Morgunblaðið - 17.02.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.02.2008, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Umhverfis- og samgöngusvið Heilbrigðisfulltrúi - Heilbrigðiseftirlit og vöktun Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Í samræmi við leiðarljós Heilbrigðiseftirlits og vöktunar, miðar starf heilbrigðisfulltrua að því að tryggja borgar- búum heilnæm lífsskilyrði og vernda heilnæmt og ómengað umhverfi. Helstu verkefni: • Reglubundnu eftirliti með starfsemi í samræmi við lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, lög um matvæli nr. 93/1998 og lögum nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni og reglugerðum skv. þeim. • Skráningum og skýrslugerð, sinna kvörtunum og annast fræðslu. • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfslýsingu fyrir heilbrigðisfulltrúa og samkvæmt fyrirmælum deildarstjóra. • Samstarf og samvinna milli deilda Heilbrigðiseftirlits og vöktunar. Menntunar- og hæfniskröfur sem hafðar verða til viðmiðunar við val á umsækjendum: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda, eða sambærileg menntun. • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. • Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagningu í starfi • Réttindi til að mega starfa sem heilbrigðisfulltrúi æskileg. Launakjör fara að kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar veitir Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits og vöktunar og Arnfinnur U. Jónsson starfsmannastjóri hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 10- 12, frá kl. 9-16 í síma 411 8500. Umsóknir skulu berast til Umhverfis- og samgöngu- sviðs Reykjavíkurborgar eigi síðar en 3. mars nk. merktar „Heilbrigðisfulltrúi - Heilbrigðiseftirlit og vöktun“. Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja því það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein að sækja um. Konur er því hvattar til þess að sækja um starfið. Reykjavík 15. febrúar 2008. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti og vöktun. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum Reykjavíkurborgar og samanstendur af skrifstofum Samgöngumála, Neyslu og úrgangs og Náttúru og útivistar, auk Staðardagskrár 21 og Heilbrigðiseftirlits og vöktunar, sem fyrir utan Hundaeftirlit skiptist í þrjár deildir: Hollustuhætti, Mengunarvarnir og Matvælaeftirlit. Helstu verkefni Umhverfis- og samgöngusviðs eru: heilbrigðis og mengunarvarnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar og þróunarverkefni á sviði umhverfis og samgöngumála. Áhugavert starf í boði Orgelleikari Félagssamtök á Reykjavíkursvæðinu óska eftir að komast í samband við orgelleikara. Nauð- synlegt er að áhugi sé til þátttöku í almennu félagsstarfi. Áhugasamir vinsamlegast sendið nafn til auglýsingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is merkt: ,,Orgelleikari - 212262”. Duglegir lagermenn óskast 1912 ehf. leitar að duglegum lagerstarfsmönnum. ÍS L E N S K A /S IA .I S /N A T 41 15 6 02 /0 8 www.1912.is Vinnutími er alla virka daga frá kl. 7 eða vaktir kl. 14-23 mánud. – fimmtud. Umsjón með ráðningu: Hanna Dóra Haraldsdóttir, starfsmannastjóri – hdh@1912.is Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2008. 