Morgunblaðið - 23.01.2008, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIÐ Vísir hf.
hefur ákveðið að loka starfsstöðvum sínum á
Þingeyri og Húsavík í fimm mánuði í sumar.
Þessi ákvörðun leiðir til þess að allt að 80
manns verða án atvinnu frá því í byrjun maí í
vor og til fyrsta október í haust. Á hinum tveim-
ur stöðunum, Djúpavogi og Grindavík, verður
sumarfríið aðeins sex vikur eins og verið hefur.
Einnig verður einu af skipum félagsins lagt í
haust.
„Ástæðan er öllum kunn. Við erum að fást við
þann vanda sem fylgir því að vera skornir niður
um 2.500 til 2.700 tonn af þorski á fiskveiði-
árinu. Það þýðir að í heildina minnkar veiðin
um allt að 4.000 tonn, því ljóst er að að minnsta
kosti 1.500 tonn verða óveidd af ýsukvótanum
hjá okkur. Okkur vantar meiri þorskveiðiheim-
ildir til að ná henni,“ segir Pétur H. Pálsson,
forstjóri Vísis.
Tekur sjö mánuði að veiða þorskinn
„Valmöguleikarnir hjá okkur voru að loka
bara einni vinnslustöð og vinna áfram á hinum.
En vegna þess hvað við erum búnir að sérhæfa
okkur mikið er allur búnaður til söltunar á
Djúpavogi og í Grindavík. Tvo mánuði fyrir
sumarfrí og tvo mánuði eftir það munum við
beita bátunum á keilu og löngu og það er eng-
inn tækjabúnaður á Þingeyri og Húsavík til að
vinna saltfisk úr þessum tegundum. Því verður
heilsársvinnsla á Djúpavogi og Grindavík að
frátöldu sex vikna hefðbundnu sumarfríi. Við
reiknum með að það taki sjö mánuði af þessu
fiskveiðiári að veiða þorskinn og munum fækka
um eitt skip í haust. Þegar bezt lét voru þorsk-
veiðiheimildir okkar 1.700 til 1.800 tonn á hvert
skipanna fimm. Í upphafi næsta kvótaárs för-
um við af stað með fjögur skip með 1.250 tonn á
hvert þeirra. Við gerum svo ráð fyrir að geta
veitt 7.000 tonn af öðrum tegundum með þorsk-
inum, eða 12.000 tonn alls.
Við viljum láta reyna á það að við getum farið
í gegnum þetta með þessum hætti. Það felst í
því að við fáum fólk til starfa þessa sjö mánuði
og höldum því. Svo fylgir því töluverður kostn-
aður að halda húsunum við og gangandi þó við
lokum ekki alveg,“ segir Pétur.
Til þessa hefur verið tekið sex vikna sumarfrí
á öllum vinnslustöðvunum fjórum, en nú verður
stoppað fyrsta maí og byrjað aftur fyrsta októ-
ber á Húsavík og Þingeyri. Því bætast í raun
um þrír og hálfur mánuður við sumarfríið hjá
fólkinu. Stöðugildin eru 30 á Þingeyri og 50 á
Húsavík. Svo bætist við áhöfn af einum bát í
haust. „Það er alltaf einhver hreyfing á sjó-
mönnunum og við vonumst til að ekki komi til
þess að neinn missi vinnuna, þó við leggjum
einum bát, en það á eftir að koma í ljós.“
Vona að þetta nægi
Hann segist ekki vilja tjá sig um það hvort
þorskkvótinn hafi verið skorinn of mikið niður,
en það sé staðreynd að hlutföllin milli heimilda í
þorski og ýsu gangi alls ekki upp. Engin leið sé
að ná öllum heimildum í ýsunni. Auk þess kalli
breytt sóknarstýring vegna niðurskurðarins á
mikla veiði af smáfiski.
„Þetta er erfið ákvörðun en ég er sáttur að
þurfa ekki að ganga lengra í bili en þetta og
vona bara að það nægi,“ segir Pétur H. Páls-
son.
Allt að 80 manns í langt sumarfrí
Starfsstöðvar Vísis á Húsavík og Þingeyri verða lokaðar í fimm mánuði í sumar Starfsfólkið á rétt á
atvinnuleysisbótum en lækkar verulega í launum Hundruð manna munu missa vinnu sína í fiski
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vinnslan Niðurskurður þorskkvótans kemur
mjög harkalega niður á fiskverkafólki.
