Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 34

Morgunblaðið - 23.01.2008, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR SEM fjallað hafa um þessa skáld- sögu Stephens Hunts hafa gjarnan orð á því að hún sé fulllöng, að í henni sé of margt að gerast og allt of mikið af nýstárlegum hug- myndum í henni. Það byggist svo á smekki hvers og eins hvort hann kunni að meta langar bækur með fjölda per- sóna og fullsköpuðum flóknum furðuheimi. Heimur bókarinnar minnir ekki svo lítið á England á átjándu og nítjándu öld, en með ótal tilbrigðum. Í þessum heimi eru menn þannig að deila um sameignaskipan og einstaklingsfrelsi, konungdæmi og lýð- ræði og svo má telja, og fólk á götunni er áþekkt íbúum Lundúna fyrir 150-200 árum eða svo. Í mannfjöldanum eru þó ýmsar furðuverur, flugvélar sveima yfir og töfra- menn eru á snærum hins opinbera. Höfuðpersónurnar eru þau Molly Templ- ar, sem kemst undan á hlaupum er illvígir leigumorðingjar eru sendir henni til höfuðs (og myrða alla þá sem standa í veginum) og Oliver Brooks, sem lendir einnig á flótta þegar illþýði ryðst inn á heimili hans og drepur alla sem þar búa nema piltinn Oli- ver. Smám saman kemur í ljós að þau eru leiksoppar mikilla örlaga, átaka illra guða sem gleymdir hafa verið í árþúsund, leyni- hers sem bókin dregur nafn sitt af, leyni- félags erlendra aðalsmanna sem steypa vilja lýðræðisstjórn landsins sem þau búa í og nokkurra aðila annarra sem allir eru með illt í hyggju að því er virðist. Víst má til sanns vegar færa að sögusvið- ið sé full-ríkulegt, en Hunt er ekki að tjalda til einnar nætur, hann er með sagnabálk í huga og næsta bindi hans er reyndar þegar tilbúið og kemur út í vor. Flóknar furður The Court of the Air, skáldsaga eftir Stephen Hunt. Harper gefur út. 582 bls. Kilja í stóru broti. Árni Matthíasson ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Plum Lucky – Janet Evanovich 2. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 3. People of the Book – Geraldine Brooks 4. Blasphemy – Douglas Preston 5. World Without End – Ken Follett 6. The Shooters – W. E. B. Griffin 7. Double Cross – James Patterson 8. T is for Trespass – Sue Grafton 9. The Darkest Evening of the Year – Dean Koontz 10. The Senator’s Wife – Sue Miller New York Times 1. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 2. Random Acts of Heroic Love – Danny Scheinmann 3. On Chesil Beach – Ian McEwan 4. The Book Thief – Markus Zusak 5. The Kite Runner – Khaled Hosseini 6. Mister Pip – Lloyd Jones 7. Then We Came to the End – Joshua Ferris 8. Lords of the Bow – Conn Iggulden 9. Notes from an Exhibition – Patrick Gale 10. The Shakespeare Secret – J.L. Carrell Waterstone’s 1. I Heard That Song Before – Mary Higgins Clark 2. Blood Brothers – Nora Roberts 3. Overlook – Michael Connelly 4. Alexandria Link – Steve Berry 5. Mephisto Club – Tess Gerritsen 6. Success Principles – Jack Canfield 7. Shopaholic & Baby – Sophie Kinsella 8. Cross – James Patterson 9. Wives of the East Wind – Liu Hong 10. Mary Berry’s Complete Cookbook Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ ER góð brella hjá glæpa- sagnahöfundi að láta bækur sínar gerast í spennandi og helst óvenjulegu umhverfi, í öðru landi, sem hægt er að gæða dulúð, tja, eins og til að mynda Ítalíu. Ekki gerir það eftirleikinn erfiðari að fá bókmenntaminni eru kunnuglegri en ítalskir glæponar. Fjölmargir höfundar frá ýms- um löndum skrifa bækur um ítalska spæjara og lögreglufor- ingja, til að mynda Donna Leon sem segir frá ævintýrum feneyska lögregluforingjans Guidos Bru- nettis, en hún er bandarísk, Magdalen Nabb, sem var ensk kona sem fluttist til Flórens og skrifaði glæpasögur sem gerast í þeirri borg og svo Michael Dibdin, sem skrifaði bækur um lögreglu- foringjann sérlundaða Aurelio Zen, en Dibdin lést skyndilega fyrir tæpu ári og síðasta bókin um Zen kom út fyrir stuttu. Lævís og þrjóskur Fyrsta bókin um Zen kom út 1988 og vakti þegar hrifningu, enda er hann persóna sem flestir falla yfir, lævís og þrjóskur, strangheiðarlegur en beitir brögðum þegar við á og með óhemju sterka réttlætiskennd, sem hann lætur þó ekki alltaf þvælast fyrir. Alls urðu bækurnar ellefu þar sem Zen kemur við sögu og Dibdin var einmitt rétt búinn að koma elleftu bókinni til útgefanda þegar hann lést. Sögusvið fyrstu bókarinnar er Perugia, þar sem Dibdin bjó um tíma, en svo fer Zen um víðan völl, til Feneyja, Bologna og Rómar og lendir meira að segja á Íslandi í einni bókinni, þó atburðarásin sé óneitanlega nokkuð sérkennileg í augum íslenskra lesenda. Í síðustu bókunum er Zen aftur á móti staddur á Sikiley, nóg af glæpahyski þar, og meira að segja mátti skilja eina söguna, Blood