Morgunblaðið - 01.04.2008, Síða 21
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 21
!
"
# $
$
%
%
&
"
'
(
"
!
) * ' !
"
'
+ ")
'
'
)
"
)
## ' "
*
'
,
- '
./0123.4526 789 :;<<
8=
>40.?
@<@9
!
"
# $ #
@@
- kemur þér við
Sérblað um bíla
fylgir blaðinu í dag
Seldu Urriðafoss fyrir
40 milljónir króna
Þingvallavatn verður
að grænmetissúpu
Unga fólkið vill flytja
til útlanda
Í 30 stiga gaddi á
Snæfellsjökli
Dönsurum Eurobands-
ins skipt út fyrir
bakraddasöngvara
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
og ráðherrana og teppa
heimreiðar þeirra einn
morguninn og tefja för
þeirra til vinnu, til að
sýna fulla alvöru í mál-
inu. Koma upp svona
smá „frönsku ástandi“.
Skuldlaus ríkissjóður
getur vel létt af álögum
á eldsneytið, sem gerir
ekkert annað en að
hækka í verði.
Ríkissjóður gæti
einnig lækkað álögur á
matvæli en er þá komið
að öðru sem brennur
heitt á Víkverja þessa
dagana. Mótmæli ættu
sömuleiðis að beinast
að annarri stétt þjóðfélagsins, þ.e.
matvörukaupmönnum, en sumir
þeirra hafa ítrekað komist upp með
að tala hreinlega upp matarverðið
eins og ekkert væri eðlilegra. Koma
fram í fjölmiðlum og segja að svo og
svo mikil þörf sé á að hækka mat-
arverð. Það er auðvitað glórulaust ef
menn ætla að fara að hækka verðið
um 25-30%. Viðbrögð utanríkis-
ráðherra við þessu um helgina voru
hárrétt, það á ekki að láta kaup-
mennina komast upp með þetta. Þeir
verða að sýna samfélagslega ábyrgð
í verki. Vissulega hefur hráefnisverð
hækkað, laun hækkað lítillega og
gengið verið óhagstætt, en það rétt-
lætir samt ekki svo gífurlegar hækk-
anir.
Víkverji hvetur neytendur til þess
að vera á varðbergi, og mótmæla
hækkunum með því einfaldlega að
versla ekki við þá kaupmenn sem
munu reyna að misnota sér núver-
andi aðstæður í þjóðfélaginu. Flutn-
ingabílstjórar eru orðnir sjóaðir í
mótmælum og gætu t.d. neitað að
flytja varning til slíkra verslana.
Það væri viðbragð í lagi!
Víkverji styðurheilshugar að-
gerðir flutningabíl-
stjóra síðustu daga,
þar sem bensínhækk-
unum hefur verið mót-
mælt og aðgerðaleysi
stjórnvalda í því að
koma til móts við
hækkandi eldsneyt-
iskostnað. Auðvitað á
að gæta fyllsta öryggis
í slíkum mótmælum,
þannig að þær hindri
ekki för neyðarbíla í
útkalli, en það er engu
að síður kominn tími til
að á bílstjórana verði
hlustað. Í raun ættu
allir bílstjórar þessa lands að mót-
mæla með einhverjum hætti, þó ekki
væri nema að fjölmenna á Aust-
urvöll og þeyta flautur. Einnig væri
hugmynd að leita uppi þingmennina
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Ítímaleysi nútímamannsins vilja langar góðar stund-ir til kynlífsiðkana stundum verða útundan, sér-staklega hjá þeim sem hafa verið lengi saman oghvað þá ef hversdagsstreðið rænir fólk bæði tíma
og orku. Slíkt vandamál er ekki nýtt af nálinni, til dæmis
söng Spilverk þjóðanna á áttunda áratugnum um fólk sem
er „of þreytt til að sofa hjá“ vegna húsbygginga.
„Kynlíf fyrir önnum kafið fólk“ er einmitt undirtitill
bókarinnar Sjortarar sem nýlega kom út hjá JPV-
útgáfunni, en hún virðist vera hugsuð sem hjálpartæki
fyrir pör í tímahraki sem vilja bæta svolítilli spennu í kyn-
lífið og kynna sér leiðir, hugmyndir og „reglur“ um sjort-
ara.
