Morgunblaðið - 11.02.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 11
FRÉTTIR
SKIPULAG Reykjavíkurborgar
gerir ráð fyrir að meira en helm-
ingur af öllu nýju verslunar- og
skrifstofuhúsnæði sem byggt verð-
ur í borginni á tímabilinu 1998-2024
verði byggður á svæðinu vestan
Kringlumýrarbrautar. Þetta eru
samtals 466 þúsund fermetrar, en
samtals er ráðgert að byggja 920
þúsund fermetra af verslunar- og
skrifstofuhúsnæði á þessu tímabili.
Á móti kemur að fyrirhugað er að
rífa um 240 þúsund fermetra af iðn-
aðarhúsnæði og vörugeymslum á
svæðinu.
Á sama tíma og þessi mikla upp-
bygging á atvinnuhúsnæði er fyr-
irhuguð vestast í Reykjavík eru
áform um sáralitla uppbyggingu á
slíku húsnæði í úthverfunum. Ekki
er t.d. fyrirhugað að byggja neitt
verslunar- og skrifstofuhúsnæði í
Breiðholti og mjög lítið í Árbæj-
arhverfi.
Skipulag borgarinnar gerir jafn-
framt ráð fyrir að á tímabilinu
1998-2024 verði byggðar 17.400
nýjar íbúðir í Reykjavík. Þar af
verða 11.500 íbúðir byggðar í út-
hverfunum, þ.e. Grafarholti, Úlf-
arsárdal, Norðlingaholti, Graf-
arvogi, Breiðholti, Árbæ og
Geldinganesi.
Gert er ráð fyrir að byggðar
verði 5.700 íbúðir á svæðinu vestan
Kringlumýrarbrautar. Þar er m.a.
um að ræða byggð á Lýsislóðinni,
Mýrargötusvæðinu, Bykó-reit, lóð
Landhelgisgæslunnar við Seljaveg
og á Eimskipsreit. Þá er gert ráð
fyrir að byggðar verði 500 íbúðir
með þéttingu byggðar í sjálfri mið-
borginni m.a. með niðurrifi á eldra
húsnæði.
Mikil uppbygging í atvinnuhúsnæði í miðborginni
! "
)
*+
* ,
-
+ .
!-/0
!.
!
)1
* /
0
*2 /!-3-/-/!
-
+ .
!- 0
!.
!
4
*4
.5
*
2
- 6
/-
*0- 6
-*)
1 *
-
- 6
4
0
7+879
$!&('
"!$('
!&('
$!$('
!%''
#!"''
&!(('
$!$('
'
'
'
'
''
$#!#''
)/
:.
""%
!$('
#!#''
!#''
$!$('
&!'''
$!#('
&!"''
!%('
(!('
"''
%''
'
('
("!''
45!
1. #'#$
!&''
#!(('
!$('
'
#''
!('
('
#!$''
(!('
"''
%''
'
('
&!$''
7
###!'''
!#$%!'''
#&$!'''
##!'''
!' "!'''
#'!'''
$"!'''
##'!'''
!'''
##%!'''
#&!'''
&!'''
!'''
$!% "!'''
45 5
/ 5 #'#$*
45 / 5 ""%;#'#$*
!
$ !'''
#&!'''
("!'''
$!'''
&$!'''
$!'''
!'''
% !'''
#%!'''
# &!'''
#&!'''
'
'
!&'!'''
!
"
#!
$
!
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Skipulag í Reykjavík gerirráð fyrir að stöðugt meiraaf atvinnuhúsnæði verðibyggt í vestari hluta borg-
arinnar en mestöll stækkun á
íbúðabyggð mun eiga sér stað í út-
hverfum í austari hluta borgarinn-
ar. Á næstu árum verða þrír mjög
fjölmennir vinnustaðir fluttir á
Vatnsmýrarsvæðið í Reykjavík.
Þetta eru Háskólinn í Reykjavík,
Kennaraháskólinn og starfsemi
Landspítalans í Fossvogi. Þetta
þýðir að um eða yfir 10 þúsund
manns sem áður sóttu vinnu og
nám í Fossvog, Ofanleiti, Stakka-
hlíð og Höfðabakka munu innan
nokkurra ára starfa í Vatnsmýri.
Kjartan Magnússon borgar-
fulltrúi sagði á fundi sjálfstæðis-
manna um borgarmál í síðasta
mánuði að hann teldi að það hefðu
verið mistök að úthluta lóð undir
Háskólann í Reykjavík við Öskju-
hlíð. Þetta auki enn á umferðar-
vandann í borginni sem sé ærinn
fyrir.
Um 3.000 nemendur eru í Há-
skólanum í Reykjavík og kennarar
eru um 250. Framkvæmdir við ný-
byggingu skólans eru hafnar en
gert er ráð fyrir að þar stundi nám
um 5.000 manns í framtíðinni.
Tækniháskólinn hefur sem kunnugt
er sameinast HR en hann er við
Höfðabakka.
