Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 26

Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HÆFILEIKARÍKI táningurinn Magnus Carlsen heldur áfram að hrífa skákheiminn með óviðjafnan- legri frammistöðu sinni á stórmót- um. Hann leiðir nú Corus-ofurskák- mótið í Wijk Aan Zee í Hollandi þegar átta umferðir af 13 eru búnar með 5½ vinning en í humátt á eftir koma þeir Vladimir Kramnik (2.799) frá Rússlandi og Levon Aronjan (2.739) frá Armeníu. Carlsen hefur unnið þrjár skákir og gert jafntefli í fimm. Hann hefur teflt af öryggi en óvíst er hvort að það dugi í innbyrðis viðureignum hans við Kramnik og heimsmeistarann Viswanathan An- and (2.799) sem hristi af sér slyðru- orðið loksins í sjöundu umferð þegar hann lagði Judit Polgar að velli. An- and mætti svo í áttundu umferð heimsmeistaranum fyrrverandi Ve- selin Topalov (2.780) í athyglisverðri skák: Hvítt: Viswanathan Anand (2.799) Svart: Veselin Topalov (2.780) 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. f3 h5 9. Rd5 Bxd5 10. exd5 Rbd7 11. Dd2 g6 Þessu hefur ekki verið leikið áður en hugmyndin er að skipta á svar- treita biskupnum og öðlast mögu- leika á að nú undirtökunum á svörtu reitunum með riddurunum tveim. Gallinn við þessa áætlun er að hún tekur langan tíma og benda hinir eðlilegu leikir Anands í framhaldinu til að hvítur þurfi ekki að óttast þessa nýjung í framtíðinni. 12. 0–0–0 Rb6 13. Da5!? Bh6 14. Bxh6 Hxh6 15. Kb1 Hc8 16. Db4! Snjall leikur sem undirbýr c2–c4 framrásina er styrkir d5–peð hvíts og auðveldar hvítum að ná undirtök- unum á miðborðinu. Hin taktíska réttlæting leiksins byggist á að 16. …Rfxd5 yrði svarað með 17. Hxd5 Rxd5 18. Dd2! og hvítur vinnur lið. 16. …Kf8 17. c4 Kg7 18. g3 Hh8 19. Hc1 Dc7 20. Bh3! Hce8 21. Hhd1 He7 22. a3 Hd8 23. Rd2 Rbd7 24. Dc3 a5 25. Bxd7! Rxd7 26. f4! Rf6 27. Hf1 b6 28. h3 Dd7 Hvítur hefur yfirburðatafl og í næstu leikjum hefur hann öfluga sókn á kóngsvængnum. 29. f5! Hf8 30. De3 e4 31. g4! hxg4 32. hxg4 He5 33. Hf4 Dd8 34. g5 Rh5 35. f6+ Kg8 36. Hxe4 Hvítur hefur nú unnið peð og dugði það ásamt miklum stöðuyfir- burðum til sigurs. 36. …Hfe8 37. Ka2 a4 38. Hc3 Dc7 39. Dd4 Dc5 40. Dxc5 og svartur gafst upp. Anand hefur einum vinningi minna en Carlsen svo að það verður spennandi fylgjast með hvort að hann nái að blanda sér alvarlega í toppbaráttuna eftir að hafa gert fimm jafntefli og tapað einni skák í fyrstu sex umferðunum. Það yrði mikið afrek hjá hinum 17 ára Carl- sen ef honum tækist að verða sig- urvegari mótsins en þó má ljóst vera að næstu skákir gegn núverandi og fyrrverandi heimsmeistara munu ráða þar úrslitum en hann teflir við þá í 11. og 12. umferð. Hægt er að fylgjast með gangi mála á heima- síðu mótsins, www.coruschess.com. Henrik orðinn efstur á Skák- þingi Reykjavíkur – Skeljungs- mótinu Stórmeistarinn Henrik Daniel- sen (2.506) sigraði Sigurð Daða Sig- fússon (2.313) í sjöundu umferð Skeljungsmótsins – Skákþings Reykjavíkur og varð þar með efstur á mótinu með sex vinninga þar sem Ingvar Þór Jóhannesson (2.388) vann Guðmund Kjartansson (2.307) sem hafði leitt mótið frá byrjun. Guðmundur, Ingvar og Sigurbjörn Björnsson (2.286) eru í 2.–4. sæti með 5½ vinning. Athygli vakti í sjö- undu umferð að hinn ungi og efni- legi Daði Ómarsson (1.999) lagði al- þjóðlega meistarann Sævar Bjarnason (2.226) að velli. