Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BREYTTIR TÍMAR Tímarnir eru að breytast á Ís-landi. Í gær var frá því skýrthér í Morgunblaðinu að HB Grandi áformi að hætta landvinnslu bolfisks á Akranesi og segja upp öllu starfsfólki með fjögurra mánaða upp- sagnarfresti. Við þessa vinnslu á Akranesi starfa nú 59 manns í 44 stöðugildum. Gert er ráð fyrir að 20 manns verði endurráðnir til tiltekinna starfa. Í Morgunblaðinu í dag er skýrt frá því að 80 manns missi vinnu hjá út- gerðarfélaginu Vísi á Þingeyri og á Húsavík frá vori og fram á haust. Nú liggur fyrir að umtalsverður samdráttur er að verða í sölu fast- eigna og fyrirsjáanlegt að samdráttur verður í byggingariðnaði á þessu ári. Sum verktakafyrirtæki hafa lagt í miklar fjárfestingar við undirbúning framkvæmda, sem nú er ljóst, að sleg- ið verður á frest. Fjármálageirinn stendur frammi fyrir alvarlegum vanda og telja má víst að á næstu mánuðum komi til uppsagna í fjármálafyrirtækjum og að þrýstingur verði á að há launakjör færist niður á við. Það væri mikill misskilningur að halda að þetta sé bölsýni ein. Þetta er raunsæi og þá vaknar sú spurning, hvort stjórnvöld eigi að bíða og halda að sér höndum þangað til þessi dökka mynd er orðin að veruleika eða hvort tilefni sé til að grípa fljótlega til að- gerða, sem geti komið í veg fyrir, að efnahags- og atvinnulíf okkar sígi nið- ur í djúpan öldudal. Þessi staða kallar á umræður. Enn er næg atvinna í landinu. Hér er margt fólk af erlendum uppruna, sem flytur á milli landa eftir því hvar upp- gripin eru mest. Um leið og vinna minnkar hér má gera ráð fyrir að tölu- vert stór hópur af þessu fólki flytji sig um set og leiti á ný mið. Það er eðlilegt og ekkert við því að segja. En líkurnar á því að verulega verði farið að harðna á dalnum, þegar kem- ur fram á haustið, eru miklar. Þegar netbólan var sem stærst töl- uðu margir af nokkurri fyrirlitningu um framkvæmdir á borð við virkjanir og álbræðslur og töldu að þær fram- kvæmdir heyrðu til liðnum tíma. Framtíðin fælist í uppbyggingu þekk- ingariðnaðar. Þegar netbólan sprakk jókst stuðningur meðal landsmanna við Kárahnjúkavirkjun og álver á Austurlandi. Nú er spurning hvað gerist ef og þegar kreppir að. Á undanförnum ár- um hafa ungir menn talað um að fjár- málageirinn mundi standa undir hag- vexti á Íslandi í framtíðinni. Talar einhver um það í dag? Er einhver að halda því fram, að á næstu misserum muni fjármálastarfsemi standa undir lífskjarabótum? Um þessa stöðu mála þurfa að fara fram umræður á meðal fólks. Hvernig eigum við að bregðast við þeim sam- drætti í efnahags- og atvinnumálum, sem nokkuð víst er að er á næsta leiti? Hvað er það í atvinnulífi okkar, sem á að standa undir þeim kjarabótum, sem verkalýðshreyfingin sækist eftir? HORFUR Á FRIÐI Í KONGÓ Nú vantar aðeins herslumuninn tilþess að samið verði um frið í Kongó þar sem nánast án þess að eft- ir því hafi verið tekið hafa farið fram blóðugustu átök frá því að heims- styrjöldinni síðari lauk. Talið er að allt að 5,4 milljónir manna hafi látið lífið í átökunum eða vegna þeirra. Það eru 12 hundruð manns á dag og rúmlega helmingurinn er börn. En fórnarlömb átakanna eru mun fleiri. Börn hafa verið hneppt í þrældóm í demantanámum, þvinguð til að berj- ast í átökunum. Ofbeldið hefur verið gegndarlaust, konum hefur mark- visst verið nauðgað og þær hnepptar í kynlífsþrældóm. Hröð útbreiðsla al- næmis hefur verið rakin til átakanna. Efnahagslíf landsins er í rúst vegna átakanna. Í stórum hlutum landsins hefur ekki verið hægt að stunda landbúnað og auðlindir í jörðu á borð við demanta og kopar hafa ekki nýst íbúum landsins. Í raun má segja að demantarnir hafi bætt á ógæfu Kongó. Talið er að ein milljón manna vinni í námunum og þéni 60 krónur á dag. Átökin hafa meðal ann- ars snúist