Morgunblaðið - 23.01.2008, Side 22

Morgunblaðið - 23.01.2008, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN UM það ættu menn að vera sam- mála að verðleikar ráði stöðuveit- ingum hjá því opinbera. Því þarf bara að svara einni spurningu: Hvaða aðferð er best til að tryggja að hæfasti umsækj- andi sé alltaf ráðinn? Útgangspunkturinn er að velja beri þann hæfasta hverju sinni, ekki bara einhvern sem er hæfur að form- inu til. Þekktar aðferðir Ég tel að hægt sé að reglubinda gott vinnu- lag sem leiðir til sáttar í framtíðinni. Í háskól- um, einkarekstri og stjórnsýslu reyna menn að jafnaði að fá þann hæfasta og hafa til þess þróaðar leiðir. Þeg- ar ég var formaður tveggja ráða Reykjavíkur settum við skýra for- sögn um hvernig ætti að ráða for- stöðumenn, var það í samræmi við venjur víðar hjá borginni þar sem ég þekki til, m.a. sem formaður borgarráðs. Reglubinda má ferli í líkingu við þetta: 1) Starfsauglýsing skilgreinir formlegar kröfur og hvaða hlutverki viðkomandi gegnir, sem og hvaða kostum leitað er eftir. Auglýsing er stefnumótandi og verður að vanda. 2) Fá má ráðningarþjónustu, samkvæmt skriflegum samningi og forsögn. Hún vinsi úr þá sem ekki uppfylla formlegar kröfur, og velur þá sem koma helst til greina. 3) Síðan fari sérstök matsnefnd yfir tillögur. Stundum starfa mats- nefndir samkvæmt lögum eða reglum, en þær ætti alltaf að nota um mikilvægar stöður. Matsnefnd fái skriflega forsögn áður en starf er auglýst. Hún sé skipuð a.m.k. þremur einstaklingum með ólíkan bakgrunn, og úrskurði ekki aðeins um hæfi, heldur hver sé hæfastur. Í undantekningartilfellum fái hún vik- ist undan að gera upp á milli. Nefndin skili skriflegri greinargerð með samanburði þeirra hæfustu, sem er opinbert gagn sé eftir leitað. 4) Stjórnvald hafi ráðningarvald. Gangi ákvörðun gegn einróma áliti matsnefndar þurfi að birta rök- stuðning um leið og val er kynnt. Þar sé ekki bara upptalning á kost- um þess sem er ráðinn heldur sam- anburður á þeim sem komu til álita. 5) Umsækjandi sem telur á sér brotið geti vísað málinu til t.d. um- boðsmanns Alþingis. Telji hann að verðleik- areglan hafi verið brot- in komi bótaréttur. ,,Pólitísk ábyrgð“ felist í því að stjórnvaldi svíði skömmin heift- arlega. Ruglað með álitamál Oft er ruglað með álitamál sem alltaf eru við val á hæfasta um- sækjanda. Taka þarf á þeim fyrirfram: a) Það er bannað að mismuna eft- ir kynferði. Sumir segja að sé ,,kona í boði“ eigi að velja hana. Nei. Velja má eftir kynferði, en aðeins sem síðasta úrræði, þegar hæfustu um- sækjendur teljast að öllu öðru leyti jafnvígir. Verðleikareglan mun gagnast konum best í jafnréttisbar- áttu. b) Menntunarkröfur eru oft óljós- ar, til dæmis ,,háskólapróf“. Þau eru mismerkileg. Skýra þarf mennt- unarkröfur vel því þær geta ekki verið algildar, eins og oft má ætla þegar prófgráða eða námsbraut er sögð eiga að ráða. Koma þarf fram í auglýsingu hvaða aðrir þættir vega jafnþungt. c) Það að hafa unnið lengi hjá sömu stofnun og auglýsir eftir for- stjóra jafngildir ekki ráðningarrétti. Utanaðkomandi sýn getur skipt meiru en innanbúðardvöl. Auk þess er algengt að fólk sé skipað ,,að- stoðar“ eða ,,staðgengill“ um tíma án auglýsingar til að tryggja ,,reynslu“ sem ekki megi ,,ganga framhjá“. Það er svindl. d) Aldur er úrelt matstæki. e) Óefnislegir kostir. Nauðsyn- legt er að skoða óefnislega kosti: frumkvæði, sköpunargáfu, for- ystuhæfileika, framtíðarsýn, hæfni í mannlegum samskiptum. Það er ekki einfalt að