18 þúsund bílar koma
daglega að nýjum spítala
En það er ekki bara HR sem er
að færa starfsemi úr Ofanleiti og
Höfðabakka. Ákveðið hefur verið
að sameina Kennaraháskólann Há-
skóla Íslands og undirbúningur
undir að flytja starfsemina við
Stakkahlíð að Suðurgötu er hafinn.
Engin ákvörðun liggur fyrir um
hvenær verður hafist handa við
byggingarframkvæmdir og lóð hef-
ur ekki verið úthlutað. Yfir 2.000
nemendur stunda nám við Kenn-
araháskólann, um helmingur í fjar-
námi. Daglega sækja yfir eitt þús-
und skólann heim, bæði nemendur
og kennarar og búast má við að
þeim fjölgi ef áform um að lengja
kennaranám ganga eftir.
Undirbúningur að byggingu nýs
spítala í Vatnsmýri er langt kominn
en með nýjum spítala er m.a. fyr-
irhugað að flytja starfsemi LSH við
Fossvog í Vatnsmýri.
Í skýrslu sem unnin var í
tengslum við byggingu nýs spítala
er fjallað um umferð við spítalann.
Þar kemur fram að þegar hann er
fullbyggður muni umferð að honum
og frá verða þrisvar sinnum meiri
en hún var árið 1997. Ferðir öku-
tækja til og frá spítalanum, þegar
hann hefur að fullu verið tekinn í
notkun, verði um 18 þúsund á
hverjum degi borið saman við 6
þúsund árið 1997. Í skýrslunni kem-
ur fram að á tímabilinu 7:30 til 8:30
á morgnana muni 2.160 bílar koma
inn á bílastæði spítalans. Miðað er
við að 83% þeirra sem erindi eiga á
spítalann, komi þangað með bíl og
þar af 11% sem farþegar. Lögð er
áhersla á það í skýrslunni að reynt
verði að gera almenningssamgöng-
ur eins aðlaðandi og kostur er, en
tekið er fram að í forsendum fyrir
útreikningunum sé ekki reiknað
með að hlutfallslega fleiri muni nota
þann ferðamáta í framtíðinni.
Í dag eru 1.264 bílastæði við
Landspítalann við Hringbraut. Mið-
að við núverandi starfsemi eru
þetta of fá stæði. Reiknað er með að
3.200 bílastæði verði við nýja spít-
alann. Í skýrslunni er tekið fram að
þetta kunni að vera of lítið og huga
þurfi að því hvort útbúa þurfi fleiri
stæði.
Í dag eru um 590 bílastæði við
Landspítalann í Fossvogi. Ekki
liggja fyrir nákvæmar upplýsingar
um hvað margir leggja leið sína á
LSH í Fossvogi á hverjum degi en
fullyrða má að þeir skipti þúsund-
um, þ.e. starfsmenn, sjúklingar og
aðstandendur þeirra. Varlega áætl-
að er því óhætt að fullyrða að flutn-
ingur HR í Öskjuhlíð, flutningur
Kennaraháskólans í Suðurgötu og
flutningur starfsemi LSH í Foss-
vogi í Vatnsmýri fjölgi þeim sem
eiga erindi á Vatnsmýrarsvæðið um
a.m.k. 10 þúsund manns á degi
hverjum.
Á sama tíma og verið er að flytja
störf vestar í borgina fjölgar íbúum
austast á höfuðborgarsvæðinu hins
vegar stöðugt. Árið 1997 bjuggu
42% borgarbúa í Breiðholti, Árbæ
og Grafarvogi. Þetta hlutfall var
komið í 46% í árslok 2006. Þá eru
ótaldir íbúar Mosfellsbæjar en þar
búa í dag um 8 þúsund manns.
Samkvæmt aðalskipulagi Reykja-
víkur verður stærstur hluti upp-
byggingar á íbúðarhúsnæði á kom-
andi árum í austari hluta
borgarinnar, þ.e. í Úlfarsárdal,
Grafarholti, Grafarvogi og Árbæj-
arhverfi.
Byggja þarf 45-50
mislæg gatnamót
Vegagerðin hefur undanfarin ár
tekið saman tölur um umferð á ein-
stökum vegum á landinu. Tölur fyr-
ir árið 2007 liggja ekki fyrir. Tölur
fyrir árin þar á undan sýna að um-
ferð er stöðugt að aukast. Árið 2000
fóru um Ártúnsbrekkuna 65.700
bílar á dag en árið 2006 var umferð-
in komin upp í 77.500 bíla. Þetta er
18% aukning á sex árum. Árið 2000
var umferð um Reykjanesbraut við
Breiðholtsbraut 42.000 bílar á dag
en árið 2006 var fjöldinn kominn
upp í 50.500 bíla. Þetta er 20%
aukning.