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.skak.blog.is. Carlsen efstur og Anand að braggast Morgunblaðið/Fred Lucas Virðing Keppendur á Corusmótinu vottuðu Bobby Fischer virðingu sína. SKÁK Wijk Aan Zee í Hollandi CORUS-OFURSKÁKMÓTIÐ 2008 11.-27. janúar 2008 Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is ✝ Sigríður Ingi-björg Hall- grímsdóttir fæddist á Akureyri 14. maí 1920. Hún lést á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri 15. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ragnheiður Maren Söebech frá Reykja- firði í Árneshreppi, f. 10.3. 1894, d. 22.7. 1977, og Hallgrímur Þorvaldsson, bif- reiðastjóri á Akureyri, f. 27.9. 1893, d. 8.12. 1925. Systur Sigríð- ar eru Karólína Friðrika, f. 26.7. 1921, búsett á Siglufirði, og Halla Kristjana, f. 1.5. 1925, búsett í Reykjavík. Sigríður var 5 ára þeg- ar faðir hennar lést og ólst hún að ÁTVR á Akureyri. Börn Sigríðar og Ólafs eru: 1) Benedikt, hæsta- réttarlögmaður í Reykjavík, f. 30.4. 1948, sambýliskona Berg- þóra Ingólfsdóttir, 2) Hallgrímur, viðskiptafræðingur í Kópavogi, f. 7.1. 1952, kvæntur Brynju Sig- urmundsdóttur, 3) Ragnheiður, kennari á Akureyri, f. 10.12. 1955, gift Ingva Jóni Einarssyni, og 4) Margrét, sjúkraþjálfari í Óðins- véum í Danmörku, f. 29.12. 1957, gift Gunnari Péturssyni. Barna- börnin eru 15 og barnabarnabörn- in tvö. Sigríður bjó alla sína ævi á Ak- ureyri að einu ári undanskildu, 1953, en þá voru þau hjónin búsett í Reykjavík. Lengst af bjuggu þau Sigríður og Ólafur í Hrafnagils- stræti 30 þar sem þau byggðu hús árið 1956. Sigríður starfaði mikið að fé- lags- og góðgerðarmálum og var félagi í Kvenfélaginu Framtíðinni, Náttúrulækningafélegi Akureyrar og Oddfellowreglunni. Útför Sigríðar fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. mestu leyti upp hjá ömmu sinni og afa í föðurætt, þeim Krist- jönu Sigríði Hall- grímsdóttur og Þor- valdi Helgasyni á Akureyri, eftir það. Ragnheiður Söebech var kaupmaður og rak verslunina Liver- pool á Akureyri um árabil. Sigríður lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1937 og starfaði við af- greiðslu- og skrifstofustörf hjá BSA á Akureyri. Hinn 22. nóvember 1947 giftist Sigríður Ólafi Benediktssyni frá Húsavík, f. 31.7. 1917, d. 2.11. 2000, forstjóra BSA og Bílasöl- unnar hf. en síðar útsölustjóra Elsku besta amma mín. Ég kveð þig í dag með miklum söknuði. Þú varst yndisleg kona sem varst öllum svo kær og góð. Ég man hvað okkur barnabörnunum fannst gaman að vera hjá ykkur afa í Hrafnó og svo seinna í Furulundi. Sérstaklega var gaman þegar við fengum að gista, sem var ansi oft. Við gistum yfirleitt uppi í risi í Hrafnó en það kom fyrir að við feng- um að skríða upp í holu til ykkar afa. Ef ég var veik komstu oft að passa mig og það var frábært að hafa þig. Ég er afar þakklát fyrir allar þær frábæru stundir sem við höfum átt saman, elsku amma mín. Ég elska þig af öllu mínu hjarta og á eftir að sakna þín mikið. Ég trúi að þú sért komin á betri stað til hans afa og ég veit að ykkur líður báðum vel. Hvíl í friði, elsku amma litla. Þín alltaf Helga Björg. Snjónum kyngdi niður í höfuð- borginni þegar móðir mín hringdi og tilkynnti lát Sigríðar systur sinnar. Lífshlaup elskulegrar og fallegrar frænku, geðprútt og stillt, minnti á hvíta mjöllina. Þótt ég hefði ekki hitt hana í nokkur ár dvaldi hug- urinn