Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VÍÍÍ! HVAÐ HEFUR ÞÚ VERIÐ AÐ GERA? EKKERT! ÉG LOFA! ÉG ER ALVEG VISS UM AÐ ÖLLUM Í HEIMINUM FINNST ÉG LEIÐINLEGUR ÉG ER SVO ROSALEGA ÞUNGLYNDUR ER ÞAÐ EITTHVAÐ NÝTT? HVERT ERTU AÐ FARA? ÚT ERTU BÚINN AÐ TAKA TIL Í HERBERGINU ÞÍNU? NEI ÞANNIG AÐ ÞEGAR ÞÚ SAGÐIR AÐ ÞÚ ÆTLAÐIR ÚT ÞÁ ÁTTIR ÞÚ VIÐ AÐ ÞÚ ÆTLAÐIR UPP AÐ TAKA TIL... ER ÞAÐ EKKI? ÉG HELD AÐ HÚN SKILJI EKKI ÍSLENSKU HVAÐ LÉT LÆKNIRINN ÞIG FÁ? NAFNSPJÖLDIN SÍNÞEGAR ÞÚ KEMUR INN, ERTU ÞÁ TIL Í AÐ LÁTA MENNINA ÞÍNA FÁ ÞETTA? EKKERT MÁL, LÆKNIR! VINUR MINN HANN MARKÓ HEFUR MIKLAR ÁHYGGJUR HANN HEYRÐI AÐ ÞAÐ ÆTTI AÐ GERA ÓSÝNILEGA GIRÐINGU MILLI MEXÍKÓ OG BANDARÍKJANNA HANN HEFUR VERIÐ AÐ SLÁST MIKIÐ UNDAN- FARIÐ HANN HEFUR GERT ÞAÐ ALLA TÍÐ EN HANN HEFUR ALDREI ÁÐUR KOMIÐ HEIM ÞAKINN Í SKRÁMUM HVAÐ MEÐ ÞAÐ? ÞAÐ ER ERFITT AÐ KENNA KETTI KARATE JÁ, EN VIÐ GÆTUM ALVEG HAFT HANN INNI HJÁ OKKUR ÉG VARÐ AÐ SETJA SPRENGJU Í LYFTUNA... ...EFTIR AÐ MARY JANE LIFÐI AF FYRRI TILRAUNINA ÞANNIG AÐ ÞÚ EYÐI- LAGÐIR VALSLÖNGVUNA! JÁ, EN KÓNGULÓARMANN- INUM TÓKST AÐ BJARGA HENNI HANN TRUFLAR MIG EKKI FRAMAR dagbók|velvakandi Safn til minningar um Bobby Fischer Kæru alþingismenn, ráðherrar, skákáhugamenn og aðrir þeir sem málið varðar. ÉG legg hér með til að byggt verði Bobby Fischer-safn í miðbæ Reykjavíkur. Safnið yrði helgað heimsmeistaraeinvíginu 1972 og minningu skákmeistarans sem átti samastað í hjörtum Íslendinga. Mögulegur staður fyrir safnið væri í Laugardalnum þar sem nú þegar er rætt um að reisa styttu af Bobby Fischer. Ég held að Bobby Fischer- safnið myndi hafa gríðarlegt menn- ingarsögulegt gildi fyrir okkur Ís- lendinga auk þess sem það myndi laða að túrista og skákpílagríma frá öllum heimshornum. Virðingarfyllst. Símon Birgisson, blaðamaður og nemi í Listaháskóla Íslands. Völvan Ég vil vekja athygli lesenda á að Völva Vikunnar spáði þessum hrók- eringum í borgarstjórn sem nú eru komnar á daginn. Einnig spáði hún stjórnarslitum – skyldi það ganga eftir? Eldri borgari. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þessir kappar róa hér á kajökum inn Skerjafjörðinn um hávetur í aftansól og blíðu. Bessastaðir, bústaður forseta Íslands, blasa við í baksýn. Ætli þeir séu nokkuð að pæla í hvað hann sé að sýsla? Árvakur/Ómar Róið á kajökum inn Skerjafjörð FRÉTTIR GARÐYRKJUFÉLAG Íslands held- ur sinn fyrsta fræðslufund á árinu fimmtudaginn 24. janúar í sal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæj- arhálsi 1 klukkan 20. Fyrirlesarar verða starfsmenn Grasagarðsins, þær Eva G. Þor- valdsdóttir forstöðumaður, Ingunn Óskarsdóttir og Anna Margrét Elí- asdóttir garðyrkjufræðingar. Eva mun segja frá starfsemi Grasa- garðsins á liðnu ári í máli og mynd- um. Ingunn hefur kynnt sér sér- staklega bergsóleyjar og fjallar um ræktun þeirra í Grasagarðinum. Anna Margrét hefur í nokkur ár annast lyngrósasafn Grasagarðsins og mun kynna þær tegundir sem eru til sýnis í garðinum. Þá mun Eva segja frá blómaenginu í Grasa- garðinum, en undanfarin ár hefur staðið yfir könnun á því hvernig hægt er að koma upp blómaengi með íslenskum og erlendum blóm- jurtum, segir í fréttatilkynningu frá Garðyrkjufélagi Íslands. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fé- laga og maka, en 800 kr. fyrir aðra. Fræðsla um starfsemi Grasagarðsins MÁLÞINGIÐ Enginn er eyland verður haldið í Kennaraháskóla Ís- lands við Stakkahlíð föstudaginn 25. janúar nk. Málþingið er haldið í tilefni af útkomu bókarinnar Fjöl- menning á Íslandi sem Rann- sóknastofa í fjölmenningarfræðum við Kennaraháskóla Íslands og Há- skólaútgáfan gefa út. Málþingið fer fram í Skriðu, fyrirlestarasal í Hamri, nýbyggingu KHÍ kl. 13–16. Aðalfyrirlesarar verða Magnús Bernharðsson dósent við Williams College og lektor við Háskóla Ís- lands og Elín Þöll Þórðardóttir dós- ent við McGill University. Að lokn- um aðalfyrirlestrum er gert ráð fyrir pallborðsumræðum. Aðgangur að málþinginu er ókeypis og allir eru velkomnir. Málþing um fjölmenningu á Íslandi Í TILEFNI af stofnun Jafnréttinda- félags Íslands verður haldinn und- irbúningsfundur í dag, miðvikudag- inn 23. janúar kl. 20, í húsnæði Háskóla Reykjavíkur við Ofanleiti 2. Þingmenn munu mæta og ræða stöðu mála. „Tilgangur félagsins er að stuðla að aukinni fjölbreytni í jafnréttisumræðunni sem hefur hingað til verið nokkuð einhliða,“ segir í fréttatilkynningu. Stofnun Jafnréttinda- félags Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.