Morgunblaðið - 01.04.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 31
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hafnarbraut 7, verslun, Dalvíkurbyggð (222-4994), þingl. eig. Síma og
tölvuþjón. Rafhóll ehf., gerðarbeiðendur Stafir lífeyrissjóður og Sýslu-
maðurinn á Akureyri, föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Hólavegur 9, íb. 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-4947), þingl. eig. Stefán
Agnarsson, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn 4. apríl 2008
kl. 10:00.
Höskuldsstaðir, sumarbústaður, Eyjafjarðarsveit (215-9005), þingl.
eig. Elva Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf., föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Neðri-Sandvík, vélaverkst. Grímsey (215-5525), þingl. eig. Vélaverk-
stæði Sigurðar Bj. ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri,
föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Óseyri 16, iðnaður, 01-0103, Akureyri (224-6160), þingl. eig. Protak
ehf., gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Slippurinn Akur-
eyri ehf., föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Skíðabraut 3, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-5169), þingl. eig. Gísli
Steinar Jóhannesson, gerðarbeiðandi S24, föstudaginn 4. apríl 2008
kl. 10:00.
Skíðabraut 6, Björk, Dalvíkurbyggð (215-5179), þingl. eig. Reynir
Magnússon, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn 4. apríl 2008
kl. 10:00.
Strandgata 49, geymsla, 02-0103, Akureyri (255-4639), þingl. eig.
Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðendur Arnarfell ehf. og Avant hf.,
föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Sveinbjarnargerði III, eignahl. hús og bílskúr, Svalbarðsstrandar-
hreppi (216-0393), þingl. eig. Jónas Halldórsson, gerðarbeiðendur
Húsasmiðjan hf. og Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 4. apríl
2008 kl. 10:00.
Vaðlabyggð 5, Svalbarðsstrandarhreppi (228-9181), þingl. eig. Natalía
Ólafsson, gerðarbeiðendur Eimskipafélag Íslands ehf. og Íbúðalána-
sjóður, föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Ytra-Holt, Hringsholt, hesthús 01-0120, Dalvíkurbyggð (215-4598),
þingl. eig. Fákar ehf., gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn
4. apríl 2008 kl. 10:00.
Öldugata 18, verslun, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-6660), þingl. eig.
Konný ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Lífeyrissjóður versl-
unarmanna, föstudaginn 4. apríl 2008 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
31. mars 2008.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Bjarnarbraut
2, Borgarnesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Eyrarskógur 28, fnr. 229-6440, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Á.H. ehf.,
gerðarbeiðandi Hjördís Benediktsdóttir, fimmtudaginn 3. apríl 2008
kl. 10:00.
Hátröð 7, fnr. 224-2073, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Karl Jónsson,
gerðarbeiðandi Hvalfjarðarstrandarhreppur, fimmtudaginn 3. apríl
2008 kl. 10:00.
Hl. Saurbæjarlands, leigulóðarréttindi, fnr. 210-4374, Hvalfjarðarsveit,
þingl. eig. Geirsá ehf., gerðarbeiðendur Hvalfjarðarstrandarhreppur,
Marine Spectrum ehf. og Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 3.
apríl 2008 kl. 10:00.
Kringlumelur, 133-636, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Margrét Ingimund-
ardóttir, gerðarbeiðandi Hvalfjarðarstrandarhreppur, fimmtudaginn
3. apríl 2008 kl. 10:00.
Selásar 17, fnr. 187-680, Borgarbyggð, þingl. eig. Óskar Sigurmundar-
son og Guðríður Kristinsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir hf. og Toll-
stjóraskrifstofa, fimmtudaginn 3. apríl 2008 kl. 10:00.
Skálalækjarás 11, 229-2189, Skorradal., þingl. eig. Költur ehf., gerðar-
beiðandi RBG Vélaleiga og verktakar ehf., fimmtudaginn 3. apríl 2008
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
31. mars 2008.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Ýmislegt
Aðstoð óskast
á heimili eldri konu, húsnæði og fæði í boði.
