Morgunblaðið - 01.04.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 27
✝ Úlfar Jón Andr-ésson fæddist í
Reykjavík 22. febr-
úar 1940. Hann lést
á heimili sínu 26.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Andrés Jónsson, f. í
Hvammi undir Eyja-
fjöllum 8. apríl
1904, d. 12. júní
1942, og Ólöf Dag-
mar Úlfarsdóttir, f.
5. febrúar 1917, d.
13. október 1968.
Bróðir Úlfars er
Sigurjón, f. 9. desember 1941,
kvæntur Ágústu Sigurgeirs-
dóttur.
Hinn 5 nóvember 1960 kvæntist
Úlfar Sólveigu Friðfinnsdóttur, f.
5 október 1941, d. 27. júlí 1996.
Þau skildu vorið 1971. Börn
þeirra eru: 1) Andrés, f. 25. febr-
úar 1961, kvæntur Steinunni M.
Sigurðardóttur. Börn þeirra eru
Sólveig Dröfn, f. 1985, í sambúð
með Stefáni Reykdal Jóhannsyni
og Úlfar Jón, f. 1988, í sambúð
með Lilju Jónsdóttur. 2) Elín, f.
12. júní 1963, í sambúð með Pétri
Vilhjálmssyni. Börn þeirra eru
Stefán Þór, f. 1996, og Sólveig, f.
1997. Fyrir átti Elín dóttur, Lín-
eyju Pálsdóttur, f. 1989, í sambúð
með Jóni Inga Þórarinssyni. 3)
Ólöf Dagmar, f. 30.
apríl 1967, gift
Gunnari Th Gunn-
arssyni. Synir
þeirra eru Gunnar
Viðar, f. 1992, Árni
Veigar, f. 1997, og
Baldvin Alan, f.
2001.
Sonur Úlfars og
Sigurlaugar Jök-
ulsdóttur, f. 1942, d.
1990, er Jökull, f. 8
nóvember 1979,
kvæntur Ingu Láru
Karlsdóttur.
Árið 1985 hóf Úlfar sambúð
með Björgu Hilmisdóttir, f. 8 maí
1954. Þau slitu sambúð 1996.
Dóttir þeirra er Guðrún Björg, f.
13. apríl 1987, í sambúð með Birni
Aroni Magnússyni.
Úlfar útskrifaðist frá Verzl-
unarskóla Íslands árið 1959. Hann
vann við ýmis störf um ævina;
gjaldkeri hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, kokkur á togurum,
verlsunarstjóri, staðarhaldari.
Síðustu árin vann hann við sitt
eigið fyrirtæki, næturvörslu í
Hveragerði og einnig var hann
umboðsmaður Morgunblaðsins á
staðnum.
Útför Úlfars fer fram frá Kot-
strandarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Í dag kveð ég föður minn Úlfar
Jón Andrésson í hinsta sinn í þessu
jarðlífi og minningarnar eru margar.
Ein af þeim fyrstu er frá aprílmán-
uði 1966 frá þeim dögum þegar snjó-
aði hér á landi og snjórinn hélst fram
eftir vori. Gamli Land Roverinn ösl-
aði inn að mynni Jósepsdalar og
þegar allt var fast voru skíðin sett á
öxlina og ég, fimm ára guttinn, sett-
ur á hina og haldið áfram fótgang-
andi og var förinni heitið í hin ón-
umdu Bláfjöll sem seinna áttu eftir
að verða skíðasvæði höfuðborgar-
búa.
Síðan var gengið upp hlíðar Jós-
epsdalar og er upp var komið
spennti faðir minn skíðin á sig, setti
mig á bakið og renndi sér niður eftir
hlíðum Bláfjalla og mér litlum snáð-
anum fannst þetta mikið ævintýri og
man ég eftir því hversu öruggur ég
var á baki föður míns, enda var hann
afburða skíðamaður.
Svona liðu æskuárin, annað hvort
á fjöllum að vetri til eða í veiðiskap
við spegilslétt Þingvallavatn á fögru
sumarkvöldi eða í berjamó við Hlíð-
arvatn að hausti til, svo ég minnist
nú ekki á Eyjafjöllin og Þórsmörk-
ina þaðan sem hann átti sterkar ræt-
ur. Já, faðir minn var mikill útivist-
ar- og náttúruunnandi og það
smitaðist út í mig snáðann, enda vor-
um við börnin alltaf tekin með í allar
svona ferðir.
Er ég var tíu ára skildu faðir minn
og móðir og minnkaði samgangurinn
þá töluvert en átti ég þó margar góð-
ar stundir með honum fram á ung-
lingsárin.
