Morgunblaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HAGKERFI ríkja heims eru við- kvæm fyrir niðursveiflu í kjölfar lánakreppunnar svokölluðu, á tíma- bili lækkandi húsnæðisverðs, him- inhás olíuverðs og verðbólgu. Þetta er niðurstaða fjármálaráð- herra G7-ríkjanna, sjö ríkustu ríkja heims, sem komu saman til fundar í Tókýó um helgina. Fulltrúar ríkjanna voru einhuga um að standa ekki aðgerðalausir andspænis þessari þróun, á sama tíma og ríki heims yrðu að ákveða sjálf til hvaða aðgerða þau gripu til að vega á móti áhrifunum af kóln- un hagkerfanna að undanförnu. Hættan á niðursveiflu í Banda- ríkjunum hefði aukist og sagði Peer Steinbrück, fjármálaráðherra Þýskalands, að ríkin sjö óttuðust nú að afskriftir vegna húsnæðislánakreppunnar vestan- hafs gætu numið alls 400 millj- örðum Bandaríkjadala, um 27.020 milljörðum íslenskra króna. Síðustu ár hafa verið ár mikils hagvaxtar í mörgum ríkjum og reikna G-7 ríkin með að hægja muni á vextinum á næstunni. Dollarinn mun veikjast frekar Þrátt fyrir það skilaði fundurinn ekki þeirri afdráttarlausu niður- stöðu sem fjárfestar höfðu vænst og var útkoman talin mundu hafa neikvæð áhrif á gengi hlutabréfa og Bandaríkjadals næstu daga. Mikið hefur verið rætt um áhyggjur af því að kreppa sé yf- irvofandi í bandarísku efnahagslífi og sagði Henry Paulson, fjármála- ráðherra Bandaríkjanna, að nokk- urn tíma myndi taka að sigla í gegnum þann efnahagslega óróa sem þetta stærsta hagkerfi heims er nú í. Umræður um stöðuna vest- anhafs voru fyrirferðarmiklar á fundinum og sagði Ryohei Mura- matsu, yfirmaður hjá Commerz- bank í Tókýó, að talið væri að Bandaríkjadalur héldi áfram að lækka og að áhyggjur af hugs- anlegri kreppu í Bandaríkjunum myndu ekki líða hjá. Þá sagði Jean-Claude Trichet, bankastjóri Evrópska seðlabank- ans, ECB, að bankinn útilokaði ekki að vextir yrðu lækkaðir eða hækkaðir, nú þegar áhyggjur af vexti í evruríkjunum 15 fara vax- andi. Hagkerfi heimsins viðkvæmt fyrir niðursveiflu á næstunni Fjárfestar óánægðir með niðurstöðu fundar fjármálaráðherra G7-ríkjanna í Tókýó Reuters Valdamiklir Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna (t.h.), og hinn þýski starfsbróðir hans, Peer Steinbrück, stinga saman nefjum í Tókýó. Í HNOTSKURN »G7-ríkin eru Bretland, Kína,Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Japan og Bandaríkin. »Meðal niðurstaðna fundarinsvar að hvetja helstu olíu- framleiðsluríkin til að auka framleiðslu, miklar verðhækk- anir hefðu átt þátt í vaxandi verðbólgu að undanförnu. »Henry Paulson, fjár-málaráðherra Bandaríkj- anna, taldi efnahag landsins mundu halda áfram að vaxa og líklega komast hjá kreppu. DAGUR heilags Haralampi var í gær. Hann er dýrlingur býflugnabænda innan rétttrúnaðarkirkjunnar og mun hafa uppgötvað lækningamátt hunangs fyrstur manna. Þeir sem trúa á dýrlinginn í Blageoevgrad í Búlgaríu voru meðal þeirra sem heiðruðu heilagan Haralampi. Þeir söfnuðust saman í kringum kerti sem fest voru við hunangsglös. Hunang, sem er mikilvæg framleiðsluvara í Búlgaríu, hefur verið framleitt þar í yfir 3.000 ár. Reuters Heilagur Haralampi heiðraður Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is Í GÆR var fórnarlamba húsbruna minnst í Ludwigshafen í Þýskalandi. Níu manns létust í brunanum fyrir viku, þar af fimm börn. Fólkið var allt tyrkneskir innflytjendur. Bruninn og hvernig staðið var að björgunar- aðgerðum hefur vakið harðar deilur í tyrk- neskum og þýskum fjölmiðlum og í kjölfarið hafa innflytjendamál komist í hámæli. Tyrkneskir fjölmiðlar höfðu slegið upp fyr- irsögnum af meintum seinagangi lögreglu og slökkviliðs við björgunina, auk þess sem grunur um að nýnasistar hafi kveikt í íbúðarhúsinu hef- ur kynt undir frekari gagnrýniröddum. Ekkert hefur enn komið fram sem getur staðfest að um íkveikju hafi verið að ræða, ann- að en frásögn tveggja ungra stúlkna sem sögð- ust hafa séð ókunnan mann í stigaganginum er kveikt hefði í barnavagni. Lögreglan hefur gef- ið út yfirlýsingu um að rannsóknin muni taka langan tíma og að þjóðin verði að sýna þol- inmæði. Í Tyrklandi er vel fylgst með málefnum Tyrkja sem búsettir eru í Þýskalandi og er líf þeirra hluti af tyrkneskum innanríkisstjórn- málum, en í Þýskalandi búa nú um 2,7 milljónir Tyrkja. Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Er- dogan, var í vikunni staddur í Þýskalandi vegna öryggisráðstefnu sem haldin er í München. Hann lagði leið sína til Ludwigshafen á vett- vang brunans, til að telja kjark í landsmenn sína. Erdogan hvatti jafnframt landsmenn sína til að taka aðlögun sína að þýsku samfélagi al- varlega. Samkvæmt vef dagblaðsins Süd- deutsche Zeitung er leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í Tyrklandi einnig væntanlegur á vettvang. Áhugi tyrkneskra stjórnmálamanna á brun- anum hefur verið túlkaður á mismunandi hátt í Þýskalandi. Sumir telja að með honum sé sýnd eðlileg hluttekning eftir svo skelfilegan atburð. Greinarhöfundur dagblaðsins Die Zeit kemur hins vegar fram með þá sýn að áhugi Erdogan forsætisráðherra sé ekki síður í eiginhags- munaskyni. Brátt geti Tyrkir kosið bréfleiðis sem þýði að um 1,7 milljónir Tyrkja geti kosið á auðveldan hátt. Með ferðinni til Ludwigshafen auk 20.000 manna samkomu sem hann ávarpaði í Köln í gær, hafi Erdogan líklega tekist að verða sér úti um allmarga stuðningsmenn. Lale Akgün, þingmaður sósíaldemókrata í Þýskalandi, er af tyrkneskum uppruna. Hún segir fjöldasamkomu Erdogans lýsandi fyrir málefni innflytjenda í Þýskalandi. Tyrkneskir innflytjendur líti ekki á Þýskaland sem heima- land sitt og Erdogan kyndi undir þeirri tilfinn- ingu með því að ávarpa svo stóra samkomu, án þátttöku þýsks leiðtoga. Það ýti undir að Tyrkj- um þyki þýskir stjórnmálamenn ekki sýna þeim áhuga, sem tyrknesk stjórnvöld hinsvegar geri. Hiti í þýskum innflytjendamálum  Níu tyrkneskir innflytjendur létust um síðustu helgi í húsbruna í Ludwigshafen í Þýskalandi  Tyrkneskum fjölmiðlum hefur verið gefið að sök að kynda undir óvilja í garð lögreglunnar Reuters Minningarathöfn Zeki Kaplan, eigandi húss- ins er brann, minnist fórnarlambanna. Lundúnir. AP. | Camden-markaðurinn í Lundúnum stóð í ljósum logum á laugardagskvöldið. Það tók hundrað slökkviliðsmenn um þrjár klukku- stundir að slökkva eldinn, sem teygði sig hátt upp yfir norðurhluta Lundúna. Ekki urðu meiðsli á fólki en eldurinn olli miklum skemmdum á föt- um og öðrum söluvörum markaðar- ins. Byggingar í grenndinni urðu einnig fyrir nokkrum skemmdum, þ.m.t. Hawley Arms kráin sem er þekkt fyrir fræga viðskiptavini. Eldurinn braust út á áttunda tím- anum á laugardagskvöldið og ekki er vitað um orsakir hans. Camden-markaðurinn er einn af aðal-verslunar- og ferðamannastöð- um Lundúna og eru sunnudagar þar þekktir fyrir mikið mannlíf. Í gær var markaðnum haldið lokuðum og unnu slökkviliðsmenn að því að slökkva í glæðunum. Bruni í Lundúnum Camden Glær- ingar flugu hátt. Ekki vitað um upptök eldsins á Camden JOSE Ramos-Horta, forseti Austur- Tímor, særðist alvarlega þegar reynt var að ráða hann af dögum í gær. Fregnir um miðnætti í gær hermdu að hann hefði verið skotinn í magann, en óljóst var hversu alvar- lega hann var særður. Árásarmaðurinn var skotinn til bana á staðnum. Ramos-Horta fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1996, en A-Tímor fékk sjálfstæði árið 2002. Morðtilræði á A-Tímor Peking.AFP. | Mannasiðir Kínverja eru ekki nógu góðir til að hæfa Ólympíu- leikunum sem þar verða haldnir í ár. Renmin-háskólinn í Peking hefur hannað „mannasiðastuðul“ sem sýna á hversu oft íbúarnir haga sér óvið- eigandi og hvernig yfirvöldum geng- ur að siða þá til. Stuðullinn, sem er fenginn með reglulegum skoð- anakönnunum, var á síðasta ári 73,38 af 80 stigum mögulegum. Tíu þúsund íbúar voru spurðir út úr og þrjú þús- und klst. eytt í að fylgjast með hegð- un á götum úti. Samkvæmt nýjum athugunum er ástandið að lagast, er nú hrækt minna, rusli síður hent og sjaldnar troðist fram fyrir í röðum en áður. Haldnir hafa verið „ekki-troðast-í röðum“-dagar, sektað fyrir hráka og betlarar fjarlægðir af götunum. Mannasið- ir bættir í Peking Undirbúningur fyrir Ólympíuleika ♦♦♦ AÐ MINNSTA kosti 23 létust í Írak þegar bíll sprakk á markaði í bænum Balad, norður af Bagdad í gær. Talið er að um 25 hafi særst. Sprengingin var mjög öflug og byggingar hrundu. Tilkynnt var um sprenginguna um það leyti sem Robert Gates, ritari varnarmála Bandaríkjanna, kom til Bagdad. Sprengingin er liður í röð atburða í Norður-Írak og munu yf- irvöld í samstarfi við Bandaríkjaher leita aðferða til að bæta öryggi. Mannfall í Bagdad ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.