Í HNOTSKURN
»Niðurskurður þorskkvótans um 2.700tonn leiðir til allt að 4.000 tonna afla-
samdráttar, þar sem fyrirsjáanlegt er að
ýsukvótinn næst ekki.
»Þetta er erfið ákvörðun en ég er sátturað þurfa ekki að ganga lengra í bili en
þetta og vona bara að það nægi.
„Þetta er slæmt mál, sem ekki sér fyrir end-
ann á og ég spái fleiri uppsögnum á næstu
vikum. En þetta teljast reyndar ekki vera
uppsagnir hér. Heldur nýtir Vísir sér ákvæði
í kjarasamningum sem er á þá leið að með
fjögurra vikna fyrirvara geta fyrirtæki í fisk-
vinnslu boðað lokun tímabundið vegna hrá-
efnisskorts. Það eru því allir starfsmenn
áfram í ráðningarsambandi, en þurfa hins
vegar að skrá sig atvinnulausa og fara á at-
vinnuleysisbætur. Það þýðir náttúrulega
verulega tekjuskerðingu fyrir fólkið,“ segir
Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðs-
félags Húsavíkur.
Aðalsteinn bendir ennfremur á að víða um
landið undanfarið hafi verið uppsagnir og
eða boðaður samdráttur. Þau störf sem séu
að tapast skipti hundruðum. „Við hjá Starfs-
greinasambandinu vöruðum við þessu á sín-
um tíma. Við vildum ekki að þorskkvótinn
yrði skertur eins mikið og gert var og jafn-
framt horft til þeirra staða, sem verst kæmu
út. Það var ekki gert. Þetta er mjög alvarlegt
mál og ég er búinn að óska eftir því að Starfs-
greinasambandið taki það upp. Ég sé fyrir
mér að við höfum samband við stjórnvöld og
vekjum enn og aftur athygli á þessum mikla
vanda sem blasir við því fólki, sem er að
missa vinnuna þessa dagana. Þetta er eitt það
versta sem hefur komið fyrir landsbyggð-
ina,“ segir Aðalsteinn Baldursson.
Spáir fleiri
uppsögnum
LÆGSTA tilboð í gerð Bolung-
arvíkurganga er rúmlega hálfum
milljarði undir áætluðum verktaka-
kostnaði. Íslenskir aðalverktakar
hf. og Marti Contractors Ltd. í
Sviss bjóðast til að grafa göngin og
ljúka tilheyrandi framkvæmdum
fyrir tæpa 3,5 milljarða króna.
Tilboð í Bolungarvíkurgöng voru
opnuð hjá Vegagerðinni í gær og
var Kristján Möller samgönguráð-
herra viðstaddur. „Í fljótu bragði
líst mér ágætlega á þetta,“ sagði
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri
um tilboðin, þegar þau lágu fyrir.
Hann tók þó fram að eftir væri að
fara yfir tilboðin, endurreikna þau
og athuga hvort einhverjir fyrir-
varar væru gerðir.
Bolungarvíkurgöng liggja milli
Bolungarvíkur og Hnífsdals og auk
þess að grafa göngin mun verktak-
inn byggja forskála og leggja vegi
að þeim. Göngin eru 5,1 km löng
og 8,7 metra breið. Þau munu
leysa af hólmi erfiðan veg um Ós-
hlíð.
Tilboð á bilinu
3,5 til 6 milljarðar kr.
Fimm verktakar sýndu áhuga á
að taka þátt í útboði um göngin og
var fjórum boðið að taka þátt.
Tilboðin voru á bilinu 3,5 til 6
milljarðar króna. Íslenskir aðal-
verktakar hf. og samstarfsfyrir-
tæki þeirra, Marti Contractors
Ltd. í Sviss, áttu lægsta tilboð,
3.479 milljónir kr. Eru það 87,9%
af áætluðum verktakakostnaði
Vegagerðarmanna. Næstlægsta til-
boð er frá Leonhard Nilsen & Sön-
ner As. í Noregi og Héraðsverki
ehf. á Egilsstöðum, 3.667 milljónir
kr. Ístak hf. bauðst til að taka
verkið að sér fyrir 3.988 milljónir
kr. og hæsta tilboð var frá Metros-
tav a.s. í Tékklandi og Háfelli ehf.,
5.994 milljónir kr. sem er liðlega
50% yfir áætluðum verktakakostn-
aði.
