Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, lagði stjórn sína að veði í gær
þegar hann óskaði eftir traustsyfir-
lýsingu frá þinginu eftir að stjórnin
missti meirihluta sinn í öldunga-
deildinni.
Stjórn Prodis virðist riða til falls
eftir að smáflokkurinn UDEUR til-
kynnti að hann myndi ekki verja
stjórnina vantrausti á þinginu. Leið-
togi flokksins, Clemente Mastella,
hafði sagt af sér embætti dóms-
málaráðherra eftir að skýrt var frá
því að hann og eiginkona hans sættu
rannsókn vegna meintrar spillingar.
Stjórnin missti
eins sætis meiri-
hluta sinn í öld-
ungadeildinni en
er enn með
öruggan meiri-
hluta í neðri
deildinni.
Traustsyfirlýs-
ingin verður bor-
in undir atkvæði í
neðri deildinni í dag og líklega á
morgun í öldungadeildinni.
Vilja ný kosningalög
Til að halda velli í öldungadeild-
inni án stuðning UDEUR þarf
Prodi að reiða sig á atkvæði sjö
ókjörinna þingmanna sem hafa ver-
ið skipaðir ævilangt í öldungadeild-
ina.
Stjórnmálaskýrendur segja að
UDEUR hafi hætt að styðja stjórn-
ina vegna hugsanlegra breytinga á
kosningalöggjöfinni sem verða
bornar undir þjóðaratkvæði síðar á
árinu. Verði breytingarnar sam-
þykktar hverfa smáflokkar á borð
við UDEUR af þinginu. Flokkurinn
fékk aðeins 1,4% atkvæða í síðustu
kosningum.
Ítölsk dagblöð töldu í gær ólíklegt
að stjórn Prodis héldi velli. Falli
stjórnin er hugsanlegt að forsetinn
rjúfi þing og boði til kosninga eða
skipi bráðabirgðastjórn til að knýja
fram breytingar á kosningalöggjöf-
inni. Margir stjórnmálamenn Ítalíu
eru þeirrar skoðunar að breyting-
arnar séu nauðsynlegar til að hægt
verði að mynda sterkar ríkisstjórnir
án stuðnings smáflokka.
Lagði stjórnina að veði
Romano Prodi
Prodi óskar eftir
stuðningsyfirlýs-
ingu frá þinginu
Álitsgjafa úr röðum demókrata
greindi á um hvor frambjóðendanna
hefði haft betur í kappræðunum sem
stóðu í tvær klukkustundir. Nokkrir
þeirra sögðu að Obama hefði tapað á
Myrtle Beach. AP, Washington Post. |
Til snarpra orðaskipta kom milli öld-
ungadeildarþingmannanna Hillary
Clinton og Barack Obama í sjón-
varpskappræðum sem fram fóru í
Suður-Karólínu í fyrrakvöld. Clinton
og Obama, sigurstranglegustu fram-
bjóðendurnir í forkosningum demó-
krata, sökuðu meðal annars hvort
annað um að fara frjálslega með
staðreyndir.
Kappræðunum var lýst sem
hvössustu og áköfustu orðaskiptun-
um til þessa í baráttu Clinton og
Obama. Þau skiptust á ásökunum,
persónulegum árásum og gripu hvað
eftir annað fram í hvort fyrir öðru.
því að vera í varnarstöðu og eyða of
miklum tíma í að útskýra afstöðu
sína í ýmsum málum. Aðrir töldu að
Clinton hefði verið svo ágeng og
hvöss að það kynni að kosta hana
mörg atkvæði. Stuðningsmenn
Johns Edwards vona að hann njóti
góðs af því að Clinton og Obama fæli
kjósendur frá sér með orðaskakinu.
Obama sakaði Hillary Clinton og
eiginmann hennar, Bill, um að fara
frjálslega með staðreyndir og svífast
einskis til að sigra. Stuðningsmenn
Obama hafa gagnrýnt forsetann
fyrrverandi fyrir að hafa farið yfir
strikið í stuðningi sínum við framboð
eiginkonunnar.
