Morgunblaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á ANNAN í páskum lést Þór Wil-
lemoes Petersen langt fyrir aldur
fram. Hann var aðeins sautján ára
og hafði barist við krabbamein í 10
ár.
Liverpool-fótboltafélagið var eitt
af helstu áhugamálum hans um
langt skeið og fór hann tvívegis til
Liverpool til að fylgjast með gengi
liðsins. Voru þær ferðir honum til
ómældrar ánægju og styrktu hann í
baráttu við sjúkdóm sinn.
Vinir og fjölskylda Þórs vinna nú
að stofnun minningarsjóðs í sam-
vinnu við Liverpoolklúbbinn á Ís-
landi. Markmið sjóðsins er að
styrkja börn sem eiga við erfiðleika
að etja til ferða á Anfield til að
fylgjast með leikjum Liverpool-
liðsins. Hér er átt við börn sem eiga
við erfiðleika að stríða vegna sjúk-
dóma, fötlunar eða félagslegra að-
stæðna. Skulu ferðirnar farnar
undir stjórn Liverpoolklúbbsins.
Í fyrstu stjórn sjóðsins munu
sitja: Ásgeir Haraldsson, prófessor
og yfirlæknir á Barnaspítala
Hringsins, Jón Óli Ólafsson, for-
maður Liverpoolklúbbsins á Ís-
landi, og Bárður Sigurgeirsson
læknir. Tekið er á móti framlögum
á bankareikning 140-26-9140,
131155-3369. Sjóðurinn er í vörslu
Landsbankans og Bárðar Sig-
urgeirssonar fram að formlegri
stofnun sjóðsins.
Hetjur Þór ásamt Jamie Carragher, leikmanni Liverpool, síðastliðið haust.
Styrktarsjóður fyrir sjúka
Liverpool-aðdáendur
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, flytur á morgun, þriðju-
daginn 1. apríl, fyrirlestur um lofts-
lagsbreytingar og nýjar öryggis-
ógnir á vegum Carnegie Council í
New York. Forseti mun einnig eiga
fundi með fjölmörgum sendiherrum
hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem
fjallað verður um framboð Íslands til
Öryggisráðsins að því er fram kem-
ur í frétt frá forsetaskrifstofunni.
Fyrirlesturinn hefst á morgun kl.
12 að íslenskum tíma og að honum
loknum mun forseti svara fyr-
irspurnum, en fyrirlestrinum verður
útvarpað og tenging á útsendinguna
á heimasíðu forsetaembættisins, for-
seti.is.
Forseti Íslands mun einnig á
morgun og miðvikudaginn 2. apríl
eiga fundi með sendiherrum ríkja í
Suður-Ameríku og með sendiherr-
um Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
hjá SÞ. Á fundunum verður fjallað
um framboð ið til Öryggisráðsins.
Mexíkó Í opinberri heimsókn for-
seta til Mexíkó nýlega lýsti forseti
Mexíkó, Felipe Calderón, yfir ein-
dregnum stuðningi við framboð Ís-
lands til Öryggisráðs SÞ.
Fyrirlestur
í New York
HP Farsímalagerinn ehf., sem rekur verslanir Hans Pet-
ersen og Farsímalagerinn, hefur sett á fót Ljósmynda-
skóla Hans Petersen á netinu. Markmið skólans er að
kenna undirstöðu í ljósmyndavinnslu bæði fyrir áhuga-
menn og þá sem hyggja á frekara ljósmyndaranám.
Kennd eru undirstöðuatriði í myndvinnsluforritum á
borð við Photoshop auk almenns og ítarlegs kennslu-
efnis í ljósmyndun svo og kennsla í notkun einstakra
myndavéla. Forstöðumaður skólans er Kjartan Örn Sig-
urðson. Hægt er að skrá sig í skólann á www.hanspeter-
sen.is og fá nemendur þá 12 mánaða ótakmarkaðan að-
gang að ítarlegu kennsluefni í ljósmyndavinnslu.
