Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorbjörg Þor-steinsdóttir
fæddist í Reykholti
í Garðahreppi 25.
september 1928.
Hún andaðist á
líknardeild L5
Landakotsspítala
11. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Þorsteinn Jónsson,
verksmiðjustjóri
Reykdalsverk-
smiðju, f. í Hörgs-
holti í Miklaholts-
hreppi í Snæfellsnessýslu 22. maí
1890, d. 31. ágúst 1934, og Vil-
borg Guðmundsdóttir, f. í Urr-
iðakoti í Garðahreppi 24. apríl
1894, d. 22. október 1988. Systir
Þorbjargar er Steinþóra Þor-
steinsdóttir Arndal, f. 29. júlí
1934, gift Sigurði Þ. Arndal, f.
28. apríl 1932.
Hinn 12. mars 1949 giftist Þor-
björg Jóni Frímanni Jónssyni,
húsasmíðameistara, verkstjóra
hjá ÍAV – Íslenskum að-
alverktökum, f. á Kaldbak í
Reykjahreppi í Suður-Þingeyj-
arsýslu 9. febrúar 1924, d. 15.
janúar 2004. Foreldrar hans voru
hjónin Jón Jónsson frá Brekkna-
koti, bóndi á Kaldbak, kennari og
f. 9.1. 2004. b) Sigurður Þor-
steinn, f. 3.6. 1979. 2) Þorsteinn,
f. 6.7. 1949, d. 6.11. 1949. 3) Vil-
berg Þór, f. 8.3. 1951, kvæntur
Margréti Emilsdóttur, f. 16.10.
1953. Synir þeirra eru: a) Emil
Árni, f. 14.11. 1976, kvæntur
Berglindi Jónsdóttur, f. 25.7.
1978. Dóttir þeirra er Eik, f.
11.8. 2006. b) Jón Þorri, f. 25.1.
1979. Sonur hans og Aðalbjargar
Stefánsdóttur, f. 3.10. 1980, er
Anton Máni, f. 5.12. 2004. 4) Jón
Snævar, f. 24.8. 1962, kvæntur
Salbjörgu Björnsdóttur, f. 14.11.
1961. Dætur þeirra eru: a) Vil-
borg, f. 26.10. 1982, sambýlis-
maður Halldór Antonsson, f. 11.
11. 1973, börn hans Theodór
Guðni, Helga Sóley og Anton. b)
Linda Björg, f. 6.6. 1988. c) Snjó-
laug Ösp, f. 18.9. 1998.
Þorbjörg ólst upp í Reykholti í
Garðahreppi, síðar í Hafnarfirði.
Eftir að hún lauk almennu skóla-
námi vann hún við versl-
unarstörf, en lengst af gegndi
hún húsmóðurstarfi. Hún var
virk í félagsstarfi, var m.a. félagi
í Kvenfélagi Garðabæjar, Dal-
íuklúbbnum og Sálarrannsókn-
arfélagi Hafnarfjarðar. Þorbjörg
var gerð að heiðursfélaga Kven-
félags Garðabæjar á 50 ára af-
mælisári félagsins eftir áratuga
starf í þágu þess. Garðrækt var
hennar aðaláhugamál og fengu
þau hjónin viðurkenningar fyrir
garð sinn.
Útför Þorbjargar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
organisti, f. 10.
ágúst 1888, d. 15.
desember 1976, og
Snjólaug Guðrún
Egilsdóttir frá Laxa-
mýri í Aðaldal, hús-
móðir á Kaldbak, f.
9. júlí 1894, d. 18.
maí 1954. Börn
þeirra eru: 1) María
Eydís, f. 14.12. 1947.
Hún giftist Karli
Harrý Sveinssyni, f.
14.4. 1945, d. 27.2.
1995. Þau skildu.
Sonur þeirra er
Stefán Bachmann, f. 13.6. 1966.
Dætur hans og Conny H. Larsen,
f. 24.2. 1965, eru Eydís Anna, f.
1.12. 1991, og Fanndís Klara, f.
24.7. 1993. Eiginkona Stefáns er
Kristjana Erlingsdóttir, f. 16.7.
1969. Börn þeirra eru Hekla
María, f. 27.4. 2004, og Karl
Harrý, f. 20.10. 2006. Fyrir átti
hún Helga Stein, f. 25.11. 1986,
Jóhönnu Guðrúnu, f. 18.9. 1989,
Egil Trausta, f. 29.5. 1993, og
Ottó Jón, f. 26.3. 1995. Eig-
inmaður Maríu er Guðmundur
Kr. Aðalsteinsson, f. 25.1. 1946.
