Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í HNOTSKURN »Listri Frjálslynda flokksins og óháðra fékkeinn mann kjörinn í kosningunum 2006, Ólaf F. Magnússon. »Flestir sem skipuðu listann sögðu sig úrflokknum á síðasta ári eftir átök innan flokksins. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is MARGRÉT Sverrisdóttir og Guðrún Ásmunds- dóttir, sem skipuðu 2. og 3. sæti F-listans fyrir síð- ustu borgarstjórnarkosningar, ætla að starfa með gamla meirihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur. Fram kemur í tilkynningu að á fundi borgar- stjórnarflokks Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks ásamt Margréti og Guðrúnu hafi verið ákveðið að starfa áfram saman af fullum heilindum og hafa nána samvinnu um málflutning og tillögugerð, hér eftir sem hingað til. Haldnir verði sameiginlegir fundir borgarstjórnarflokk- anna og efnt til samstarfs um kosningar í nefndir og ráð. Er að bregðast stefnumálum og kjósendum Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, segist telja að Margrét Sverrisdóttir sé að bregð- ast stefnumálum F-listans og kjósendum listans með því að ganga ekki til liðs við nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. F-listinn hafi náð fram öllum sínum meginbaráttumálum í málefnasamn- ingi við Sjálfstæðisflokkinn og því ekki rökrétt að hafna þessu nýja samstarfi. Ólafur og samstarfsmenn hans unnu að því í gær að stilla upp fólki í nefndir. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þeirri vinnu væri ekki lokið. Það hefði tafið þessa vinnu að hann hefði vonast eftir að Margrét myndi starfa með nýja meirihlutanum í nefndum, en hún hefur verið for- maður menningarmálanefndar og setið í sam- göngu- og umhverfisnefnd. Efstu tíu menn á framboðslista F-listans hafa myndað borgarstjórnarflokk listans. Ólafur sagði að einungis Margrét og Guðrún Ásmundsdóttir, sem skipuðu 2. og 3. sæti listans, hefðu lýst yfir andstöðu við nýjan meirihluta. Þau sem skipuðu 7. og 8. sætið hefðu lítið starfað með flokknum að undanförnu, en aðrir í þessum hópi styddu nýja meirihlutann og málefnasamning flokkanna. Margrét og Guðrún starfa með gamla meirihlutanum Árvakur/Árni Sæberg Samstarf Margrét ætlar að starfa með Degi. Ólafur F. Magnússon segir Margréti Sverrisdóttur svíkja kjósendur F-listans JÚLÍUS Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi kom fram sem söngvari ásamt félaga sínum Arnþóri Helgasyni sem lék með á píanó á menningardagskrá Blindrafélagsins í gær. Fluttu þeir nokkur lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona annast reglubundna dagskrá hjá félaginu og var afar ánægð með atriðin. Árvakur/Frikki Sönglög Kaldalóns í hávegum höfð EIGINFJÁRSTAÐA Exista er í raun aðeins 35 milljarðar króna, að mati greiningardeildar sænska bankans SEB Enskilda. Í sept- emberlok nam bókfært eigið fé fé- lagsins um 260 milljörðum. Eig- infjárhlutfallið var þá 32%. Í nýrri skýrslu frá greining- ardeild SEB Enskilda kemst bank- inn að þeirri niðurstöðu að Exista hafi hleypt upp eiginfjárstöðu sinni á fyrsta ársfjórðungi 2007 með því að færa hlutdeild í söluhagnaði af eignum sem Sampo seldi. Bent er á að óráðstafað eigið fé Exista hafi verið aukið um meira en 500 milljónir evra (48,5 milljarða króna) á fyrsta ársfjórðungi 2007. Sú tala innhaldi nærri 15% hlut- deild í 3 milljarða evra söluhagnaði sem Sampo hafði af sölu Sampo Bank til Danske Bank. Þannig hafi eiginfjárstaða Exista verið styrkt. Í skýrslunni segir að líklegast hafi Exista þó aldrei fengið krónu af þessum hagnaði. SEB Enskilda segir að þegar eigið fé Exista hefur verið leiðrétt fyrir þessari hlutdeild í söluhagnaði hafi eiginfjárstaða Exista í lok þriðja ársfjórðungs verið nær 2,3 milljörðum evra (223 milljörðum króna) en þeim 2,7 milljörðum evra (262 milljörðum króna) sem reikn- ingar félagsins segja til um. Að auki reiknast greiningardeild bankans til að verðmæti stærstu eigna Exista hafi fallið í verði um 1,9 milljarða evra (183 milljarða króna) frá hæsta virði þeirra í sum- ar. Þegar tekið er tillit til þessa þverrandi virðis eigna félagsins þá megi gera ráð fyrir að eftir standi einungis um 365 milljónir evra (35,4 milljarðar króna) í