig hann hafi farið að í útsetn-
ingum fyrir Borgardætur, Mezzó-
forte og fleiri bönd – þær eru flóknar
og knúsaðar. Hann lýsir því hvernig
svoleiðis vinna fer fram: „Tónlistin
var flókin en hún var ekki skrifuð.
Þetta var bara æft í tætlur og nýjum
og nýjum smáatriðum bætt við til að
gera þetta pínulítið flóknara; skreyta
þetta aðeins. Það er botnlaus vinna á
bak við svona hluti.“
Það er líka botnlaus vinna á bak við
endurgerð gamalla húsa, svo segja að
minnsta kosti þeir sem reynt hafa.
Pétur Ármannsson arkitekt fer yfir
húsverndarmál og uppbyggingu í
Reykjavík í grein á miðopnu Les-
bókar þar sem hann segir: „Vandi
húsverndar á Íslandi er vandi hug-
arfars.“
Soffía Auður Birgisdóttir kynnir til
leiks skáldin sem tilnefnd eru til Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Það verður spennandi að fylgjast með
hver hreppir hnossið, þarna eru
nokkrar mjög óvenjulegar bækur,
held ég, eins og ævisaga Fredriku
Charlottu, eiginkonu Runebergs,
þjóðskálds Finna, en Soffía segir sög-
una í senn fræðilega og skáldlega.
Bíó-, bóka- og tónlistarsíður Les-
bókar eru smekkfullar af fróðleik að
vanda, og gleymið ekki síðu tvö, með
fjölmiðlapistli og beittri upphrópun.
Þetta var
bara æft
í tætlur
Æft fyrir
Þursatónleika
með Caput.