Er ég var 22 ára var ég í vandræð-
um með líf mitt og tókst á við það og
í framhaldi af því flutti ég heim til
pabba sem þá var fluttur í Hvera-
gerði.
Og eftir það höfum við báðir búið
þar og margt brallað saman.
Það á eftir að verða tómlegt að
hafa þig ekki í nágrenninu og geta
ekki komið við og spjallað eða hringt
og rifjað upp góða veiðisögu.
Nú á síðustu mánuðum varstu
orðinn veikur og miklu veikari en ég
gerði mér grein fyrir. Þú hafðir valið
þér hlutskipti, það var að þrauka og
bera þín veikindi í hljóði.
Og það tókst þér og það virði ég,
vegna þess að það var þinn vilji.
Og að lokum ætla ég að kveðja þig
með þeim orðum sem þú kvaddir
mig oft með; vertu bless kallinn
minn. Við eigum eftir að hittast síðar
og þú verður í huga mér er ég þeys-
ist um sveitirnar í sumar.
Þinn sonur,
Andrés Úlfarsson.
Elsku pabbi
Enn einu sinni
upp hefst vetrartíð.
Blóm láðs þótt linni,
líkn þín dvín ei blíð.
Höndin þín mér hlúi,
hret er vitja mín,
sælt mér sumar búi
síðar náðin þín.
Sumar, vetur, vor og haust
von ég set á þig og traust.
Eftir hretin endalaust
eilíf sólin skín.
(Valdimar Briem.)
Á þessum tímamótum streyma
minningar fram. Þegar ég var barn
og unglingur bjó ég hjá þér um tíma.
Þú varst mikið fyrir útiveru, þannig
að á veturnar fór ég mikið á skíði
með þér. Sumrin fóru í að veiða, þá
aðallega við Þingvallavatn þar sem
við áttum bústað. Einnig veiddum
við í Markarfljóti, en á Eyvindar-
holti þar nálægt bjó frændfólk okk-
ar. Var sá staður þér kær. Ég og mín
fjölskylda eigum eftir að sakna þín.
Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir.
Elsku pabbi minn, ekki grunaði
mig að ég þyrfti að kveðja þig svona
fljótt. Þú sem sagðir alltaf þegar ég
var með kvef; aldrei verð ég veikur,
samt er ég úti allar nætur. Þú gast
verið erfiður stundum en svo gastu
líka verið svo skemmtilegur og fynd-
inn, þú hafðir þinn húmor sem
örugglega ekki allir hafa fattað. Þú
hafðir svo margar sögur að segja frá
því að þú varst ungur og svo hafðir
þú gaman af að segja mér sögur af
því þegar ég var lítil.
Fljótlega eftir að þið mamma
skilduð flutti ég til þín, þar leið mér
vel, ég var ekkert hrædd við að sofa
þar ein meðan þú varst að vinna á
nóttunni, því ég vissi að þú kæmir
heim og fylgdist með húsinu. Þú
varst duglegur að elda og kótelett-
urnar þínar í raspi eru ennþá þær
bestu sem ég hef smakkað. Við gerð-
um margt saman þegar ég var yngri,
fórum oft á skíði og í sund.
Þegar ég var yngri áttum við
mörg dýr, ketti, stóra hunda og fiska
og oftar en ekki áttum við fleira en
eitt dýr í einu. Einn daginn þegar við
áttum ekkert dýr komstu heim með
lítinn hund, Rosie og þá var ekki aft-
ur snúið, þarna fannstu tegundina
þína. Seinna fengum við okkur svo
Díönu og svo Snúlla. Hundarnir
veittu þér svo mikinn félagsskap og
þú elskaðir þá meira en allt. Þeir eru
litlir í sér núna og sakna þín en við
systkinin munum sjá um að þeir fái
góð heimili. Það er líka gaman að því
að flest af okkur systkinunum eigum
núna allavega einn Chihuahua á
mann.
Þegar ég var í æfingaakstri hjá
þér á Suzuki Jymniinum er ekki
hægt að segja að þú hafir verið ró-
legur eða þægilegur, þú varst frekar
stressaður, með aðra hendina í hald-
fangingu fyrir ofan hurðina og hina á
handbremsunni og ef þér fannst ég
bremsa of seint þá sagðir þú: ,,Hvað,
ætlarðu að taka beygjuna á þremur
hjólum?“ Mér fannst ekki gaman að
þessu þá en hlæ að þessu núna og
eftir á varstu fínasti kennari, vantaði
bara smá þolinmæði.
