Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 11
Árvakur/Kristinn Ingvarsson Girnilegt Talið f.v. huga þeir Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri, Hrólfur Jónsson, framkvæmdastjóri eignasjóðs Reykjavíkurborgar, Kristján Möll- er samgönguráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að veiting- unum í húsakynnum framkvæmdasviðs í Skúlatúni: umferðarljósatertum. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is NÝLEGA var lokið úttekt á fyrsta áfanga miðlægs stýrikerfis umferð- arljósa við alls 39 gatnamót í Reykja- vík og Hafnarfirði. Kerfið lagar um- ferðarljósin að umferðinni á hverjum tíma, nemar í malbikinu veita stöð- ugt upplýsingar um umferðarþung- ann. Framleiðandi tölvubúnaðarins, Siemens í Þýskalandi, afhenti hann með formlegum hætti í gær að við- stöddum borgarstjóra og samgöngu- ráðherra en um er að ræða sam- starfsverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Áætlað er að kerfi af þessu tagi muni skila sér í 2-10% styttingu aksturstíma og sparnaður bíleigenda gæti orðið samanlagt 125-900 millj- ónir á ári. Kostnaður við verkefnið 2006-2007 var 280 milljónir króna. Umferðarljós eru nú við 116 gatnamót í Reykjavík. Kerfið velur ávallt það stýriforrit fyrir ljósin sem er hagkvæmast og lágmarkar bið- tíma vegfarenda. Miðlæg stjórntölva reiknar út flæðið á hverjum tíma og sendir boð út um ljósleiðara í stjórn- kassa við hver gatnamót. Ljósin á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar voru biluð í rúma viku og þar varð harður árekstur á sunnudag. Dagbjartur Sigurbrandsson, yfirmaður umferð- arljósa hjá Reykjavíkurborg, segir að komið hafi í ljós með síumæling- um að ástæðan hafi ekki verið bilun í tölvubúnaðinum frá Siemens heldur sveiflur í spennu á rafmagni. „Þetta tengist því að það kemur truflun inn á rafmagnskerfið,“ segir Dagbjartur. „Ég hef beðið Orkuveit- una að mæla fyrir mig í einn eða tvo sólarhringa með sírita sem settur er á heimtaugina við ljósin, framan við búnaðinn okkar, hvað berist til okk- ar. Þá eigum við að geta lesið út úr því hvað er að gerast.“ Dagbjartur segir að þegar bilun verði í spennum í orkuverum komi geysimikið, snöggt högg. Flest tæki þoli þetta en búnaðurinn frá Simens virðist stund- um vera næmur fyrir slíkum trufl- unum. „Þegar höggið er afstaðið annaðhvort slokknar á ljósunum eða þau blikka. Þá endursetjum við for- ritið í kassanum en þurfum þá að senda mann á staðinn.“ Fyrsti áfangi stýri- kerfis umferðarljósa Miðlægt kerfi gæti sparað bíleigendum allt að 900 millj. á ári Í HNOTSKURN »Sjálfvirkt vöktunarkerfi tryggir að vaktmenn fá samstundis tilkynn-ingu um bilun og við hvaða gatnamót hún sé. »Umferðarljósin eru tengd við stjórntölvuna frá Siemens með ljósleið-ara sem ekki hefur verið gert áður í heiminum. »Talið er að eknir séu um 1.260 milljón km á höfuðborgarsvæðinu áári, þar af um 150 millj. km á svæðinu sem fyrsti áfangi stýrikerfis- ins nær yfir. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 11 FRÉTTIR Í GÆR var veittur vinningur fyrir leikinn „Skjóttu á úrslitin“ en þar gafst notendum mbl.is kostur á að giska á röð efstu manna í Formúlu 1- kappakstrinum. Vinningurinn að þessu sinni var HP Pavilion-fartölva með 2gb vinnsluminni, 250 GB hörðum diski, DVD o.fl. Árvakur/Kristinn Ingvarsson Verðlaun Arna María Gunnarsdóttir frá Opnum kerfum afhendir hér Sveini Sigurjónssyni fartölvuna í sigurlaun. Finnur Orri Thorlacius, for- stöðumaður áskriftardeildar Morgunblaðsins, fylgist með. Vinningur veittur í leik mbl.is Á MORGUN, fimmtudag stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegis- fundi með dr. Minkailu Bah, menntamálaráðherra Síerra Leóne og Geert Cappelaere, yfirmanni UNICEF í Síerra Leóne. Munu þau bæði halda erindi um málefni barna og fjalla um reynslu sína í hinu stríðshrjáða landi Síerra Leóne. Hádegisfundurinn verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, 2. hæð. Fundurinn stendur frá kl. 12 til 13. Síerra Leóne er næstfátækasta ríki heims. Blóðug borgarastyrjöld geisaði þar frá 1991 til 2002 sem hafði skelfilegar afleiðingar fyrir íbúa landsins og þá ekki síst fyrir börnin. Fátækt landsins veldur því að barnadauði er þar hvergi meiri, skortur á skólum, kennurum, skóla- gögnum með þeim afleiðingum að 30% barna fá enga menntun. Reuters UNICEF Meðal barna sem David Beckham, góðgerðarsendiherra UNICEF, hitti í Sierre Leone í síð- ustu viku var þessi 5 ára telpa. UNICEF heldur fund STJÓRN Samtaka eigenda sjávar- jarða vekur athygli á fram komnum úrskurði Mannréttindanefndar Sam- einuðu þjóðanna, í máli tveggja sjó- manna gegn íslenska ríkinu. „Úrskurðurinn gengur m.a. út á að