Morgunblaðið - 01.04.2008, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
LÖGREGLAN hefur hætt rann-
sókn á því þegar dýrmætum sýnum,
einkum af fuglum, í eigu Náttúru-
fræðistofnunar Íslands var kastað
vorið 2006. Sýnin voru varðveitt í
frystigeymslu sem stofnunin hafði
þá leigt í um 16 ár. Jón Gunnar Ott-
ósson, forstjóri Náttúrufræðistofn-
unar, sagði að borist hefði bréf frá
lögreglunni nýlega þar sem tilkynnt
var að rannsókn hefði ekki skilað
neinum árangri og henni því verið
hætt.
Náttúrufræðistofnun óskaði eftir
því við lögregluna í Reykjavík
haustið 2006, að höfðu samráði við
umhverfisráðuneytið, að fram færi
opinber rannsókn á því hvað orðið
hefði um sýni í eigu íslenska ríkisins
sem varðveitt voru í frystigeymsl-
unni. Jón Gunnar kvaðst hafa spurst
fyrir um gang rannsóknarinnar
nokkrum sinnum bréflega en aðeins
fengið munnleg svör þar til bréfið
barst um að rannsókninni væri
hætt. Hann sagði að ekki hefði verið
fjallað endanlega um þessa niður-
stöðu innan stofnunarinnar og því
óvíst um framhaldið.
„Við þurftum að vita hvað gerðist
– hvað varð af þessum sýnum – áður
en við gátum farið að kæra,“ sagði
Jón Gunnar. „Við afhentum lögregl-
unni allar upplýsingar sem við höfð-
um, bæði um viðkomandi einstak-
linga og hvernig málið hafði borið
að. Það virtist ekki skila neinu og í
bréfi lögreglunnar eru engar upp-
lýsingar um rannsóknina. Það kem-
ur mér svolítið á óvart að málið skuli
vera afgreitt með þessum hætti.“
Sýnin höfðu verið í frystigeymslu
sem Náttúrufræðistofnun hafði haft
á leigu í um 16 ár og uppgötvaðist
tjónið haustið 2006. Í klefanum voru
geymd yfir tvö þúsund fuglasýni,
smáhvalur og ýmis minni sýni. Með-
al fugla í geymslunni voru sex haf-
ernir, fimmtíu fálkar, sjaldgæfir
flækingsfuglar og afar verðmæt
sería af teistum sem safnað hafði
verið um árabil. Sum sýnin voru allt
að þrjátíu ára gömul og því óbæt-
anleg.
Rannsókn á sýnahvarfi hætt
Yfir tvö þúsund fuglasýni, smáhvalur og fleira í eigu Náttúrufræðistofnunar voru
geymd í frystigeymslu í sextán ár áður en þau hurfu, þ.á m. 6 hafernir og 50 fálkar
Mortgunblaðið/RAX
Tæmt Frystigeymslurnar voru gal-
tómar þegar að var komið.
ATVINNUBÍLSTJÓRAR efndu til mótmæla á höfuð-
borgarsvæðinu í gær, en hringveginum var einnig lok-
að við Höfn í Hornafirði. Að sögn lögreglu varð lítils-
háttar töf á umferð og mynduðust biðraðir í allar áttir.
Flestir sýndu mótmælum bílstjóranna skilning en aðrir
settu upp hundshaus.
Ljósmynd/Eystrahorn
Biðraðir mynduðust í allar áttir
Atvinnubílstjórar lokuðu hringveginum við Höfn
VÖRUBÍLSTJÓRAR segja að al-
þingismenn og ráðherrar hafi skellt
skollaeyrum við mótmælaaðgerðum
bílstjóra að undanförnu og ætla að
ýta við þeim með því að sturta
nokkrum bílförmum af möl fyrir
framan Alþingi árdegis í dag.
Bílstjórar tepptu umferð á nokkr-
um helstu samgönguæðum í Reykja-
vík fyrir helgi og svo aftur í gær-
morgun til að mótmæla vökulögum,
háu eldsneytisverði og þungaskatti.