Barn engin fyrirstaða. Upplýsingar í síma
552 8694 milli kl. 16- 17.
Félagslíf
HLÍN 6008040119 VI I.O.O.F. Rb. 4 157447
FJÖLNIR 6008040119 I EDDA 6008040119 Ill
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði,
Stangarhyl, fimmtud. 27.03.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 251
Friðrik Jónss. - Tómas Sigurjónsson 246
Ægir Ferdinandss. - Oddur Halldórss. 244
Árangur A-V
Ragnar Björnss. - Jón Láruss. 272
Halla Ólafsd. - Hilmar Valdimarss. 244
Þröstur Sveinss.- Bjarni Ásmundss. 228
Bridsfélag
Kópavogs
Þriggja kvölda tvímenningur á sjö
borðum hófst sl. fimmtudag.
Hæstu skor NS:
Ármann J Láruss. - Björn Árnas. 185
Guðlaugur Bessas. - Jón St. Ingólfss. 179
Baldur Bjartmarss. - Sigurjón Karlss. 172
AV:
Bernódus Kristinss. - Sigurj. Tryggvas. 194
Björn Jónsson - Þórður Jónsson 190
Guðni Ingvarss. - Halldór Einarsson 182
Kjördæmamótið í brids
í Hólminum í maí
Kjördæmamótið i brids fer fram í
Stykkishólmi dagana 17. og 18. maí nk.
Hótel Stykkishólmur hefur gert okkur
bridsspilurum mjög gott tilboð á mat
og gistingu sem er svohljóðandi:
Gisting eina nótt í tveggja manna
herbergi, 2x hádegisverður og 1x
veislukvöldverður, verð 12.600 kr. á
mann. Sama tilboð á eins manns her-
bergi, 15.100 kr. Morgunverður er
innifalinn.
Verð á hádegismat er 1.800 kr. á
mann á dag og veislukvöldverður kost-
ar4.500 kr. á mann, morgunverður er á
900 kr. á mann fyrir þá sem gista ekki.
Aukanótt 4.000 kr. á mann.
Pöntunarsími er 430-2100 eða á net-
fangið hotelstykkisholmur@simnet.is
Íslandsmót
yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara í sveita-
keppni og tvímenningi fer fram í Síðu-
múla 37 í Reykjavík helgina 5.-6. apríl
nk. Byrjað kl. 11:00 báða dagana og
spilað til u.þ.b. kl. 17 báða dagana.
Sveitakeppni á laugardag og tvímenn-
ingur á sunnudag. Þátttökurétt hafa
þeir sem fæddir eru eftir 1. janúar
1983 (U25).
Þátttaka er ókeypis. Boðið upp á
pítsur. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin og spilað er um gullstig.
Hægt að skrá sig í keppnina hjá BSÍ í
síma 587-9360, á vef Bridssambands-
ins, www.bridge.is, eða í tölvupósti,
bridge@bridge.is.
Tilvalið að hitta spilaáhugafólk á
svipuðum aldri og úr öðrum skólum.
FRÉTTIR
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Nafn féll niður
NAFN Ragnheiðar Ebenezers-
dóttur féll niður í upptalningu Morg-
unblaðsins í gær á kistuberum á
mynd frá útför Ólafar Pétursdóttur
á laugardag. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
FÉLAG áhugafólks um uppeldi til
ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga
var stofnað í Álftanesskóla nú um
mánaðamótin og er Jóna Bene-
diktsdóttir formaður félagsins.
Nafn félagsins er heiti á sérstakri
uppeldisstefnu en stefnan kemur
hingað til lands frá Kanada og hef-
ur verið notuð í skólum þar, víða í
Bandaríkjunum og fleiri löndum.
Hún felur í sér að kenna fólki að
byggja upp eigin styrk til sjálf-
stjórnar og sjálfsaga með það að
markmiði að skapa umhyggjusamt
og styðjandi samfélag. Meginmark-
mið stefnunnar er að hvetja ein-
staklinginn til að hugsa um hvernig
manneskja hann vill vera, segir í
fréttatilkynningu.
