Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 9 FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is ÓVISSA ríkir um að verktakafyr- irtækið Arnarfell ehf. geti lokið gerð umsaminna verkþátta við Jökulsár- veitu Kárahnjúkavirkjunar vegna fjárhagslegra þrenginga. Mögulega verður annar verktaki fenginn til að ljúka verkinu fyrir Landsvirkjun ef mál Arnarfells skýrast ekki undir helgina. Um er að ræða fjóra verk- þætti virkjunarinnar sem tilheyra Jökulsárveitu austan Snæfells, en hún mun útvega um 25% vatns til raforkuframleiðslu virkjunarinnar. Sigurbergur Konráðsson, fram- kvæmdastjóri og einn eigenda Arn- arfells, segir ekki tímabært að tjá sig opinberlega um stöðuna en að mál muni skýrast í kringum næstu helgi. Ljóst er að Arnarfell á í umtals- verðum fjárhagserfiðleikum og hef- ur lítið unnið á framkvæmdasvæðinu frá því fyrir jól. Þá fóru um 100 út- lenskir starfsmenn fyrirtækisins ut- an í jólafrí og hefur endurkomu þeirra til starfa ítrekað verið frestað. Fjárhagserfiðleikar Arnarfells komu fyrst upp á borðið sl. sumar, en þá náði fyrirtækið samningum við lánardrottna sína. Landsvirkjun ábyrgðist fyrir nokkrum dögum launagreiðslur til starfsmanna Arn- arfells við Kárahnjúkavirkjun, inn- lenda og erlenda, fyrir desember og janúar. Landsbankinn er viðskipta- banki Arnarfells og Lýsing leigir fyrirtækinu tæki og sér um verk- tryggingar þess og eru það þessir tveir aðilar sem Arnarfell á nú í við- ræðum við. Landsvirkjun fylgist grannt með málum og undirbýr sig ef skipta þyrfti um verktaka. Hún vill fá niðurstöðu fyrir helgina svo hægt sé að halda verkinu áfram. Sig- urður Arnalds hjá Landsvirkjun staðfestir að þeim möguleika hafi verið velt upp að fá annan verktaka til að taka framkvæmdir austan Snæfells yfir. Jafnframt hafi verið skoðað að Landsvirkjun hlypi undir bagga með Arnarfelli á einhvern hátt. „Við þurfum að skoða alla möguleika meðan mál Arnarfells er í biðstöðu til að spara tíma og vera til- búnir,“ segir Sigurður og á von á að línur skýrist um næstu helgi. „Næsti verkáfangi var að tengja Jökulsár- veituna næsta sumar, þ.e. Jökulsá í Fljótsdal, inntaksmannvirki og loku- búnað þannig að veitan verði þá rekstrarhæf.“ Um þriðjungi verkþátta ólokið Verkþættirnir sem Arnarfell er með austan Snæfells eru fjórir: KAR 21 sem er gerð innsta hluta Jökuls- árveituganga og er lokið utan frá- gangs, KAR 22, sem felur í sér bygg- ingu Ufsarstíflu ásamt botnrás og yfirfalli og á að vera lokið í ágúst í ár. Því verki er nánast lokið. KAR 23 er stíflur í Kelduá, Grjótá og Innri- Sauðá ásamt botnrásum og yfirföll- um og á að ljúka næsta haust en 80% verksins er ólokið. Loks er samning- ur KAR 24 um holun Kelduárganga og Grjótárganga, byggingu loku- mannvirkja og gröft aðliggjandi skurða. Framkvæmdir við Grjótár- göng eru rétt hafnar en við Kelduár- göng eru þær langt komnar. Báðum hlutum á að vera lokið á næsta ári. Tæplega þriðjungi allrar vinnu Arn- arfells á svæðinu er ólokið. Nú vinna hátt í 270 manns á veg- um Impregilo við Kárahnjúkavirkj- un, eitthvað um 30 manns frá öðrum verktökum og um 40 starfsmenn eru þar á vegum Arnarfells. Þeir halda í horfinu og undirbúa framhald vinnu á svæðinu. Vilja lausn fyrir helgi  Arnarfell á í samningaviðræðum við lánardrottna vegna fjárhagsörðugleika  Landsvirkjun vill fá niðurstöðu og skoðar aðra verktaka í verkefni austan Snæfells Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir Gangavinna Hægt hefur verulega á framkvæmdum austan Snæfells. Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 40-70% afsláttur Dagskrákl. 