oft hjá henni, en svo var ein- mitt þennan morgun og daginn áð- ur. Minntist ég skemmtilegra og dýrmætra stunda á heimili þeirra Ólafs og hve góð þau voru mér alla tíð. Akureyrarheimsókn með mömmu sumarið 1945 stendur mér ljóslif- andi fyrir hugskotssjónum. Ragn- heiður amma leigði þá í Skipagötu og höfðu Sigríður og Halla búið hjá henni undanfarin ár, en við fráfall Hallgríms manns síns 8. des. 1925 stóð hún ein uppi með þrjár korn- ungar dætur og þurfti að láta þær frá sér. Sigríður ólst upp hjá ömmu sinni og afa og Halla fór fyrst um sinn til frændfólks. Vorið 1930 lætur svo bátur úr höfn og flyst Karólína með fósturforeldrum til Siglufjarð- ar. Á bryggjunni stendur móðirin með Sigríði grátandi. Þrátt fyrir að- skilnað í æsku var samband þeirra systra alltaf náið og væntumþykja mikil, og höfum við systrabörn ekki farið varhluta af því. Afar gestkvæmt var hjá Sigríði og Ólafi frá fyrstu tíð og jafn smekk- legt og fallegt heimili vandfundið, enda Sigríður einstaklega þrifin og flink húsmóðir, og þau hjón sam- stiga í snyrtimennsku og reglusemi. Smákökuuppskriftir með fagurri rit- hönd frænku eru vel varðveittar ásamt sendibréfum frá henni. Á fyrsta heimili hjónanna í Munkaþverárstræti var ég barnapía sumarið 1952 og passaði Benedikt. Til heimilis voru einnig Þorvaldur langafi, rúmfastur, Margrét móðir Ólafs og svo var Ragnheiður amma þar með herbergi, þótt hún ynni á sumrum sem matráðskona hjá lax- veiðimönnum á Laxamýri. Seinna varð Hrafnagilsstræti 30 fastur punktur í tilverunni þegar leiðin lá til Siglufjarðar um jólaleyt- ið. Brást ekki að Ólafur var mættur á flugvellinum á nýbónaðri bifreið sinni A 3, glerfínn að vanda. Aldrei hafði hann orð á því þótt margir pinklar og pakkar fylgdu gestinum, en á þessum árum var fólk óspart beðið fyrir böggul á milli landshluta til vina eða ættingja. Heima beið Sigríður með veislumáltíð við gleði og glaum í borðstofunni ásamt krökkunum. Eftir næturgistingu var maður svo lóðsaður með sitt haf- urtask í póstbátinn Drang, Esjuna eða Hekluna. Benedikt, Hallgrími, Ragnheiði, Margréti og fjölskyldum þeirra, svo og systrum Sigríðar, Karólínu og Höllu votta ég innilega samúð. Blessuð sé minning Sigríðar Hall- grímsdóttur. Ólöf Þórey Haraldsdóttir. Sigga Hall er dáin. Ég man Siggu sem fallega, góða og glaða en um- fram allt hlýja manneskju. Af bernskuminningum mínum standa upp úr heimsóknir í Hrafnagils- strætið til Óla föðurbróður og Siggu. Þar var alltaf glatt á hjalla þegar fjölskyldurnar hittust og Sigga töfr- aði fram ljúffengan mat. Af einhverj- um ástæðum er mér skyrsúpan minnisstæðust. Sigga bjó til skyr- súpu með því að hræra alls konar góðgæti saman við skyrið, meðal annars eggjum sem gerðu skyrsúp- una gula. Þegar ég fluttist norður á Akur- eyri sumarið 1974, tvítug og nýgift, urðum við Sigga vinkonur. Við Björn bjuggum í kjallaranum hjá Óla og Siggu í nokkrar vikur meðan við bið- um eftir að íbúðin okkar yrði tilbúin. Þar var yndislegt að vera og Óli og Sigga dekruðu við okkur. Á Akureyri fæddist eldri dóttir okkar og meðan ég gekk með hana var gott að koma til Siggu, sitja með henni í eldhúsinu, mala og borða alls konar berjasultur en Sigga var ástríðufull berjakona. Og það var gaman að fara í göngu með Siggu. Við gengum mikið saman um alla Akureyri, töluðum um heima og geima og Sigga sagði mér sögur. Síðan