raunveru- legu eigin fé. Exista er stærsti hluthafi Sampo með 19,98% hlutafjár. Exista á einnig 8,7% í Storebrand, 23% í Kaupþingi, 39,6% í Bakkavör og 43,6% í Skiptum sem rekur Sím- ann. SEB Enskilda telur að verðmæti eigna Exista nemi nú um 5 millj- örðum evra (485 milljörðum króna) en skuldir félagsins í haust námu 5,5 milljörðum evra (534 milljörðum króna). Miðað við eignastöðuna segir bankinn að ekki þurfi nema 7,5% verðfall á eignum Exista til að eigið fé félagsins verði uppurið og það neyðist til að selja eignir sínar í Sampo og Storebrand. Bankinn bendir jafnframt á að komi til þess að Exista neyðist til að selja þá hafi Sampo fjárhagslega burði til þess að eignast eigin hlutabréf. SEB Enskilda birti leiðrétta eiginfjárstöðu Exista með tilliti til söluhagnaðar af eignum Sampo og þverrandi verðmætis eigna Exista frá í sumar „Exista gæti þurft að selja“ HINN nýi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkurborgar beið þess ekki að taka formlega við völdum næstkom- andi fimmtudag heldur hófst þegar í gær handa við að tryggja að stefnu- mál hans gætu komist til fram- kvæmdar. Lét meirihlutinn í gær kalla til baka pöntun um prentun álagningarseðla fasteignagjalda. Voru þeir tilbúnir til prentunar í sam- ræmi við ákvarðanir fyrri meirihluta. „Við höfum lýst því yfir að við ætl- um að lækka þessi gjöld um 5% og til- laga okkar um það verður afgreidd á [borgarstjórnarfundi nú á fimmtu- daginn]. Síðan ætlum við líka í fram- haldinu að láta athuga hvort hægt sé að hækka viðmiðunartekjur þeirra elli- og örorkulífeyrisþega sem eiga að fá afslátt af fasteignagjöldum. Við stöðvuðum því prentunina í tvo daga til að þetta geti legið hreint fyrir strax í upphafi,“ sagði Vilhjálmur við Morg- unblaðið í gær. Ekki var búið að senda neina álagn- ingarseðla út til borgarbúa. „Við vild- um bara gera þetta strax þannig að okkur væri ekkert að vanbúnaði að lækka þessi gjöld. Við erum bara byrjuð að framkvæma okkar stefnu- skrá og það verður ekkert lát á því,“ sagði Vilhjálmur. Álagningar- seðlar aftur- kallaðir ÞRÍR borgarstjórar verða á laun- um hjá Reykjavíkurborg fram í apríl. Ástæðan fyrir þessu eru tíð borgarstjóra- skipti í borginni. Dagur B. Egg- ertsson, fráfar- andi borgar- stjóri, á rétt á þremur mánuð- um í biðlaun, en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á rétt á sex mán- aða biðlaunum. Laun og launakjör borg- arstjóra taka mið af launum forsætisráð- herra, en laun hans eru ákveðin af kjararáði. Borgarstjóri er í dag með 1.077.908 krónur í mánaðarlaun. Borgarstjóri sem hefur gegnt því embætti í eitt ár eða leng- ur á rétt á sex mánaða biðlaun- um, en ef hann hefur verið skemur í emb- ætti á hann rétt á þriggja mán- aða biðlaunum. Vilhjálmur Þ. var borgarstjóri í rúmt ár og Dag- ur var borgarstjóri í rúmlega þrjá mánuði. Nýr meirihluti í borgarstjórn hefur gert með sér samkomulag um að skipt verði um borgarstjóra eftir rúmt ár. Ef það verða svo aft- ur borgarstjórnarskipti eftir næstu kosningar greiðir borgin borgarstjórum biðlaun í samtals 21 mánuð á tímabilinu október 2007 til nóvember 2010. Þrír borg- arstjórar á launum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Dagur B. Eggertsson Ólafur F. Magnússon BÍLVELTA varð í Ögurhvarfi í Vatnsendahverfi í gær en ekki urðu slys á fólki. Mikil hálka var á höf- uðborgarsvæðinu síðdegis í gær og urðu á þriðja tug umferðaróhappa, án þess þó að slys hlytust af sam- kvæmt upplýsingum lögreglunnar. Vonskuveður og nokkur hlákutíð setti einnig sinn svip á daglegt líf fólks í gær. Bílvelta í Vatnsenda ♦♦♦ ÞÓRDÍS Tinna Aðalsteinsdóttir sem barðist við lungnakrabba- mein lést á mánudag. Þórdís Tinna fæddist 10. desember 1968. Vakti hún mikla athygli fyrir skrif á bloggvef sínum þar sem hún fjallaði af einlægni um veikindi sín. Þórdís Tinna læt- ur eftir sig eina dóttur. Í september á síðasta ári barst félagsmálaráðherra og heilbrigðis- ráðherra fjöldi tölvubréfa frá les- endum Þórdísar Tinnu þar sem skorað var á ráðherrana tvo að bæta kjör öryrkja og aldraðra í kjölfar umfjöllunar Þórdísar Tinnu. Landsþekktur bloggari Lést úr krabbameini Þórdís Tinna Aðalsteinsdóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.