Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 15 Hlustarinn Innan seilingar eru tværnýlegar geislaplötur sem gott er að grípa til þegar tóm gefst á milli auglýstra dag- skrárliða í útvarpinu. Það fylgir starfinu að maður hlustar gjarnan á músík í smáskömmtum og gefur sér sjaldan tíma til að njóta verka í heild sinni. Fyrstu ís- lensku sónöturnar voru gefn- ar út á geislaplötu fyrr í vet- ur, sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, Karl. O. Runólfs- son, Fjölni Stefánsson og Jón Nordal sem Rut Ingólfs- dóttir og Richard Simm leika, vönduð útgáfa og vel úr garði gerð. En hún minnir mann á hve íslensk tónlistar- útgáfa hefur verið brota- kennd og tilviljunarkennd og hvað þar er margt óunnið. Svo er alveg víst að fleiri en ég kunna að meta uppáhalds- lögin íslensku sem hljóm- sveitin L’amour fou gaf út á plötu 2005 í útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar sem leikur á selló í þeim góða kvintett. Þetta er músík í svolítið gamaldags stássstof- ustíl sem minnir á gömlu Vínarvalsanna, stíl sem varð fyrir áhrifum frá tangó- og dægurtónlist og varð gríð- arvinsæll á kaffihúsum betri borgara í Mið-Evrópu. Tón- listin er tilfinningaþrungin og býr yfir töfrum þegar vel er spilað, af gleði og hlýju eins og hér. Þau mega gjarn- an gefa út meira af svo góðu. Trausti Þór Sverrisson útvarpsþulur Árvakur/Kristinn Ingvarsson Trausti Þór Sverrisson „Þetta er músík í svolítið gamaldags stássstofustíl sem minnir á gömlu Vínarvalsanna,...“ Lesarinn Síðasta bókin sem ég las er Afleggjarinneftir Auði A. Ólafsdóttur. Þetta er sér- stök og vel skrifuð bók um ungan íslenskan garðyrkjumann sem dvelur í litlu fjallaþorpi á ótilgreindum stað í útlöndum. Þar vinnur hann að uppbyggingu klausturgarðs og glímir við flóknar tilvistarspurningar. Sagan er rómantísk, falleg og fyndin en líka sorgleg og tregafull. Mér finnst höfundinum takast vel að skapa áhugaverðar og skýrar persón- ur og sambönd. Litla fjallaþorpið verður al- veg ljóslifandi í myndrænum lýsingum Auðar; þar er kyrrlátt og hljótt og lífið í föstum skorðum, fólkið er gott, maturinn og veðrið. Inn í söguna fléttast svo skemmtilega ýmis brot úr kvikmynd- um, myndlist, matargerð og rósarækt. Umfjöll- unarefnin eru sígild og brýn, það er fjallað um samskipti persóna við ólíkar aðstæður, bræðra, feðga og ekki síst feðgina og bókin fjallar líka um ástina í fjölmörgum myndum og uppeldi í víðasta skilningi. Afleggjarinn er táknrænn titill og hæfir vel efninu. Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík Árvakur/Kristinn Ingvarsson Hrefna Haraldsdóttir „Umfjöllunarefnin eru sígild og brýn, það er fjallað um samskipti per- sóna við ólíkar aðstæður,...“ ÞEMASÝNINGAR eru áhugaverð fyrirbæri og auðvelda oft aðgengi áhorfenda að listaverkum samtím- ans. Þær geta verið unnar á ýmsa vegu, stundum velur sýningarstjór- inn verk á sýningu, en oftar er það listamaðurinn sjálfur sem ann- aðhvort á þegar verk sem er áhuga- vert innlegg í umræðuna eða þá að verk hans almennt falla að þeirri rannsókn sem sýningin snýst um. Sú er raunin á sýningunni Þögn sem nú má sjá í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi, þar sem mynd- listarmaðurinn og gagnrýnandinn JBK Ransu bregður sér í hlutverk sýningarstjóra og leggur út af hug- leiðingum um þögn. Hann hefur val- ið fjóra listamenn er í list sinni hafa á einhvern máta fengist við eða birt hugtakið þögn, beint eða óbeint. Í sýningarskrá fjallar Ransu um mik- ilvægi þagnarinnar í samtíma sem er stútfullur af áreitum svo erfitt er að fá frið, og ættu flestir að kannast við það. Þögn í þessu samhengi má einn- ig nefna hugarró eða kyrrð, ástand sem gerir okkur kleift að nema stað- ar og ekki bara horfa og hlusta, heldur sjá og heyra. Það er einmitt þetta sem sýningin Þögn snýst um, að fá áhorfandann til að nema stað- ar, vera til með því sem þar er að sjá. Listaverkin snúast tæpast um það að draga fram birtingarmyndir þagnarinnar, heldur gera áhorfand- anum kleift að finna þögnina í sjálf- um sér. Á endavegg sýnir Haraldur Jóns- son lágmynd, svartan fleka úr hljóð- einangrandi efni í formi gólfflatar safnsins sjálfs, og heldur þar áfram á nótum