um aðganginn að demönt- unum, en hvorki námamennirnir – né börnin, sem send eru niður í námurn- ar – njóta góðs af þeim auðæfum. Saga Kongó er blóði drifin. Á ný- lendutímanum féll Kongó í hendur Belgíukonungs. Leopold II réð þar ríkjum af ósegjanlegri grimmd og er talið að fórnarlömb hans nemi millj- ónum. Belgíska ríkið yfirtók nýlend- una vegna þrýstings frá Bandaríkja- mönnum og Bretum þegar í ljós kom hvernig farið hafði verið með íbúa Kongó í gúmmíiðnaðinum. Kongó var nýlenda Belga til 1960. Þegar þeir yf- irgáfu landið upphófst valdabarátta og bar Mobutu Sese Seko sigur úr býtum. Mobutu var grimmur harð- stjóri, sem fyrst og fremst hugsaði um að auðga sjálfan sig og fjölskyldu sína. Hann var við völd í 32 ár. Árið 1997 steypti Laurent Kabila honum af stóli. Árið síðar hófst uppreisn í landinu og síðan hefur blóðið runnið í stríðum straumum. Átökin hafa ekki verið einangruð við Kongó og nægir að nefna að landið liggur að Rúanda þar sem 800 þúsund manns létu lífið þegar hútúar reyndu að þurrka út tútsa og þeirra stuðningsmenn. Fjöldi flóttamanna hefur streymt til Kongó frá Rúanda og einn helsti upp- reisnarforinginn sakar stjórnarher- inn um að beita fyrir sig útlagaher- mönnum úr röðum hútúa til að fara með ofbeldisverk á hendur uppreisn- armönnum og saklausum borgurum. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í rúmar tvær vikur. Margir telja að nú sé sögulegt samkomulag í vænd- um. Íbúar Kongó eiga skilið að sam- komulagið takist. Þeir hafa nógu lengi verið leiksoppar gráðugra ný- lenduherra, einræðisherra og upp- reisnarmanna, sem ávallt meta sinn hag meira en almennings. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Myndun nýs meirihluta íborgarstjórn Reykja-víkur mun ekki hafaáhrif á ríkisstjórnar- samstarfið, að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og for- manns Sjálfstæðisflokksins. Þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utan- ríkisráðherra og formaður Samfylk- ingarinnar, hafa rætt það sérstak- lega, að því er fram kom á blaðamannafundi Geirs í Stjórnar- ráðshúsinu að loknum ríkisstjórnar- fundi í gær. Geir sagði að umskiptin í meiri- hlutasamstarfinu í borgarstjórn nú mundu ekki frekar hafa áhrif á rík- isstjórnina en breytingin sem varð í borgarstjórn á liðnu hausti. „Við höldum áfram okkar vinnu og okkar verkefnum,“ sagði Geir um ríkisstjórnina. „Það er margt á döf- inni sem skiptir miklu máli að öflug og sterk ríkisstjórn komi að. Það er mikil óvissa á fjármálamörkuðun- um, óvissa varðandi kjarasamninga og fleiri þættir í gangi sem við erum að glíma við. Við ætlum að halda því áfram ótrauð.“ Gleðilegar sættir Geir kvaðst ekki hafa verið ánægður með breytinguna sem varð á stjórn Reykjavíkurborgar í októ- ber s.l. Hann kvaðst hafa talið þá að samstarf fjögurra flokka myndi að líkindum ekki standa lengi og sú hefði orðið raunin. Að sama skapi kvaðst hann vera ánægður með að sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur hefðu nú komist aftur til þeirra áhrifa sem kjörfylgi þeirra gæfi tilefni til. „Ég sé ekki annað en að þessi meirihluti eigi eftir að geta látið margt gott af sér leiða, eins og sjá má í málefnasamningi þeim sem birtur var,“ sagði Geir. Aðspurður kvaðst Geir ekki þekkja í smáatriðum til atburða í lok maí 2006 þegar sjálfstæðismenn slitu viðræðum við Ólaf F. Magn- ússon og sömdu um meirihlutasam- Geir sagði mat borgar Reykjavík hafa ráðið því a F. Magnússon verður bor Hann kvaðst þekkja Ólaf tíð og telja að honum v treystandi til að takast á verkefni. „Ef Ólafur F. Magnús ekki traustur samferða þessu [samstarfi] þá var h auðvitað ekki í fyrra sam Þeir sem halda því fram nú ust við sama mann í sínu hluta þangað til í gær [m Þessi rök falla um sjálf s verða að horfa á þetta má það blasir við. Hverjir er