Morgunblaðið - 09.05.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir frá
Breiðabliki
María B. Ágústsdóttir, byrjuð aftur
Alicia M. Wilson í barneignarleyfi
Berglind Magnúsdóttir í Þór/KA
Lánuð út tímabilið.
Olga Færseth, hætt
Valdís Rögnvaldsdóttir, hætt
*+
Stofnað: 1899.
Heimavöllur: KR-völlur.
Aðsetur félags: KR-heimilið,
Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík.
Sími: 510-5310.
Fax: 510-5308.
Netfang: knattspyrna@kr.is.
Heimasíða: www.kr.is
Stuðningsmannasíða:
www.krreykjavik.is
Framkvæmdastjóri: Ingólfur Már
Ingólfsson.
Þjálfari: Helena Ólafsdóttir.
Aðstoðarþjálfari: Guðrún Jóna
Kristjánsdóttir.
Liðsstjóri: Sigríður Fanney Páls-
dóttir.
Sjúkraþjálfari: Svala Helgadóttir.
Formaður knattspyrnudeildar:
Magnús Ingimundarson.
Íslandsmeistari: (6) 1993, 1997,
1998, 1999, 2002, 2003.
Bikarmeistari: (3) 1999, 2002, 2007.
Deildabikarmeistari: (4) 1999, 2000,
2002, 2008.
Knattspyrnufélag
Reykjavíkur
Eftir Stefán Stefánsson
stes@mbl.is
„Við höfum æft vel í vetur, sem hefur
ekki verið okkur góður því við æfðum
að mestu utanhúss og það reyndi svo
sannarlega á, en nú er tilhlökkun og
spenna í hópnum með grænkandi
grasi. Við byrjuðum í byrjun nóvem-
ber, æfðum fimm og stundum sex
sinnum í viku en minnkuðum það í
lokin því álagið var mikið og stelp-
unum fannst á tímabili að þær væru
orðnar nokkuð þungar. Stelpurnar
hafa því verið viljugar og duglegar,
það hefur ekki þurft að þrýsta á þær
til að mæta á æfingar svo ég þarf ekki
að kvarta. Það veitir ekki af því sam-
keppni um stöðu í liðinu er mikil, við
erum með 21 leikmann í hópnum og
það veitir ekki af því við fundum fyrir
því í fyrra að við máttum illa við því
að lenda í meiðslum. Auðvitað skiptir
miklu hvað gerist þegar lykilleik-
menn detta út og mér sýnist að þrír
leikmenn fari utan í skóla og þá verða
hinir að vera klárir.
Helena fékk stuðning
Við fórum ekki neitt utan til æfinga
því landsliðið var á ferðinni í Portú-
gal. Svo kostar heilmikið að fara
svona ferðir svo við ákváðum að
sleppa því, taka frekar æfingahelgi í
bænum og eitthvert húllumhæ síð-
ar.“
Helena fékk dyggan stuðning við
að styrkja liðið. „Edda Garðarsdóttir,
sem einnig er leikmaður, tók að sér
þrekþáttinn og lyftingarnar sem við
ákváðum að taka fastari tökum og ég
sé mikinn mun á stelpunum. Það er
fín lína að vera leikmaður og þjálfari
en hún hefur leyst það mjög vel og
stelpurnar hafa komið vel út úr þrek-
prófum. Við þurftum að taka á þessu
því ég fylgdi þessu ekki nóg eftir þeg-
ar ég var ein með liðið og vildi sjá
bætingu í þessum málum svo ég er
mjög sátt enda þarf þetta að vera í
lagi þegar mótið hefst. Það var rætt
um daginn að stelpurnar væru í of-
þjálfun en ég er ekki sammála því.
Það er frekar spurning um æfinga-
leiki og tímasetningar hjá landsliðun-
um og ég er ekki alsæl yfir þeim en
hef ekki áhyggjur af því, þær hrista
það af sér og ég finn að þegar gengur
vel í landsliðinu er létt yfir þeim,“
sagði Helena.
Hún hefur náð að styrkja liðið með
varnarjaxlinum Guðrúnu Sóleyju
Gunnarsdóttur og Maríu B. Ágústs-
dóttir markverði, en er ekki viss um
að hún njóti krafta markadrottning-
arinnar Olgu Færseth og Aliciu Max-
ine Wilson úr vörninni.