sem hann hefur unnið með undanfarið. Veggverkið er stórt og þungt og hefur tilhneigingu til að vera yfirþyrmandi, það ýtir ekki undir sjálfsprottna þögn heldur verða efniseiginleikar þess til að minna á hina dálítið yfirþyrmandi lotningu sem t.d. má sjá í högg- myndum Einars Jónssonar. Vegg- verk Finnboga Péturssonar fær áhorfandann til að upplifa tímann og augnablikið á fínlegan hátt, þar sem hann birtir myndir af ytri, sjónræna veruleika safnsins með aldagömlum lögmálum, hér nær áhorfandinn að finna fyrir sjálfum sér á hreyfingu í stað og stund. Finnur Arnar Arn- arson sýnir innsetningu sem er í anda fyrri verka hans þar sem hann sýnir verksummerki einhvers sem er liðið, en hann dvaldi í safninu um stundarsakir. Innsetning hans er nokkuð flókin og margræð, einna líkast því að um nokkur aðskilin verk sé að ræða. Einföld mynd Hörpu Árnadóttur svífur síðan yfir höfðum áhorfenda og kallast á við regnvotar rúður safnsins sem ramma inn götumyndina fyrir utan. Sýningin kallast skemmtilega á við sýningu þá sem sjá má á Lista- safni Akureyrar nú um stundir þar sem verk listamanna eru sett í sam- hengi búddisma með hugleiðingum um tómið og formið, en þar á Finn- bogi Pétursson einnig verk. Í heild- ina býður hún upp á forvitnilegan rannsóknarleiðangur sem hver og einn skilgreinir best fyrir sjálfum sér og má ætla að hún nái þannig markmiðum sínum sem eru hógvær og lágstemmd en á sama tíma brýn og aðkallandi. Sett á pásu MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús Til 27. apríl. Opið 10–17 alla daga, og til kl. 22 á fim. Aðgangur ókeypis. Þögn, samsýning, Finnbogi Pétursson, Finnur Arnar Arnarsson, Haraldur Jóns- son, Harpa Árnadóttir, sýningarstjóri JBK Ransu bbbnn Morgunblaðið/Valdís Thor Þögn „Veggverk Finnboga Péturssonar fær áhorfandann til að upplifa tímann og augnablikið á fínlegan hátt,“ segir gagnrýnandi í umsögn sinni. Ragna Sigurðardóttir ÁRIÐ 2004 færði Ríkey Ríkarðs- dóttir, náinn ættingi Nínu Sæ- mundsson, Listasafni Reykjavíkur listaverkagjöf, ellefu verk eftir lista- konuna. Nú má sjá allar þessar myndir samankomnar í forsal Kjar- valsstaða. Fremst í flokki er styttan Móðurást, sem er mörgum kunn, en hún var fyrsta listaverk eftir konu, sem sett var upp í almenningsrými í Reykjavík. Styttan var gerð á þriðja áratugnum og fékk þá heiðurssess á haustsýningunni í París þar sem Nína dvaldi á þeim tíma. Margir kannast eflaust líka við styttuna af Nonna við Nonnahús á Akureyri sem Nína gerði á sjötta áratugnum. Nína var frumkvöðull íslenskra kvenna í höggmyndalist. Hún lærði í Kaupmannahöfn en bjó lengst af í Bandaríkjunum þar sem hún vann verk í anda raunsæis en oft byggð á goðsögum, trúarlegum sögum og menningararfinum. Hún naut ekki mikillar hylli hérlendis og þegar hún flutti heim á sjöunda áratugnum voru aðrar áherslur ríkjandi í mynd- listinni. Að einhverju leyti hafði Nína einangrast frá þróun list- arinnar í Evrópu. Ef til vill hefði Nína notið meira sannmælis hefði hún verið á ferð með styttur sínar og málverk nú, þegar meiri fjölbreytni ríkir innan myndlistarinnar og allt er leyfilegt. Ekki síst myndi lista- maður sem ynni portrettmyndir af helstu Hollywood-stjörnum samtím- ans njóta frægðar á Íslandi í dag, og er það til marks um breytta tíma. Verkin ellefu sýna megináhersl- urnar í list Nínu. Móðurást og Be- dúínakona á bæn standa hinum nokkuð framar og eru bæði þokka- full og sannfærandi. Hin verkin eru flest án titils og ártals, brjóstmyndir og þrír hausar án titils. Tvær mynd- ir sýna ástina, innilegar brjóstmynd- ir af faðmlagi karls og konu. Tæpast er hér hægt að tala um heildstæða sýningu en þó er um að ræða ágætt sýnishorn af verkum Nínu. Styttur hennar njóta sín vel í forsal Kjarvalsstaða, þær gæða al- menningsrýmið innileika og njóta sín vel í dagsbirtunni sem leikur um þær. Ástúð og innileiki Árvakur/Golli Þokkafullar „Styttur hennar njóta sín vel í forsal Kjarvalsstaða, “ Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Kjarvalsstaðir Til 6. apríl. Opið daglega kl. 10-17. Að- gangur ókeypis. Verk eftir Nínu Sæmundsson, listaverka- gjöf Ríkeyjar Ríkarðsdóttur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.