Nemendur geta því komið og farið í skólann þegar hentar.
Ljósmyndaskóli á netinu
Kjartan Örn
Sigurðsson
ÚRSLIT í Frumkvöðlakeppni Inn-
ovit 2008 fyrir íslenska háskóla-
nemendur og nýútskrifaða nálgast
nú óðum, en yfir 100 viðskipta-
hugmyndir voru skráðar til leiks í
fyrsta áfanga keppninnar. Í öðrum
áfanga skiluðu nemendur inn full-
mótaðri viðskiptaáætlun og hafa nú
verið valdar 18 áætlanir í undan-
úrslit keppninnar.
Innovit er nýsköpunar- og frum-
kvöðlasetur á sviði viðskipta með
það að markmiði að auka þátt há-
skólamenntaðs fólk í frumkvöðla-
starfi á Íslandi.
Þær viðskiptaáætlanir sem nú
eru komnar munu fara í ítarlegan
yfirlestur rýnihóps sérfræðinga
sem samanstendur af fulltrúum úr
íslensku viðskiptalífi og háskólum.
Að lokum munu alls 10 við-
skiptaáætlanir komast í úr-
slitaáfanga keppninnar þar sem
keppendur þurfa að kynna áætlanir
sínar frammi fyrir yfirdómnefnd.
Úrslit fara fram 12. apríl nk. og
verða niðurstöður kynntar sam-
dægurs. Sigurvegararnir hljóta að
launum verðlaunagripinn Gull-
eggið 2008 og 1,5 mkr í verð-
launafé.
Keppt um við-
skiptaáætlanir
SJÓMAÐUR slasaðist alvarlega um
borð í togaranum Jóni Vídalín VE á
Selvogsbanka í fyrrakvöld.
Hlaut hann mikið högg á kviðinn
og innvortis blæðingar. Landhelg-
isgæslan sótti manninn með þyrlu
og var hann lagður inn á slysadeild
Landspítala þar sem hann gekkst
undir aðgerð.
Togarinn er gerður út af
Vinnslustöðinni í Eyjum.
Slasaður sjómaður
STUTT
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
„HJÁ okkur hefur það verið langtíma-
stefnumótun að verða samfélagslega
ábyrgt fyrirtæki. Við tókum þessa
ákvörðun í upphafi 10. áratugarins
þar sem við teljum þetta vera hvata til
þess að reka fyrirtækið á arðbærari
hátt.“ Þetta segir Elin Myrmel-Jo-
hansen, yfirmaður samfélagslegra
ábyrgðarmála hjá norska fjármálafyr-
irtækinu Storebrand. Hún mun á
morgun halda erindi á ráðstefnu Út-
flutningsráðs um samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja, efni sem mikið hef-
ur verið skoðað og fjallað um á er-
lendri grundu en lítið hefur verið í um-
ræðunni hér á landi.
Myrmel-Johansen segir það mikil-
vægt fyrir fyrirtæki að ná forskoti á
þessu sviði og ráða við að framleiða
vöru og þjónustu á þann hátt sem hafi
jákvæð áhrif bæði á rekstur, t.d. í
formi aukinna tekna, og á samfélagið.
Slíkt hafi keðjuverkandi áhrif, meðal
annars á starfsfólk og starfsanda inn-
an fyrirtækisins. „Við höfum orðið vör
við að starfsmenn Storebrand eru
mjög stoltir af því að starfa hjá fyrir-
tækinu og er það að stórum hluta
vegna samfélagslegrar ábyrgðar fyr-
irtækisins. Starfsfólkinu finnst þetta
mjög mikilvægur hluti starfseminnar
og það er mjög áhugasamt og ánægt
með að eiga hlut í þessu starfi. Sam-
félagsleg ábyrgð okkar hefur einnig
gert okkur það mun auðveldara að ná
til okkar góðu starfsfólki og nýútskrif-
að ungt fólk er meðal þeirra sem
sækja í fyrirtæki með skýra stefnu
hvað varðar samfélagslega ábyrgð,“
segir hún og bætir við að stórir við-
skiptavinir, á borð við fyrirtæki og
stofnanir, leggi sífellt meira upp úr því
að eiga í viðskiptum við fyrirtæki sem
hefur tekið samfélagslega ábyrgð.