Um að gera að sprella svolítið
Það er óneitanlega örvandi að kanna nýjar leiðir í kyn-
lífi, rétt eins og með mat og aðrar nautnir, og sjortarar eru
tilvalin leið til hverslags uppátækja og um að gera að taka
djarft frumkvæði. Það eflir kynhvötina að leita óvæntra
staða til slíkra athafna og það skapar æsandi spennu ef
viss hætta er á að vera staðin að verki. Full ástæða er til
að hvetja fólk til fíflagangs, kynlíf er jú miklu skemmti-
legra ef það er ekki háalvarlegt eða hátíðlegt. Vert er að
taka fram að tæplega stendur ending sambands og fellur
með kynlífsleikjum, einfaldlega vegna þess að þó svo að
kynlíf spili stórt hlutverk í sambandi fólks, þá er ansi
margt annað sem vegur þungt og skiptir máli fyrir „límið“
sem heldur fólki saman. Sjortarar duga skammt til að laga
alvarlegan vanda í samlífi para.
Stolnar stundir æsandi
Aftur á móti er nokkuð ljóst að það skaðar tæplega
nokkurt samband að nota hádegið eða annan tíma áður en
fólk er orðið úrvinda eftir langan dag til að leika sér
óvænt. Stolnar stundir í eldhúsinu, kannski rétt áður en
gestir koma í mat, geta verið mjög skemmtilegar og að
rífa sig úr fínu fötunum örskömmu áður en haldið er út í
boð hjá öðrum, getur líka alveg bjargað kvöldinu. Og ekki
má gleyma að vinnustaðurinn býður upp á ýmsa mögu-
leika. Að fá sér nettan sjortara á óvæntum stöðum er
hressandi tilbreyting frá gamla vananum heima í rúmi. Og
möguleikarnir eru nánast ótæmandi, þetta snýst jú um
hugmyndaflug og vilja. Þeir sem búa í sveitinni ættu
ófeimnir að fá sér einn stuttan í fjósinu, hlöðunni eða úti á
túni þegar sólin skín hvað skærast. Og það tekur enga
stund að sópa mesta heyinu úr garðanum í fjárhúsinu yfir
veturinn og skella sér á fjalirnar. Svo eru það hinir ýmsu
opinberu staðir sem margir horfa löngunaraugum til þeg-
ar kemur að sjorturum, eins og kvikmyndahús, leikhús og
jafnvel kirkjugarðar. Gerði Þórbergur það ekki undir leiði
hér forðum? Flugvélar hafa einnig örvað marga til dáða á
þessu sviði. Langflug getur jú verið leiðigjarnt og um að
gera að brjóta upp stemninguna með því að dúlla sér undir
teppinu eða bregða sér saman á klósettið.
Aðeins fyrir fagra og flotta?
Hafa má nokkra skemmtun af bókinni Sjortarar en þótt
myndirnar séu vissulega litríkar og settar fram á
skemmtilegan hátt má velta fyrir sér hvort nauðsynlegt
hafi verið að hafa fólkið sem þar situr fyrir einvörðungu
ungt, „fallegt“ og með „fullkominn líkama“. Einhver gæti
lesið þau skilaboð út úr því að skemmtilegt kynlíf sé aðeins
fyrir fagra og flotta. Ef einhverjar myndanna hefðu verið
af „venjulegu fólki“ og á misjöfnum aldri hefðu fleiri getað
samsamað sig þeim. Og hvað með samkynhneigða? Í þess-
ari bók eru engar myndir eða hugmyndir fyrir slíkt fólk.
Getur verið að í öllu hispursleysinu sem sagt er einkenna
bókina sé samt sem áður ekki pláss fyrir samkynhneigða?
Utandyra Fjölmargir möguleikar eru í sveitinni til að
bregða á leik og finna nýjar leiðir í samlífinu.
Hal í hádeginu getur
bjargað deginum
Skemmtilegir sjortarar geta verið
krydd í tilveruna, sérstaklega þegar
neistinn er farinn að dofna hjá
þeim sem hafa verið lengi saman.
Kristín Heiða Kristinsdóttir spáði í
fyrirbærið og gluggaði í bók sem
gefur ýmsar hugmyndir að hrað-
soðnum ánægjustundum.
Eldhúsið Við undirbúning matarboðs getur verið gam-
an að fá sér einn stuttan rétt áður en gestirnir mæta.
khk@mbl.is