13:30 Setning skattadags KPMG Jón S. Helgason, stjórnarformaður KPMG Helstu skattalagabreytingar og umfjöllun um áhugaverða dóma og úrskurði Jónas Rafn Tómasson, sérfræðingur á skattasviði KPMG Reikningsskil í erlendum gjaldmiðlum Reikningshaldsleg og skattaleg álitamál Alexander G. Eðvardsson, forstöðumaður skattasviðs KPMG Milliverðlagning Kristján Gunnar Valdimarsson, skattasérfræðingur hjá Landsbankanum kl. 15:20 Kaffihlé kl. 15:40 Söluhagnaður hlutabréfa – álitamál í nýju lagafrumvarpi Sigurjón Högnason, sérfræðingur á skattasviði KPMG Beinir skattar fyrirtækja í alþjóðlegu samhengi Wilbert H A Kannekens, Head of Global International Corporate Tax KPMG Staða Íslands í skattamálum Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra kl. 17:10 Fyrirspurnir og umræður kl. 17:30 Léttar veitingar Ráðstefnustjóri : Símon Þór Jónsson, sérfræðingur á skattasviði KPMG © 2008 KPMG hf., íslenski aðilinn að KPMG International, svissnesku samvinnufélagi. Öll réttindi áskilin. Aðalfyrirlesari að þessu sinni er Wilbert H A Kannekens sem er Head of Global International Corporate Tax hjá KPMG. Skattadagurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á tax@kpmg.is Ráðstefnan veitir 4 einingar í skatta- og félagarétti skv. reglugerð um endurmenntun endurskoðenda. Skattadagur KPMG 24. janúar á Grand Hótel Við erum að flytja og því höfum við til sölu notuð skrifstofuhúsgögn, þ.e. skrifborð, skápa, skrifstofustóla ofl. Einnig ísskápa, borð, stóla o.fl. í eldhúsið. Selst ódýrt. Upplýsingar á skrifstofutíma gefur Hanna Dóra Haraldsdóttir í síma 530-8400 eða hdh@1912.is www.nathan. i s Notuð skrifstofuhúsgögn til sölu BÖÐVAR Jónsson aðstoðarmaður Árna M. Mathiesen fjármálaráð- herra segir fjármögnun á rann- sókn jarðganga til Eyja til skoð- unar í ráðuneytinu. Ekki sé þó hægt að tala um nein loforð í því sambandi, heldur að fullur vilji sé til þess að finna fjármagn til að ljúka rannsókn- um. Tímasetningar liggja þó ekki fyrir í þeim efnum. Nefndar hafa verið tölur upp á 50-60 milljónir króna í þessu samhengi og segir Böðvar að skoða þurfi fjárþörfina. Fjármálaráðherra sat nýlega fund með Vestmannaeyingum ásamt fleiri sjálfstæðismönnum þar sem þessi mál voru rædd meðal annarra mála. Vilji til að finna rann- sóknafé vegna ganga DAGUR B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Ingi Hrafnsson formaður íþrótta- og tómstundaráðs (ÍTR) hafa undirritað þjónustu- og rekstrar- samninga við 25 íþróttafélög og æskulýðssamtök í Reykjavík. Samn- ingarnir eru til þriggja ára og metnir á 6,5 milljarða króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Í samningunum er kveðið á um stuðning Reykjavíkurborgar vegna þjónustu félaganna við borgarbúa, húsaleigu- og æfingastyrkja, styrkja vegna íþróttafulltrúa og starfsmanna, styrki vegna fasteignaskatta, bygg- ingastyrkja og sumarnámskeiða. Félögin sem samið er við eru: ÍBR, Ármann, Þróttur, KR, Fram, Víking- ur, Fylkir, ÍR, Fjölnir, Leiknir, Skautafélagið Björninn, Hesta- mannafélagið Fákur, Golfklúbbur Reykjavíkur, Íþróttafélag fatlaðra, Júdófélag Reykjavíkur, Karatefélag Reykjavíkur, Skautafélag Reykjavík- ur, Skylmingafélag Reykjavíkur, TBR, Þórshamar, Klifurfélag Reykjavíkur, Valur, Sundfélagið Æg- ir, Skátasamband Reykjavíkur og KFUM og K. Þá er sérstakur samningur í gildi við ÍBR, sem er aðili að öllum samn- ingunum við íþróttafélögin ásamt ÍTR. Á samningstímanum nemur stuðn- ingur Reykjavíkurborgar vegna þessara samninga til ofangreindra fé- laga alls 4,8 milljörðum króna og í þeim eru einnig sérstök ákvæði er snúa að frístundakortinu en á samn- ingstímanum mun Reykjavíkurborg verja 1,7 milljörðum króna til stuðn- ings við börn og foreldra til þátttöku í íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda- starfi. 6,5 milljarð- ar í íþróttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.