Eykur tryggð
Aðspurð segir hún erfitt að segja
nákvæmlega til um hver áhrifin hafa
orðið á rekstur Storebrand í krónum
og aurum. „Við höfum unnið mikið af
greiningum um áhrifin af samfélags-
lega ábyrgum fjárfestingum. Margir
telja aukinn kostnað falinn í sam-
félagslegri ábyrgð en okkar nið-
urstaða er sú að það hafi ekki áhrif á
kostnaðarhliðina þegar á heildina er
litið og þegar litið er til þess að samfé-
lagsleg ábyrgð eykur tryggð við-
skiptavina og starfsmanna við fyrir-
tækið þá er ljóst að hún margborgar
sig. Við höfum dæmi um að stórfyr-
irtæki á borð við Det Norske Veritas
hafi beint viðskiptum sínum til okkar
vegna stefnu okkar.“
Hvernig skilgreinir þú samfélags-
lega ábyrgð?
„Samfélagslega ábyrg fyrirtæki eru
fyrirtæki sem mæta samfélagslegum
þörfum í gegnum kjarnastarfsemi
sína. Þá á ég ekki við góðgerðar-
starfsemi heldur að sníða afurðir sínar
í takt við samfélagslegar þarfir. Það
verða að verða einhver varanleg áhrif
af því sem fyrirtækið gerir og í raun
er öll starfsemin lögð undir. Það er
vissulega jákvætt að vinna með góð-
gerðarstofnunum og ýmsum fé-
lagasamtökum en það tengist á engan
hátt samfélagslegri ábyrgð sé það það
eina sem fyrirtækið gerir,“ segir
Myrmel-Johansen.
Volkswagen datt út
Aðspurð hvernig fjárfestingar- og
lífeyrisvörslufélag á borð við Store-
brand geti fjárfest á samfélagslega
ábyrgan hátt segir hún félagið hafa
sett sér mjög strangar reglur þar sem
kveðið er á um þau skilyrði sem fyrir-
tæki þurfa að uppfylla áður en hægt
er að fjárfesta í þeim.
„Í dag höfum við útilokað 96 af þeim
fyrirtækjum sem finna má í heimsvísi-
tölu Morgan Stanley,“ segir hún en
segir það þó stefnu fyrirtækisins að
gera ekki opinbert hvaða fyrirtækjum
það fjárfesti í. Þó geti hún sagt að
þýski bílaframleiðandinn Volkswagen
hafi á sínum tíma dottið út vegna al-
varlegra spillingarmála sem þar komu
upp. Þar hafi þó verið tekið til og þar
með hafi Storebrand fjárfest í félaginu
á ný.
Aðrir þættir sem Storebrand horfir
til eru að sögn Myrmel-Johansen
mannréttindamál og umhverfismál
auk þess sem ekki er fjárfest í tóbaks-
framleiðendum, framleiðendum jarð-
sprengna, kjarnorkuvopna og klasa-
sprengna. Þá eru þau 10% fyrirtækja
sem verst eru í hááhættuiðnaði ekki til
þess hæf að fjárfest sé í þeim.
Samfélagsleg ábyrgð er arðbær
Elin Myrmel-Johansen
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
FULLTRÚAR minnihluta í borgar-
stjórn segja doða í borgaryfirvöldum
og að athygli veki það ráðaleysi sem
einkennt hafi umræðuna um vanda
miðborgarinnar, þegar fyrir liggja
vandlega rökstuddar tillögur um úr-
bætur.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem borgarfulltrúar minni-
hluta boðuðu í gær þar sem lögð var
fram skýrsla um málefni miðborg-
arinnar.