arstjórninni, hvaða flokkar málefni eru sett á oddinn. Þ mér vera aðalmunurinn á n samstarfi og því sem er að nú liggur fyrir málefnasam sagði Geir. Hann taldi mör isverð atriði vera í mále ingnum, t.d. lækkun ála hlutfalls fasteignagjalda. var enginn málefnasam starf við Framsóknarflokkinn. Hann hafi heldur ekki viljað skipta sér af því hvernig borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins unnu úr sinni stöðu, hvorki þá né nú. Það sé þeirra mál líkt og í öllum öðrum sveitar- stjórnum. „En það sem er gleðilegt er að það hafa náðst fullar sættir á milli Vilhjálms [Þ. Vilhjálmssonar] og sjálfstæðismannanna annars vegar og Ólafs Magnússonar hins vegar. Það má ekki gleyma því að hann er gamall félagi okkar úr Sjálf- stæðisflokknum. Okkur þótti það leitt þegar hann ákvað að yfirgefa flokkinn,“ sagði Geir Trúverðugur meirihluti Geir kvaðst telja að nýi meirihlut- inn væri trúverðugur. Þetta væri átta manna meirihluti líkt og þyrfti til að stjórna borginni. Geir vakti at- hygli á því að nýi meirihlutinn væri nákvæmlega jafn stór og sá sem nú fer frá. Hann kvaðst treysta því, miðað við málflutning Ólafs F. Magnússonar og borgarfulltrúa sjálfstæðismanna, að þau mundu starfa saman til loka kjörtímabils- ins. Hins vegar væru tíðar breyting- ar í borgarstjórn Reykjavíkur um- hugsunarefni og eins hvort þær væru heppilegar fyrir borgina þeg- ar til lengdar léti. Geir benti á að margir hefðu gegnt starfi borgar- stjóra frá 2003 og flestir setið stutt. Það væri í sjálfu sér ekki mjög heppilegt. Nýi meirihlutinn hefu áhrif á samstarfið í rí Umskipti Geir H. Haarde stjórn nú muni ekki frekar Sviptingar í borgarstjórn Reykjavíkur Geir H. Haarde fagnar nýjum borg- arstjórnarmeirihluta í Reykjavík Í HNOTSKURN »Slit urðu á samstarfi Sjálf-stæðisflokks og Framsókn- arflokks í borgarstjórn Reykja- víkur í október síðastliðnum. »Nýr meirihluti Samfylk-ingar, vinstri grænna, Framsóknarflokks og F-lista tók við og Dagur B. Eggertsson varð borgarstjóri. »Á mánudaginn var tilkynntuborgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokks og oddviti F-lista að þeir mynduðu nýjan meirihluta. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,utanríkisráðherra og formað-ur Samfylkingarinnar, telurað mikið óheillaspor hafi ver- ið stigið í borgarstjórn Reykjavíkur á mánudaginn var, bæði fyrir borg- arbúa og fyrir stjórnmálin í landinu. „Það kemur manni alltaf jafn óþægilega á óvart að sjá hvað menn eru tilbúnir að leggjast lágt í valda- sókn sinni,“ sagði Ingibjörg í sam- tali við fréttavefinn mbl.is. Ingibjörg kvaðst ekki hafa trú á hinu nýja samstarfi Sjálfstæðis- flokks og F-lista. „Ég bara þekki það fólk sem þarna er um að ræða. Ég er sannfærð um það að þessi meirihluti er óstarfhæfur.“ Ingibjörg sagði að þessar svipt- ingar í borgarstjórn mundu engu breyta um ríkisstjórnarsamstarfið. Ríkisstjórnin mundi áfram vinna að sínum verkefnum eins og um var fulltrúi Vinstri grænna, he ingar um að samstarf félag fólks í Reykjavík ætti eftir sér ávöxt og það jafnvel samið og mörg stór verkefni væru framundan. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að Svandís Svavarsdóttir, borgar- Mikið óheillaspor fyr borgarbúa og stjórnm Áfram Ingibjörg Sólrún G vinna að sínum verkefnum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur ekki trú á nýjum meirihluta í borgarstjórn Í HNOTSKURN »Ingibjörg Sólrún Gísladótt-ir, utanríkisráðherra og for- maður Samfylkingarinnar, var borgarstjóri Reykjavíkur 1994- 2003. Hún var einnig borg- arfulltrúi í Reykjavík á árunum 1982-1988. » Ingibjörg Sólrún Gísladóttirvar oddviti Reykjavíkurlist- ans eða R-listans, sem var sam- eiginlegur framboðslisti fé- lagshyggjuflokka í borgarstjórnarkosningum 1994, 1998 og 2002.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.