Morgunblaðið - 23.01.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 15
SIR Edmund Hillary var borinn til
grafar á Nýja-Sjálandi í fyrrakvöld,
rúmri hálfri öld eftir að hann varð
fyrstur manna til að klífa hæsta
tind heims ásamt sjerpanum
Norgay Tenzing.
Þúsundir manna fylgdust með út-
förinni og líkfylgdinni í Auckland á
Nýja-Sjálandi. Útförin var sýnd í
beinni sjónvarpsútsendingu víða
um heim, meðal annars á Suður-
skautslandinu þar sem Hillary fór
fyrir fyrsta leiðangrinum á vél-
knúnum farartækjum landleiðina á
suðurpólinn 1957-58.
Við útförina lögðu fulltrúar
sjerpa sorgarklúta yfir líkkistuna
sem var sveipuð fána Nýja-Sjálands
og á henni var ísöxin sem Hillary
notaði þegar hann kleif tind Eve-
rest árið 1953.
Meðal viðstaddra var Helen
Clark, forsætisráðherra Nýja-
Sjálands, sem lýsti Hillary sem
þjóðhetju og „þekktasta Nýsjálend-
ingi okkar tíma“.
Sir Edmund Hillary
borinn til grafar
Reuters
Hetjan kvödd Kista sir Edmunds Hillary borinn út úr kirkju í Auckland á
Nýja-Sjálandi. Fjallgöngumenn stóðu þar heiðursvörð með ísstingi.
ÍRASKA þingið samþykkti í gær að
breyta þjóðfána landsins (sá neðri)
og er hugmyndin að þeim nýja
mjög lík þeim gamla.
Stjörnurnar þrjár sem táknuðu
Baath-flokkinn, flokk Saddams
Husseins, fyrrverandi Íraksforseta,
hafa verið fjarlægðar, sem og
trúarlegur texti sem talinn er hafa
verið með rithönd hans.
Hluti ástæðunnar fyrir breyting-
unni er sá að Kúrdar hafa ekki vilj-
að flagga fána sem minni á leiðtoga
sem kúgaði þjóð þeirra, en sá nýi
verður tímabundinn þjóðfáni Íraks.
Nýr þjóðfáni
FRED Thomp-
son, einn fram-
bjóðenda í for-
kosningum
repúblikana fyr-
ir forsetakosn-
ingarnar í
Bandaríkjunum í
ár, skýrði frá því
í gær að hann
hefði dregið
framboð sitt til
baka. Batt hann vonir við að kosn-
ingarnar í Suður-Karólínu á laug-
ardag myndu koma framboði sínu á
réttan kjöl. Annað kom á daginn og
er ákvörðunin talin munu kunna
styrkja framboð Mike Huckabee.
Thompson
dregur sig í hlé
Fred
Thompson
HENRIETTE Kjær, talsmaður
danska Íhaldsflokksins, sagði í gær
að hugsanlega yrði boðað til nýrra
kosninga í Danmörku eftir að óháð-
ur þingmaður tók afstöðu með
stjórnarandstöðunni og olli því að
stjórnin getur ekki komið fram
frumvarpi um innflytjendamál.
Kjósa Danir aftur?
STJÓRNIN í Serbíu samþykkti í
gær drög að samningi við rúss-
neska gasrisann Gazprom, sem
mun taka þátt í uppbyggingu olíu-
og gasiðnaðar landsins. Aðeins
nokkrir dagar eru liðnir frá stórum
orkusamningum Rússa í Búlgaríu.
Semja við Rússa
INDVERSKUR
embættismaður
varaði í gær við
stóráföllum
vegna mikils
fuglaflensu-
faraldurs í Ind-
landi en þar hafa
fimm mann-
eskjur verið sett-
ar í sóttkví vegna
gruns um sýkingu.
Fuglaflensa geisar nú í átta hér-
uðum í Vestur-Bengal en dauðir
fuglar hafa verið seldir almenningi
á niðursettu verði. Þá eru fréttir
um að fuglaflensan í Bangladess sé
miklu útbreiddari en opinberlega
er gefið upp. „Hún er bókstaflega
úti um allt,“ sagði M.M. Khan, tals-
maður kjúklingaræktenda.
Fuglaflensa
„úti um allt“
Fuglinum slátrað.
STUTT
Höfuðstólstryggðir reikningar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
17
10
ÖRUGG FJÁRFESTING — TRYGGÐUR HÖFUÐSTÓLL
Sölutímab
il
17.-24. ja
n.
Kynntu þér málið á kaupþing.is, í síma 444 7000,
eða komdu við í næsta útibúi.
ICEin 0708
• Lágmarksupphæð er 500.000 kr.
• Reikningurinn er bundinn í sex mánuði
• Ávöxtun að hámarki 11% á tímabilinu
sem jafngildir 23% á ársgrundvelli
• Fylgir OMXI15 vísitölunni
• Höfuðstóll er tryggður í ISK
• Upphafsgengi ákvarðast við lok dags 25. janúar
• Sölutímabilið er frá 17. - 24. janúar
EURin 0708
• Lágmarksupphæð er 500.000 kr.
• Reikningurinn er bundinn í sex mánuði
• Ávöxtun að hámarki 15% á tímabilinu
sem jafngildir 32% á ársgrundvelli
• Fylgir gengi evrunnar
• Höfuðstóll er tryggður í ISK
• Upphafsgengi ákvarðast við lok dags 25. janúar
• Sölutímabilið er frá 17. - 24. janúar
Nú getur þú tekið þátt í að fjárfesta á hlutabréfamarkaðnum eða í gengi mynta án þess
að eiga á hættu að tapa höfuðstól og átt möguleika á góðri ávöxtun.
Sala er hafin á tveimur nýjum reikningum, ICEin 0708 og EURin 0708, sem eru höfuðstólstryggðir reikningar.
ICEin fylgir gengi íslenska hlutabréfamarkaðarins, OMXI15. EURin fylgir gengi evrunnar.
Nýjung
Bundið í
6 mánuð
i