Fyrirliggjandi í tvo mánuði
Vinna við skýrsluna hófst í sept-
ember 2007 að frumkvæði 100-daga
meirihlutans svokallaða, og komu að
gerð hennar fulltrúar veitinga-
manna, lögreglu, ferðaþjónustu og
borgar auk þess að valdir íbúar mið-
bæjarins voru fengnir til þátttöku í
verkefninu.
Skýrslan er um 50 blaðsíður að
lengd og eru þar lagðar fram tillögur
til úrbóta á ýmsu því sem finna má að
ástandi borgarinnar í dag.
Skoðar skýrslan einnig þær lausn-
ir sem aðrar borgir með svipuð
vandamál og Reykjavík hafa notað
með góðum árangri.
Skýrslan óhreyfð
Skýrslan lá fyrir fáeinum dögum
áður en núverandi meirihluti tók við
stjórn borgarinnar og gagnrýndu
fulltrúar minnihluta borgarstjóra og
formann borgarráðs fyrir að hafa
ekki kynnt efni skýrslunnar eða haf-
ið vinnu í samræmi við tillögur henn-
ar.
„Það er eins og sumt af þeirri
miklu vinnu sem var unnin í tíð fyrri
meirihluta hafi fengið að liggja ofan í
skúffu frá því nýr meirihluti tók við,“
sagði Dagur B. Eggertsson á fund-
inum. „Skýrslan er afrakstur um-
fangsmikillar vinnu helstu hags-
munaaðila og veitir alhliða tillögur
sem taka m.a. á hreinsun bæjarins,
veggjakroti og yfirgefnum húsum.“
Hefur burði til að blómstra
Bæjarfulltrúarnir kölluðu á fund-
inum eftir skýrari stefnu og mark-
vissum aðgerðum. Sagði Dagur að
líklega hefði áhugi, framtaksemi og
fjárfesting í úrbótum á miðbænum
aldrei verið meiri. „Það eru ekki
bara möguleikar fyrir hendi til að
miðbærinn blómstri, heldur getur
hann orðið kröftugri en nokkurntíma
áður,“ sagði hann.
Dagur sagði það skipta miklu máli
að skilaboð borgaryfirvalda í málefn-
um miðbæjarins væru skýr, og að
hústöku og öðrum vandamálum
hefði verið sýnt of mikið umburðar-
lyndi.
Lögregla taki áfengið
Meðal hugmynda sem lagðar eru
fram í skýrslunni er að mörkuð verði
svæði í miðborginni þar sem neysla
áfengis utandyra er leyfileg, en að
lögreglu verði gefið vald til að leggja
hald á áfengi á öðrum stöðum.
Önnur hugmynd er sú að
skemmtistaðir hleypi viðskiptavin-
um ekki inn eftir ákveðinn tíma, þó
staðirnir séu opnir lengur. Slíkt
komi í veg fyrir ráp viðskiptavina
milli staða og um leið þann óskunda
sem oft vill fylgja rápinu.
Lausn miðborgar-
vandans ofan í skúffu?
Gagnrýna
meirihluta fyrir
að nýta ekki
tillögur skýrslu
Morgunblaðið/Ómar
Lausn? Skýrslan, sem unnin var að frumkvæði fyrri meirihluta, skoðar
m.a. þær leiðir sem aðrar borgir hafa farið til að leysa svipuð vandamál.
Í HNOTSKURN
»Skýrsla gerð með þátttökuhelstu hagsmunaaðila var
fyrirliggjandi þegar nýr meiri-
hluti tók við.
»Minnihluti gagnrýnir borg-arstjóra fyrir að kynna ekki
og nýta þær tillögur sem koma
fram í skýrslunni.
»Tillögur m.a. um að lögreglamegi taka áfengi af fólki á
sumum svæðum.