„Leikmenn eins og Guðrún eru
ekki á hverju strái, gríðarlegur styrk-
ur að fá hana með sína miklu reynslu
auk þess að vera með KR-hjarta. Svo
er gott að fá Maríu í markið, við vor-
um með Írisi í fyrra og hún stóð sig
mjög vel en María er með gríðarlega
reynslu. Varnarleikurinn ætti því að
vera sterkari enda höfum við fengið á
okkur fá mörk. Hins vegar hefur
Olga ekki sagt mikið um hvort hún
verður áfram, auðvitað heldur maður
í vonina um að hún komi inn en ég get
ekki byggt liðið á því núna. Það tók
tíma að láta liðið ná saman eftir að
hún hætti – því hún er leiðtogi og lék
frábærlega í fyrra. Svo vitum við ekki
hvort Alicia kemur aftur. Fyrir vikið
þurftu stelpurnar að vinna sig út úr
því en mér finnst það hafa gengið
vel,“ sagði þjálfarinn en slær þó ekki
af þegar kemur að markmiðum.
„Við höfum ekki farið formlega yfir
markmið en þau eru samt skýr, við
vitum að við erum með lið sem getur
unnið titil svo það er auðvitað mark-
miðið. Það væri fáránlegt að segja að
við stefndum á annað sætið og við
stefnum á titil eða titla. Við erum með
leikreynt lið með marga reynslubolta
og þeir vilja góðan árangur. Það eru
alltaf kröfur í KR, þó ekki meira en
venjulega og við gerum sjálfar mestu
kröfurnar. Við erum í þessu til að
vinna og ég finn að það er meðbyr,
fólk sér að allt er hægt og við getum
margt svo það kemur með.“
Helena býst við spennandi deild
þar sem mörg lið gera atlögu að verð-
launum. „Deildin gæti orðið
skemmtileg. Við höfum spilað við öll
hin liðin. Ég gæti trúað að Valur og
KR berjist á toppnum áfram en
Breiðablik með Vöndu Sigurðardótt-
ir sem þjálfara gerir eflaust góða
hluti. Stelpurnar þar eru auðvitað
eldri núna og þær í 19 ára landsliðinu
eru þungamiðjan í liðinu. Svo er
Stjarnan og Keflavík en allir eru að fá
útlendinga svo ég geri ráð fyrir að
fara inn í nýtt mót,“ sagði Helena.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR,
þurfti að endurskipuleggja lið sitt
við brotthvarf Olgu Færseth
Morgunblaðið/ÞÖK
Fyrirliðinn Hrefna Jóhannesdóttir, hinn marksækni leikmaður KR, hefur tekið við fyrirliðabandi liðsins.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR.
Morgunblaðið/Sverrir
Á ferðinni Hólmfríður Magnúsdóttir, besti leikmaður Íslandsmótsins 2007,
er hér á ferðinni með knöttinn í leik gegn Breiðabliki.
& ,+
? !
+
/'
? %
?
+
-/
' ,
$ ,
A %
, +C<
A$
' $
+ 0
'
#
* />
><%
1232
1228
124:
1241
1242
1242
1226
1242
1243
124:
1246
1244
1227
1:5
6
35
59
14
1
6
13
51
27
1::
74
6
82
6
16
89
8
6
6
7
76
48
176
:
6
54
6
6
7
6
6
6
6
18
86
16
6
6
:4
13
6
6
2
6
1
14
;(
,' ./0
% > 0
C
% ,
;
16
77
86
1 '-
,.
:
9
3
4
18
19
13
12
71
78
,0/23-
,.
7
8
5
2
11
1:
''-
,.
?)
1247
1242
42
19
6
6
3
6
,+0 !,
A ,(
+
,+,(&
% E
&$< (,-
* %
1241
1247
124:
1247
1247
1242
17:
44
84
98
176
9
1:
73
1
9
18
6
4
B
%
C
D
„SUMARIÐ leggst vel í mig og ég
hlakka til því ég held að það geti
orðið skemmtilegt, sérstaklega eft-
ir að landsliðið er farið í gang og
mótið stærra með fleiri leikjum auk
þess sem ég er líka ánægð með liðið
mitt,“ sagði Helena Ólafsdóttir,
þjálfari KR-kvenna, um sumarið.
Það tók tíma
að láta liðið
ná saman