leiða í ljós kosti ein- staklings á þessum sviðum, en að- ferðir til þess eru þróaðar. Vönduð ráðningarviðtöl eru ein leið, próf önnur. f) Fagleg ráðning. Þetta hugtak er ofnotað og á að skiljast sem rök gegn ,,pólitík“. Til er fagkúgun sem felst í þröngu sjónarhorni og hags- munagæslu. Því þarf stjórnvald að leggja skýrar línur fyrirfram um eftir hverju er leitað í fari forstöðu- manns; jafnvel gefin færi á at- hugasemdum hagsmunaaðilja áður en auglýst er. g) ,,Pólitísk“ ráðning. Hún er vond ef merkingin er sú að síður hæfur einstaklingur sé ráðinn frem- ur en sá hæfasti vegna vensla eða tengsla. Stefnumótandi ráðning á hins vegar rétt á sér, og er þar af leiðandi pólitísk, að því er varðar störf og framtíðarsýn. Hér ber stjórnvald þá skyldu að kynna hvert sé stefnt með ráðningu. Slík sýn skal birtast í auglýsingu og forsögn matsnefndar fyrirfram, en ekki fundin upp til að bera af sér spjót síðar. Það er hlutverk kjörinna full- trúa og embættismanna að skil- greina þarfir við mannaráðningar út frá stefnumótun og framtíðarsýn og sjá til þess að þær séu uppfylltar. Um dómara gildir að sjálfsögðu sú heilbrigða sýn að skilja beri að framkvæmdavald og dómstóla og undirstrika sjálfstæði dómara í veit- ingaferlinu. Verðleikar setja valdi skorður Almenningur á rétt á því að verð- leikareglan gildi því hún setur vald- beitingu skorður. Verið getur að einstakir valdamenn vilji ekki una slíku. Það getur þó ekki gilt um þá ,,frjálslyndu umbótastjórn“ sem nú situr. Allir eiga skilið að verðleikar ráði: Almennir borgarar, og ekkert síður þeir sem eru svo óheppnir að eiga vini í æðstu stöðum. Verðleikar ráði Stefán Jón Hafstein fjallar um stöðuveitingar » Almenningur á rétt áþví að verðleika- reglan gildi, en ekkert síður þeir sem eru svo óheppnir að eiga vini í æðstu stöðum. Stefán Jón Hafstein Höfundur er borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar, í leyfi vegna starfa er- lendis. Þ etta fólk er mjög skrýt- ið, það skiptir um yf- irættbálkahöfðingja eins og við skiptum um nærbuxur. Mjög erfitt er að fylgja atburðarrásinni, hver stingur hvern í bakið og hver er vinur hvers.“ Ungi íslenski fjölmiðlamaðurinn skrifaði einbeittur í dagbókina sína. Hann var staddur í fjarlægu landi, við miðbaug, þar sem forseti Íslands var í opinberri heimsókn. „Vesen að vera alltaf að þvælast þetta og tala um jarðhita sí og æ,“ muldraði okkar maður og langaði í pulsu og kók – langaði heim. Þetta undarlega land hafði allt aðra siði en hann átti að venjast, hér slóst fólk yfir leikföngum, tapaði sér yfir undarlegri hæfileikakeppni: Afróv- isjón, og hélt að það sjálft byggi í nafla alheimsins. Blaðamaðurinn var líka kominn með nóg af því að reyna að botna í ítrekuðum stjórn- arskiptum. Íslenski forsetinn hafði ekki valið sérlega góðan tíma til heimsóknar. Fimm mínútur eftir lendingu hafði enn ein byltingin orðið í landinu og nú var maður af óháðum ættbálki kominn til valda. Vestrænir kosningaeftirlitsmenn sem enn voru staddir í landinu eft- ir kosningarnar 2006 langaði sömu- leiðis heim. Samningur þeirra hafði verið framlengdur þrisvar. Var ekki nóg komið af því góða? „Hvernig er hægt að lama svona stjórnkerfið í heilu landi?“ heyrðist hvíslað í skúmaskotum. „Nýr mað- ur er rétt búinn að koma sér inn í starfið þegar hann þarf að pakka saman! Og stofnanir stjórnsýsl- unnar, nefndir og ráð eru öll í ein- hverju undarlegu limbói!