Börn þeirra eru: a) Eva Vilborg,
f. 2.2. 1975. Sonur hennar og
Þorsteins S. Guðjónssonar, f.
24.3. 1970, er Sigursteinn Máni,
Nú er elskan hún fallega, góða
mamma mín fallin frá. Það var
orðið auðséð hvert stefndi en ótrú-
lega er samt sárt að missa hana
frá sér, en henni var orðin þörf á
hvíldinni eftir erfið veikindi síð-
ustu mánaða.
Okkar 60 ára samband var ekki
síður vináttusamband en mæðgna,
því við nutum samverunnar
löngum stundum. Enda áttum við
lík áhugamál. Ferðalögin sem við
höfum farið í saman um ævina eru
óteljandi, allt frá ferðum á vöru-
bílnum hans pabba á Þingvelli, þar
sem við krakkarnir vorum í boddíi
aftan á palli og upplifðum fyrstu
útileguna. Fyrstu rútuferðalögin
með Kvenfélaginu þar sem öll fjöl-
skyldan fór með og rúturnar fest-
ust í ám og þröngum beygjum í
malarvegaumhverfinu okkar allra.
Og svo var sungið og trallað í rút-
unni og farið í leiki, t.d. Hlaupið í
skarðið og fleira þar sem stoppað
var, að ógleymdri bílveikinni.
Þetta voru mikil ævintýri. Göngu-
túrar og berjaferðir í hraununum
og náttúrunni hér í kring, sem ylja
um hjartarætur. Æðislega góða
ferðin með Dalíuklúbbnum árið ’77
um Skotland þar sem við mamma
stungum af eina kvöldstund og
fórum í heimsókn til Stellu frænku
og Hermanns og áttum indælis-
kvöld með þeim. Fórum einnig um
Vatnahéruðin og Wales á Englandi
þar sem skoðað var mikið af dalí-
um og svo margt annað skemmti-
legt sem aldrei gleymist. Margar
aðrar lengri og skemmri ferðir og
fundir sem ég átti með mömmu í
þeim hópi sem ég hefði ekki notið
án hennar. Frábæra ferðin á sex-
tugsafmæli mömmu sem við Eva
Vilborg dóttir mín fórum með
henni og pabba til Flórída og Colo-
rado til að heimsækja Sifu, systur
hans, og Lee, áttum meiriháttar
tíma þar með þeim. Allar ferðirnar
sem við fórum til Danmerkur,
skírn Eydísar Önnu og fermingar
hennar og Fanndísar Klöru systur
hennar. Heimsóknirnar til Stefáns
og Kristjönu, allt svo skemmtilegt
og hún svo góður ferðafélagi.
Síðast en ekki síst verð ég að
nefna ferðina á ættarmótið fyrir
norðan hjá fjölskyldunni hans
pabba síðasta sumarið sem hann
lifði, við gerðum okkur öll grein
fyrir að þetta voru kveðjustundir
hans við æskuslóðirnar en samt
voru þetta svo yndislega góðar og
fallegar stundir sem við áttum
þarna og samveran svo skemmti-
leg við fjölskylduna fyrir norðan
sem við höfum séð svo lítið í gegn-
um tíðina. Einstakar voru móttök-
urnar á Laxamýri þar sem Atli
Vigfússon fór með okkur niður að
Æðarfossum og bauð okkur síðan
heim þar sem við fengum að skoða
gamla húsið og þáðum hressingu
hjá þeim hjónum í sólinni úti í
garðinum. Einnig fóru þau pabbi
og mamma í góðar ferðir til Ítalíu,
Kanada og Karíbahafsins.
Minningarnar streyma fram
þegar litið er til baka og ekki
minnkar það þegar skoðuð verða
þau ógrynni af myndum sem til
eru og alls staðar er hún mamma í
miðpunkti, svo falleg kona, snyrti-
leg og klædd í stíl við tilefnið. Mig
langar að kveðja móður mína með
erindum úr ljóði frænda míns sem
hann orti til móður sinnar:
Móðir kær, jeg minnist jafnan þín,
meðan blærinn leikur hugnæm kvæði,
meðan tærir lækir líða’ að græði,
lilja grær og fögur stjarna skín.
Hjá þjer, móðir, ungur fjekk jeg fæði,
fyrstu ljóðin þýðu’ og valin klæði.
Elsku góða besta móðir mín!