Rain, sem kom út 1999, svo að mafíósar hefðu myrt lögreglufor- ingjann sem var þeim svo mikill þyrnir í auga. Annað kom þó á daginn, því Zen sneri aftur þrem árum síðar og er sprelllifandi í síð- ustu bókinni, End Games. Einskonar ferðabækur Bækur Dibdins og annarra höf- unda sem getið er hér að ofan eru að mörgu leyti eins og ferðabæk- ur, margar lýsa mannlífi og menn- ingu, byggingum og landslagi og matargerðarlist af svo mikilli rómantík að lesendur dauðlangar til að fara á staðinn, ganga sömu götur og Brunetti lögregluforingi eða sitja á veitingahúsi í breiskju- hita hádegisins og borða sikil- eyskan bændamat, einfaldan og bragðmikinn. Það umhverfi sem Dibdin lýsir er þó ekki alltaf kræsilegt; í bókum sínum lýsir hann skuggahliðum ítalsks sam- félags og spillingu sem grasseraði í skjóli kristilegra demókrata og grasserar enn. Kannski ekki svo spennandi áfangastaður þegar grannt er skoðað. Forvitnilegar bækur: Michael Dibdin og Aurelio Zen Glæponar á Ítalíu Enskur Rithöfundurinn Michael Dibdin, höfundur Aurelio Zen. - Kauptu bíómiðann á netinu - SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI HILMIR SNÆR GUÐNASON MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR LAUFEY ELÍASDÓTTIR JÓHANN SIGURÐARSON ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON ÓLAFUR EGILL EGILSSON ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR FRÁBÆR NÝ GAMANMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK! LANDSLIÐ LEIKARA FER Á KOSTUM Í MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF! Nú mætast þau aftur! Tvö hættulegustu skrímsli kvikmyndasögunnar í tvöfalt betri mynd! Missið ekki af einum flottasta spennutrylli ársins!! SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Dagbók fóstrunnar Stórskemmtileg gamanmynd með Scarlett Johansson í aðalhlutverki sem fóstra hjá ríka liðinu í New York og lífið á toppnum því ekki er allt sem sýnist! ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ. HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU! LOSTI, VARÚÐNÚ VERÐUR ALLT VITLAUST! SÝND Í SMÁRABÍÓI eee FLAUELSMJÚK OG ÞÆGILEG - DÓRI DNA. D.V. Frá Óskarsverðlaunahafanum Ang Lee leikstjóra „Brokeback Mountain“ og „ Croutching Tiger, Hiddden Dragon“ Golden Globe verðlaun Cate Blanchett Besta leikkonan í aukahlutverki SÝND Í REGNBOGANUM eeee - Ó.H.T., RÁS 2 Þetta er frumleg, úthugsuð, vönduð og spennandi barna- og fjölskyldumynd, besta íslenska myndin af sínu tagi. eeee - B.S., FBL „...ein besta fjölskyldu- afþreyingin sem í boði er á aðventunni” eee - S.V., MBL „Duggholufólkið bætir úr brýnni þörf fyrir barnaefni” SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í REGNBOGANUM eee - T.S.K. 24 STUNDIR “Enn ein snilldin frá meistara Ang Lee! Frábær mynd sem enginn kvikmyndaunnandi ætti að láta framhjá sér fara!” eeee - T.S.K, 24 STUNDIR Kvikmyndir.is eee - A.S. MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM „Skemmtilegasta og áhrifaríkasta „ævisaga” frægrar rokkstjörnu sem færð hefur verið á hvíta tjaldið á síðustu árum!“ - S.S. MBL ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ! STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA . eee - S.V, MBL eeee - H.J. MBL eee - A.F.B. 24 STUNDIR Sími 564 0000Sími 462 3500 Sími 551 9000 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ* Brúðguminn kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Aliens vs Predator 2 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára The Golden Compass kl. 6 B.i. 10 ára Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4 Alvin and the C.. enskt tal kl. 4 - 6 Duggholufólkið kl. 3:45 B.i. 7 ára Brúðguminn kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára Lust, Caution kl. 6 - 9 B.i. 16 ára I´m not there ath. ótextuð kl. 6 - 9 B.i. 12 ára We own the night kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Run fat boy run kl. 5:30 Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Aliens vs. Predator 2 kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16 ára The Mist kl. 8 - 10:40 B.i.16 ára The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10 ára Frábær mynd. Hún er falleg, sár og fyndin. Allt gekk upp, leikur, leikmynd, saga, hljóð, mynd og allt sem þarf til að gera fína bíómynd. -S.M.E., Mannlíf eeeee Besta íslenska fíl-gúdd myndin fyrr og síðar “ - .ss , X-ið FM 9.77 eeee “Brúðguminn er skemmtileg mynd sem lætur áhorfendur hljæja og líða vel“ - G. H., FBL eeee „Brúðguminn er heilsteypt og skemmtileg mynd sem kemur eins og ferskur andvari inn í skammdegið.” -S.P., Kvika Rás 1 “Myndin er frábær skemmtun” - Þ.H., MBL v - Kauptu bíómiðann á netinu - Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.