“ Vestrænir stjórnmálaskýrendur voru komnir til landsins eftir nýj- ustu byltinguna. Hinn norski Olaf T. Hardarson reyndi að létta fjöl- miðlakreðsunni lífið og útskýra fyrir henni einkennilegt mál: NEI- málið, sem þótti hið allra undarleg- asta. Áheyrendur sofnuðu hins vegar ýmist yfir fyrirlestri Olafs eða ruku út í reiðikasti yfir jafn- órökrænni atburðarrás. Svona undarlegheit yrði aldrei hægt að skýra út fyrir lesendum heima í Evrópu. Fyrir utan fyrirlestrarsalinn sat fréttamaður frá RÚV með blað og penna í hönd, ranghvolfdi í sér augunum og teiknaði graf yfir hver var vinur hvers. Eftir kosning- arnar 2006 höfðu Álfstæðis- ættbálkurinn og Frjálsi og óháði ættbálkurinn verið vinir en síðan ekki vinir og þá höfðu Álfstæðis- fólk og Framfara-ættbálkurinn orðið félagar. En þótt ættbálkahöfðinginn Björn I. Mkaki hefði fengið gull og góðar stöður ákvað hann að hætta að leika því Græni-ættbálkurinn, Framfylkingarfólk og Frjálsi og óháði ættbálkurinn höfðu boðið honum að hitta sig við vatn nokk- urt. Þau höfðu leikið sér við tjörn- ina og haft það svo skemmtilegt að þau ákváðu skellihlæjandi að bola Vil Hjálmi Kobuto og hans slekti af Álfstæðisættbálkinum frá. Mál- efnin kæmu síðar, fyrst var að ná völdum. Kobuto og hans fólk urðu við þetta ævareið og sögðu titrandi röddu að þau sæi sko ekki vitund eftir ættbálkahöfðingjanum honum Mkaki. Sá svikari gat átt sig, já og sína tárvotu hvarma sömuleiðis. „Þetta er eins og sápuópera,“ hvíslaði vestræna fjölmiðlafólkið. Einn úr hópnum hafði lengi verið aðdáandi sjónvarpsþáttanna Að- þrengdar eiginkonur og fundist at- hyglisvert hvernig handritshöf- undar gátu sífellt fundið upp á nýjum launráðum og leynd- armálum. Aðþrengdu ættbálka- höfðingjarnir slógu aðþrengdu eig- inkonunum hins vegar fullkomlega við. Eða það fannst taugaveiklaða blaðamanninum allavega daginn sem vara-ættbálkahöfðinginn Mar Grét Muboko sagði að yfirhöfðing- inn í sínum ættbálki, Óla Fur Ke- bawi, hlyti nú allavega að senda sér boð áður en hann myndaði nýja stjórn. Sjálfur sté hann hins vegar óvænt fram og sagðist vera orðinn landsstjóri. Álfstæðisfólk hafði boðið honum gull og græn leikföng ef hann myndi bara koma og leika við það. Þetta land var nú engu lagi líkt! Breska pressan sparaði ekki stóru orðin. „Kobuto kaupir liðsstyrk ættbálkahöfðingja! Hversu mikið kostar einn höfðingi?“ Franska pressan var sömuleiðis frökk: „Upprisan mikla! Pólitískur ferill Kobutos jarðaður fyrir 100 dögum en landsstjórastaða í seil- ingarfjarlægð!“ Franska pressan gerði sömuleiðis að umtali fjaðra- fok sem orðið hafði í sjónvarps- þættinum Egilsgull út af kaupum á nokkrum kökufötum fyrir áramóta- partý ættbálkahöfðingjanna. Á göngum og í skúmaskotum var þó mest rætt um það sem einna und- arlegast þótti: Að guðfaðir meiri- hlutans sem hafði verið steypt væri líka guðfaðir hins nýja meirihluta! „Hvaða steypa er þetta eig- inlega?“ heyrðist í fjölmiðlafólkinu. „Þetta er alveg í samræmi við lög,“ heyrðist í heimafólki. Mar Grét Muboko var hins vegar reið. Hún ætlaði ekki að styðja stjórnina sem Kebawi hafði myndað. Íslenska fjölmiðlafólkið leit í augu hvers annars. Abbababb, hvað myndi gerast ef Kebawi kæmist ekki á fund! Svo hló það góðlátlega að þessu undarlega, frumstæða og eilítið barnalega fólki í landinu langt í burtu sem kunni ekki alveg á lýðræðið bless- aða. Einhverjar raddir heyrðust inn- an hópsins að í gegnum tíðina hefði fólki í landinu verið sæmilega vel til vina, allavega hefðu ólíkar fylk- ingar alveg getað unnið saman. Raddirnar voru hins vegar yf- irgnæfðar af fréttalestri CNN sem barst inn í herbergið: „Erjur ættbálkahöfðingja sem farið hafa fram með ófriði hver gegn öðrum frá örófi alda og aldrei getað lifað saman í sátt og sam- lyndi, magnast nú með degi hverj- um. Mikið er rætt um örvar og ým- iss konar vopn - þannig tala menn um að setja örvar í bak hvers ann- ars og jafnvel að í herðakambinum á ættbálkahöfðingjum séu heilu örvasettin.