Morgunblaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 32
Harðir rokkarar felldu
tár þegar örsamfélag
þeirra leið undir lok …34
»
reykjavíkreykjavík
La Traviata var frumsýnd í Íslenskuóperunni á föstudagskvöldið ogskeyttu gestir engu um snarvitlaustveðrið, bitu á postulínsjaxlana,
vöfðu þétt að sér pelsunum og hlýjuðu sér
kampakátir á freyðivíni áður en sýningin hófst.
Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunnar
og dóttir hans myndlistarmaðurinn Gabríela
voru mætt og var villta stelpan sú óvenju prúð
í fasi, allt að því venjuleg, og Margrét Hugrún
Gústavsdóttir blaðamaður var fínleg og sæt
eins og álfamær. Þegar ljósin höfðu verið
slökkt og fyrstu tónarnir bárust um salinn var
Þorfinni Ómarssyni fjölmiðlamanni og fylgd-
arfólki hans vísað til sætis með aðstoð vasa-
ljóss. Hann var svo aftur síðastur til að fá sér
sæti eftir hlé. Annars var hléið alltof langt og
Fluga beið óþolinmóð eftir liðinu sem dólaði
sér á svölunum; leikaranum Gunnari Eyjólfs-
syni sem leit sérlega vel út; unglegur og vel
,,tanaður“, þeim feðgum og stórsöngvurum
Garðari Cortes og Garðari Þór jr, og svo for-
sætisráðherra, Geir Haarde, og Ingu Jónu
Þórðardóttur. Og líka var beðið eftir Degi B.
Eggertssyni, fyrrverandi borgarstjóra sem lá
greinilega ekki á að setjast, kannski smeykur
um að einhver annar væri kominn í stólinn
hans. Flottasta parið var án efa þeir Bergþór
Pálsson óperusöngvari og Albert Eiríksson
spúsi hans, báðir fínpússaðir með þokkalegar
þverslaufur. Aðeins öðruvísi yfirbragð var á
gestum hljómsveitarstaðarins Organs kvöldið
áður en þá sáu Fluga og félagar bandið Benny
Crespós Gang troða upp með söngkonunni
Lay Low innanborðs. Brjálað stuð á bandinu
sem var auðvitað klappað upp í lokin. Þau voru
líka nett í Naflakusk og þægilegt var að njóta
lifandi tónlistar þar sem ekki var of mikið af
fólki. Biggi í Maus leyndist þó á meðal gesta.
Á Myrkum músíkdögum var staldrað við í
Norræna húsinu og litið inn á hádegistónleika
til tilbreytingar en þar tróðu upp þau Andrea
Carola Kiefer harmónikkari og Ingólfur Vil-
hjámsson sem blés í bassaklarínett. Tónskáld
þjóðarinnar mættu að sjálfsögðu; meðal ann-
arra Snorri Sigfús Birgisson og Atli Heimir
Sveinsson. Í óveðrinu á föstudaginn fauk
hæstarréttarlögmaðurinn Sveinn Andri
Sveinsson eftir Austurstræti, alls óhræddur
við storminn, orðinn svona líka slank og með
fagurt skegg. Á laugardaginn var framsókn-
armaðurinn Bjarni Harðarsson fjörugur í
gemsanum hjá Braga bóksala á Klapp-
arstígnum að lýsa vel lukkuðum fundi: ,, ... þar
sem ég sló alveg í gegn.“ Og í Ríkinu í Austur-
stræti sama dag var Sverrir Tattú Einarsson
að kaupa sér nokkra bjóra. Fluga hefur reynd-
ar til siðs að nafngreina ekki þá sem hún hittir
í vínbúðinni – en Sverrir Tattú er með breitt
bak og þolir fjölmiðlaumræðu svo skratti vel ...
Atli Rafn og Karl Guðmundsson.
Aðalheiður Halldórsdóttir og
Davíð Þór Jónsson.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson
(sem átti einmitt afmæli þetta kvöld).
Hallgrímur Helgason og
Björn Hlynur Haraldsson.
Ilmur Stefánsdóttir, Stefán Jónsson
og Hugleikur Dagsson.
Árvakur/Kristinn
María Baldvinsdóttir, Ari Trausti Guðmunds-
son og dóttir þeirra Helga Aradóttir.
Tinna Magnúsdóttir, Karvel Pálmason og
Birgir Örn Birgisson.
Diddú og Sigurbjörg Stefánsdóttir.
Ósk Aradóttir og Þórdís Sigurðardóttir.
Ása Eyjólfsdóttir, Eydís Eyjólfsdóttir
og Davíð Sveinsson.
Flugan
… Bitið á postulínsjaxlana
í Íslensku óperunni …
… Bjarni Harðar slær í gegn
– að eigin sögn …
Sr. Valgeir Ástráðsson, Áslaug Björnsdóttir
og Gunnar Sch. Thorsteinsson.
Tónlistarhjónin Gunnar Kvaran og Guðný
Guðmundsdóttir heilsa uppá Shlomo Mintz,
að loknum frábærum tónleikum.
Árni Arinbjarnarson, Lydia Haraldsdóttir,
Sigríður Hrafnkelsdóttir og Örnólfur Krist-
jánsson.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Rut Ingólfsdóttir og Björn Bjarnason ásamt
sr. Vigfúsi Þór Árnasyni sóknarpresti.
» Stórvirkið La Traviata varfrumsýnt í Íslensku óp-
erunni á laugardagskvöld.
» Baðstofan, síðasti hlutinn afþríleik Hugleiks Dags-
sonar, var frumsýnd á laug-
ardagskvöldið.
» Fiðlusnillingurinn Shlomo Mintz lék fyrir heillaða tónleikagesti í Grafarvogskirkju á laugardaginn.
Ljósmynd/hag