Kæra móðir, hugur hjá þjer er,
helga’ jeg ljóðin smáu blíðu þinni,
meðan blóð mitt hraðar hringferðinni,
hjartkær móðir, jafnan ann jeg þjer,
faðir góði, gefðu’ að allir finni
góða móður yfir vöggu sinni,
meðan rjóða geisla röðull ber.
(Jóhann Sigurjónsson)
Ástarþakkir fyrir allt og allt,
elsku mamma, þú varst einstök.
Þín dóttir
María Eydís.
Meira: mbl.is/minningar
Um miðja síðustu öld þóttu þeir
hálfskrítnir sem lágu á fjórum fót-
um í garðinum sínum. Þeir sem
rækta garðinn sinn eru ekki af
annarri veröld en þeirri sem við
Þorbjörg
Þorsteinsdóttir
✝
Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir og
afi,
RICHARD SVENDSEN
(RIKKI),
Suðurhólum 24,
Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 17. janúar.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 24. janúar kl. 15.00.
Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir,
Ingvar Hinrik Svendsen, Iðunn Vaka Reynisdóttir,
Hermann Markús Svendsen,
Elísabet Alma Svendsen
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN ÁRNASON
bifreiðastjóri,
Laugabrekku 3,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga mánudaginn
21. janúar.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
26. janúar kl. 11.00.
Sigurgeir Jónsson, Guðrún S. Óskarsdóttir,
Björg Jónsdóttir, Pálmi Pálmason,
Guðmundur A. Jónsson, Sigríður Ingvarsdóttir,
Ásdís Jónsdóttir, Sigurgeir Á. Stefánsson
og fjölskyldur.
✝
Kær bróðir okkar,
EIRÍKUR JÓNSSON,
fyrrum bóndi á Svertingsstöðum,
Húnaþingi vestra,
til heimilis að Smáragrund 3,
Laugabakka,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, laugardaginn
19. janúar.
Guðfinna Jónsdóttir,
Þorgerður Jónsdóttir,
Bjarni Jónsson,
Guðlaug Jónsdóttir,
Snorri Jónsson,
Stefán Jónsson,
Ólafur Jónsson,
Gunnlaugur Jónsson,
Ragnheiður Jónsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGMUNDUR SIGURGEIRSSON
húsasmíðameistari,
Þorragötu 9,
lést þriðjudaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn
25. janúar kl. 15.00.
Ásdís Sigurðardóttir,
Sigurgeir Ó. Sigmundsson, Ingunn Mai Friðleifsdóttir,
Margrét Sigmundsdóttir, Bjarni Ólafur Ólafsson
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNÞÓR GUÐMUNDSSON,
rithöfundur og fyrrverandi bóndi
frá Dæli,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga
þriðjudaginn 22. janúar.
Helga Gunnþórsdóttir, Guðmundur Leifsson,
Sæmundur Gunnþórsson, Nanna Ólafsdóttir,
Róberta Gunnþórsdóttir, Garðar Guðmundsson,
Víglundur Gunnþórsson, Sigrún Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓREY JÓNSDÓTTIR,
Dalbæ, Dalvík,
áður Gilsbakka
á Hauganesi,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík mánudaginn
21. janúar.
Útförin fer fram frá Stærra-Árskógskirkju laugar-
daginn 26. janúar kl. 14:00.
Margrét Soffía Kristjánsdóttir, Gunnar Jakobsson,
Jón Stefán Kristjánsson,
Kolbrún Kristjánsdóttir,
Dagmar Kristjánsdóttir, Hallgrímur Hreiðarsson,
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, Helena Ragna Frímannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartfólginn sonur minn, ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
ÓLAFUR MOGENSEN,
Flagggatan 8b,
41316 Gautaborg,
Svíþjóð,
er látinn. Ólafur lést aðfaranótt sunnudagsins
20. janúar og verður hann jarðsettur í Gautaborg,
Svíþjóð. Hans verður sárt saknað.
Guð blessi minningu hans.
Marsibil Mogensen,
Maud Rämsell,
Pétur Viðar Ólafsson,
Birta Þrastardóttir, Þórhallur Magnússon,
Mirra Þórhallsdóttir,
Peter Lassen Mogensen,
Matthías Mogensen, Kristina Marianna Wärd,
Ingeborg Linda Mogensen,
Erik Júlíus Mogensen, Aðalheiður Elva Jónsdóttir,
Inga Kolbrún Mogensen, Sveinbjörn Gunnarsson,
Birgir Mogensen, Ásta Ragnheiður Júlíusdóttir.