Sturla Jónsson, talsmaður bílstjóra,
segir að alþingismenn og ráðherrar
hafi sem fyrr virt bílstjóra og reynd-
ar allan almenning í landinu að vett-
ugi og ýmsar hugmyndir hafi verið
til umræðu til að vekja frekari at-
hygli ráðamanna á alvarleika máls-
ins. Þar sem fjármálaráðherra sé
dýralæknir að mennt hafi komið til
tals að sturta hrossataði eða
hænsnaskít framan við Alþingi en
þegar heyrst hafi af boðuðum mót-
mælum á Austurvelli klukkan 16 í
dag hafi verið ákveðið að gera fólki
ekki erfiðara fyrir með skít og ólykt
en dreifa miklu magni af möl fyrir
framan Alþingishúsið í staðinn. Möl-
in kæmi þá líka að gagni fyrir jeppa-
mennina sem myndu leika sér í tor-
færuakstri í henni síðdegis.
Sturla segir að vörubílstjórar ætli
að vera við Alþingi klukkan 10 ár-
degis, en ekki verði greint frá frekari
aðgerðum að svo komnu. | 11
Sturta möl
fyrir fram-
an Alþingi
Sturta Bílstjórar hafa verið iðnir
við að mótmæla að undanförnu.
Íhuguðu að sturta
taði en hættu við
SAMGÖNGUMIÐSTÖÐ sem hýsa
mun allar tegundir samgangna rís í
Vatnsmýrinni og telur borgin mik-
ilvægt að fyrsti áfangi samgöngu-
miðstöðvarinnar verði tilbúinn ekki
síðar en í árslok 2009.
Þetta kemur fram í frétt frá
Reykjavíkurborg, en á fundi borg-
arstjóra, Ólafs F. Magnússonar, og
Kristjáns Möller samgönguráðherra
kynnti borgarstjóri tillögu að lausn
samgöngumála í Vatnsmýrinni sem
felur í sér byggingu samgöngumið-
stöðvar sem verður miðstöð flug-
starfsemi, almenningssamgangna,
hópferðabifreiða, leigubifreiða o. fl.
Lóðin sem um er að ræða er vestan
Valssvæðisins og er sjö hektarar og
miðast sú stærð við flugstarfsemi.
Makaskipti þurfa að eiga sér stað
milli ríkis og borgar vegna þessa og
mun borgin heimila flugrekstrarað-
ilum sem nú hafa ekki aðstöðu á vell-
inum að nýta jaðar þeirrar lóðar til
að byrja með.
„Í samræmi við þetta hlutverk
samgöngumiðstöðvar leggur
Reykjavíkurborg áherslu á að öll
uppbygging og starfsemi vegna flug-
rekstrar í Vatnsmýri fari fram í fyr-
irhugaðri samgöngumiðstöð og sam-
einist þar á einu svæði í stað þess að
dreifast víða um Vatnsmýrina,“ seg-
ir þar ennfremur.
Samgöngu-
miðstöð rís
í mýrinni
„ÞETTA er eðlileg hæfniskrafa. All-
ir vegamálastjórar hingað til hafa
verið verkfræðimenntaðir,“ segir
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneyt-
isstjóri í samgönguráðuneytinu, um
auglýsingu vegna setningar í emb-
ætti vegamálastjóra. Embættið var
auglýst laust til umsóknar til eins árs
frá og með 1. maí sl., en í auglýsingu
um það er gerð krafa um verkfræði-
menntun eða sambærilega menntun.
Slíkt var ekki gert síðast þegar emb-
ættið var auglýst.
Gunnar Gunnarsson aðstoðar-
vegamálastjóri er lögfræðingur að
mennt og athygli Lögmannafélags
Íslands á málinu hefur verið vakin.
Að sögn Lárentsínusar Kristjáns-
sonar, formanns Lögmannafélags-
ins, mun stjórn þess að líkindum
fjalla um málið á stjórnarfundi á
morgun.
Lárentsínus segir að almennt sýn-
ist sér að samkvæmt starfsmanna-
lögum sé ráðherra líkast til heimilt
að gera kröfur um sérstaka menntun
vegna ráðningar vegamálastjóra.
Slíkt þurfi hins vegar að rökstyðja
mjög vel „og mér finnst þessi
ákvörðun hans kalla á það“. Hann
segir að þetta mál komi öllum sér-
fræðistéttum við, enda sé fyrst og
fremst um stjórnunarstöðu að ræða.
Ragnhildur Hjaltadóttir segir að í
samgönguráðuneytinu hafi menn
talið eðlilegt að óska eftir verkfræði-
þekkingu vegna ráðningarinnar.