Farið að hitna í kolunum
Hillary
Clinton
Barack
Obama
Í AMMAN í Jórdaníu vaknaði fólk
við það í gærmorgun, að nokkuð
hafði snjóað um nóttina. Var því
tekið fagnandi enda hefur mikill
þurrkur verið í vetur og gróður far-
inn að líða fyrir. Þótt snjór sé frem-
ur sjaldséður getur stundum
kafsnjóað í þessu eyðimerkurlandi.
AP
Undir snjóþungu limi
ÖNDVERT við það, sem flestir
telja, hefur hitastigið á jörðinni ekk-
ert hækkað í áratug. Það bendir til
þess, segir danskur prófessor, að
áhrif koltvísýrings í loftslagslíkön-
um vísindamanna séu ofmetin.
Um það er ekki deilt að meðalhiti
á jörðinni hefur hækkað á síðustu
áratugum en Ole Humlum, danskur
prófessor í jarðeðlisfræði við há-
skólann í Ósló, segir að síðustu tíu
árin hafi hann staðið í stað. Telur
hann raunar að það muni heldur
kólna á næstunni.
„Í tíu ár hefur hitastigið ekkert
hækkað þótt koltvísýringur í and-
rúmsloftinu hafi á sama tíma aukist
mikið. Samkvæmt loftslagslíkönun-
um hefði meðalhitinn átt að hækka
um 0,3 gráður á þessum tíma en svo
var ekki. Það vekur grunsemdir um
að áhrif koltvísýrings í andrúmsloft-
inu séu ofmetin. Það kæmi mér ekki
á óvart þótt meðalhitinn hefði lækk-
að lítillega eftir 10 eða 20 ár,“ segir
Humlum að því
er fram kemur í
Jyllands-Posten.
Jørgen Peder
Steffensen, for-
stöðumaður
Stofnunar Niels
Bohr við Kaup-
mannahafnarhá-
skóla, segist enn
trúa því að hita-
stigið eigi eftir að hækka mikið
vegna svokallaðra gróðurhúsa-
áhrifa. „Það er hins vegar rétt hjá
Ole Humlum að hitastigið hefur
ekkert hækkað í áratug. Það er líka
rétt hjá honum að það er margt í
þessum málum sem við skiljum ekki
til hlítar. Við hér á stofnuninni höf-
um rætt um skýringar á því að hita-
stigið hefur ekki hækkað í tíu ár en
gleymum því ekki að einn áratugur
er ekki langur tími og segir því
kannski ekki mikið um þróunina,“
segir Steffensen.
Engin hitaaukning
á jörðinni í áratug
Ole Humlum
TALIÐ er, að allt að tíu menn hafi
tekið þátt í að ræna póstmiðstöðina í
Gautaborg í gærdag, en um kvöldið
hafði lögreglan handtekið þrjá menn
grunaða um aðild. Er ráninu lýst
sem eins konar hernaðaraðgerð,
sem hafi ekki aðeins beinst að póst-
miðstöðinni, heldur einnig gegn lög-
reglunni og raunar öllum almenn-
ingi. Búist er við, að það eigi eftir að
hafa áhrif á viðbúnað og starfs-
aðferðir sænsku lögreglunnar.
Á sama tíma og póstmiðstöðin var
rænd var kveikt í bílum á þremur
stöðum ekki mjög fjarri, tveimur á
hverjum stað, og skildir voru eftir
pakkar hér og hvar, meðal annars
við eina lögreglustöð, sem óttast var,
að væru sprengjur. Flóttabíllinn,
sem ræningjarnir notuðu, fannst í
gær.
Per Ljungberg, talsmaður
sænsku póstþjónustunnar, sagði í
gær, að póstmiðstöðin í Gautaborg
væri ein sú stærsta í landinu, um
hana færu um tvær milljónir póst-
sendinga daglega. Sagði hann, að
samt kæmi ránið dálítið á óvart.
Vafalaust væru einhver verðmæti
í einhverjum allra þessara sendinga
en að hitta á þau væri nú kannski
þrautin þyngri. Ekki virtist það al-
veg ljóst í gær hvað ræningjarnir
hefðu haft á brott með sér.
Bíræfið rán í póst-
miðstöð Gautaborgar