“ Andartaki síðar bárust fréttir af því að sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna væri á leið til landsins til að reyna að leysa stjórnarkrepp- una. Hér gat allt gerst og enn ein byltingin gat allt eins verið í burð- arliðnum. Aðþrengdir ættbálkar » Franska pressan var sömuleiðis frökk: „Upp-risan mikla! Pólitískur ferill Vil Hjálms Kobu- tos jarðaður fyrir 100 dögum en landsstjórastaða í seilingarfjarlægð!“ sigridurv@mbl.is VIÐHORF Sigríður Víðis Jónsdóttir RITAÐ eftir að hafa lesið fundargerð fundar Lögreglu- félags Reykjavíkur sem haldinn var hinn 28.12. 2007 og fjöldi lögreglu- manna sótti. Lesa má fundargerðina á heimasíðunni, http:// www.logreglufelag.is/ Sorglegt þegar menn í yfirstjórn halda því fram að óánægja og ergelsi í starfsliðinu sé ekki til staðar eða stórlega ýkt og fara svo eins og pólitíkusar að slá um sig með prósentu- tölum og öðru sem ruglar andstæðinginn og slær hann út af laginu þannig að umræðan fer út um þúfur. Formaðurinn hélt því fram að lögreglumenn væru með laun í hærri kantinum? Miðað við hvað? Jú, aðrar stéttir í BSRB. Eigum við þá ekki að leggja allt á borðið?! Hvað vinna aðrar stéttir í BSRB margar klukku- stundir á mánuði í yfirvinnu, skyldugir, nauðugir til að geta haft betri laun? Hvernig væri að taka út úr við- miðinu alla sem eru nær ein- göngu í skrifstofuvinnu eða sinna mest skipulagsvinnu? Nú má ekki skilja mig svo að ég sé að gera lítið úr skrifstofu- vinnunni, alls ekki, hún er nauðsynleg. Ég er að benda á að þeir sem eru með hæstu launin í lög- reglu eru þeir sem vinna í vernduðu umhverfi, inni á skrifstofu, með rit- ara, afgreiðslufólk og aðra sem geta hlaup- ið stutta vegalengd til að veita aðstoð sem óskað er. Lögreglumenn sem starfa úti á vett- vangi, til að mynda úti á landi, þurfa að fara fyr- irvaralaust í verkefni, jafnvel um langan veg þar sem fjarskipta- samband er stopult. Verkefni sem ekki er vitað hvernig er vax- ið þegar af stað er farið. Síðan standa menn andspænis því að taka ákvörðun á augnabliki hvernig tækla á verkefnið. Tökum laun þessara lögreglu- manna og berum þau saman við aðrar stéttir sambærilegar. Þá komum við að því, hvaða stéttir eru sambærilegar lögreglustarfi? Ég get ekki hugsað mér neitt starf sem er sambærilegt innan BSRB, og þó víðar væri leitað. Þær stéttir sem lögreglumenn eru helst bornir saman við eru þær stéttir sem kalla eftir lög- reglu þegar þær lenda í krísum sem ekk verður við ráðið nema aðilar með valdbeitingarheimild og valdbeitingarbúnað komi að. Er sanngjarnt að bera okkur lög- reglumenn saman við aðrar stétt- ir? Það er engin önnur stétt sam- bærileg, við erum mjög sérstök stétt. Við þurfum að efla fagvit- undina, það líðst ekki innan stétta faglærðra iðnaðarmanna að fúsk- arar gangi í þeirra störf og ef við- Lögreglumenn og sam- félagsleg staða þeirra Samanburður við aðrar stéttir er óraunhæfur segir Kristján Örn Kristjánsson » Launaþátturinnætti að vera hvetjandi til að fá fólk í okkar raðir með aðra menntun sem því nýtist í lögreglu. Kristján Örn Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.