Verið sé að setja vegamálastjóra í
embætti í eitt ár, en ekki skipa í stöð-
una til fimm ára, líkt og áður hefur
verið gert. Sú ákvörðun að setja í
embættið til eins árs tengist mögu-
legum skipulagsbreytingum í kjölfar
ábendinga frá Ríkisendurskoðun,
sem um þessar mundir vinnur að því
að skoða Vegagerðina og starfsemi
hennar. Hjá samgönguráðuneytinu
hafi menn átt von á því að endur-
skoðuninni lyki fyrr en raun hefur
orðið á, en vinnan við hana sé um-
fangsmikil. Þegar ábendingar berist
frá Ríkisendurskoðun verði farið yfir
þær og hugað að endurskipulagn-
ingu í framhaldinu. Ragnhildur segir
algengt að óskað sé eftir tiltekinni
þekkingu þegar stjórnendastörf séu
auglýst laus til umsóknar. Við aug-
lýsingu stöðunnar nú hafi verið litið
til þess að nýr vegamálastjóri taki
við stofnuninni með tiltölulega
skömmum fyrirvara og tímabundið.
Jón Rögnvaldsson, núverandi vega-
málastjóri, lætur af störfum 1. maí.
Hann hugðist upphaflega hætta 1.
mars, en ráðuneytið óskaði eftir að
hann gegndi stöðunni fram í maí. Að
sögn Ragnhildar er það í samræmi
við álit umboðsmanns Alþingis þess
efnis að nauðsynlegt sé að auglýsa
setningu í stöðuna í eitt ár.
Nýr vegamálastjóri
hafi verkfræðimenntun
Segir ráðherra þurfa að rökstyðja hæfniskröfurnar vel
Í HNOTSKURN
»Samgönguráðuneytið aug-lýsti í mars laust til umsókn-
ar embætti vegamálastjóra.
»Vegna fyrirhugaðrar endur-skipulagningar stofnunar-
innar er um að ræða setningu til
allt að eins árs frá 1. maí nk.
LISTI uppstillinganefndar náði
ekki kjöri í stjórn Landssambands
lögreglumanna og féll með 30% at-
kvæða. Listi sem borinn var fram
gegn lista uppstillingarnefndar
sigraði örugglega með 70% at-
kvæða og mun stýra Lands-
sambandinu næsta kjörtímabil.
Listi uppstillingarnefndar var
borinn fram af Gils Jóhannssyni, en
hann tapaði fyrir lista sem Snorri
Magnússon fór fyrir. 729 voru á
kjörskrá og greiddu 523 atkvæði
eða tæp 72%. Fékk listi uppstill-
inganefndar 151 atkvæði gegn 351
atkvæði listans sem sigraði.
Listi uppstill-
inganefndar féll
MIKILL meirihluti fólks telur að af-
brot séu mikið vandamál hér á
landi, að því er fram kemur í nýjum
þjóðarpúls Gallup. Þannig telja 72%
aðspurðra afbrot mikið vandamál,
16% að þau séu lítið vandamál hér á
landi og 12% taka ekki afstöðu.
Konur telja afbrot meira vanda-
mál en karlar og sú skoðun að þau
séu vandamál fer vaxandi með
aldri. Þá telja 80% aðspurðra refs-
ingar of vægar og einnig þar er af-
staða kvenna fremur afgerandi en
karla. 90% þeirra sem eru í yngsta
aldurshópnum telja refsingar of
vægar, en þeim fækkar eftir því
sem aldurinn færist yfir og í elsta
aldurshópnum, 55-75 ára, telja 68%
refsingar of vægar.
Refsingar
of vægar
♦♦♦
GYLFI Þor-
steinsson hefur
tekið við stöðu
auglýsingastjóra
Árvakurs. Hann
hefur verið aug-
lýsingastjóri
Morgunblaðsins
og Mbl.is. Gylfi,
sem starfað hef-
ur hjá Árvakri
frá 2005, hefur
nú einnig yfirumsjón með sölu aug-
lýsinga fyrir 24 stundir, en Steinn
Kári Ragnarsson hefur látið af
störfum sem sölustjóri þeirrar út-
gáfu.
Með sameiginlegri auglýsinga-
stýringu segir Gylfi að fyrirtækið
vonist til að samhæfa starfsemi sína
enn frekar, efla sókn inn á auglýs-
ingamarkaðinn og í senn veita við-
skiptavinum betri þjónustu og auka
hlut sinn á auglýsingamarkaði til
muna.
Auglýsinga-
stjóri Árvakurs
Gylfi
Þorsteinsson