Þig dreymdi um að eignast sum-
arbústað á Þingvöllum, þar sem þú
gætir verið með hundana, veitt og
gert það sem þér þótti skemmtileg-
ast. Ef ég ætti óskastein myndi ég
óska þess að þessi draumur þinn
hefði ræst, því þetta hefði gert þig
svo ánægðan. Þú elskaðir að vera úti
í náttúrunni og hafðir svo gaman af
því að fara austur undir Eyjafjöllin, í
Strandarkirku, í fjöruna með
hundana og upp í fjöll að labba.
Daginn fyrir páska kom ég með
páskaegg til þín, sem þú varst
ánægður með því þú sagðist ekki
hafa tímt að kaupa þér sjálfur. Það
lá vel á þér og þú talaðir ekki um
veikindi, þú hefur ekki viljað að ég
vissi af þeim. Þegar ég ferðaðist
sagðirðu ,,Mundu svo það sem pabbi
segir, ekki vera að þvælast neitt ein
og passaðu þig á öllu illu“. Ég mun
alltaf hugsa um þessi orð þín það
sem eftir er þegar ég ferðast.
Takk fyrir allt elsku pabbi minn,
þú varst besti pabbinn í heiminum
og ég sakna þín svo mikið. Það verð-
ur erfitt að geta ekki hringt í þig eða
kíkt á þig en ég verð að læra að lifa
með því. Það er svo margt eftir sem
ég hefði viljað að þú værir með í en
ég veit að þú fylgist alltaf með mér
af himnum.
Þín dóttir,
Guðrún Björg.
Elsku afi okkar og nafni,
það er skrýtið til þess að hugsa að
þú sért farinn svo fljótt frá okkur.
Það eru margar góðar minningar
sem þjóta um huga okkar.
Þú varst mikill íþróttamaður og
þá heillaði skíðaíþróttin þig mest.
Maður sá að þér leið vel uppi í
brekku enda um frábæran skíða-
mann að ræða. Þú varst mikill dýra-
vinur og oftast fengu þau alla þína
athygli og laumaðir þú oft einhverju
gómsætu til þeirra. Þú varst líka
mjög mikill dellukarl og prófaðir
marga hluti í gegnum ævina. Einnig
blundaði í þér nokkur nýjungagirni
en við gætum ekki talið alla þá bíla
sem þú hefur átt um tíðina þó svo að
við myndum nota alla okkar fingur
og tær.
Þú varst góður maður sem við
getum verið stolt af að líkjast. Það er
mikill missir að manni eins og þér,
afi okkar, og eigum við eftir að sakna
þín mikið.
Okkur þykir vænt um þig, elsku
besti afi okkar,
megi guð geyma þig.
Þín barnabörn,
Sólveig Dröfn og Úlfar Jón.
Elsku afi, nú líður þér örugglega
betur, en ég vissi ekki að þú værir
svona mikið veikur. En þegar þú
varst á lífi varst þú örugglega dug-
legasti maður á Íslandi því þú sinntir
vinnuni þinni þrátt fyrir að þú værir
orðinn svona mikið veikur og þú
misstir ekki einn einasta dag úr. En
þegar þú komst ekki með Morgun-
blaðið á miðvikudagsmorguninn þá
vissi ég að eitthvað mikið var að. Þú
varst mikill íþróttamaður og úti-
vistamaður áður en þú veiktist, þú
komst oft með mér á skíði þegar ég
var lítill og mér þótti það rosalega
gaman. Þú varst mikill dýravinur
enda áttirðu þrjá hunda. Þú varst
hjartagóður maður og ert það enn.
Ég elska þig, afi minn
Hinsta kveðja, þinn afastrákur
Stefán Þór.
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir, gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann, sem miðlar mér af gæsku sinni,
minna daga skammt af sæld og þraut,
sér til þess að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér;
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk, sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á,
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvað sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak í einu,
uns til þín í ljóssins heim ég fer.
(Sigurbjörn Einarsson)
Hvíl í friði, kæri vinur.
Helena Kristmannsdóttir
og fjölsk.
Úlfar Jón Andrésson
Lífið er hverfult svo mikið er víst,
einn fæðist í dag og annar deyr, það
er gangur lífsins. Öll erum við ein-
stakar manneskjur, hver með sín
sérkenni og áhugamál. Lilja frænka
kvaddi þetta líf laugardaginn 8.
mars. Hún var einstök kona sem lifði
einföldu og sérstöku lífi alla tíð, bjó
lengst af með afa og ömmu í Æg-
isgötunni ásamt Palla móðurbróður
sínum. Afi og amma fóru á dvalar-
heimili aldraðra en Lilja og Palli
bjuggu saman þar til hann fór á dval-
Lilja Jónheiður
Skarphéðinsdóttir
✝ Lilja JónheiðurSkarphéð-
insdóttir fæddist
27.3. 1943 og lést 8.
mars sl.