Um þrjátíu skólar á Íslandi starfa
nú samkvæmt þessari stefnu og
hefur þeim farið fjölgandi á síðustu
árum. Sveitarfélagið Álftanes hefur
tekið þessa stefnu upp sem almenna
stefnu í sveitarfélaginu enda er
vinna samkvæmt henni alls ekki
bundin við skólastofnanir þar sem
hún snýst líka um almenn sam-
skipti. Allir sem áhuga hafa á að
kynna sér stefnuna eða vinna eftir
henni geta gengið í félagið.
Stofna félag
um uppeldi
til ábyrgðar
SKIPULAGSSTOFNUN stendur
fyrir málþingi um landsskipulag
10. apríl kl. 14-18, í Salnum í
Kópavogi en málþingið er hluti
afmælisdagskrár Skipulagsstofn-
unar í tilefni þess að 70 ár eru lið-
in síðan forvera Skipulagsstofn-
unar var komið á fót. Á
málþinginu verður til umfjöll-
unar hvað landsskipulagsáætlun
getur falið í sér og kynnt verður
staða landsskipulags í nágranna-
löndum sem hafa mörg hver ára-
tuga reynslu af slíkum áætlunum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra ávarpar þing-
ið og Jim Mackinnon skipulags-
stjóri Skotlands kynnir nýja
landsskipulagsáætlun fyrir Skotland
sem sett er fram í National Planning
Framework. Sigríður Auður Arn-
ardóttir skrifstofustjóri í umhverf-
isráðuneytinu mun í erindi sínu
Landsskipulag – ný sýn í skipulags-
málum gera grein fyrir ákvæðum
um landsskipulag í frumvarpi til
skipulagslaga. Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga flytur erindi sem hann
nefnir Landsskipulag – hvað breyt-
ist? og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
skipulagsfræðingur og aðjúnkt við
Háskólann í Reykjavík heldur erindi
sem hún nefnir Landsskipulag – lýð-
ræði og sjálfbærni.
Fundarstjóri verður Stefán Thors
skipulagsstjóri ríkisins.
Málþing um
landsskipulag
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá stjórn
Listasjóðs Ólafar: „Fjölskylda Ólaf-
ar Pétursdóttur, dómstjóra, þakkar
af alhug þeim fjölmörgu sem komu
og skoðuðu sýningu á málverkum
hennar í Ráðhúsinu liðna helgi.
Vegna fjölda fyrirspurna er okk-
ur ljúft að birta aftur upplýsingar
um Listasjóð Ólafar, sem stofnaður
hefur verið í minningu hennar og
er ætlað að styrkja listsköpun
hreyfihamlaðra einstaklinga.
Sjóðurinn hefur kt. 670308-1540,
banki 1105-18-640900.“
Listasjóður
Ólafar
SAMNINGUR Landspítala og þjóð-
kirkjunnar um klínískt sálgæsl-
unám guðfræði- og djáknanema á
Landspítala var undirritaður í gær
en til þessa hafa prestar og djáknar
orðið að sækja námið utan Íslands.
Fram kemur í fréttatilkynningu
að þjóðkirkjan muni leggja til ár-
lega jafngildi 50% launa prests við
spítalann til kennslu í klínískri sál-
gæslu og Landspítali taki að sér að
skapa tilhlýðilegar aðstæður fyrir
verklega kennslu. Síðustu tvo ára-
tugi rúma hafi sálgæsla presta og
djákna sannað mikilvægi sitt og
vaxið og dafnað og mætt þörfum
fólks, bæði sjúklinga, aðstandenda
og starfsfólks.
„Þjálfunin miðar að því að auka
hæfni presta og djákna til að veita
öllum þessa andlegu umönnun án
tillits til lífsskoðana.
Með samkomulaginu er stefnt að
því að klínískt sálgæslunám verði
liður í starfsþjálfun. Með þessu
samkomulagi er stigið afar merki-
legt skref í guðfræðinámi á Ís-
landi,“ segir í tilkynningunni.
Klínískt
sálgæslunám
á LSH