fæddist Birna Anna í apríl og fyrsta heimsókn hennar í lífinu var í Hrafnagilsstrætið á leið heim af fæð- ingardeildinni. Þar fékk hún aldeilis hlýjar móttökur þegar hún vikugöm- ul, var lögð í burðarrúmi á píanó- bekkinn í stofunni hjá Óla og Siggu sem dáðust að henni af einlægni. Um sumarið voru Hallgrímur, sonur þeirra, og Brynja í Hrafnagilsstræt- inu með Ólaf son sinn nýfæddan og þá vorum við Birna Anna heima- gangar þar. Eftir að ég fluttist frá Akureyri hittumst við Sigga sjaldnar en héld- um góðu sambandi. Þegar ég hitti hana sl. sumar hafði ég ekki séð hana í nokkur ár. Ég leit inn til hennar á Hlíð og vissi ekki á hverju ég ætti von, bjóst alls ekki við að hún þekkti mig. Þar sat hún í stól, glæsileg og flott. Þegar hún sá mig koma breiddi hún út faðminn og það glaðnaði yfir henni. Hún faðmaði mig og kyssti og klappaði mér allri af sinni yndislegu hlýju. Fyrir mér var þetta heilög stund. Guð blessi minningu Sigríðar Hall- grímsdóttur. Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir. Æskuminningar frá sjöunda ára- tugnum skutust upp á yfirborð hug- ans þegar ljóst var að dagar Sigríðar Hallgrímsdóttur yrðu ekki fleiri. Við ókum sem leið lá flest sumur norður á Blönduós og til Akureyrar að heimsækja föðurfólkið á árunum milli 1960 og 1970. Oft hittumst við öll á Blönduósi hjá Sólveigu frænku og þá voru sagðar Húsavíkursögur. Þegar til Akureyrar kom tóku Mýrarvegurinn og Hrafnagilsstrætið á móti okkur. Hér skal aðeins brugð- ið upp mynd af móttökunum við Hrafnagilsstræti. Oftar en ekki var Óli frændi út í garði í stríði við fífl- ana, sem hann tók upp með rótum, en inni fyrir stóð opinn faðmur Siggu, bros sem náði til augnanna og óvenjulega þýð rödd, sem bar með sér hljóm sem engan á sinn líka í minningunni. Frú Sigríður Hallgrímsdóttir var fyrirmyndarhúsmóðir, átti fallegt heimili þar sem hver hlutur hafði sinn stað. Og hvergi var að sjá að á heimilinu byggju tápmikil börn og unglingar, allt svo fínt og fágað. Ég sé hana fyrir mér að hræra skyr með eggjum eða búa til kjötbollur sem lagaðar voru eins og veislumatur. Hún talaði við okkur börnin af áhuga og virðingu. Augun leiftruðu af hlýju. Við vissum þó, börnin, að þessi augu voru ekki alltaf full af gleði þó ekki bæri mikið á því á þessum ár- um. En veikindin sóttu hart að og stundum þurfti hún að liggja syðra á sjúkrahúsum. Alltaf var það fyrst og fremst umhyggja fyrir börnunum sem henni var efst í huga á þeim vik- um sem hún var fjarri heimilinu. Svo liðu árin. Þegar við fluttumst norður fyrir nálægt átta árum nutum við þess að sjá Siggu oftar. Og nú var það Gylfi sem fékk að kynnast þessari merku konu sem hafði blásið af sér alla storma. Einstakt samband myndað- ist strax á milli þeirra og stundirnar frá síðustu árum eru dýrmætar í minningunni. Á gamlársdag var messað á Hlíð eins og vant er þennan síðasta dag ársins. Þá var gott að koma til Siggu á eftir og þakka henni fyrir öll gömlu árin. Sú þökk er efst í huga nú að leið- arlokum. Þar sem við erum því miður ekki á landinu til að fylgja Siggu síðasta spölinn, biðjum við góðan Guð að blessa Benna, Hallgrím, Ragnheiði, Margréti og fjölskyldur þeirra. Guð blessi einnig minningu þeirr- ar merku konu Sigríðar Hallgríms- dóttur. Solveig Lára og Gylfi, Möðruvöllum. Sigríður Hallgrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.