1912 ehf. er móðurfyrirtæki Nathan & Olsen hf. og Ekrunnar ehf., en þau eru leiðandi fyrirtæki á sviði sölu og dreifingar á matvælum. STARFSSVIÐ Vörumóttaka Tilltekt á pöntunum Vöruafgreiðsla Öll almenn lagerstörf HÆFNISKRÖFUR Reynsla af lagerstörfum skilyrði Vinnuvélaréttindi æskileg Heiðarleiki og sjálfstæð vinnubrögð Þjónustulund og miklir samskiptahæfileikar Reglusemi og reykleysi Hreint sakavottorð skilyrði Bifreiðasmiður Bílamálun Sigursveins óskar eftir bifreiðasmið eða manni vönum bílréttingum, sem fyrst til starfa. Góð laun fyrir góðan mann. Upplýsingar í síma 568 5360 eða e-mail bilamalun@bilamalun.is Formenn landssambanda og stærstu aðildarfélaga innan Alþýðusambands Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa orðið ásátt um meginútlínur launaliðs nýrra kjarasamn- inga, með fyrirvara um að ásættanleg niðurstaða fáist í viðræðum aðildarsamtakanna um sérmál. Þetta kemur fram í yfirlýs- ingu á vefsíðu ASÍ. Gildir til nóvemberloka 2010 Við það er miðað að kjara- samningar gildi til nóvember- loka ársins 2010 og feli í sér hækkun almennra launataxta um kr. 18.000 við undirskrift, kr. 13.500 árið 2009 og kr. 6.500 árið 2010 og að launa- taxtar iðnaðarmanna hækki um kr. 21.000 við undirskrift, kr. 17.500 árið 2009 og kr. 10.500 árið 2010. Við það er miðað að nýjar launatöflur taki gildi á hverju ári og ekki er gert ráð fyrir að heimilt verði að lækka álags- greiðslur á móti taxtabreyt- ingunni. Samkomulag er um launa- þróunartryggingu. Í því felst að þeir sem verið hafa í starfi hjá sama atvinnurekanda og hafa ekki fengið að lágmarki 5,5% launahækkun frá 2. jan- úar 2007 til undirritunar samninga fái það sem á vant- ar. Ennfremur verði ákvæði fyrir þá sem skipt hafa um starf fram til 1. september 2007. Á árinu 2009 verði launaþróunartryggingin 3,5%. Árið 2010 verði almenn launahækkun upp á 2,5%, auk fyrrgreindra taxtahækkana. Byggist á aðkomu stjórnvalda Landssamböndin innan ASÍ munu hvert fyrir sig funda með SA næstu daga til að ljúka sérmálum og þá er einnig verið að kappkosta að ljúka þeim sameiginlegu mál- um sem verið hafa á borði ASÍ gagnvart Samtökum atvinnu- lífsins. Þessi niðurstaða byggist af hálfu aðildarsamtaka ASÍ á ásættanlegri aðkomu stjórn- valda, segir að lokum í yfirlýs- ingunni. Árvakur/Árni Sæberg Samningar ASÍ og SA eru komin langt áleiðis með samn- ingana. Hér frá fundi með Ásmundi Stefánssyni. Yfirlýsing ASÍ vegna kjaraviðræðna Félags- og trygginga- málaráðherra, Jóhanna Sig- urðardóttir hefur úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna að upphæð kr. 15.790.000. Styrkjunum er ætlað að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur og eru með áhugaverða viðskipta- hugmynd. Frá þessu er sagt á vefsíðu Vinnumálastofnunar. 28 verkefni fengu styrk Að þessu sinni var um að ræða aukaúthlutun styrkja til atvinnumála kvenna fyrir árið 2007 vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar og því mestu úthlutað til kvenna á landsbyggðinni. Alls bárust 115 umsóknir en 28 verkefnum er úthlutað styrk, allt frá 200.000 til 1.500.000 króna. Stærstu styrkina fá verkefnin Spá- konuhof á Skagaströnd og búningaleiga á Akureyri. Mikil fjölbreytni var í við- skiptahugmyndum umsækj- enda en meðal þeirra verk- efna sem styrkt eru má nefna vöruþróun í lífrænni sultu- gerð, stofnun og markaðs- setning á útfararstofu, „sölu“ á lifandi fé auk ýmiskonar verkefna sem ætlað er að styrkja ferðaþjónustu, m.a. á Patreksfirði, Bakkafirði og í Húnaþingi. Samhliða stórauknu fjár- magni til styrkja atvinnumála kvenna hefur verið ákveðið að efla til muna stuðning og ráð- gjöf við konur sem hafa áhuga á að vinna með sínar við- skiptahugmyndir í samstarfi við aðrar konur um allt land. Vinnumálastofnun mun innan tíðar kynna þá þjónustu bet- ur, en þessa dagana er verið að auglýsa eftir starfsmanni sem mun annast það verkefni innan stofnunarinnar. Seinna á þessu ári verður úthlutað 50 milljónum í styrki til atvinnumála kvenna. Með þeirri úthlutun opnast tæki- færi fyrir fleiri konur til að láta drauma sína rætast og skapa sér áhugaverð atvinnu- tækifæri og vinna um leið að eflingu atvinnulífs í sínu byggðarlagi. Styrkir atvinnu- sköpun kvenna Morgunblaðið/Frikki Styrkir Jóhanna Sigurð- ardóttir styrkir framtaks- samar konur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.