Að lokinni yfirferð Vegagerðar-
innar verða væntanlega teknar
upp viðræður við lægstbjóðanda.
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri
sagði ekki hægt að segja til um
hvenær gengið yrði frá samning-
um.
Verði samið við ÍAV um gerð
ganganna verður þetta með allra
stærstu verkum fyrirtækisins, að
sögn Eyjólfs Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra sölu- og markaðs-
sviðs, sem kvaðst ánægður með að
vera með lægsta tilboð. Reiknar
hann með að hægt verði að hefjast
handa við gangagerðina með vor-
inu. Göngin verða opnuð fyrir um-
ferð á árinu 2010.
Lægsta tilboð hálfum
milljarði undir áætlun
Árvakur/Ómar
Tilboð opnuð Kristján Möller, Jón Rögnvaldsson, Rögnvaldur Gunnarsson og Einar Már Magnússon.
HÆGUR gangur er í viðræðum að-
ila vinnumarkaðarins. Fulltrúar
Starfsgreinasambandsins og Flóa-
bandalagsins funduðu með fulltrúum
Samtaka atvinnulífsins (SA) á mánu-
dag og var gert ráð fyrir að þeim
fundarhöldum yrði haldið áfram í
dag. Funduðu fulltrúar SA með
fulltrúum verslunarmanna í gær.
Gengur hvorki né rekur
Vilhjálmur Egilsson, formaður
SA, segir að viðræðurnar gangi
hægt og beinist ekki að neinum
ákveðnum þáttum kjarasamning-
anna. „Það er allt undir í sjálfu sér.
Menn eru að ræða samningstímann,
útfærslu á opnunarmöguleikum
samninga, hvernig launahækkanir
munu koma til með að verða og
samningskostnaðinn,“ sagði Vil-
hjálmur í gær. „Þessu miðar afar
hægt áfram en því miðar heldur ekki
aftur á bak,“ bætti hann við.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, tók í sama streng og Vilhjálmur
og sagði að umræður gærdagsins
hefðu verið afar almennar og engir
sérstakir hlutar samninganna hefðu
verið ræddir fram yfir aðra.
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambandsins segir ekk-
ert nýtt hafa komið fram á fundinum
á mánudaginn. SA byggi enn á sömu
tillögum og lagðar voru fram fyrir
áramót og staðan sé því sú sama og
þá.
Samningaviðræður
eru í hægagangi
Árvakur/Golli
Fundahöld Samningsaðilar þreifa
hverjir á öðrum þessa dagana.
LANDSBANKINN leitar nú að nýj-
um meðfjárfesti til að gera yfirtöku-
tilboð í fjármálafyrirtækið Close
Brothers Group, eftir að Cenkos
Securites ákvað að hætta viðræðum
um að taka yfir verðbréfa- og fjár-
málastarfsemi fyrirtækisins.
Hugmyndin er sú að Landsbank-
inn kaupi þann hlut starfseminnar er
lýtur að bankastarfsemi. Hljóðaði
upphaflegt yfirtökutilboð félaganna
tveggja upp á 950 pens á hlut, sem
svarar 173 milljörðum ísl. króna. Það
var svo hækkað í 1.025 pens.
Viðræður milli Landsbankans og
stjórnenda Cenkos Securites höfðu
staðið yfir um hríð, en eitt af höfuð-
markmiðum Landsbankans með
kaupunum var að renna fleiri stoðum
undir alþjóðlega starfsemi bankans,
með því að auka landfræðilega dreif-
ingu lánasafns, fjármögnunar og
tekjumyndunar hans.
Áður en stjórnendur Cenkos Sec-
urites ákváðu að draga sig út úr til-
boðsferlinu höfðu farið fram ítarleg-
ar viðræður sem hefur nú verið hætt
eftir að samningar náðust ekki.
Landsbankinn leitar nýs
meðfjárfestis í Close