Foreldrar hennar
voru Stefanía Jó-
hannsdóttir og
Skarphéðinn Jóns-
son, bæði látin. Eft-
irlifandi systur Lilju
eru: a) Inga Kristín,
f. 19.11. 1932, sem
býr á Akureyri og á
hún 2 dætur og b)
Anna Vilfríður f.
31.8. 1934, sem býr í Mývatnssveit
og á hún 4 börn. Lilja bjó lengst af
í Ægisgötu 12 , Akureyri með for-
eldrum sínum og móðurbróður.
Lilja Jónheiður verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju í dag
kl.13:30.
arheimili aldraðra. Þá
bjó Lilja þar ein fram
til ársins 2004 að hún
fór á Dvalarheimilið
Hlíð. Lilja vann aldrei
úti, mestum tíma
eyddi hún í sín hugð-
arefni sem voru af
ýmsum toga. Hún var
alla tíð sérstök og hún
vildi búa ein í Ægis-
götunni en vegna
heilsuleysis varð hún
að láta í minni pokann
og flutti á Hlíð þar
sem hún dó.
Lilja glímdi við sjúkdóm alla sína
tíð, sérstakan sjúkdóm. Sumir
krakkar hræddust hana, fannst hún
skrítin, en við erum öll sérstök, hver
á sinn hátt. Lilja var ófeimin, ákveð-
in og áhugamálin voru sérstök, kon-
ungsfjölskyldur víða um heim. Þar
kom enginn að tómum kofa. Hún var
áskrifandi að mörgum blöðum, m.a.
að dönsku blöðunum þar sem hún
gleypti í sig fróðleikinn um dönsku
konungsfjölskylduna. Öllum sem
komu til Lilju fannst gaman að kíkja
í blöðin hjá henni en það varð að
passa að setja þau alltaf á réttan stað
að lestri loknum, hún passaði upp á
það.
Hún fylgdist vel með fjölmiðlum.
Það fór t.d. enginn spurningaþáttur
fram hjá henni og hún skráði hjá sér
úrslit þáttanna. Hún átti skrá yfir
úrslit í Eurovision til margra ára og
þannig mætti lengi telja. Hún safn-
aði bókum og blöðum og þvílíkir
staflar, ekki veit ég hvort hún las
þetta allt, dreg það í efa. Hjá Lilju
átti hver hlutur sinn stað. Þegar við
systurnar vorum litlar og komum í
heimsókn þá fylgdist Lilja grannt
með okkur, passaði að við létum allt
á rétta staði. Lilja átti alla tíð dúkku,
frá því hún sjálf var lítil, sem okkur
stelpunum þótti afar merkileg.
Dúkkan átti fallegt rúm og rúmföt,
sem okkur þótti spennandi, en hana
máttum við vart snerta, þetta var
dýrgripur í hennar huga. Á þeim
tíma sem heilsa Lilju var góð þá
labbaði hún oft upp í bæ. Þá fór hún í
bókabúðina Huld og spjallaði mikið
við hana Huld sem átti þá búð. Lilja
pantaði hjá henni öll blöðin. Hún fór
til Villu systur sinnar í Mývatnssveit
og dvaldi þar í nokkra daga, það
fannst henni alltaf mjög skemmti-
legt. Hin síðari ár eftir að heilsu
Lilju fór að hraka og hún var flutt á
Hlíð, varð lífið henni erfiðara, ég
held hún hafi oft þjáðst. Hún átti
orðið erfitt með gang og gat lítið tjáð
sig, hún benti bara og sagði já og nei.
Síðustu vikurnar voru erfiðar, hún
var með verki og vildi lítið borða og
svaf. Undirbúningur að brottför var
hafinn. Hún hefur eflaust fundið
hvert stefndi, hún sofnaði og vaknaði
ekki meir. Hún fór í friði. Hún fer ef-
laust að fræða engla heimsins um
kóngafólkið því það var hennar
uppáhald, vonandi hittir hún ein-
hverja þeirra hinum megin, það var
jú hennar draumur. Far þú í friði
elsku Lilja frænka, þjáningum þín-
um er lokið.
Björk Jónsdóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Minningargreinar
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is