Í skýrslu um stofnvegakerfi á
höfuðborgarsvæðinu sem unnin var
fyrir Vegagerðina og kom út sl.
sumar segir að ef þróun byggðar og
umferðar verði með svipuðum hætti
næstu áratugina og verið hefur
undanfarin ár, „sé ekki ólíklegt að
ástand umferðar versni í stofnkerf-
inu, jafnvel þótt fjárveitingar í ný-
framkvæmdir verði svipaðar og á
undanförnum árum“.
Í skýrslunni segir að á undan-
förnum árum hafi verið byggð 17
mislæg gatnamót en á næstu árum
þurfi að byggja 45-50 mislæg vega-
mót til viðbótar. Það þýði að verja
þurfi 2 milljörðum króna að jafnaði
á hverju ári næstu 50 árin í nýfram-
kvæmdir í stofnvegakerfi höfuð-
borgarsvæðisins.
Á að byggja í Vatnsmýrinni?
Eins og hér hefur verið bent á
byggist það skipulag sem Reykja-
víkurborg vinnur eftir á því að
fjölga íbúum í úthverfum í austari
hluta borgarinnar og samhliða er
verið að fjölga störfum vestast í
borginni, m.a. með því að staðsetja
alla háskóla borgarinnar þar.
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfis- og samgönguráðs
borgarinnar, sagði á fundi sjálfstæð-
ismanna sem minnst var á hér að
framan, að hluti lausnarinnar á sam-
gönguvanda borgarinnar væri að
byggja íbúðabyggð í Vatnsmýrinni.
Hann gekk raunar svo langt að
segja á fundinum að þetta væri
stærsta umhverfismál sem borg-
arbúar stæðu frammi fyrir. Þetta
myndi m.a. leiða til þess að fólk sem
byggi í Vatnsmýrinni gæti gengið í
vinnuna til hinna fjölmennu vinnu-
staða sem þar verða.
Engin úttekt hefur verið gerð á
því hvaða áhrif íbúðabyggð í Vatns-
mýri hefði á umferð. Heimildarmað-
ur sem blaðið ræddi við hjá Vega-
gerðinni sagði þó óhætt að fullyrða
að mörg þúsund manna byggð í
Vatnsmýrinni myndi auka umferð
um Miklubraut og Hringbraut að
mun.
Það má einnig velta því fyrir sér
hvort ekki sé skynsamlegt að hafa
fjölmenna vinnustaði nær úthverf-
unum líkt og Kjartan Magnússon
nefndi á fundi sjálfstæðismanna.
Það ætti að geta stuðlað að minna
umferðarálagi vestar í borginni.
Um 10 þúsund manna vinnustaðir
fluttir í Vatnsmýri á næstu árum
Á næstu árum er fyrirhugað að flytja þrjá fjölmenna
vinnustaði á Vatnsmýrarsvæðið. Þetta eru Háskólinn
í Reykjavík, Kennaraháskólinn og Landspítalinn í
Fossvogi. Það lætur nærri að um 10 þúsund manns
sæki þessa vinnustaði dag hvern. Á sama tíma teygist
byggðin enn lengra til austurs.
!
+<3992=>
> ? 0 @ 7 A : 0
67>B72=>
49387 98@7> 7> )73 7>3@C>BD>
0EF7A<6D>
"!
''
'
&#!'''
#$!
'''
!'
''
!'''
"!'''
(!'''
#%!'''$!'''
!''
'
#(!'''
#(!'''
((!'''
$(!'''
$
!''
'
#'!'''
#"!
'''
!'''
#!'''!'''
&#!'''
(!'''
!''' ##!'''
(!'''
$$!'''
#&!'''
#
!''
'
#!'''
# !'''
# $
3-/- )
.
!'''
% &
/
+* ! ''
' &
C 1 *#!''
' &
C 1 *(''
(
)
&
(
)
&
Í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Reykjavíkurborg fyrir
einu ári um ferðavenjur borgarbúa kemur fram að 77% borgarbúa á
aldrinum 16-80 ára ferðast á eigin bíl til vinnu og í skóla, þar af voru
4% farþegar í bílnum. 12% fara fótgangandi, 7% fara með strætó og 2%
fara á reiðhjóli.
Fæstir fara á bíl í yngsta og elsta aldurshópnum. Könnunin leiddi í
ljós að um 83% fólks á aldrinum 35-54 ára fara til og frá vinnu á eigin
bíl. Innan við 2% í þessum aldurshóp nota strætó. Um 10% ferðast fót-
gangandi og um 3% hjóla.
Fólk var einnig spurt hvernig grunnskólabörn þess hefðu farið í skól-
ann. 69% sögðu að börnin gengju í skólann, en hvorki meira né minna
en 34% sögðu að börnin færu með bíl í skólann. Ekki var mikill munur
milli hverfa nema hvað hlutfallslega fleiri börn í Vesturbæ og Árbæ fara
með strætó í skólann eða 12%.
Könnunin var gerð í nóvember og desember árið 2006. Úrtakið var
1.200 manns og svarhlutfall var 63%.
77% fara á bíl til vinnu eða í skóla