Morgunblaðið - 09.05.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 9
Karitas S. Ingimarsdóttir frá BÍ
Linda Rós Þorláksdóttir frá Val
Í láni tímabilið 2008.
Beth Anna Ragdale til Englands
Donna Cheyne til Skotlands
Una Harkin til Norður-Írlands
*+
Stofnað: 1929.
Heimavöllur: Keflavíkurvöllur.
Aðsetur félags: Keflavíkurvöllur v/
Hringbraut, 230 Reykjanesbær.
Sími: 421-5188.
Fax: 421-4137.
Netfang: kef-fc@keflavik.is.
Heimasíða: www.keflavik.is.
Framkvæmdastjóri: Friðrik Rúnar
Friðriksson.
Þjálfari: Salih Heimir Porca.
Liðsstjóri: Kjartan Einarsson.
Sjúkraþjálfari: Elfa Sif Sigurð-
ardóttir.
Formaður knattspyrnudeildar:
Þorsteinn Magnússon.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Deildabikarmeistari: Aldrei.
Keflavík, ungmenna-
og íþróttafélag
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Við fórum til Portúgals í æfinga-
ferð og vorum í vikutíma. Þar voru
serbnesku leikmennirnir reyndar
ekki með okkur. En það gekk bara
vel og ferðin styrkti hópinn. Ég var
með tuttugu manna hóp á æfingum
í allan vetur sem var ánægjulegt.
Fleiri heimamenn munu fá tækifæri
því með þennan hóp fannst mér
óþarfi að fá fleiri en þrjá erlenda
leikmenn til liðsins. Og erlendu
leikmennirnir eru búnir að vera í
Keflavík í þrjú til fjögur ár. Ég er í
raun bara með einn nýjan leikmann
í hópnum en það er Linda Rós Þor-
láksdóttir sem kom frá Val. Ég er
því með leikmannahóp í höndunum
sem ég er búinn að móta og það er
mjög jákvætt. Ég tel að við verðum
sterkari í sumar en í fyrra enda
reynslunni ríkari.“ Keflvíkingum
var eins og áður segir spáð 4. sæt-
inu af forráðamönnum félaganna.
Porca segir það ekki óraunhæft að
spá liðinu því sæti en segist ætla að
stríða stóru liðunum: „Maður vill
alltaf gera betur en í fyrra. Ég
reikna með því að við verðum
sterkari en í fyrra og getum strítt
KR og Val. Markmiðið er að taka
eitt skref fram á við og berjast um
eitt af þremur efstu sætunum. Það
er engin spurning um að við mun-
um taka einhver stig af stóru lið-
unum. Ég trúi ekki öðru. Við erum
búin að æfa mjög vel og munum því
hafa kraft og úthald til þess að
klára leiki. Þetta er spurning um
hversu mikið leikmennirnir vilja
sækja fram og hvort þær vilja
meira. Ef við viljum vinna leiki og
komast ofar í töflunni þá verðum
við að sækja. Það þýðir ekkert að
bíða aftarlega á vellinum og skapa
sér bara eitt og eitt marktækifæri.
Við verðum auðvitað að spila sókn-
arbolta, svona upp að því marki
sem andstæðingurinn leyfir.“
Skandall ef Valur vinnur ekki
Spurður hvort hann vildi spá um
hvaða lið yrði meistari stóð ekki á
svarinu hjá Heimi Porca: „Valur er
með stærsta og sterkasta leik-
mannahópinn og það yrði skandall
ef þær ynnu ekki. Svo einfalt er
það.“
Salih Heimir Porca, þjálfari Keflvíkinga
„Munum taka
stig af stóru
liðunum“
Ljósmynd/Víkurfréttir
Tilbúnar í slaginn Jelena Petrovic, Danka Podovac, Salih Heimir Porca, þjálfari Keflavíkurliðsins, og Vesna Smiljkovic.
G
&
/
% A
? !
<%
,+@(/+
@ )
$
,+0A %
H * '
!
1245
1242
1244
1244
1221
1226
1248
1247
1242
1248
1227
1227
1226
88
77
9
19
6
6
97
73
18
:1
:
8
17
1
6
6
1
6
6
18
16
1
14
6
6
1
6
6
6
6
6
6
1
12
6
15
6
6
6
4
6
6
6
6
6
6
6
6
1
17
;(
,' ./0
0
%
><%
@
;
9
2
16
11
1:
19
13
1 '-
,.
7
4
76
71
75
79
,0/23-
,.
8
:
3
18
15
14
77
78
7:
''-
,.
?)
1247
1248
52
18
6
6
6
6
% >/+
& < & )
C
,
' /
< ,
C
%0
*0#
(G
$
!=< I
1245
1244
1232
1226
1226
1227
1242
1245
1226
94
81
:1
8
3
9
71
6
8
7
6
4
1
6
6
6
6
6
4
B
%
C
D
SALIH Heimir Porca hefur verið að
gera góða hluti með Keflavík-
urkonur. Þeim er spáð fjórða sæti á
eftir risunum þremur í íslenskri
kvennaknattspyrnu, KR, Val og
Breiðabliki. Það þarf svo sem ekki
að koma mjög á óvart þar sem
Porca fór með Keflavíkurliðið alla
leið í bikarúrslit á síðustu leiktíð.
Hann segir erlendum leikmönnum
liðsins hafa fækkað úr sex í þrjá en
engu að síður eigi Keflavík að geta
tekið stig af Val og KR.
KEPPNISBOLTINN í Lands-
bankadeild kvenna kemur frá
Uhlsport og heitir gripurinn TC
Precision Classic. Undanfarin
tvö ár hefur Mitre verið keppn-
isboltinn í deildinni og segir
Hrefna Huld Jóhannesdóttir
leikmaður KR að það sé ekki
mikið vandamál að sparka hvaða
bolta sem er inn í mark andstæð-
inganna. „Við erum reyndar ekki
búnar að prófa nýja keppnisbolt-
ann en við fáum kynnast honum
á æfingunni á morgun (í dag).
Það sem við höfum heyrt frá
karlaliðinu sem er búið að prófa
boltann er að hann er aðeins
þyngri en sá sem var notaður í
fyrra. Ég hef ekki velt þessu
mikið fyrir mér en ef það á að
nota þessa tegund í efstu deild
karla og kvenna á Íslandi þá
hlýtur hann vera góður.“
Hrefna segir að leikmenn KR
séu ekki að spá mikið í þær teg-
undir af boltum sem eru í boði en
sitt sýnist hverjum. „Fótboltar
eru misjafnir. Sumir eru léttir,
aðrir þungir. Þetta er ekkert
ósvipað því að velja sér fótbolta-
skó. Skórnir eru misjafnir og það
er erfitt að gera öllum til hæfis,“
sagði Hrefna Huld Jóhann-
esdóttir.
Hefur ekki
áhyggjur af
keppnisboltanum