Morgunblaðið - 01.05.2008, Side 1
„Þennan leik
geta ekki leikið
nema bráð-
greindir
menn – sem
eru fljótir
að hugsa.“
Karl G. Bene-
diktsson var
ánægður með
sína menn » 5
Framarar fagna hundrað ára afmæli félagsins í dag, 1.maí. Þeir halda upp á daginn á veglegan hátt á fé-lagssvæði Fram í Safamýri. Hátíðardagskráin hefstkl. 10 til 12 með 7. flokks móti í knattspyrnu á veg-
um Kiwanisklúbbsins Heklu.
Reiknað er með að fjölmenni verði í Safamýrinni ídag. Framarar safnast saman á tveimur stöðum kl.13 og gengið verður þaðan á félagssvæðið. Þaðverður boðið upp á sögugöngu frá gamla Fram-
svæðinu við Skipholt. Einnig verður boðið upp á skrúðgöngu
frá Grensáskirkju, þar sem lúðrasveit verður fremst í flokki.
Afmælishátíðin hefst síðan kl. 13.20 til 15.20 meðbarnaskemmtun. Skoppa og Skrítla koma í heim-sókn, hljómsveitin Sprengjuhöllin skemmtir, Bjart-ur sýnir Breakdans, boðið verður upp á leiktæki
fyrir börn og Coke-fótboltavöll í boði Vífilfells.
Margt annað verður á dagskrá. Borgarstjórinn íReykjavík, Ólafur F. Magnússon, mun skrifa und-ir samninga við Fram varðandi nýja Framsvæðiðí Úlfarsárdal kl. 14 og þá fara fram heiðurs-
merkjaveitingar.
Í tilefni dagsins verður blásið til veislu þar sem öllum
Frömurum og öðrum gestum er boðið upp á kaffi og veit-
ingar kl. 13.30 til 16. Börnum verður boðið upp á pylsur og
gos.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
„ÉG er afar stolt og ánægð að vera fyrsti Fram-
arinn til að ná Íslandsmeistaratitli á afmæl-
isárinu,“ sagði Sigrún Nanna Karlsdóttir, 27 ára,
nýkrýndur Íslandsmeistari í -59 kg flokki í Tæk-
vondó. Sigrún Nanna er hér á myndinni hvít-
klædd fyrir miðju í annari röð, umkringd ungu
keppnisfólki í Fram, sem á framtíðina fyrir sér.
Sigrún Nanna á sæti í stjórn Tækvondódeildar
Fram og þá þjálfar hún yngstu tækvondómenn
Fram.
Það má segja að Sigrún Nanna Karlsdóttir,
landsliðsmaður í tækvondó, hafi komið, séð og
sigrað á Íslandsmótinu í tækvondó um miðjan
mars 2008. Sigrún Nanna kom heim sl. desember
eftir fjögurra ára doktorsnám í efnaverkfræði
við University of Michican í Bandaríkjunum. Hún
var Íslandsmeistari 2003 er hún hélt til Banda-
ríkjanna, eftir að hafa útskrifast frá Háskóla Ís-
lands, með B.S. próf í véla- og iðnaðarverkfræði.
Hún keppti ekki á meistaramótinu á námsárum
sínum vestan hafs 2004, 2005, 2006 og 2007.
„Stolt og
ánægð“
ÞAÐ er ýmislegt á döfinni á 100. afmælisári Fram.
Afmælishóf Fram var haldið í Gullhömrum í Grafarholti í gærkvöldi.
Þar fór fram frumflutningur á 100 ára afmælislagi Fram.
Afmælisrit Fram, hundrað síður, kom út í gær.
Afmælishátíð verður á félagssvæði Fram í Safamýri á afmælisdaginn
1. maí.
Afmælisbúningur Fram 2008 verður kynntur 12. maí, annan í hvíta-
sunnu.
Nýr Fram-vefur verður opnaður í júní.
Afmælisgolfmót Fram fer fram í júlí.
Framdagurinn verður haldinn í ágúst.
Minnisvarði um Rúnar Vilhjálmsson, sem lést í London í keppnisferð
með landsliði Íslands í knattspyrnu í byrjun árs 1970, verður afhjúp-
aður í október.
Hið árlega herrakvöld Fram verður haldið í nóvember.
Afreks- og minningarsjóður um Ásgeir Elíasson verður stofnaður í
nóvember.
100 ára afmælisbók Fram kemur út í byrjun desember.
Íþróttamaður- og kona ársins 2008 krýnd 31. desember. Það verður í
fyrsta skipti sem útnefningin fer fram.
Á döfinni ...
„GULLTÍMABILIГ 1962-1972
RAFMÖGNUÐ BARÁTTA FRAM OG FH TÓK Á TAUGARNAR >> 4
Pétur Ormslev
um Ásgeirs-
tímabilið 1985 til
1991. „Stórkost-
legt að umgang-
ast alla þessar
sterku persónur
sem komu við
sögu í Safamýr-
inni.“ » 6