Morgunblaðið - 17.02.2008, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
bmvalla.is
AÐALSKRIFSTOFA Bíldshöfða 7 :: 110 Reykjavík
Skrifstofustarf
BM Vallá hf. óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins
á Bíldshöfða 7 í Reykjavík.
Í starfinu felst meðal annars:
:: Reikningaútskrift
:: Innheimta
:: Afstemmingar
:: Ritvinnsla
:: Önnur tilfallandi verkefni
Starfið gæti hentað vel einstaklingi með viðskiptamenntun og/eða fjöl-
breytta reynslu af skrifstofustörfum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn ásamt ferilskrá óskast send á netfangið
helga@bmvalla.is
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk.
BM Vallá hf. er traust og
þjónustudrifið sölu- og
framleiðslufyrirtæki á
byggingamarkaðnum sem
leggur áherslu á að uppfylla
þarfir viðskiptavina sinna á
sem hagkvæmastan hátt.
Fyrirtækið er með starfsemi
sína á 11 starfsstöðvum
víða um landið.
Bókari - launafulltrúi
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða bókara
– launafulltrúa sem allra fyrst. Starfsmaðurinn
sér um bókhald Sjálfsbjargarheimilisins, allar
afstemmingar og undirbúning fyrir endurskoð-
un. Einnig sér starfsmaðurinn um launavinnslu
að hluta til og tilfallandi störf á skrifstofu.
Starfsmenn eru tæplega 100. Góð kunnátta í
bókhaldi svo og launaútreikningi er nauðsyn-
leg. Starfshlutfall er 80%. Unnið er með dk
bókhaldskerfi og Hlaun. Góðir samstarfs- og
samskiptahæfileikar eru mikilvægir og einnig
frumkvæði í starfi.
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk.
Laun taka mið af kjarasamningi SFR stéttar-
félags í almannaþjónustu við fjármálaráðherra
f. h. ríkissjóðs.
Upplýsingar um starfið veitir Þórdís Richter,
skrifstofustjóri í síma 5500311 eða richter@sbh.is.
BM Vallá hf. er traust og
þjónustudrifið sölu- og
framleiðslufyrirtæki á
byggingamarkaðnum sem
leggur áherslu á að uppfylla
þarfir viðskiptavina sinna á
sem hagkvæmastan hátt.
Fyrirtækið er með starfsemi
sína á 11 starfsstöðvum
víða um landið.
bmvalla.is
AÐALSKRIFSTOFA Bíldshöfða 7 :: 110 Reykjavík
Skrifstofustarf – móttaka
BM Vallá hf. óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins
á Stórhöfða 23 í Reykjavík. Um er að ræða skrifstofustarf í móttöku.
Í starfinu felst meðal annars:
:: Móttaka viðskiptavina
:: Móttaka og flokkun á pósti
:: Skönnun skjala í rafræn viðskiptakerfi
:: Ritarastörf og afgreiðsla
:: Eftirfylgni símsvörunar
:: Önnur tilfallandi verkefni
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða þjónustulund,
eigi gott með að umgangast fólk og hafi snyrtilega og
fágaða framkomu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn ásamt ferilskrá óskast send til starfsmannasviðs
á netfangið sigrun@bmvalla.is eða í bréfapósti til BM Vallá hf.,
Gylfaflöt 9, 110 Reykjavík, merkt starfsmannasvið.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Lárus Dagur Pálsson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 412 5000.
:: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: ::
Starfsemi BM Vallá á Gylfaflöt 9 flytur á Stórhöfða 23 þann 1. mars nk.
Á þeirri starfstöð verður byggingasvið fyrirtækisins sem annast hönnun
og sölu heildarlausna, söluskrifstofa, innkaupadeild, markaðsdeild,
starfsmannahald, bókhald og skrifstofur.
Fréttir á SMS
Raðauglýsingar sími 569 1100