jafnræðis borgaranna um at- vinnurétt til fiskveiða sé ekki gætt, ásamt því að greiða beri sjómönn- unum fullar bætur og koma á fisk- veiðistjórnunarkerfi sem uppfyllir kröfur alþjóðalaga. Stjórn Samtaka eigenda sjávarjarða vekur ennfremur athygli á því að sjávarjarðir á Íslandi eiga bæði þinglýstan eignarrétt til sjávarins – netlög – og óskipta hlutdeild í sjávarauðlindinni í heild vegna sjávarins og lífrík- isins og atvinnurétt á eigninni. Jafnframt vísa Samtök eigenda sjávarjarða til þess, að íslensk stjórnvöld hafa hvorki virt þinglýstan eignarrétt eig- enda sjávarjarða né atvinnurétt til útræðis. Samningur Sameinuðu þjóð- anna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, 26. grein samningsins um almennu jafnræðisregluna, hefur því verið brotinn á eigendum sjáv- arjarða, bæði hvað varðar eignarrétt og atvinnurétt. Í þeirri baráttu að ná fram rétti sínum, sem eigendur sjávarjarða hafa ólöglega verið sviptir, munu samtökin taka mið af þessum úrskurði Sam- einuðu þjóðanna,“ segir í frétt frá samtökunum. Heimasíða samtakanna er á slóðinni www.ses.is Segja úrskurð Mannréttinda- nefndar einnig ná til sjávarjarða Árvakur/RAX FASTANEFND Fjórðungssam- bands Vestfirðinga um samgöngu- mál hefur sent samgönguráðherra ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við fyrirhugaða byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík. „Enda mun hún valda straumhvörfum í þjónustu við þá gesti höfuðborgarinnar sem ferðast með flugi eða áætlunarbifreiðum,“ segir í ályktuninni. Ljóst er að með tilkomu slíkrar samgöngumiðstöðvar muni tengsl landsbyggðar og höfuðborgar efl- ast. Löngu sé orðið tímabært að við flugvöllinn í höfuðborg Íslands rísi nútímaleg samgöngumiðstöð. Nútímaleg sam- göngumiðstöð FUNDUR sem hugsaður er sem skref í þá átt að vekja umræður um líðan barns þegar foreldri þess greinist með krabbamein verður haldinn í kvöld, miðvikudags- kvöldið 23. janúar, kl. 20 í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameins- félagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð. Fjallað verður um hvernig fólk get- ur styrkt hvað annað sem foreldrar til þess að eiga samræður við börn sín og mæta þörfum þeirra á ein- lægan hátt við slíkar aðstæður. Hugmyndin er að velta fyrir sér samræðum við börn þegar krabba- mein kemur upp í fjölskyldunni. Eva Yngvadóttir, Anna Ingólfs- dóttir og Margrét Friðriksdóttir verða með framsögu á fundinum en þær hafa allar upplifað það að maki þeirra greindist með krabbamein. Að framsöguerindunum loknum verða umræður. Fundarstjóri er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir fé- lagsráðgjafi. Fundurinn fer fram í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameins- félagsins, Skógarhlíð 8, Reykjavík. Líðan barns og veikindi foreldra STUTT MÉR einfaldlega ofbauð þegar sá þessa auglýsingu og eiginlega bara krossbrá,“ segir Árni Jónsson um auglýsingu íslensks fyrirtækis á snjóbrettum. Á auglýsingunni má sjá snjóbrettamann komast undan snjó- flóði. „Sennilega á myndin að gefa til kynna að það sé ekkert mál að „sörfa“ snjóflóð og sleppa frá þeim lifandi,“ skrifar Árni á heimasíðu sína www.snjoflod.is. Árni sem er verkfræðingur að mennt og sérfróður um snjóflóð segir 70% þeirra sem fórust í snjóflóðum í aðildarríkjum Alþjóðlega fjallabjörg- unarráðsins hafa verið á skíðum eða snjóbrettum utan merktra skíða- leiða. „Menn eiga alls ekki að leika sér að því að skíða á svæðum þar sem hætta er á snjóflóðum eða auglýsa svona eins og verið er að gera þarna.“ Það sé í algjörum undantekningartil- fellum að mönnum takist að sleppa úr snjóflóðum með þessum hætti. Yfir- leitt sé um að ræða atvinnumenn í auglýsingaiðnaði sem komi flóðunum þá af stað og hanni atburðarásina ná- kvæmlega. Almennt verði menn að hafa þekkingu eða þjálfun á snjóflóð- um áður en þeir fari inn á fjallasvæði þar sem snjór er. Spurður hvort Íslendingar séu værukærir gagnvart snjóflóðahætt- unni segir Árni að eftir snjóflóðin á tíunda áratugnum hafi menn vaknað við að snjóflóð væru eitthvað sem yrði verulega að varast. „Eftir því sem líður frá alvarlegum atvikum taka menn minna mark á þeim. Það þarf alltaf að minna menn á að snjó- flóð geta fallið og grandað lífi ef menn lenda í þeim,“ segir Árni. Snjó- flóð séu ekki fyrirbæri sem menn eigi að sækjast eftir að vera í námunda við. „Staðreyndin er sú að við þurfum ekki að fara langt til að koma inn á hættusvæði. Menn hafa lent í snjó- flóði í Esjunni, í Kistufellinu og í sjálfu sér líka í Bláfjöllum.“ Segir snjóbrettaauglýsing- ar mæra áhættuhegðun Engin ástæða til að gera lítið úr snjóflóðahættunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.